Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Eystrasaltsríkin og Kúvæt Forystumenn Eystrasalts- ríkjanna hafa með stuðn- ingi þjóða sinna tekið óhaggan- lega ákvörðun um að kasta af ríkjum sínum hinum sovésku hlekkjum. Þetta hefur enn ver- ið staðfest í samtölum sem Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur átt við ráðamenn í Eistlandi og sagt var frá hér í blaðinu í gær. í tilefni af ummælum Þorsteins ítrekar Morgunblaðið þá skoðun, að íslensk stjórn- völd eigi að taka af skarið og viðurkenna sjálfstæði Eystra- saltsríkjanna í samræmi við ákvarðanir stjórnvalda í þeim. Augu heims beinast nú að örlögum smáríkisins Kúvæts sem hefur verið innlimað með hervaldi í óbilgjarnt nágranna- ríki. Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna hafa ríki heims sam- einast í fordæmingu á yfir- gangi íraka og tekið höndum saman um að endurheimta sjálfstæði Kúvæts. Forystumenn Eystrasalts- ríkjanna vilja að litið sé á örlög þjóða sinna í ljósi hernámsins í Kúvæt. Þeir segja, að Sovét- menn hafi hertekið Eistland, Lettland og Litháen fyrir 50 árum eftir að hafa gert glæp- samlegan samning við Hitler og í skjóli stríðsástands í Evr- ópu. Síðan hafi þessi þrjú sjálf- stæðu ríki, sem áttu aðild að Þjóðabandalaginu, verið inn- limuð í Sovétríkin. Vestræn lýðræðisríki hafi þó aldrei við- urkennt þann gjörning. Sovét- stjómin hafi síðan staðfastlega neitað að fallast á kröfur íbúa landanna þriggja um að hún hætti hinu ólögmæta hernámi. Hún hafi neitað að viðurkenna hernaðarárás sína á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Þegar bent er á hve margt er líkt með örlögum Kúvæta nú og Eystrasaltsþjóðanna fyr- ir hálfri öld magnast aðeins reiðin yfir því, að ráðamenn í Moskvu skuli ekki vilja verða við réttmætum sjálfstæðiskröf- um þjóðanna. Jafnframt verður skýrari tvískinnungurinn í af- stöðu margra öflugra ríkja, sem segjast styðja málstað þjóðanna þriggja en vilja ekki gera það með því að viður- kenna sjálfstæði þeirra. Gildi röksemdarinnar um að með því séu þær að halda verndarhendi yfir iNjikhaíl Gorbatsjov Sovét- forseta minnkar jafnt og þétt eftir því sem fjarar undan for- setanum heima fyrir. Öll sov- ésku lýðveldin hafa nú með einum eða öðrum hætti risið upp gegn miðstjórnarvaldinu í Moskvu og Boris Jeltsín, for- seti Rússlands, sýnist nú vera að taka forystuna um mótun efnahagsstefnunnar. Hann hefur einnig lýst skilningi á kröfum Eystrasaltsríkjanna um sjálfstæði. Hin markvissa og samhenta andstaða þjóða heims gegn innlimun Kúvæts í írak yrði trúverðugri ef Eystrasaltsríkj- unum væri veittur meiri stuðn- ingur í verki með viðurkenn- ingu á sjálfstæði þeirra. Misheppn- uð stöng Um helgina dvaldist hér fastafloti Atlantshafs- bandalagsins. Hann kom hing- að fyrst 1968 og urðu þá tölu- verð átök vegna mótmæla her- stöðvaandstæðinga. Flotinn hefur komið oftar síðan og allt- af hafa mótmælin gegn honum orðið máttlausari og minnst núna. Herstöðvaandstæðingar hafa þó verið að burðast við að reisa flotanum níðstöng og á sínum tíma var það gert til að mótmæla byggingu Járn- blendiverksmiðjunnar á Grund- artanga. Má draga þá ályktun, að gripið sé til þessa fornlega og heiðna úrræðis þegar menn treysta sér ekki lengur til að beijast fyrir málstað sínum með rökum? Eða þegar upp- dráttarsýki hefur náð tökum á félagsskap þeirra? Hver sem svörin eru við þessum spurningum, er það ekki til að styrkja málstað há- skólamenntaðra ríkisstarfs- manna að velja þann