Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 44
UtilX FRAMTÍÐARINNAR HEITIR: IBMAIX Kringlan 5 Simi 692500 sm LMENNAR MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Eins árs áætlun um gullleit hér á landi: Islending- ^ar kynntu sér gullleit í Grænlandi ÁTTA íslenskir jarðfræðingar voru fyrir skemmstu á ferð á Grænlandi, og skoðuðu þar meðal annars framkvæmdir við gullleit. Orkustofnun stóð að hluta fyrir ferðinni, en stofnunin hefur, ásamt Kísiliðjunni hf. og Iðn- tæknistofnun Islands, gert áætlun um eins árs gullleit hérlendis. —^ Aðilarnir þrír fengu meðal annars 500 þús. kr. styrk frá Rannsókn- aráði vegna þessa, en alls er reiknað með að um 2 millj. kr. fari til þessa verkefnis. Undanfar- ið hefur verið safnað sýnum víða á landinu vegna þessa. „Þarna eru fyrst og fremst frum- kannanir á ferðinni," sagði Hjalti Franzson jarðfræðingur, en hann vinnur að framkvæmd áætlunar aðil- anna þriggja, og var einn áttmenn- / inganna sem fóru til Grænlands. „Þetta svæði á Grænlandi, - Skærgárd, á sér afskaplega merki- lega jarðfræði. Við litum síðan á gullleitarframkvæmdirnar fyrst við vorum þarna á annað borð.“ Hjalti tók fram, að för þeirra eða rannsókn- ir tengdust á engan hátt þeim náma- fyrirtækjum sem vinna að fram- kvæmdum á Grænlandi. „Það var hins vegar afskaplega fróðlegt að sjá hversu hrikalegar aðstæður eru þarna og merkilegt að vinnsla skuli e.t.v. þrátt fyrir það borga sig,“ sagði Hjalti. „Þeir hafa borað þarna 13-15 holur, og eru áð kanna hversu ' stórt þetta jarðlag er, og í framhaldi af því hvort námarekstur borgar sig.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Algengsjón ísveitum landsins Æ fleiri baendur hafa tekið svokallaða rúllubaggatækni í sína þágu við heyskap. Er rúllunum hlaðið upp og hlöður eru því orðnar óþarfar á mörgum bæjum. Þessi sjón er orðin algeng í sveitum landsins. Þorsteinn Pálsson ávarpar setningarfund þings Litháens: Islensk stjómvöld viður- kenni fullveldi Litháens Flugleiðir: Hækkunar- beiðni frestað FLUGLEIÐIR hafa frestað því að fara fram á hækkun á fargjöldum sínum, en tll stóð að gera það í fyrradag. Einar Sigurðsson blaðafulltrúi sagði að félagið vilji skoða þróun markaðarins og athuga betur for- sendur hækkunarbeiðninnar, enda lægi Flugieiðum ekki á að fá far- ■gjöldin hækkuð. ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarpaði setn- ingarfund þings Litháens í gær. í ávarpi sínu lýsti hann eindregnum stuðningi við sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og sagðist mundu halda áfram baráttu sinni fyrir viðurkenningu íslenskra stjórnvalda á full- veldi allra Eystrasaltslandanna. Var máli Þorsteins vel tekið og hylltu þingmenn hann með því að rísa úr sætum. Þorsteinn og Kjart- an Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, áttu í gær fund með Vytautas Landsbergis, forseta Litháens, Kazimieru Prunskiene forsætisráðherra og fleiri leiðtoga í Vilnius, höfuðborg landsins. „Óhætt er að segja að það hafi verið mikil lífsreynsla að koma hingað til Vilnius, finna þessa sterku sjálfstæðistilfinningu þjóðar- innar," sagði Þorsteinn Pálsson í símaviðtali við Morgunblaðið í gær. „Litháar verða ekki • stöðvaðir í UR VERINU Sérblað um sjávarútveg NÝTT sérblað fylgir Morgun- blaðinu í dag og er heiti þess Úr verinu. Það er helgað sjáv- arútvegi og kemur framvegis út á