Morgunblaðið - 08.08.1990, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990
Fjölskyldan við rómverskar rústir í borginni Jerash. Frá vinstri: Hjalti Gíslason, Gísli H. Sigurðs-
son, Halldór Gíslason, Birna G. Hjaltadóttir og Þorbjörg Gísladóttir. Myndin er tekin árið 1988.
íslensk flölskylda:
Komu til Kúvæt einni
viku fyrir innrásina
GÍSLI H. Sigurðsson læknir flutti ásamt Qölskyldu sinni til Kú-
væt árið 1985. Upphaflega ætlaði Qölskyldan að vera tvö til þijú
ár í burtu en að þeim liðnum ákvað hún að framlengja dvölina.
Þetta kom meðal annars fram í viðtali við Sigurð Helgason, föð-
ur Gisla H. Sigurðssonar yfírlæknis á Mubarak-háskólaspítalanum
í Kúyætborg. Sigurður sagði að Gísli og eiginkona hans Birna
G. Hjaltadóttir hefðu snúið til Kúvæt eftir mánaðar sumarfrí á
íslandi viku fyrir innrás íraka í Kúvæt aðfaranótt fímmtudagsins.
Að sögn Sigurðar hafði fjöl-
skyldan búið átta ár í Svíþjóð
þegar hún flutti til Kúvæt árið
1985. Hann sagði að algengt
væri að evrópskir læknar störfuðu
í landinu um nokkurra ára skeið
og ætti góð rannsóknaraðstaða
fyrir lækna eflaust sinn þátt í
því. Auk þess að sinna kennslu-
skyldu við læknadeild háskólans
og verkefnum á spítalanum hefur
Gísli unnið að læknisfræðilegum
rannsóknum og skrifað greinar
um svæfingar og gjörgæslustörf
í virt læknarit. Sigurður segir að
íjölskyldan hafi látið vel að dvöl-
inni í Kúvæt og Gísli hafi ekki
kosið að taka við stöðum sem
honum hafa verið boðnar í
Svíþjóð. í fyrrasumar var hann
gerður að prófessor við lækna-
deild háskólans í Kúvæt-borg.
í samtalinu við Sigurð kom
meðal annars fram að hann hefði,
ásamt eiginkonu sinni Þorbjörgu
Gísladóttur, heimsótt fjölskylduna
í vor. Hann sagðist meðal annars
hafa ferðast um írak sem enn
bæri menjar stríðsins við írani en
því lauk árið 1988. Sigurður tal-
aði sérstaklega um leiðina frá
Bagdad til Basra og benti á að
meðfram veginum hefði mátt sjá
mikið af yfirgefnum þéttbýlis-
kjörnum. í Basra hefðu hertæki
enn staðið á götunum. Kúvæt-
borg sagði hann að trónaði eins
og eyja í hafi uppúr eyðimörk-
inni. Hann segir borgina nýtísku-
lega enda hafi hún að mestu ver-
ið hyggð síðast aldarfjórðung. Að
sögn Sigurðar býr mikið af verka-
fólki af afrískum og asískum upp-
runa í Iandinu. Áberandi sé fólk
frá Sri Lanka, Súdan og Indlandi
en stór hluti þess sendi vinnulaun
sín til fjölskyldna í heimalandinu.
Sigurður sagði að menntakerfið í
Kúvæt væri ágætt og benti á að
meirihluti læknanema við háskól-
ann væru konur.
Sigurður sagði að Gísli og fjöl-
skylda væru yfirleitt einn til tvo
mánuði á Islandi á hveiju sumri
og að hjónin hefðu verið nýkomin
til Kúvæt þegar innrásin skall á.
Börn þeirra þrjú, 17, 15 og 12
ára, eru á íslandi.
Ekkert amar að Is-
lendingum í Kúvæt
„Utanríkisráðuneytið til-
kynnti okkur í morgun að ekk-
ert amaði að Islendingunum í
Kúvæt,“ sagði Valborg Lárus-
dóttir í samtali við Morgunblað-
ið í gær. Valborg er móðir
Kristínar Kjartansdóttur sem
búsett er í Kúvætborg ásamt
eiginmanni sínum og íjórum
börnum þeirra. Upplýsingarn-
ar fékk utanríkisráðuneytið í
gegnum sendiráðið í Stokk-
hólmi. Símasambandslaust hef-
ur verið til Kúvæt siðan á
fímmtudaginn.
Valborg sagði að Kristín hefði
kynnst eiginmanni sínum, sem er
Palestínumaður, í Þýskalandi árið
1968 en þangað fór hún á sum-
arnámskeið eftir að hafa tekið
kennarapróf. í Aachen í Þýska-
landi bjuggu þau í sex ár eða
þangað til eiginmanni Kristínar,
Sameh Stefáni Salah Issa, var
boðin prófessorsstaða í bygging-
arverkfræði við háskólann í Kú-
vætborg. Ráðningarsamningurinn
gilti til fjögurra ára en hann hef-
ur fjórum sinnum verið endurnýj-
aður. Issa var nýbúinn að undir-
rita ráðningarsamning ‘ til næstu
fjögurra ára þegar írakar réðust
inn í Kúvæt. Kristín hefur kennt
við þýska sendiráðsskólann und-
anfarin ár. í skólanum eru börn
starfsmanna í sendiráðinu.
