Morgunblaðið - 08.08.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990
29
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
Norðurlandamótið í hestaíþróttum í Danmörku:
—
Islenskur sigur í þrem greinum
ÞAÐ voru Svíar og íslendingar sem sigruðu í öllum greinum á Norð-
urlandamótinu, að hlýðnikeppninni undanskilinni. Einar Öder Magn-
ússon sigraði í fimmgangi á Hlyn frá Sötöfte en hann varð einnig
stigahæstur keppenda. Jón Steinbjörnsson sigraði í gæðingaskeiði á
Steingrími frá Glæsibæ og Styrmir Snorrason sigraði í 250 metra
skeiði á Baldri frá Sandhólum á 22,5 sek.
Sænska stúlkan Ia Lindholm
sigraði í fjórgangi á Sókratesi og
landi hennar, Peter Haggberg, sigr-
aði í tölti á Sikli. Það er greinilegt
að mikill uppgangur hefur átt sér
stað í Svíþjóð því allir keppendur í
töltúrslitum og fjórir af fimm í ijór-
gangsúrslitum voru frá Svíþjóð. ís-
lendingum gekk vel í fimmgangs-
greinum. Styrmir Snorrason varð
annar í gæðingaskeiði og fimmti í
fimmgangi og Einar Öder varð ann-
ar í 250 metra skeiði og fimmti í
gæðingaskeiði. Jón Steinbjörnsson
varð aftur annar í fimmgangi og
íjórði í 250 metra skeiði. Góðir
tímar náðust í skeiðinu og mun tími
Styrmis og Baldurs sá besti sem
náðst hefur á Norðurlöndunum að
frátöldu íslandi.
Mótið var haldið í Vilhelmsborg,
sama stað og Evrópumótið var hald-
ið á síðasta ári sællar minningar
en þá þótti aðstaðan fyrir neðan
allar hellur. Nú hefur orðið mikil
breyting á. Búið er að rækta upp
moldarflögin og vellirnir hafa stór-
batnað sem best sést á tímunum í
skeiðinu. Er svæðið nú orðið grænt
og fallegt á að líta að undanskilinni
miðjunni á hringvellinum sem enn
er ógróin.
Erfiðlega virðist ganga að vekja
áhuga fyrir Norðurlandamótunum
en hver þjóð mátti senda tuttugu
keppendur. Danir sem kepptu á
heimavelli voru ekki einu sinni með
fullt lið, vantaði tvo upp á. Reyndar
vakti nokkra athygli slæmt gengi
Dana á mótinu en þeir virðast hafa
dalað síðustu árin. Komust danskir
keppendur hvergi ofar en í þriðja
sæti nema í hlýðninni og er af sem
áður var.
Hestakostur mótsins þótti í lak-
ara lagi og þá sérstaklega í fjór-
gangi og tölti. Þá vakti athygli
hversu fáir áhorfendur mættu en
að sögn Péturs Jökuls Hákonarson-
ar sem dæmdi á mótinu voru móts-
gestir eitthvað yfir tvöhundruð að
keppendum meðtöldum. Taldi Pétur
líklegustu skýringuna á fámenninu
þá að kuldalegt viðmót mótshaldara
og hátt verðlag í fyrra hafi fælt
frá. Aðspurður kvað Pétur viðmótið
hafa verið það sama nú og í fyrra
og greinilegt að Danir ættu ýmis-
legt ólært í mannlegum samskipt-
um.
Úrslit á mótinu:
Tölt
1. Peter Haggberg, Svíþjóð, á Sikli.
2. Maria Cambrandt, Svíþjóð, á
Glað.
3. Pia Poulsen, Svíþjóð, á Lýsingi.
4. Hreggviður Eyvindsson, Svíþjóð,
á Bikari frá Vatnsleysu.
5. Helene Nilsson, Svíþjóð, á
Stjarna.
Fjórgangur
1. Ia Lindholm, Svíþjóð, á Sókratesi.
2. Hege Mikkaelsen, Noregi, á
Glaumi.
