Morgunblaðið - 08.08.1990, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990
Gólfkorkflísar + filma
Nú eru
ípocork
og
XW/
Wicanders
msíL Kork-O'Plast
korkflísamerkin komin
undirsama þak.
Nú framleidd í sömu
verksmiðju af
S.A. íPortúgal.
Verða seldar í verslunum
víða um land bráðlega.
Einkaumboðfyrir
ffi
S.A.
Ármúla 29, Múlatorgi, sími 38640
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ALLT
fyrirGLUGGANN
úrval, gæði, þjónusta
Eldhúsgluggatjöld í
úrvali.
Ódýr spönsk glugga-
tjaldaefni í breiddinni
270 sm.
Mikiö úrval af glugga-
tjaldaefnum.
Rekum eigin saumastofu.
Ráöleggingar, máltökur
og uppsetningar ef óskaö
er.
Sendum í póstkröfu um
land allt.
Einkaumboð á íslandi
Síðumúla 32 - Reykjavík
Sími: 31870 - 688770.
Tjarnargötu 17 - Keflavík ■
Sími: 92-12061.
fclk í
fréttum
Eins og- sjá má er mikill munur
á Mandy eins og hún var og
eins og hún er nú ...
VEIKINDI
Mandy veslast upp
Hin 19 ára Mandy Smith, eig-
inkona rokkarans hálfsex-
tuga, Bills Wymans í Rolling
Stones, fer nú hallloka fyrir al-
varlegum nýrnasjúkdómi, Addi-
sons-veiki. Hún vegur aðeins 40
kíló og léttist með degi hveijum.
Wyman hefur að sögn lítið viljað
af frú sinni vita og aðeins einu
sinni heimsótt hana síðustu vik-
urnar. Brá honum mjög í brún
er hann sá hana og staldraði
aðeins við i tvo tíma, hvarf þá á
brott og taldi hugmyndir vina
sinna um að fresta öllu til að
vera við hlið konu sinnar fráleit-
ar.
Læknar hinnar ungu Mandy
telja eigi víst að hún nái að snúa
taflinu við. Sjálf segist hún þess
viss að sér batni. Hún telur að
sveppasýking í þörmum valdi því
að hún fái ofnæmi fyrir nær öll-
um mat. „Það sem ég kem niður
nærir mig ekkert,“ hefur verið
haft eftir henni.
COSPER
IÍ387 O"
©PIB
Er hér ekkert baðherbergi. Hversvegna var mér ekki sagt
það þegar ég flutti hingað fyrir þremur vikuni?
Irwing Wallace.
METSOLUHOFUNDUR
Irwing
Wallace
allur
Rithöfundurinn Irwing Wallace
lést fyrir skömmu, 74 ára
gamall. Banamein hans var krabba-
mein. Wallace var metsöluhöfund-
ur, en umdeildur. Hann ritaði alls
15 bækur á þijátíu ára tímabili, eða
frá 1960 er hann sneri sér að bókar-
skriftum. Fyrsta bókin hans er ef
til vill sú frægasta, The Chapman
Report, sem fjailar um hóp kvenna
sem taka þátt í kynlífskönnun.
Einnig mætti nefna bækur hans
The Prize og The Fan Club. Alls
hafa bækur hans selst í 120 milljón-
um eintaka.
Wallace fæddist í Chicago og var
af rússnesku bergi brotinn. Eftir
skóla gerðist hann blaðamaður á
tímaritum, en söðlaði síðan um og
fór að rita kvikmyndahandrit og
stóð í slíku á sjötta áratugnum.
Hann undi þó hag sínum illa sem
handritahöfundur fyrir kvikmyndir
og sagði stétt sína hafða að háði
og spotti. Því var það að hann afréð
að freista gæfunnar sem rithöfund-
ur og varð það ævistarf hans. Bók-
menntagagnrýnendur tættu verk
hans iðulega í sig, en stéttarbróðir
hans, Sidney Sheldon, segir um
hann að lesendur séu þeir sem vitið
hafa og þeir hafi sannað ágæti
Wallace sem rithöfundar með því
að kaupa verk hans í milljónatali.
SKOIITSALA
ecco
Laugavegi 41,
sími 1 3570.
Skóverslun Þórðar,
Kirkjustræti 8,
sími 14181.
ÐAGVI8T BARIVA
m
DAGVIST BARNA
TILKYNNIR:
Leyfisveitingar til daggæslu á einkaheimilum
hófust að nýju 1. ágúst og standa til
30. september 1990.
Einkum er skortur á dagmæðrum í Vest-
urbæ, Laugarnes, Háaleitis- og Bakkahverfi
í Breiðholti.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu Dagvistar barna í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu.
Vakin er athygli á því, að samkvæmt lögum
um vernd barna og ungmenna, nr. 53/1966
er óheimilt að taka börn í daggæslu á einka-
heimilum án leyfis barnaverndarnefnda við-
komandi sveitarfélags.
Allar nánari upplýsingar veita umsjónarfóstr-
ur í síma 27277 daglega frá kl. 8.30 til 9.30
og^kl. 13 til 14 eða á skrifstofu Dagvistar í
Hafnarhúsinu.