kost í launabaráttu sinni að reisa stöng með þorskhaus fyrir framan stjórnarráðshúsið og fara með bölbænir yfir ráða- mönnum þjóðarinnar. Þessi aðferð spillir fyrir málstað þeirra sem nota hana. I nútímaþjóðfélagi eru allt aðrar leiðir færar en fyrr á öldum til að gæta réttar síns. Vilja full- trúar vísinda og mennta í ríkis- kerfinu innleiða galdratrú að Höfum fylgst með ára- tuga frelsisbaráttu ykkar - sagði Þorsteinn Pálsson í ávarpi sínu við setningu litháíska þingsins Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti eftirfarandi ávarp við setningu Æðsta ráðsins, þings Litháens, í Vilnius í gær. Auk þingmanna og ríkisstjórnar var Vytautas Landsbergis, forseti Litháens, viðstaddur setninguna. Avarp Þorsteins fer hér á eftir. Herra forseti, virðulegu fulltrúar í Æðsta ráði Litháens! Mér er það mikill heiður að vera boðið að ávarpa Æðsta ráð Lithá- ens á þessum sögulegum tímum í miðri sjálfstæðisbaráttu ykkar. Þjóð mín, íslenska þjóðin, hefur um áratuga skeið fylgst með bar- áttu ykkar fyrir sjálfstæði og frelsi og hefur aldrei viðurkennt innli- mun Eystrasaltsþjóðanna í Sov- étríkin. Þróunin í Eystrasaltslöndunum sl. eitt og hálft ár hefur aukið vonir manna um allan heim um að Eystrasaltsþjóðirnar munu í framtíðinni njóta frelsis og sjálf- stæðis. Mér eru vel kunnir þeir miklu erfiðleikar og þær flóknu aðstæður sem ríkja í samskiptum Eystrasaltsþjóðanna við Sovétrík- in. Ég hlýt að lýsa aðdáun minni á því hversu frábærlega vel þið hafið kynnt málstað ykkar og fylgt baráttu ykkar eftir. Það er hafið yfir allan vafa að sterk og mark- viss forysta forseta ykkar og ríkis- stjómar og þings hefur aflað ykkur virðingar og stuðnings um alla heim. ísland er ein af smæstu þjóðum heims, en þingleg hefð okkar nær meira en þúsund ár aftur í tímann. Hugsjónir okkar eru því helgaðar frelsi, lýðræði og sjálfsákvörðunar- rétti allra þjóða. En hvað getur ísland gert til þess að styðja sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsþjóðanna? Sem þátttak- andi í Atlandshafsbandalaginu getum við látið rödd okkar heyrast þar til stuðnings sjálfstæðiskröfum Eystrasaltsþjóðanna. Hið sama getum við og munum gera í Norð- urlandaráði og ég mun leggja til að Eystrasaltsþjóðirnar fái stöðu áheyrnarfulltrúa á þingi Norður- landaráðs. Á Alþingi lagði flokkur minn þegar í fyrra til að ísland viðurkenndi fullveldi Litháens. Ég mun þegar Alþingi kemur saman á nýjan ieik í október nk. endur- flytja þá tillögu með þeim breyting- um að viðurkenningin nái til allra Eystrasaltslandanna. _ Ég mun einnig hvetja Alþingi íslendinga til að taka upp formleg samskipti við þing Eystrasaltsríkjanna. Herra forseti! Heimsókn mín til Litháens og Eistlands hefur verið mjög lærdómsrík. Við höfum hitt fólk sem hefur af mikilli sannfær- ingu barist fyrir lýðræði og sjálfs- ákvörðunarrétti þjóða sinna. Við viljum öll lifa í veröld þar se'm frelsi og lífsöryggi ríkir. Sú ósk mun aðeins ná að rætast ef veröld- in verður byggð fijálsum þjóðum Þorsteinn Pálsson. í fijálsum löndum hvort sem er að ræða stór eða lítil ríki. Það er mín von að Eystrasalts- þjóðirnar muni sem fyrst njóta þeirrar gæfu að komast í hóp fijálsra og fullvalda ríkja.