Morgunblaðið - 14.08.1990, Síða 30

Morgunblaðið - 14.08.1990, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 1990 t Ástkaer eiginmaður minn, BJÖRN VIKTORSSON, Grenigrund 3, Akranesi, lést í sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 11. ágúst. Sigríður Pétursdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, KRISTJÁN HERMANNSSON, Kársnesbraut 84, Kópavogi, lést á Borgarspítalanum þann 11. ágúst. Hulda Tryggvadóttir, Björg Kristjánsdóttir, Magnús Sigurðsson. t Móðir okkar, BIRNA KRISTÍN FINNSDÓTTIR, Holtagötu 2, Akureyri. lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 11. ágúst. Helga Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Sigurjón Jónsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, JÓHANN FRIÐRIK KÁRASON, Vallhólma 14, Kópavogi, lést á Landspítalanum laugardaginn 11. águst. Amalía Þórhallsdóttir, Ester Jóhannsdóttir, Agnes Jóhannsdóttir, Bryndís Fjóla Jóhannsdóttir, Auður Sveinbjörg Jóhannsdóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HULDA GYÐA ÞÓRÐARDÓTTIR, Fornhaga 26, andaðist laugardaginn 11. ágúst. Anton Sigurðsson, Haraldur Antonsson, Karin Hartjenstein, Steinar Antonsson, Sigurður Antonsson, Ingólfur Antonsson, Eria Eggertsdóttir, Hjalti Sigurðsson, Jóna Kristmannsdóttir og barnabörn. t Útför fraenku minnar, MÖRTHU STEFÁNSDÓTTUR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 8. þ.m., ferfram frá Fossvogs- kapellu miðvikudaginn 15. ágúst ki. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Aðalsteinn Jóhannsson. t Hjartkær eiginmaður minn, HAFSTEINN HALLDÓRSSON, Meistaravöllum 23, andaðist í Landspítalanum 1. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aldraðrar móður, barna, barnabarna og systkina, Björg Svava Gunnlaugsdóttir. t Útför eigínmanns míns, MAGNÚSAR DALMANNS HJARTARSONAR, Skúlagötu 72, Reykjavík, fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Minning: Magnús Pálsson glerslípunarmeistarí Okkur Unni langar að minnast svila míns og elskulegs mágs henn- ar, Magnúsar Bergman Pálssonar. Við höfum orðið til skiptis, fyrst Unnur. Ég var 9-10 ára, þegar hann kom inn í Hringbrautarhópinn. Hann var glæsimenni, eldri en systir mín og í fastri stöðu. Á þessum árum vann hann hjá Lúðvík Storr, í glerslípun og speglagerð. Síðar setti hann á stofn sitt eigið slíperí, fyrst úti á Reykjavíkurflugvelli og síðan í Skip- holtinu. Hann hafði gaman af að hlú að okkur systkinunum og man ég sérstaklega eftir einni gjöfinni. Það voru hvítir kvarthælaskór, sem síðar urðu mínir brúðarskór á amerískri grund. Eftir að við Unna komum heim frá Ameríku eftir stríðið, eru mínar fyrstu minningar um Bóa skíðaferð- imar upp í Dverghamar. Þar hitt- umst við alltaf um páskana og var þá keppt á skíðum við liðið úr Kommaskálanum sem svo var kallað- ur, og Bói liðtækur í þeirri keppni. Bói var frábær sundmaður, og sem ungur maður æfði hann sundknatt- leik og keppti fyrir íslands hönd á Ólympíuleikunum í Berlín, 1936. Alla ævina stundaði hann mikið sund og líkamsrækt og var geysivel að manni. Ég man alltaf eftir því, að einu sinni uppi í Dverghamri var verið að tusk- ast og tók hann þá einn af dvergun- um, sem var allt að því helmingi þyngri en hann, og fleygði honum flötum á afturendann. Mig tók hann bara í bóndabeygju, ef ég þóttist geta eitthvað. Á tímabili vorum við saman í hand- bolta uppi í Austurbæjarskóla og var þá alltaf mikið fjör og hart barist, og endaði oftar en einu sinni með rifbroti. Síðan vorum við mörg ár saman í badminton á sama stað. Faðir minn og Bói urðu miklir mátar enda listamaðurinn ofarlega í honum bæði til sálar og líkama. Bói gerði mikið af því að skrautslípa. Bjó hann til mikið af dömuspeglum, litlum til að hafa í veski, með nöfnum og allskonar útflúri. Einnig skrautslípaði hann bakka og hurðarr- úður. Pabbi hafði það fyrir sið að hóa saman vinunum á mánudagskvöldum uppi í málarakompunni, á háaloftinu í Áusturbæjarskólanum, og var þá mikið spjallað, oft um andleg mál- efni. Þá var alltaf dreypt á líkjör. Magnús var vel skáldmæltur og kast- aði hann þá eitt sinn fram þessari stöku: Löngum hafa erfið ár afl úr kögglum skorið. Þetta