Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990
+
Eiginmaður minn og faðir,
INGIMAR DAVÍÐSSON,
Stórholti 5,
Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 3. september.
Unnur Óskarsdóttir,
Rúnar Haukur Ingimarsson.
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR P. STEFÁNSSON
fyrrverandi prentsmiðjustjóri,
Bólstaðarhlíð 45,
andaðist föstudaginn 17. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Sérstakar þakkir fyrir umönnun eru færðar læknum og hjúkrunar-
fólki í Hátúni 10B og hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Anna Pálmadóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, dóttir, tengda-
dóttir, móðir, tengdamóðir og amma,
FJÓLA KRISTÍN JÓHANNSDÓTTIR,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinú á
Akureyri föstudaginn 31. ágúst.
Útförin fer fram frá Stærri-Árskógs-
kirkju laugardaginn 8. september
kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri eða Krabbameinsfélagið.
Þorsteinn Marinósson,
Sigrún Guðbrandsdóttir,
Sigrún Þorsteinsdóttir,
Marinó Þorsteinsson,
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Svanlaugur Þorsteinsson,
Ása Þorsteinsdóttir
Ingibjörg Einarsdóttir,
Árni Þórisson,
Indiana Ólafsdóttir,
Heiða Sævarsdóttir,
og barnabörn.
+
Útför ástkærs eiginmanns, föður og tengdaföður,
KRISTJÁNS HÓLM JÓNASSONAR,
Laufskógum 41,
Hveragerði,
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigurlaug Jónsdóttir,
Svava Aðalbjörg Kristjánsdóttir, Grétar B. Guðjónsson,
Soffia K. Kristjánsdóttir, Trausti S. Harðarson,
Helgi H. Kristjánsson, Guðrún Ágústa Viggósdóttir,
Lárus J. Kristjánsson, Sonja Andrésdóttir,
Bragi H. Kristjánsson, Inga Guðmundsdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ESTHER GUÐMUNDSDÓTTIR,
Suðurgarði 22,
Keflavik
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 6. september
kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Zakarías Hjartarson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Föðurbróðir okkar,
KRISTJÁN JÓNSSON
frá Snorrastöðum,
Dvalarheimili aldraðra,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Kolbeinsstaðakirkju föstudaginn 7. septem-
ber kl. 14.00. Bílferð verður frá Bifreiðastöð íslands kl. 11.00
þann dag.
Systkinin frá Snorrastöðum.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN SIGURÐSSON
frá Hrepphólum,
verður jarðsunginn frá Hrepphólakirkju fimmtudaginn 6. septem-
ber kl. 14.00. Ferð verður frá BSÍ kl. 11.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hrepphólakirkju.
Elísabet Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sverrir Þór skip
stjóri - Minning
Fæddur 16. október 1916
Dáinn 28. ágúst 1990
Með andláti Sverris Þórs, er mik-
ill myndarmaður til sjós og lands
horfinn úr tölu lifenda.
Innan við fermingu fór Sverrir
að stunda sjó, og því hélt hann
áfram á stórum skipum og smáum
í 37 ár, fram að fimmtugsaldri.
Farmannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum lauk hann 1935, tuttugu og
eins árs að aldri. Á hartnær 40 ára
sjómannsferli sínum var hann skip-
stjóri á fiski- og flutningaskipum í
21 ár. Hann sigldi öll stríðsárin
með ísfisk til Englands og tók þann-
ig sinn þátt í tafli upp á líf og dauða
á alvöru- og hættutímum.
Lengst skipstjóraferils síns var
Sverrir skipstjóri hjá Sambandinu,
m.a. á Hamrafellinu, „stærsta skipi
íslendinga". I samvinnuflotanum
var hann „fremstur meðal jafn-
ingja“ og ávarpaði ég hann jafnan
sem „orlogskaptein". Þá sá Sverrir
og um eftirlit með byggingu nýrra
skipa SÍS.
Virkur var Sverrir í samtökum
skipstjóra og beitti sér m.a. fyrir
stofnun Styrktarsjóðs þeirra og var
formaður hans frá upphafi.
Þegar Sverrir „tók pokann sinn“
1964 og steig á land, eftir sína
hartnær 40 ára sjómennsku, réðst
hann strax til Samvinnutrygginga.
Og þótt hann svo snarlega sneri
við blaðinu á lífsferli sínum, kom
fljótlega í ljós, hversu auðvelt hon-
um veittist að rata um flókna refil-
stigu trygginganna. Hann gerði sér
líka far um að setja sig sem ná-
kvæmast inp í fagið, m.a. með
áhugasamri þátttöku í öllum nám-
skeiðum Tryggingaskólans, þar
sem hann svo litlu síðar var orðinn
mikilsmetinn og virtur kennari.
Sjálfsagt þótti að taka slíkan
mann beint utanaf hafinu í sjó-
'tryggingarnar. Má líka hiklaust
fullyrða, að Sverrir hafi ásamt læri-
föður sínum, Jóni Rafni, verið með
hæfustu og reyndustu sjótrygg-
ingamanna landsins, enda var
Sverrir obbann af starfsferli sínum
hjá Samvinnutryggingum, og til
starfsloka, deildarstjóri Sjótrygg-
ingadeildar félagsins. Og gerði
hann upp mörg vandasöm og flókin
stórtjón með miklum ágætum.
Aðalsamskipti mín við Sverri
voru meðan ég um tuttugu ára skeið
ritstýrði blaði okkar Samvinnu-
tryggingamanna, „Gjallarhomi".