“ Frumvarp um stjórn Húsnæðisstofnunar: Miðar að því að stofn- unin verði lögð niður * * - segir Asmundur Stefánsson, forseti ASI ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands, segir að sér sýnist að hugmyndir félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um Húsnæðisstjórn miði að því að leggja hana niður og gera að deild í félagsmálaráðuneytinu. Alþýðusambandið skipar tvo fulltrúa í sljórn Húsnæðisstofnunar og Vinnuveitendasamband íslands einn, en sam- tals eru tíu í stjórninni. „Mér sýnist á ýmsu að þetta sé aðgerð sem muni sigla húsnæðis- málunum í enn frekari vandræði. Það er greinilega meginmmarkmið- ið með þessari breytingu að henda út fulltrúum verkalýðshreyfingar- innar og draga úr sjálfstæði stofn- unarinnar, þannig að völd ráðherra yfir henni verði meiri heldur en er í dag,“ sagði Ásmundur. Hann sagðist ekki hafa fengið frumvarpið í hendur og því ekki geta tjáð sig um það að öðru leyti. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagðist ekki geta tjáð sig um málið fyrr en hann hefði fengið frumvarpið í hendur Samband íslenskra sveitarfélaga: Morgunblaðið/KGA Á föstudaginn var vígður í Hafnarfirði nýr grunnskóli, Hvaleyrarskóli. Tveir nemendur skólans, Aðalheiður Sigfúsdóttir og Ólafur Hilmarsson, klipptu á borða við athöfnina, en þau tóku fyrstu skóflustunguna að byggingunni Nýr skóli vígður á Hvaleyrarholti NÝR skóli, Hvaleyrarskóli, var vígður í Hafnarfirði á föstudag- inn. Skólinn mun hýsa 1. til 10. bekk grunnskóla en í vetur verða þar um 140 nemendur á aldrinum 6 til 10 ára. Fyrirhugað er, að Hvaleyrar- skóli verði alls 3.357 fermetrar að flatarmáli og er fyrsti áfangi byggingarinnar 1.267 fermetrar. Nú í haust verða teknir í notkun 707 fermetrar, en næsta haust verður allur fyrsti áfangi kominn í notkun. Skólinn á að hýsa alla bekki grunnskóla, 1. til 10. bekk, og verða tvær bekkjardeildir í hverj- um árgangi. Nú í vetur verða um 140 nemendur á aldrinum 6 til 10 ára í skólanum. Tíu kennarar starfa þar í vetur, auk skóla- stjóra, Helgu Friðfinnsdóttur, og sex annarra starfsmanna. Þórður Skúlason ráð inn franikvæmdastj on STJÓRN Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur ákveðið að ráða Þórð Skúlason, sveitarstjóra á Hvammstanga og varaþingmann Al- þýðubandalagsjns í Norðurlandskjördæmi vestra, framkvæmdasljóra sambandsins. Á fundi stjórnarinnar í gær var ráðning Þórðar sam- þykkt með öllum greiddum atkvæðum. Umsóknarfrestur um stöðu fram- kvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga rann út 26. júlí og barst 21 umsókn. Sigurgeir Sig- urðsson, formaður sambandsins segir að frá þeim tíma hafi stjórnin leitað að niðurstöðu varðandi ráðn- ingu í stöðuna. „Við töldum mikil- vægt að fínna hæfan mann og jafn- framt að ná samkomulagi um ráðn- ingu hans. Ég tel að allir umsækj- endur hafi verið fyllilega hæfir, en samkomulag náðist ekki fyrr en nú.“ Að sögn Sigurgeirs er gert ráð fyrir að Þórður Skúlason taki við stöðu framkvæmdastjóra í nóvem- ber næstkomandi. Framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra sveitarfé- laga er jafnframt framkvæmda- stjóri Lánasjóðs sveitarfélaga og Bjargráðasjóðs. Fjárlagagerð fyrir næsta ár: Hef ekki lagt til aukna skattheimtu segir Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra „ÉG HEF ekki lagt fram tillögur um að hlutfall ríkisins hækkaði frá þessu ári,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson Qármálaráðherra, aðspurður um hvort skattheimta ríkisins ykist við fjárlagagerð næsta árs. Svavar Gestsson menntamálaráðherra sagði nýlega í við- tali við Alþýðublaðið að hér vanti 6-9 milljarða ki’óna viðbótarskatt- heimtu til að ná sambærilegu skattstigi eins og í nágrannalöndum. Svavar sagði meðal annars í viðtalinu: „Það