3. Helene Nilsson, Svíþjóð, á
Stjarna.
4. Hreggviður Eyvindsson, Svíþjóð,
á Bikari frá Vatnsleysu.
5. Lotta Bergquist, Svíþjóð, á Senior
Ara.
Fimmgangur
1. Einar Óder Magnússon, íslandi,
á Hlyn frá Sötöfte.
2. Jón Steinbjörnsson, íslandi, á
Steingrími frá Glæsibæ.
3. Dorte Stougaard, Danmörku, á
Léttfeta.
4. Jenny Mandal, Svíþjóð, á Tinna.
5. Styrmir Snorrason, íslandi, á
Baldri frá Sandhólum.
Gæðingaskeið
1. Jón Steinbjörnsson, íslandi, á
Steingrími frá Glæsibæ.
2. Styrmir Snorrason, íslandi, á
Kertafleyting á Reykjavíkurtjöm
TÍU íslenskar friðarhreyfíngar standa að kertafleytingu á
Rcykjavíkurtjörn á morgun, fimmtudaginn 9. ágúst. Athöfnin er
í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar
Hírósíma og Nagasaki 6. og 9. ágúst um leið og lögð er áhersla
á kröfuna um kjarnorkulausan heim.
Safnast verður saman við suð- borgarlæknir.
vesturbakka Tjarnarinnar (við
Skothúsveg) klukkan 22.30 á
fimmtudagskvöldið og verður þar
stutt dagskrá þar sem Ragnheiður
Tryggvadóttir leikari les ljóð.
Fundarstjóri verður Skúli Johnsen,
Þetta er sjötta árið sem kertum
er fleytt á Tjörninni af þessu til-
efni. Að venju verða flotkerti seld
á staðnum.
í samstarfshópi friðarhreyfing-
arinnar eru eftirtalin samtök: Frið-
arhópur fóstra, Friðarhópur lista-
manna, Friðarhreyfing íslenskra
kvenna, Friðarmömmur, Friðar-
og mannréttindahópur BSRB,
Menningar- og friðarsamtök
íslenskra kvenna, Samtök her-
stöðvaandstæðinga, Samtök
lækna gegn kjarnorkuvá, Samtök
íslenskra eðlisfræðinga gegn
kjarnorkuvá, Samtök um kjam-
orkuvopnalaust ísland.
(Fréttatilkynning)
Baldri frá Sandhólum.
3.-4. Bo K. Sörensen, Danmörku, á
Brelli.
3.-4. Sören Witt, Danmörku, á
Gáska.
5. Einar Öder Magnússon, íslandi,
á Hlyn frá Sötöfte.
250 metra skeið
1. Styrmir Snorrason, íslandi, á
Baldri frá Sandhólum, 22,5 sek.
2. Einar Öder Magnússon, íslandi,
á Hlyn frá Sötöfte, 23,55 sek.
3. Stefan Langvad, Danmörku, á
Klæng, 23,79 sek.
4. Jón Steinbjörnsson, íslandi, á
Steingrími, 24.83 sek.
Hlýðnikeppni B
1. Bodyl Fryd, Danmörku, á
Djákna.
Italskt herskip í Reykjavíkurhöfti
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Einar Öder Magnússon á Hlyn frá Sötöfte, Norðurlandameistari í
fímmgangi og samanlögðum stigum.
2. Hege Mikkelsen, Noregi, á 3. Lone Nielsen, Danmörku, á
Glaumi. Torfa.
San Giorgio liggur við Ægisgarð.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
ÍTALSKA herskipið, San Gi-
orgio, kom til hafnar í
Reykjavík á mánudaginn. Á
föstudaginn heldur skipið til
Kanada en þaðan til Banda-
rikjanna, Bermúdaeyja, Kana-
ríeyja og heimahafnar sinnar á
Livorno á Italíu. Almenningi
gefst kostur á að skoða skipið
í dag og á morgun milli klukkan
16.00 og 18.00.
