Morgunblaðið - 14.08.1990, Qupperneq 1
48 SIÐUR B/
STOFNAÐ 1913
181. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jórdanía:
Viðbúnaður vegna
hugsanlegra átaka
Amman, Jórdaníu. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
IBN TALAL Hussein Jórdaníukonungur hefur hvatt til tafarlausra
ráðstafana í landi sínu til þess að hefja þjálfun óbreyttra borgara
undir hugsanleg átök milli Bandaríkjamanna og íraka. Þá vill hann
að skipulögð verði hjúkrunarþjónusta vítt og breitt um landið. Er
augljóst að hér telja menn vissara að vera við öllu búnir. Jórdanía
er á milli íraks og ísraels.
„Ef írakar hleypa af svo miklu
sem einu skoti í áttina að banda-
risku hermönnunum er viðbúið að
ísraelar geti ekki lengi á sér setið
og skjóti eldflaugum sinum á
Bagdad og þar með væri allt farið
í bál og brand. Við getum ekki
annað en horfst í augu við það að
Jórdanía yrði þar með dregin inn
í málið með_ ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum. Ótta við að svo fari
gætir hér óneitanlega,“ sagði jórd-
önsk kona í samtali í gær.
Af viðræðum við Jórdani síðustu
daga má ráða, _að Saddam Hus-
sein, leiðtogi íraka, nýtur hér
langtum víðtækari stuðnings en
fréttir í vestrænum fjölmiðlum
hafa gefið til kynna. Innrás íraka
í Kúvæt réttlæta menn ekki en
segja að arabaþjóðirnar á svæðinu
hefðu átt að fá tíma til að reyna
að finna leið úr vandanum í stað
þess að Saudi-Arabar sneru sér
strax til Bandaríkjamanna. Al-
mennt verður vart við talsverða
gremju í garð Bandaríkjanna og
George Bush forseta. Hefur komið
til mótmælaaðgerða við banda-
ríska sendiráðið.
„Ekki komu Bandaríkjamenn til
hjálpar þegar ísraelar hertóku land
Palestínumanna. Veittu þeir
Líbanon aðstoð þegar Sýrlendingar
réðust þangað? Það er sannarlega
ekki fullt samræmi í stefnu þeirra,“
eru orð sem heyrast títt hér á bæ
nú.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um hafa Jórdanir samþykkt að
taka þátt í að beita íraka efnahags-
Olíuskipinu var snúið frá er það
nálgaðist olíuhöfnina Muajjiz en þar
hugðist áhöfnin taka um borð oliu,
sem dælt hafði verið um olíuleiðslu
íraka er liggur yfir Saudi-Arabíu
og flytja farminn til Marokkó. Tareq
Aziz, utanríkisráðherra íraks, sagði
á sunnudag að afskipti af olíuút-
flutningi íraka yrðu lögð að jöfnu
við stríðsaðgerð. George Bush
Bandaríkjaforseti lýsti hins vegar
yfir því um helgina að aðgerðir
Bandaríkjamanna miðuðust ekki
éinvörðungu við olíuútskipun íraka
heldur yrðu allir flutningar til lands-
ins stöðvaðir. Bandarískir embætt-
ismenn sögðu* í gær að hervaldi
yrði beitt í þessu skyni reyndist það
nauðsynlegt og stjórnvöld á Bret-
landi fyrirskipuðu yfirmönnum her-
skipa sinna á þessum slóðum að
koma í veg fyrir alla flutninga er
brytu í bága við viðskiptabann Sam-
einuðu þjóðanna. Hermt er að
Frakkar telji hins vegar að sam-
þykkt Öryggisráðs SÞ heimili ekki
beina valdbeitingu. Flugmóðurskip-
ið John F. Kennedy mun í næstu
Ógnarstjórn Jósefs Stalíns:
Milljónir Sovétborg-
ara fá uppreisn æru
Mciskvu._ Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna, gaf í gær út víðtæka
tilskipun þar sem milljónir fórnar-
larnba ógnarstjórnar Jósefs
Stalíns fá uppreisn æru. Þar er
kveðið á urn endurreisn borgara-
legra réttinda til lianda fólki, sem
sent var í útlegð eða stungið í
fangelsi vegna stjórnmálaskoðana
sinna, þjóðernis, trúar eða af öðr-
um ástæðum.
Þúsundir fórnarlamba Stalíns
fengu uppreisn æru í valdatíð Níkíta
Khrústsjovs á sjötta áratugnum.