er augljóst mál að það verður að bæta við sköttum." „Ég hef ekki lagt fram neinar tillögur um skattahækkanir við þessa fjárlagagerð,“ sagði Ólafur. Svavar sagði í framangreindu við- tali meðal annars, að talað hafi verið um að taka upp hátekjuþrep á tekjuskatt og skatt á íjármagns- tekjur. Ölafur sagði að fjárlagagerðinni miðaði þqkkalega, qn kyaðst vilja að öðru leyti fylgja þeirri reglu að ræða fjárlögin ekki fyrr en gerð þeirra væri lokið. „Það geta auðvit- að alltaf orðið innbyrðis breytingar í tegundum skatta, en ég hef ekki lagt fram tillögur um að skatthlut- fall myndi hækka frá ári til árs,“ sagði fjármálaráðherra. „Það sem ég held að Svavar hafi verið að víkja þarna að er sú staðreynd, að tekjur ríkisins hér á íslandi af sköttum eru miklu minni heldur en í sambærilegum velferð- arþjóðfélögum og ég hef óskað eftir því, að OECD framkvæmdi útreikninga á því, hvert skattahlut- fallið væri hér á íslandi samanbo- rið við það sem væri í öðrum lönd- um og niðurstaða þeirra útreikn- inga er nú væntanleg. Ef maður skoðar þann mun sem er á skatta- hlutfallinu á Norðurlöndum og því sem er hér á íslandi, þá þyrftu skattarnir á íslandi að vera 30 milljörðum hærri heldur en þeir eru í dag,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson. T Seiðaleiðangur Hafrannsóknastofnunar: Engin loðna fínnst í veiðaiilegii ástandi Tvö rannsóknaskip fara í loðnuleiðangur í októberbyijun ENGIN LOÐNA í veiðanlegu ástandi fannst í seiðaleiðangri rannsóknaskipanna Bjarna Sæ- mundssonar og Árna Friðriks- sonar, sem nú er nýlokið, að sögn Sveins Sveinbjörnssonar leiðangurssljóra. „I þessum leið- angri var farið yfír á græn- lenska landgrunnið, að Austur- Grænlandi og djúpt út af Vest- fjörðum, Norðurlandi, Norð- austurlandi og Austfjörðum," segir Sveinn. Hann segir að nið- urstöður úr seiðaleiðangrinum liggi ekki fyrir fyrr en í síðari hluta næstu viku. „Þorsk- árgangar hafa brugðist núna íjögur ár í röð og því skiptir miklu máli að fá góða árganga inn í stofninn,“ segir Sveinn. Út af Norðurlandi er yfírborðs- hiti sjávar mjög hár niður á 25 metra dýpi og það getur haft áhrif á torfumyndun og útbreiðslu loðn- unnar, að sögn Sveins Sveinbjörns- sonar. Hann fullyrðir að yfirborðs- hitinn sé mun hærri en í ágúst í fyrra. „Loðnan þjappar sér síður saman þegar yfirborðshitinn er hár. Við urðum varir við loðnu í þessum seiðaleiðangri en uppistað- an af henni var eins árs gömul loðna, sem var svolítið blönduð tveggja ára loðnu. Við fundum hins vegar mjög lítið af þessari loðnu og engar torfumyndanir hjá henni,“ segir Sveinn. Hann upplýsir að það hafí verið upp og ofan hvað fundist hefur af loðnu í veiðanlegu ástandi í seiða- leiðöngrunum. „Stundum höfum við fundið svolitið af loðnu en yfir- leitt ekki mikið. Vegna loðnunnar teygðum við hins vegar leitarsvæð- ið töluvert lengra út núna en við erum vanir.“ Sveinn segir að Árni Friðriksson fari í loðnuleiðangur í byijun októ- ber næstkomandi og komi aftur Viðræðurnar áttu sér stað í síðustu viku en Mellick var í fylgd- arliði Mitterands Frakklandsfor- seta. Árni Kolbeinsson sagði við Morgunblaðið, að samningar af þessu tagi myndu væntanlega vera í höndum Evrópubandalagsins en ekki einstakra aðildarþjóða þess, og í viðræðunum við franska sjáv- arútvegsráðherrann og embættis- menn hans, hefði verið ítrekuð sú afstaða íslendinga, að ekki beri úr leiðangrinum 10. nóvember. Bjarni Sæmundsson fari aftur á móti í loðnuleiðangurinn í nóvemb- erbyijun og verði út mánuðinn i leiðangrinum. „I loðnuleiðangrinum verður farið í Grænlandssundið, djúpt út af Norðurlandi og sjálfsagt norður með Austur-Grænlandi, eins og hægt er. Ef búið verður að finna loðnuna takmarkar það leitarsvæði okkar töluvert. Loðnan er oft ekki komin norðan frá sumarstöðvum sínum í október, að minnsta kosti ekki öll, og því var farið í síðasta loðnuleiðangur .