Morgunblaðið - 14.08.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990
Slípað í Slippnum
Hótel opnað næsta sum-
ar í Skjaldborgarhúsinu
íslenskii' sem erlendir ferðamenn
og væri undirbúningur að markað-
setningu hótelsins þegar hafin.
„Markaðssetningin hefur raunar
farið hraðar af stað en við reiknuð-
um með. Það má segja að við séum
þegar farin að eiga í samningavið-
ræðum við ýmsa aðila um bókanir
fyrir næsta sumar,“ sagði Aðalgeir.
NÝTT hótel mun taka til starfa á Akureyri næsta sumar. Verður
hótelið til húsa í Hafnarstræti 67 í hinu svo kallaða Skjaldborgar-
húsi. Herbergi í hótelinu verða alls nítján, þar af tvö einstaklingsher-
bergi og sautján tveggja manna herbergi. Aðalgeir T. Stefánsson,
eigandi Skjaldborgarhússins, sagði að reynt yrði að hafa aðbúnað
allan sem bestan og skapa hótelinu góðan orðstír. Þannig yrðu bað-
herbergi á öllum herbergjum, míní-bar og sjónvarp með möguleika
á gervihnattamóttöku. Húsið hefði líka verið endurbyggt að utan
sem innan og væri nú orðið sem nýtt. Verður hótelið rekið af hluta-
félagi í eigu Aðalgeirs og Ijölskyldu hans.
Skjaldborgarhúsið var byggt árið
1926 af Ungmennafélagi Akur-
eyrar og Góðtemplarareglunni á
Akureyri. Ráku þessi félög þarna
starfsemi sína um árabil og var þar
meðal annars stunduð glíma og
rekinn kvikmyndasalur. Hin síðari
ár var í húsinu starfrækt prent-
smiðja eða þangað til fyrir þremur
árum er Aðalgeir Stefánsson festi
kaup á því. Hefur hann byggt eina
hæð til viðbótar ofan á húsið og
er það nú alls sex hundruð fermetr-
ar á fjórum hæðum. Þá hefur hann
byggingarrétt beggja vegna hússins
á lóðum sem hann á. Það er því
ekkert því til fyrirstöðu að stækka
hótelið þegar fram í sækir ef þess
þykir þörf.
„Við ætlum að gera þetta mjög
vel úr garði svo að öll aðstaða verði
sem notalegust fyrir gesti okkar,“
sagði Aðalgeir. Herbergin yrðu öll
mjög rúmgóð og einnig væri stað-
setning hótelsins í hjarta bæjarins
mjög þægileg. Meðal annars væri
fjöldi veitingastaða í grenndinni.
Hann sagði að á jarðhæð yrði gesta-
móttaka, eldhús og veitingasalur
sem taka myndi um fimmtíu manns
í sæti. Á þremur efstu hæðunum
yrðu svo gestaherbergin. Stefnt
væri að því að gestir yrðu jafnt
Vildi hann einnig taka fram að
ekki væri ætlunin að kenna hótelið
við Skjaldborgarhúsið enda væri
það nafn í eigu annars fyrirtækis.
Fundið yrði nýtt og ferskt nafn og
væri nú verið að skoða nokkrar til-
lögur.
Nú er unnið að því að breyta
húsinu og er stefnt að því að opna
hótelið fyrrihluta næsta sumars
áður en háannatíminn hefst. Þijú
hótel eru rekin fyrir á Akureyri,
Hótel Stefanía, Hótel KEA og Hót-
el Norðurland. Tii skamms tíma var
einnig rekið Hótel Akureyri en
starfsemi þess var hætt á þessu
ári. Má geta þess að á árunum
1985-1988 varð 36% aukning á
gistinóttum á hótelum og gistihús-
um á Norðurlandi eystra.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hótel verður opnað í Skjaldborgarhúsinu við Hafnarstræti næsta
sumar.
Flug milli Zurich og Akureyrar;
SÍÐASTA flugið á milli Ziirich í
Sviss og Akureyrar á þessu ári
var farið á sunnudag en alls hafa
verið flognar sjö ferðir á milli
þessara staða í sumar. Sagði
Helen Dejak hjá Ferðaskrifstofu
Nonna á Akureyri, sem ásamt
ferðaskrifstofunni Saga Reisen í
Sviss hefur skipulagt þessar
ferðir, að þetta hefði gengið
mjög vel. Full nýting hefði verið
á fluginu að utan og þar að auki
hefðu rúmlega eitt hundrað Is-
lendingar flogið beint frá Akur-
eyri til Sviss. Á næsta ári væri
stefnt að því að byrja fyrr að
fljúga en á þessu ári eða þegar
í fyrstu viku júní. Síðasta flugið
yrði svo í lok ágúst og alls væri
stefnt að fjórtán ferðum, eða
helmingi fleiri en í sumar.
Helen sagði að þetta beina flug
milli Akureyrar og Sviss opnaði
ýmsa möguleika fyrir ferðaþjón-
ustuna á Norðurlandi og svo ekki
líka síst fyrir Norðlendinga sjálfa.
Nú þyrftu þeir ekki lengur að þvæl-
ast til Reykjavíkur með öllum þeim
kostnaði sem því tilheyrði til að
fljúga til útlanda. „Það var mjög
sicemmtileg tilfinning að vera stödd
úti á Akureyrarflugvelli á sunnu-
daginn og fylgjast með því þegar
fólk var að koma. Ég vona að Akur-
eyringar kunni að meta þetta svo
að aukning verði á þessu á næstu
árum. Þetta kaliar líka á ýmsar
breytingar til dæmis finnst mér nú
óhjákvæmilegt að opnuð verði
fríhöfn á Akureyri fljótlega. Þá
gæti líka komið að því að stækka
þyrfti flufjstöðina til að fá meira
rými fyrir farþega,“ sagði Helen.