Endurskoðun þessa myrka skeiðs í
sögu Sovétríkjanna hófst svo ekki
að nýju fyrr en hún varð hluti af
umbótastefnu Gorbatsjovs. Tilskip-
un, sem stjórnvöld í Sovétríkjunum
gáfu út í janúar 1989, kvað á um
réttindi fólks sem dæmt var í sýndar-
réttarhöldum í tíð Stalíns. Einnig var
sett á fót nefnd sem hafði veitt tveim-
ur milljónum manna uppreisn æru í
júní síðastliðnum.
í tilskipun Gorbatsjovs segir að
glæpir Stalins hafi verið drýgðir í
nafni byltingarinnar, flokksins og
þjóðarinnar. Þar er Sovétlýðveldun-
utn fimmtán gefinn frestur til 1.
október til að leggja fyrir dómstóla
mál þeirra sem sviptir voru borgara-
legum réttindum undir valdstjórn
Stalins.
Minning-
arathöfn
við múrinn
Þess var minnst í
gær að 29 ár voru
liðin frá því bytjað
var að reisa Berlín-
armúrinn. Hér sjást
nokkrir borgarbúar
leggja blómsveig að
minnisvarða um Pet-
er Fachter, eitt af
fórnarlömbum
austur-þýsku landa-
mæravarðanna. Fac-
hter var skotinn er
hann reyndi að flýja
land 17. ágúst 1962.
Áttatíu manns voru
skotnir á flótta við
Berlínarmúrinn frá
því hann var reistur
13. ágúst 1961 fram
til 9. nóvember 1989.
Þann dag var múrinn
loks rofinn og nú er
lítið eftir af hinum
160 km langa stein-
steypuvegg.
Reuter
legum refsiaðgerðum. Svo virðist
þó sem það það hvarfli ekki að
neinum hér að því verði fylgt eftir
pg Jórdanir halda áfram að senda
írökum matvæli og nauðsynjar.
Samkvæmt fréttum breska dag-
blaðsins The Daily Telegraph er
mikil umferð um Ruwayshid-
landamærastöðina. Lest flutninga-
bifreiða flytur matvæli, byggingar-
efni, vélarhluta _og annan varning
frá Jórdaníu til Iraks. I hina áttina
er straumur olíuflutningabifreiða
sem flytja hráolíu til hafnarborgar-
innar Aqaba við Rauðahaf.
Saudi-Arabar hefta olíuútskipun Iraka:
Reuter
Jórdanskir stuðningsmenn Saddams Hussein íraksforseta mótmæla afskiptum Bandaríkjamanna af
Persaflóadeilunni. Víða hefur komið til sams konar mótmæla í ríkjum Araba á undanfórnum dögum.
Viðskiptabanni framfylgt
með hervaldi ef þörf krefiu*
þessara ríkja og Bandaríkjanna.
Saddam Hussein Iraksforseti
sagði á sunnudag að hann væri
reiðubúinn að endurskoða innlimun
Kúvæts ef fundin yrði lausn á ýms-
um svæðisbundnum ágreiningsefn-
um í þessum heimshluta svo sem
veru herliðs Sýrlendinga í Líbanon
og yfirráðum ísraela á hernumdu
svæðunum. Vestræn ríki höfnuðu
þessum hugmyndum forsetans
snimmhendis sem og stjórnvöld í
Egyptalandi.
Sjá fréttir á bls.18.
viku halda frá Bandaríkjunum til
Rauða hafsins. Frakkar hafa sent
flugmóðurskip áleiðis til Persaflóa
og Belgar og Hollendingar ætla
einnig að leggja fram herskip.
Þúsundir egypskra og banda-
t'ískra hermanna eru í viðbragðs-
stöðu við landamæri Saudi-Arabíu
og Kúvæt og segja heimildarmenn
að bæði Marokkóbúar og Sýrlend-
ingar hafi ákveðið að senda herlið
til landsins. írakar hafa vænt
Egypta um svik og hvatt stuðnings-
menn sína þar í landi og í Saudi-
Arabíu til að mótmæla samvinnu
- segja embættismenn í Bandaríkjunum
Washington, Dubai, Kairó. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Saudi-Arabíu
hafa neitað írösku olíuskipi um
leyfi til að halda til olíuhafnar á
Rauðahafsströnd Saudi-Arabíu.
Heimildarmenn Reuíers-frétta-
stofunnar í Saudi-Arabíu skýrðu
frá þessu í gær en þetta er í
fyrsta skipti sem reynir á við-
skiptabann Sameinuðu þjóðanna
gagnvart írak frá því að herafii
Saddams Husseins réðist inn í
Kúvæt. írakar höfðu áður lýst
yfír því að afskipti af ferðum
olíuskipa þeirra teldust stríðsað-
gerð. Embættismenn í Banda-
ríkjunum sögðu stjórnvöld þar
vestra tilbúin til að beita her-
valdi reyndist það nauðsynlegt
til að tryggja viðskiptabannið.