í samtalinu við Valborgu kom
meðal annars fram að útlendingar
í Kúvæt mega ekki eiga neinar
eignir en flölskyldan á hús á Kýp-
ur þar sem hún dvelst einn til tvo
mánuði á hveiju sumri. Á sumrin
hefur Ijölskyldan einnig komið til
íslands en Valborg sagði að börn-
in töluðu litla íslensku. Á heimil-
inu er töluð þýska en börnin eru
líka altalandi á ensku. Elst þeirra
eru Samieh Vala 21 ár en hún
hefur nýlega lokið prófi úr banda-
rískum háskóla í Kúvæt. Næst er
Nadia 17 ára, nýorðin stúdent frá
enskum menntaskóla í Kúvæt, þá
Salah 11 ára strákur og yngst er
Salma 5 ára. Tengdaforeldrar
Kristínar búa einnig í Kúvæt en
þau eru nú stödd á Gazasvæðinu.
Yngri bróðir Issa býr í Kúvæt.
Fjölskyldan Issa. Frá vinstri: Kristín Kjartansdóttir, Samieh Vala,
Nadia, Salah og Sameh Stefán Salah Issa. Á myndina vantar
yngsta barnið, Sölmu.
Mikið Ijón afskemmd
arverkum á Isafírði
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Frá slysstað á mótum Kleppsvegar og Dalbrautar. Eins og sést á
myndinni eru bílarnir, einkum sá minni, stórskemmdir.
Fjórir slasast í árekstri
tveggja sendibíla
NOKKRIR ísfirzkir unglingar,
um sextán ára gamlir, gengu
Húsavík;
Útlit fyrir
góða berja-
sprettu
Húsavík.
BÖRN frá Húsavík eru farin
að tína ber í skyrið sitt, þó
ekki séu þau vel þroskuð. En
útlit er fyrir góða berja-
sprettu á þesu sumri ef kom-
andi tíð reynist hagstæð.
Heiðarbóndi tjáði mér að út-
lit með krækibeijasprettu væri
sérstaklega gott og svipað
mætti segja um bláberin, en
hann vissi minna um aðalblá-
berin því lítið væri um blábeija-
lyng í sinni landareign.
- Silli
berserksgang á tjaldstæðum
bæjarins og í Golfskálanum um
helgina og ollu miklu tjóni.
Skemmdarvargarnir hafa verið
handsamaðir og er málið upp-
lýst.
Aðfaranótt laugardags skeyttu
unglingamir skapi sínu á salernis-
aðstöðunni á tjaldstæðinu. Þar
vom hreinlætistæki og speglar
brotin, sparkað í hurðir og veggi
og allt skemmt, sem hægt var að
skemma, að sögn lögreglu. Þá um
kvöldið gerði þessi sami hópur sér
ferð í Golfskálann, kveikti meðal
annars í stórri og dýrri sláttuvél,
eyðilagði gosdiykkjasjálfsala og
vann spjöll á innanstokksmunum.
Aðfaranótt sunnudagsins voru
sömu óknyttapiltamir enn á ferð
við tjaldstæðin, en þá greip lög-
regla þá og lét svara f'yrir gerðir
sínar. Tveimur var stungið í stein-
inn meðan á rannsókn málsins
stóð. Málið er nú upplýst, og hafa
nokkrir játað að vera valdir að
skemmdunum. Talið er að ungl-
ingarnir hafi valdið yfir 200.000
króna tjóni.
FJÓRIR voru fluttir á slysadeild
eftir harðan árekstur sendibíls
og lítillar rútu á mótum Klepps-
vegar og Dalbrautar um hádegið
í gær.
Rútunni var ekið vestur Klepps-
veg og beygt áleiðis suður Dal-
braut, í veg fyrir sendibílinn sem
var á leið austur Kleppsveg. Öku-
maður sendibílsins á austurleið fót-
brotnaði og sat fastur í flakinu svo
að björgunarbifreið slökkviliðsins
þurfti að kóma á vettvang til að
losa um hann. Farþegi í framsæti
bílsins slasaðist einnig, svo og tveir
þeirra þriggja sem voru í hinum
bílnum.
Franskra
ferðamanna
leitað í Land-
mannalaugum
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
og björgunarsveitir voru kallað-
ar út á mánudagsmorgun vegna
sex franskra ferðamanna, sem
villst höfðu í Landmannalaug-
um á sunnudaginn. Fann þyrlan
hópinn skömmu eftir að leit úr
lofti hófst.
Frönsku ferðamennirnir, fimm
konur og einn karlmaður, höfðu
lagt af stað í göngu að morgni
sunnudags og sást síðast til þeirra
um klukkan ijögur síðdegis. Þegar
hópurinn skilaði sér ekki um kvöld-
ið var hafin leit og var henni hald-
ið áfram morguninn eftir. Leituðu
þá landverðir í Landmannalaugum
aðstoðar björgunarsveita og Land-
helgisgæslunnar, sem sendi þegar
þyrlu á staðinn.
Þyrlan fann Frakkana á
skömmum tíma og amaði ekkert
að þeim nema hvað þeir voru
matarlausir.