ljúfa líkjörtár léttir manni sporið. Ótal stökur og nokkur kvæði liggja eftir Magnús og er margt af því til skrifað, og er tímabært að gefa það út á prenti. í lifanda lífi fékkst Magn- ús ekki til að gera slíkt, enda með afbrigðum hógvær maður og ófram- hleypinn, en nú ættu ættingjamir að láta verða af því. Það hafa alltaf verið sterk tengsl milli okkar fjölskyldna, Ladda með sinn stóra bamahóp og við með okk- ar tvær dætur. Höfum við átt marg- ar góðar stundir saman bæði í gleði og sorg. Bói vann í sinni glerslípun meðan kraftar entust og var þá oft gott að skreppa í kompuna á loftinu í Austur- bæjarskólanum, eftir erfiðan dag. Síðust árin urðu honum mjög erfið vegna veikindanna og stóð þá fjöl- skyldan alltaf eins og klettur við hlið hans. Ljúflyndi hans var með af- brigðum þessi síðustu ár. Já, kæra Ladda, nú em þáttaskil í lífí þínu. Frá okkur berast óskir um góð og skemmtileg ár framund- an. Njóttu lífsins. Unna og Einar í dag, þriðjudaginn 14. ágúst, verður Magnús B. Pálsson lagður til hinstu hvflu. Hann fæddist í Reykjavík 19. nóvember árið 1912 en lést 6. ágúst sl. Foreldrar hans vora Guðný Magnúsdóttir og Páll Stefánsson. Þau eignuðust sex böm, elstur er Valgeir, þá Magnús, Svava, en hún lést á 6. ári, Hrefna, Svavar er lést árið 1968, og yngstur er Sig- urður. Magnús hóf ungur sína lífsbar- áttu, eða um fermingaraldurinn, er hánn réðst í vinnu á glerslípunar- verkstæði Ludwig Storr. Þar starfaði hann í um 24 ár þar til hann byijaði sjálfur með glerslípun á Reykjavíkur- flugvelli árið 1949. Að fímm áram liðnum flutti hann reksturinn í Skip- holt 9 og starfrækti þar Glerslípun og speglagerð Magnúsar B. Pálsson- ar þar til hann hætti störfum sökum aldurs. Árið 1937 kvæntist Magnús eftir- lifandi konu sinni, Ragnheiði Þyri Nikulásdóttur, og varð þeim sex bama auðið. Nöfn þeirra í aldursröð era: Ragna Þyri, Svanhildur, Guðný Edda, Nikulás Friðrik, Anna Stef- anía og Stefán. Svanhildur og Stefán era látin fyrir aldur fram. Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu Magnús og Ragnheiður á Bergþóragötu 14 en fluttu í Skipholtið árið 1954 og var þar heimili þeirra lengst af. Magnús var alla tíð mikill áhuga- maður um íþróttir allskonar og var meðal annars keppnismaður í sund- knattleik. Sem slíkur keppti hann fyrir íslands hönd á Ólympíuleikun- um í Berlín 1936. En er keppnisferill- inn var að baki hélt hann alltaf tryggð við sundíþróttina og stundaði hana svo lengi sem heilsan leyfði. Þótt skólaganga Magnúsar hafí ekki verið löng var hann víðlesinn og skipuðu ljóðabækur þar veglegan sess, enda orti hann sjálfur töluvert. Efst í huga mér á þessari stundu er lítil vísa sem hann gerði um æskuna, sem sýnir glöggt hvem hug hann bar til hennar, en vísan hljóðar svo: Eg elska æskunnar læti, æskunnar gleði og þor. Æskunnar hvellandi kæti og kvikléttu sigurspor. Því æskan er frá á fæti og fögur sem heillandi vor. Þegar ég nú rita þessar fátæklegu línur um hann afa minn koma ótal minningar upp í hugann, minningar um glaðlyndan mann sem ávallt var hrókur alls fagnaðar. Engan mann annan hefi ég þekkt sem hefur átt jafn auðvelt með að sjá björtu hlið- amar á tilverunni þótt syrti í álinn, en það er ein mesta guðsgjöf sem nokkram manni getur hlotnast. Og í dag þegar kveðjustdndin rennur upp, sem oft ér stund söknuðar og trega, yljar það mér nú um hjartar- ætur að ég held að hann afi hafí átt góða ævi. Ragnheiður Þyri Sigurðardóttir Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI48. SIMI76677 + Eiginkona mín, BORGHILDUR JÓNSDÓTTIR, sem andaðist 7. þ.m., verður jarðsungin fimmtudaginn 16. ágúst, kl. 13.30. frá Akureyrarkirkju, - Jakob Frímannsson. + Frændi minn, EIRÍKUR EINARSSON, frá Þóroddstöðum í Ölfusi, andaðist á Kumbaravogi laugardaginn 11. ágúst. Fyrir hönd systra og annarra vandamanna, Einar Valberg Sigurðsson. + Systir okkar, SIGRÍÐUR BACHMANN fyrrverandi forstöðukona Landspitalans, andaðist 10. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Systkini hinnar látnu. LEGSTEINAR MOSAIKH.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 Helga Marín Sigurjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.