Morgunblaðið - 14.08.1990, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
13
.ekki bara kaíli
Þjóðarsátt -
orð að sönnu
eftirRafn Geirdal
íslendingar mega lwósa sér fyrir
eitt. Þeir hafa ríkisstjórn, sem tekst
á við erfíð vandamál, og leysir þau
með sóma. Þetta sanna dæmin með
lausn deilunnar við BHMR: þjóðar-
sáttl Þar er hreint og beint vísað í
að þetta sé gert í nafni þjóðarinnar,
til þess að hindra annað verðbólgub-
ál, mesta draug okkar íslendinga
síðustu tvo áratugi.
„Og við eigum ekki ein-
göngu að reiða okkur á
físk, fisk, físk eins og
við kunnum ekkert ann-
að!“
grimm víkingaþjóð eða fátæk' fiski-
mannaþjóð heldur stolt þjóð sem
stefnir hátt. Með því að láta ljós okk-
ar skína, eins og viti á bjargbrún,
vörpum við af okkur myrkviði liðinna
alda og hefjum nýja og bjartari tíð.
Það er kominn tími fyrir bjarmann
að lýsa í þjóðlífí okkar. íslendingar:
Verum samstillt í þjóðarsátt og stuðl-
um að alþjóðasátt meðal allra þjóða
heimsins!
Höfundur er skólastjóri.
Rafn Geirdal
Dóm-
kirkjan
Sumarferö eldri borgara í Dómkirkjusókn
Efnt verður til sumarferðar eldri borgara í Dóm-
kirkjusókn miðvikudaginn 15. ógúst nk. kl. 13.00.
Ekið verður um Kjós að Reynivöllum og til Þing-
valla. Kaffi drukkið ó Hótel Valhöll.
Þótttökugjald kr. 600,-
Þótttaka tilkynnist í síma 121 13 mónud. 1 3. ógúst
og þriðjud. 1 4. ógúst kl. 1 5— 1 7.
Sóknarnefnd
Ekkert hefur farið jafnilla með
okkur, því ör verðbólga skekkir allt
verðskyn og hefur leitt til rangra fjár-
festinga, óhóflegrar eyðslusemi og
gífurlegrar streitu. Það sem við þurf-
um í dag er aðeins eitt — og það er
Jafnvægi! Með því að tryggja jafn-
vægi í hagkerfinu getum við leyft
okkur að slaka á og skapa jafnvægi
hið innra. Ekkert getur verið nauð-
synlegra, því að með jafnvægi á
líkama og sál sköpum við jafnvægi í
umhverfi okkar á nýjan leik. Þannig
stuðlum við að góðri hringrás milli
okkar og umhverfisins.
Okkur ber að stuðla að jafnvægi
hér á jörðinni. Við erum eingöngu
hluti af lífskeðju náttúrunnar, sem
spannar allan heiminn. Loftinu, sem
vð drögum að okkur hér, hefur ein-
hver önnur lífvera andað frá sér ann-
ars staðar í heiminum. Vatnið, sem
við látum frá okkur, blandast saman
við vatn annars staðar í heiminum.
Jafnvel jarðskorpan er lifandi og á
sífelldri hreyfingu. Eldfjallaeyjan
okkar er byggð á lifandi eldi úr iðrum
jarðar, sem tekur á sig fast form, sem
er í raun aðeins örþunn eggjaskurn
á hreinum og beinum eldhnetti.
ísland er ung eyja í jarðsögunni
og á mótum tveggja heima. Vestur-
hluti eyjunnar tilheyrir Norður-
Ameríku; austurhluti hennar Evrópu.
Því erum við á tengipunkti þessara
tveggja heimshluta; austurs og vest-
urs! Ekki að undra að ísland var kjör-
inn vettvangur fyrir fund leiðtoga
risaveldanna tveggja.
ísland getur verið miðpunktur fyr-
ir friðarumræður á alþjóðavettvangi.
Það getur myndað fordæmi á sviði
umhverfisverndar. Það getur verið
ÞJÓÐ meðal þjóða sem myndar for-
dæmi um heimsfrið! Við erum ein
heimsfjölskylda! Við erum sífellt að
færast nær, eins og við tökum eftir
með þróun EB/EFTA = EES (sam-
eiginlegur evrópskur markaður) og
kurteisisheimsókn háttsetts fram-
kvæmdastjóra Evrópubandalagsins á
dögunum. Og við eigum ekki ein-
göngu að reiða okkur á fisk, fisk,
fisk eins og við kunnum ekkert ann-
að! Við erum vitsmunaþjóð með
sterka arfleifð, bæði í bókmenntum
og í erfðum. Við rekjum okkur til
konunga og fylgdarliðs þeirra. Þetta
býr í blóði okkar, þrátt fyrir harðbýli
í hundruð ára. Við höfum lausnir í
kollinum og við eigum að nota þær.
Við eigum að vera land friðar og
sátta og bjóða upp á alþjóðaráðstefn-
ur í þessa veru: „Friður á jörð“,
„Hreinsum jörðina, spornum gegn
mengun", „alþjóðasátt — gegn vopn-
um“. ísland getur orðið Genf norðurs-
ins. Þetta verður meginsérkenni okk-
ar; að vera hlutlaust ríki sem stuðlar
að heimsfriði.
Þegar við gerum þetta verðum við
þekkt meðal annarra þjóða sem leið-
andi afl í friðarumræðum. Við verðum
ekki lengur álitin hvaladráparar,