Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
5
Ársskýrsla Borgarspítala:
Teflt á tæpasta vað með
lokanir yfír sumartímann
Ráðherraskipuð nefnd kannar nánara samstarf sjúkrahúsa
Sjúklingar á Borgarspítala voru 10.650 talsins 1989, sem er 3,6%
aukning frá 1988. AIls voru meðhöndluð 170 þúsund tilfelli, að meðt-
öldum 70 þúsund heimsóknum á Slysadeild.
Legudögum fækkaði hins vegar
milli sömu ára um 4,25%. Voru
157.400 árið 1989 - en 164.000 að
meðtöldum legudögum á fæðingar-
heimili og dagvistarrúmum. Meðal-
legutími 1989 var 15,6 dagar sem
er 7,1% stytting frá 1988.
Rekstrargjöld reyndust nálægt
2.500 m.kr., hækkuðu um 14% frá
1988 (á sama tíma og almennt verð-
lag hækkaði um 20%) og var rekst-
ur stofnunarinnar í jafnvægi, að því
er fram kemur í ársskýrslu spítalans
I ársskýrslunni segir að „afköst
stofnunarinnar hafi verið svipuð og
áður, þrátt fyrir niðurskurð á fjár-
veitingu. Þar segir og að „talsverð
gagnrýni hafi komið fram á fækkun
rúma yfir sumartímann. Verður að
segja að stundum sé teflt á tæp-
asta vað í þessum efnum og óneit-
anlega vakni sú spurning, hvort
þjóðfélagið búi við falskt öryggi í
þessum efnum á sumarleyfistíma“.
A sl. ári var hafizt handa við
endurnýjun æðarannsóknarstofu á
röntgendeild spítalans. Keypt var
ný og fullomin vararafstöð. Og bk-
ið var við við 4. hæð B-álmu spítal-
ans.
Borgarspítalinn í Reykjavík.
I skýrslunni segir að ráðherra-
skipuð nefnd starfi nú að könnun
möguleika á auknu samstarfi
sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu
og/eða sameiningu þeirra. „Skipan
þessarar nefndar er tilkomin vegna
hugmyndar sem vaknaði um hugs-
anlega sameiningu Borgarspítalans
og Landakots. Nefndin hefur ekki
lokið störfum.
Póstur og sími:
Ný viðtöku-
stöð reist á
Þverholti
PÓSTUR og sími eru nú að fara
reisa nýja viðtökustöð að Þver-
holtum á Mýrum sem taka mun
við hluta af þeirri starfsemi sem
nú fer fram á Gufunesi. Viðtöku-
stöðin verður ómönnuð og henni
íjarstýrt frá Gufunesi. Aætlað
er að hún verði tekin í notkun
um áramót og var nýlega leitað
tilboða í byggingu á 90 fermetra
húsi, undirstöðum fyrir loftnet
og á stagfestum.
Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafull-
trúi Pósts og síma, sagði aðdrag-
anda þessa máls vera að Reykja-
víkurborg hafi vantað bygginga-
land og því leitað eftir samningum
um land Pósts og síma á Gufu-
nesi. Hefðu samningar náðst á síð-
asta ári og greiðir borgin fyrir
landið með því að taka á sig 88%
af flutningskostnaðinum. Flutn-
ingskostnaðurinn er alls áætlaður
255 milljónir og þar af tekur borg-
arsjóður á sig um 230 milljónir
króna.
Frá Gufunesi er stjórnað fjar-
skiptum allra flugvéla sem fara
yfir Norður-Atlantshafið og einnig
fjarskiptum við skip sem eru við
Reykjavík og skip úti í heimi. Póst-
ur og sími -heldur eftir rúmlega
ellefu hektörum í Gufunesi og það-
an verður áfram öllum fjarskiptum
stjórnað og nýju viðtökustöðinni
fjarstýrt.
Loftnetin níu sem nú eru í Gufu-
nesi eru hins vegar mjög plássfrek
og reyndist því nauðsynlegt að
finna nýjan stað fyrir loftnet.
Fyrst var ákveðið að ný viðtöku-
stöð skyldi teist á Keilisnesi en þar
átti ríkið jörð. Sagði Hrefna að
allt hefði verið skipulagt og flutn-
ingur vel á veg kominn þegar
áform um hugsanlega byggingu
nýs álvers settu strik í reikninginn.
Póstur og sími hefðu því enn á ný
svipast um eftir heppilegum stað
fyrir loftnet, sem verða endurnýjuð
við flutningana, og loks verið
ákveðið að setja þau upp að Þver-
holtum á Mýrum. Er landið þar
leigt af ríkinu.
---------------
Sendiherra í
Ungverjalandi
HJÁLMAR W. Hannesson sendi-
herra, afhenti forseta Ungveija-
lands, Arpád Göncz, trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra íslands
í Ungverjalandi með aðsetri í
Bonn, hinn 4. september sl.
Hjáimar W. Hannesson afhenti
ennfremur hinn 23. ágúst sl. dr.
Sabine Bergmann-Pohl, sem gegnir
störfum forseta Þýska alþýðulýð-
veldisins, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands þar í landi, með
aðsetri í Bonn.