í nóvember. Þá var hafísinn til trafala og hann eyði- lagði mjög mikið fyrir okkur í sam- bandi við loðnuleitina," segir Sveinn. að blanda saman aðgangi að mork- uðum EB við aðgang að auðlind- um. Árni sagði að megininnihald við- ræðnanna við Frakkana hefði verið að kynna þeim sjónarmið og sér- stöðu íslendinga. Rætt hefði verið almennt um tengsl aðgangs að markaði og fiskimiðum, og Frakk- arnir hefðu sýnt sérstakan áhuga á fiskitegundum, sem þeir teldu Islendinga ekki fullnýta. Frakkar vilja veiða langhala við Island Sjávarútvegsráðherra Frakklands, Jacgues Mellick, orðaði í við- ræðum við Árna Kolbeinsson ráðuneytisstjóra, að Frakkar fengju að veiða vannýttar djúpsjávarfískitegundir, svo sem langhala, innan íslensku landhelginnar. I staðinn myndu Frakkar meðal annars styðja aðgang íslendinga að mörkuðum Evrópubandalagsins. Bílaleigur erlendis: Ekki tekið við þjónustu- beiðnum frá Arnarflugi Ferðalöngum verður endurgreitt, segir fulltrúi félagsins NOKKUR dæmi eru þess, sam- kvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins, að þjónustubeiðnir út- gefnar af Arnarflugi hafi ekki verið teknar gildar af bílaleig- um erlendis, og íslenzkir ferða- menn hafi því þurft að tvígreiða þjónustu bílaleiganna. Óli Ty- nes, markaðsfulltrúi hjá Arnar- flugi, segir að félagið muni end- urgreiða þeim, sem í hlut eiga, gjaldið fyrir bílaleiguna. Flest flugfélög sjá um að bóka hótel, bílaleigubíla, báta og annað aukreitis fyrir farþega sína og er þá aukaþjónustan greidd flugfé- laginu, en viðskiptavinurinn fær þjónustubeiðni, sem hann framvís- ar hjá hinum erlendu þjónustufyr- irtækjum. Flugfélagið sér svo um að greiða þjónustuna fyrir farþeg- ana. Óli Tynes segir að Arnarflug hafi sent erlendum viðskiptaaðilum sínum skeyti um að félagið væri hætt flugi til 1. nóvember, og menn séu því að baktryggja sig með því að taka ekki við þjónustu- beiðnunum. Væntanlega treysta erlendu fyrirtækin því ekki að fá greiðsluna frá Arnarflugi. Óli segist vita af nokkrum tilfell- um síðustu daga þar sem fólk, sem hafi verið að skila bílum, hafi þurft að greiða bílaleigunni sjálfri fyrir þá. I öllum þessum tilvikum hafí fólkið verið búið að greiða bíla- leigubílana hér heima með greiðslukorti, og verði sú upphæð ekki dregin af greiðslukortareikn- ingum viðkomandi. Pressan: Jón Daníelsson ráðinn verksljóri ’Z* JÓN Daníelsson var í gær, þriðjudag, ráðinn verkstjóri yfir blaða- mönnum Pressunnar til næstu mánaðamóta, þegar nýir ritstjórar, Gunnar Smári Egilsson og Kristján Þorvaldsson, taka við blaðinu, að sögn Stefáns Friðfinnssonar, stjórnarformanns Blaðs hf., sem gefur út Pressuna og Alþýðublaðið. Ritstjórum og blaðamönnum Pressunnar var sagt upp störfum síðastliðinn föstudag. Stefán Friðfinnsson segir að skýrast muni um miðja næstu viku hvort blaðamenn á Pressunni verði endurráðnir en ritstjórar Pressunn- ar voru leystir frá störfum að eig- in ósk á mánudag. „Nýju ritstjór- arnir hafa rætt við blaðamennina um það hvort þeir geti hugsað sér að vinna með þeim,“ segir Stefán.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.