Hún sagði þá útlendinga sem
hingað hefðu komið í sumar hafa
skipst í þrjá meginhópa. í fyrsta
lagi fólk sem hefði aðallega dvalið
á hótelum á Akureyri meðan á Is-
landsferðinni stóð og svo farið í
stuttar skoðunarferðir. Þá hefði
verið fólk, aðallega yngra, sem
hefði tekið sér bílaleigubíl og síðan
ferðast um eftir eigin höfði og loks
hefði verið fólk sem farið hefði í
lengri rútuferðir. Einnig hefði verið
boðið upp á dagsferðir þar sem flog-
ið hefði verið til Reykjavíkur og
síðan farið með fólk á Þingvelli og
að Gullfossi og Geysi. Að því loknu
hefði fólkið svo flogið aftur „heirn"
til Akureyrar.
Á næsta ári væri stefnt að því
að fá enn fleiri íslendinga út og
yrði meðal annars boðið upp á
skipulagðar hópferðir með farar-
stjóra. Einnig yrði lögð áhersla á
ferðir til Júgóslavíu en þangað
væri mjög auðvelt að fara frá
Zúrich, hvort sem farið væri með
bíl eða lest.
Þorleifur Þór Jónsson, ferða-
málafulltrúi hjá Iðnþróunarfélagi
Eyjaijarðar, segist hafa sent sam-
gönguráðherra minnisblað þar sem
vakin sé athygli á ákveðnum breyt-
ingum sem þurfi að gera á flugstöð-
inni. Það sé til dæmis fáránlegt að
þegar komufarþegar sækji farang-
ur sinn þurfi þeir að ryðjast í gegn-
um röð farþega sem eru að skrá
sig inn. Þetta valdi miklum óþæg-
indum og því nauðsynlegt að endur-
skipuleggja flugstöðina. Hann sagði
að það myndi líka leysa mörg
vandamál ef komið yrði upp sér-
stöku svæði fyrir farþega sem bún-
ir eru að fara í gegnum vegabréfs-
skoðun, vopnaleit og annað og því
tæknilega komnir úr landi. Myndi
það til dæmis opna möguleika á
beinu flugi frá Ákureyri til Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar á
Keflavíkurflugvelli þar sem farþeg-
ar gengu síðan beint inn á transit-
svæðið þar. Til þess að þessu mætti
koma á svo og fríhöfn þyrfti að
færa vöruafgreiðslu Flugleiða í sér-
húsnæði. Við það myndi skapast
mikið rými innan dyra sem hægt
væri að nota til þessara hluta.
Júlí var metmánuð-
ur á tjaldstæðinu
ALDREI hafa fleiri ferðamenn
gist á tjaldstæði Akureyrar en í
síðasta júlimánuði. Alls voru
gistinætur á tjaldstæðinu við
Þórunnarstræti 11.000 í júlí sem
er tvöföldun frá árinu 1985. Þá
voru gistinætur í júlí 5.300 en
þess má geta að í júlí er sem
lang mest er um ferðamenn.
Flestir gistu á tjaldstæðinu 20.
júlí sl. en þá nótt voru gestir 680.
Það er einnig athyglisvert að 60%
þeirra sem gistu á tjaldstæðinu í
síðasta mánuði voru íslendingar en
ef aftur er miðað við júlí árið 1985
þá hefur fjöldi íslendinga þrefaldast
sem gista á tjaldstæðinu. Þá voru
íslendingar 2.200 eða 42% sem
hlutfall af heildarfjölda.
Þorleifur Þór Jónsson, ferða-
málafulltrúi hjá Iðnþróunarfélagi
Eyjafjarðar, sagði það vera sérstak-
lega ánægjulegt hversu Islending-
um hefði fjölgað sem gæfu sér tíma
til að ferðast um landið og skoða
það. Það væri hins vegar orðið ljóst
að núverandi tjaldstæði væri orðið
of lítið fyrir allan þennan fjölda.
Bæri það einungis um 3-400 gesti
ef þjónusta við þá ætti að vera við-
unandi. Nú væri verið að skoða
þessi mál í heild sinni og vinna
skipulagstillögur. Hefðu menn aug-
un á svæði vestan við Verkmennta-
skólann sem hentugt gæti verið
fyrir tjaldstæði.
Saurbæjarhreppur:
Bóndi varð
undir kvígu
Ytri-Tjörnum.
ÞAÐ slys varð á bænum
Skáldsstöðum í Saurbæjar-
hreppi í Eyjafirði í siðustu
viku að bóndinn þar á bæ
varð undir kvígu er hann
hugðist handsama.
Bóndinn var að ná taki á
kvígunni en ekki vildi betur til
en að þau skúllu bæði til jarð-
ar. Lenti kvígan ofan á bóndan-
um og slasaðist hann illa á
baki og herðablaðsbrotnaði.
Var hann fluttur með sjúkrabíl
á Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri þar sem hann gekkst
undir aðgerð. Mun hann verða
frá vinnu um margra mánaða
skeið.
— Benjamín
Stefnt að tvöfalt fleiri
ferðum næsta sumar