miðvikudögum. Einar Sigurðsson útgerðar- maður skrifaði um árabil þátt í Morgunblaðið undir heitinu Úr verinu og er nafn blaðsins sótt þangað. í því verður fjallað í fréttum, viðtölum og fréttaskýr- ingum um hinar ýmsu greinar sjávarútvegs og línurit, töfiur og gröf munu setja svip á blaðið. Úr verinu i dag flytur meðal annars fréttir af óvenju háu verði á sjófrystum afurðum, sérstökum vinnslukvóta á allar söltunar- stöðvar frá upphafi síldarvertíðar og átökum í EB um hugmyndir um að stækka möskva vegna smáfiskadráps. Rætt er við Svein Ingólfsson, framkvæmdastjóra Skagstrendings, og í fréttaskýr- ingu er fjallað um vanda togara- útgerðar frá Keflavík. Yfirlit um afla rúmlega 200 fiskiskipa í síðustu viku er í blaðinu og greint frá hverjir fengu leyfí hjá Afla- miðlun til sölu á fiski erlendis í næstu viku og hverjum var synj- að. áformum sínum um fullt sjálfstæði. Landsbergis útskýrði hina pólitísku stöðu sem nú er í málinu, samning- ana við Sovétríkin og mikilvægi þess að Litháar fái stuðning vest- rænna ríkja. Þeir telja það geta skipt sköpum í viðræðunum við Sovétmenn að fá viðurkenningu annarra ríkja. Við ræddum líka um viðskiptaþvinganir Moskvumanna og hvernig Litháar brugðust við þeim. Litháarnir sögðu að hafnar væru undirbúningsviðræður við Moskvumenn og sögðust hafa lagt fram tillögu að skipulagi þeirra en ekkert svar hefði borist og þetta væri áhyggjuefni. Sovétstjórnin virtist aðeins hafa áhuga á að auka miðstjórnarvald sitt og hefur ekkert slakað til enn þá. Mér var boðið sérstaklega að ávarpa þingið og það var mjög áhrifaríkt. Móttökurnar í þingsaln- um voru hjartanlegar og það var einstaklega vánægjulegt að finna hve mikils þeir meta stuðning, jafn- vel frá fámennri þjóð eins og okk- ar,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Sjá ávarp Þorsteins Pálssonar í heild á miðopnu. Ruddist ölvaður inn í ráðuneyti og Hæstarétt húsi og þurfti þar að vísa honum á dyr. Þegar lögreglan kom á vett- vang var maðurinn á bak og burt, akandi að því er talið er. Lögregla telur sig vita um hvaða mann sé að ræða, óreglumann um þrítugt. MAÐUR undir áhrifum áfengis eða vímuefna ruddist inn í dóms- málaráðuneytið og Hæstarétt síðdegis í gær og vildi berja fólk. í ráðuneytinu kvaðst maðurinn vilja ræða við ákveðinn starfsmann um ökuréttindi sín. Sá var ekki við. Maðurinn fór þá í Hæstarétt í næsta Bændur á Suðvesturlandi: Vandræði vegna óþurrka ILLA gengur að ljúka heyskap á suðvesturhorni landsins vegna vætutíðar. Bændur sem blaðið hafði tal af segja að ekki hafi komið góður þurrkur síðan í júní, utan einstaka daga í kringum verslunarmannahelgina. Mun horfa til vandræða vegna þessa hjá einstaka bændum, þrátt fyrir að heyskapur sé víðast langt, kominn. Þeir bændur sem Morgunblaðið ræddi við höfðu orð á því, að illa hefði farið ef rúllubaggavæðing væri ekki jafn langt komin og raun bæri vitni. Þurrkur í júnímánuði nýttist bændum lítið sem ekkert til heyverka, þar sem spretta er stutt á veg komin á þeim tíma. Þetta á ekki síst yið um sauðfjárbændur, sem beita fé sínu á tún fram yfir mánaðamótin maí-júní, áður en því er sleppt á fjall. Ekki er séð fyrir endann á vand- ræðum bænda á Suðvesturlandi vegna veðurfars, þar sem þeir hafa nú áhyggjur af því að haustrokin spilli fyrir þeim hirðingu á hey- fengnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.