Á blaðamannafundi, sem skip-
herrann á San Giorgio boðaði til
í gær, kom fram að skipinu er
ætlað að aðstoða varðsveitir ítala
og Sameinuðu þjóðanna í Líbanon.
Þá á það að vera til taks ef bjarga
þarf fólki af hættusvæðum við
strendur, ef jarðskjálfta ber að
höndum, flóð eða aðrar náttúru-
hamfarir. í skipinu er auk þess
aðstaða til þjálfunar sjóliðsfor-
ingja. Skipveijar eru 457, þar af
220 sjóliðsforingjaefni í sinni
fyrstu ferð um Atlandshafið.
San Giorgio, sem er 133.3 metr-
ar á lengd og 24 metrar á breidd,
getur flutt sex þyrlur. Á því eru
þrír prammar, sem hver ber 14
tonn af mönnum og búnaði, auk
þriggja 67 tonna brynvagna. í því
Ragnar Borg, aðalræðismaður ítala á íslandi, Piero Giannon, stýri-
maður, Santisi Domenico, sjóliðsforingi, Mario Saverio Salvatorelli,
skipherra, og S. Fanelli, höfuðsmaður.
er skurðstofa, tannlæknastofa, og
sjúkrastofur auk aðstöðu fyrir
áhöfnina. Fjórir læknar og fjórir
hjúkrunarfræðingar eru í áhöfn
skipsins.
1 gær lögðu sjóliðar af skipinu
blómsveig á leiði óþekkta sjó
mannsins í Fossvogskirkjugarði
og síðdegis keppti knattspyrnulið
úr áhöfn skipsins við KR-inga á
KR vellinum. Á fimmtudaginn
leikur hljómsveit skipsins á Lækj-
artorgi milli klukkan 14.30 til
17.30.
Herskipið var skráð í ítalska
flotann árið 1987.
7. ágúst.
FISKMARKAÐUR hf.
Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 87,00 82,00 84,48 2,624 221.683
Þorskur(st.) 90,00 86,00 87,00 0,617, 53.682
Smáþorskur 56,00 56,00 56,00 0,521 29.176
Karfi 26,00 26,00 26,00 ' 0,032 832
Ufsi 37,00 37,00 37,00 0,492 18.204
Steinbítur 34,00 34,00 34,00 0,017 578
Lúða 320,00 215,00 270,55 0,118 31.925
Lýsa 29,00 29,00 29,00 0,088 2.552
Samtals 79,54 4.509 358.632
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(sL) 88,00 76,00 83,09 2,961 246.020
Ýsa (sl.) 153,00 15,00 61,34 1,256 77.041
Karfi 40,00 29,00 39,43 53,633 2.114.594
Ufsi 51,00 38,00 50,29 12,559 631.546
Steinbítur 74,00 65,00 65,31 0,973 63.551
Langa 20,00 20,00 20,00 0,447 8.940
Lúða 405,00 245,00 273,69 0,141 38,590
Skarkoli 20,00 20,00 20,00 0,373 7.460
Skötuselur 305,00 170,00 233,43 0,083 19.375
Blandað 15,00 15,00 15,00 0,026 390
Undirmál 30,00 30,00 30,00 0,403 12.090
Samtals 44,18 72,876 3.219.808
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 100,00 77,00 93,54 53,293 4.985.030
Ýsa 118,00 55,00 102,76 4,505 462.948
Karfi 40,00 34,00 37,98 15,827 601.160
Ufsi 47,00 35,00 45,87 20,504 940.570
Steinbítur 74,00 49,00 51,04 0,098 5.002
Langa 24,00 24,00 24,00 0,110 2.640
Lúða 315,00 202,00 282,91 0,343 97.039
Skarkoli 29,00 20,00 24,56 1,014 24.906
Skötuselur 375,00 185,00 274,82 0,085 23.360
Blandað 57,00 57,00 57,00 0,999 56.943
Samtals 74,39 96,778 7.199.598
í dag var selt úr bátum frá Vestmannaeyjum — 124 kör. Á morgun verður
selt úr dagróörabátum.