Hittumst við þá að sjálfsögðu oft
að máli, og þótt hann væri ekkert
útausandi um starf sitt og stjórnun,
tókst mér stundum að fá hann til
að skrifa í blaðið og hafa viðtöl.
Bar allt það vott þekkingu hans og
starfshæfni.
Sverrir Þór var ekki allra, en
tryggðatröll, þar sem hann tók því.
Hann gat stundum virst óaðgengi-
legur og þurr_ á manninn, en svo
var alls ekki. Á góðra vina fundum
var hann hrókur alls fagnaðar. Stolt
og jafnvel stórmennsku hafði hann
til að bera, en var annars manna
kurteisastur. Og víst gat hann „tek-
ið upp í sig“, ef svo bar undir, en
tók því vel og hressilega, væri svar-
að í sömu mynt. Var oft gaman að
eiga við hann orðastað í galsa og
jafnvel hálfkæringi. Var þá stund-
um sem í kvæði Gríms „Á Glæsivöll-
um“, að „í góðsemi vegur þar hver
annan".
Sverrir Þór var starfs- og elju-
maður mikill af gamla skólanum
og vann mikið. En á hvíldarstundum
naut hann lífsins í faðmi Ijölskyld-
unnar, því heimakær var hann og
góður heimilisfaðir konu sinni og
börnum. Þar undi hann sér vel við
fagra hljómlist, sem hann elskaði
og angan blóma og tijáa í garði
sínum, er hann annaðist af stakri
umhyggju og natni meðan heilsan
entist. Ljósmyndari var Sverrir
ágætur, allt lék í höndum hans.
Þetta var „hin hliðin“ á þessum
fyrrum sægarpi og síðar snjalla sjó-
tryggingamanni.
Sverrir Þór var gáfaður og leit-
andi djúphyggjumaður, sem velti
fyrir sér og stundum með öðrum,
ráðgátum lífsins. Trúaður var hann
og sýndi það í verki. Um árabil var
hann í stjórn Langholtssafnaðar og
áhugasamur formaður Bræðrafé-
lags þess safnaðar. Þá var Sverrir
einnig virkur frímúrari.
Nokkur síðustu æviárin voru
Sverrir erfið sjúkdómsraun. Má
nærri geta um hugleiðingar hans í
sambandi við þann reginmun, að
vera hæstráðandi á stjórnpalli skips
síns eða hjálparþurfi í hjólastól. En
öllu því þungbæra andstreymi
mætti Sverrir af æðruleysi og karl-
mennsku. Ómetanleg hjálp og
raunaléttir var honum óbrigðul ást
og umhyggja eiginkonunnar, Ebbu,
sem tók hann heim um helgar, hon-
um til hvíldar og hressingar, og
vitjaði hans svo að segja daglega
þess á milli.
Lffssiglingu Sverris vinar míns
er lokið, hann er í höfn. Ég vona
og trúi, að nú sé honum ljúft og
auðvelt að finna og segja, þótt hér
í heimi hausti að:
„Mig ber að dýrlegum, Ijósum lðndum,
þar lífsins tré gróa á fögrum ströndum
við sumaiyl og sólardýrð."
Baldvin Þ. Kristjánsson
-------»-» ♦
Merkjasölu-
dagnr Hjálpræð-
ishersins
HINIR árlegu merkjasöludagar
Hjálpræðishersins á íslandi eru
frá miðvikudegi til föstudags
5.-7. september.
Merkjasala Hjálpræðshersins í
bytjun september á sér langa sögu
og hefur verið þýðingarmikil í fjár-
öflunarleið í starfi hans.
Hjálpræðisherinn er með félags-
starf fyrir alla aldurshópa. Tekjur
af merkjasölunni er einkum varið
til að fjármagna barna- og ungl-
ingastarfið sem er að hefjast aftur
nú að afloknu sumarfríi.
Merkið, sem er blóm prentað á
límmiða, kostar eins og í fyrra 100
krónur. Merkið verður selt á g ötum
Reykjavíkur, Akureyrar og ísa-
fjarðar, einnig verður það víða selt
í húsum.
Vonast er til að sölufólki' verði
vel tekið og að margir kaupi merki
til styrktar starfi Hjálpræðishers-
ins.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GEIR HALLGRÍMSSON
seðlabankastjóri,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 7. september
kl. 13.30.
Erna Finnsdóttir,
Hallgrimur B. Geirsson, Aðalbjörg Jakobsdóttir,
Kristín Geirsdóttir, Freyr Þórarinsson,
Finnur Geirsson, Steinunn Þorvaldsdóttir,
Áslaug Geirsdóttir
og barnabörn.
+
INGÓLFURJÓNSSON
bóndi,
Nýlendi, Skagafirði,
verður jarðsunginn frá Hofskirkju laugardaginri 8. september
kl. 14.00.
Aðstandendur.
+
Ástkær eiginmaður minn og stjúpfaðir,
PÁLL GÍSLASON,
Flatahrauni 16B, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju föstudaginn 7. september
kl. 15.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið.
Fyrir hönd aðstandenda,
Herdis Halldórsdóttir,
Þórir Jónsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁSTVALDUR JÓNSSON
rafvírkjameistari,
Beykihlíð 6,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 6. september kl. 13.30.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
1
Guðlaug Helga Árnadóttir,
Ástvaldur Ástvaldsson, Skúlina H. Kjartansdóttir,
Lilja Ástvaldsdóttir, Högni Valsson,
Sólrún Ástvaldsdóttir, Carl Hemming Erlingsson
og barnabörn.
(Fréttatilkynning)