Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
13
Skipaútgerð ríkisins 60 ára
Hefur gefið út sögu skipa félagsins
Á ÞESSU ári er Skipaútgerð
ríkisins 60 ára. Hún var stofnuð
Alþingishátíðarárið 1930 og hef-
ur alla tíð síðan verið mikilvægur
hlekkur í samgöngukerfi lands-
ins. í tilefni af afmælinu hefur
verið gefin út saga skipanna, og
hefur Hilmar Snorrason skip-
stjóri annast útgáfu hennar.
Sextíu ár eru langur tími í sögu
fyrirtækis og saga Skipaútgerðar
ríkisins ber vitni um það. Fyrirtæk-
ið hóf starfsemi sína í kreppunni
. miklu og skapaði þá þau tengsl sem
nauðsynleg voru milli byggða lands-
ins svo snúa mætti vörn og fátækt
í sókn til bættra lífskjara. Fyrirtæk-
ið hélt áfram starfsemi sinni á
stríðsárunum og fór ekki varhluta
af stríðsátökunum. Allt fram á'sjö-
unda áratuginn voru strandferða-
skipin aðalfólksflutningatæki
landsmanna. Þótt farþegaflutning-
ar færðust frá skipum til flugsins,
er þó meginhluti vöruflutninga á
lengri leiðum innanlands enn á sjó.
Landið er eyja, og byggðin er með
ströndinni umhverfis landið. Allir
þéttbýlisstaðir eru við ströndina eða
innan 30 km frá henni. Því verða
vöruflutningar á lengri leiðum að
meginhluta á sjó um alla fyrirsjáan-
lega framtíð. Nú er Skipaútgerðin
eina flutningafyrirtæki landsmanna
sem tengir saman alla landshluta í
eina samfellda flutningakeðju.
Þannig má segja að þjónustukerfi
Skipaútgerðarinnar hafi verið og
sé enn eins konar „þjóðbraut á sjó“.
Góð rekstrarafkoma
Afkoma Skipaútgerðarinnar var
all góð á síðasta ári og var 70 m.kr.
hagnaður af rekstri fyrirtækisins,
en 32,9 m.kr. tap varð árið 1988.
Fyrir fjármagnsgjöld og tekjur var
hins vegar 22,7 m.kr. tap og höfðu
þá verið afskrifaðar 89,2 m.kr.
Tekið skal fram, að í tekjuhlið
rekstrarreiknings er ríkisframlag,
og var það 158 m.kr. árið 1989,
en það hefur farið lækkandi að
raungildi hin síðari ár og árið 1989
lækkaði það í krónum talið.
Mikið átak hefur verið gert á
síðustu árum í að lækka útgjöld
fyrirtækisins. Það ásamt auknum
flutningum á síðasta ári átti sinn
þátt í hinni bættu afkomu. Fjár-
málaráðuneytið ákvað að fella niður
dráttarvexti af vanskilum Skipaút-
gerðarinnar hjá Ríkisábyrgðasjóði,
sem reiknaðir höfðu verið fyrir árið
1989. Sá kostnaður skekkir því
ekki afkomu fyrirtækisins eins og
nokkur undanfarin ár.
Auknir flutningar
Á árinu voru alls flutt 129.742
tonn af vörum, sem er um 10,7%
aukning frá fyrra ári, en þá voru
flutt 117.165 tonn. Þar af voru
, Færeyjaflutningar 4.683 tonn og
hreinir innanlandsflutningar því
125.059 tonn, sem er 6,7% aukning.
Á árinu 1988 hófust flutningar
á ísfíski í gámum frá Austfjarða-
höfnum til umskipunar í Vest-
mannaeyjum í millilandaskip. Áætl-
un strandferðaskipanna sem sigla
austur um land frá Reykjavík var
breytt til þess að auðvelda Austfirð-
ingum að flytja út ferskan fisk í
gámum, eins og unnt hefur verið
að gera frá öðrum landshlutum.
Þessir flutningar jukust mjög á ár-
inu 1989 og eru í raun aðalástæða
þeirrar heildaraukningar sem varð
á árinu.
Með þessari breytingu hafa Vest-
mannaeyjar fengið nýtt hlutverk
sem umskipunarhöfn útflutnings-
vöru.
Sótt um svæði við Vogabakka
Skipaútgerðin hefur sótt um nýtt
athafnasvæðj við Vogabakka í
Sundahöfn. Ástæðúaiar eru einkum
tvær.
Reykjavíkurborg hyggst gera
umferðargötu eftir Miðbakka í
gömlu höfninni og er ráðgert að
þær framkvæmdir hefjist á næsta
ári. Þrengir þá mjög að athafna-
svæði Skipaútgerðarinnar við Gróf-
arbakka.
Þótt núverandi athafnasvæði sé
að mörgu leyti hentugt og þar með
talin Vöruskemman, hefur það
ávallt legið fyrir að staðsetning
þess væri óhentug og á sínum tíma
óskaði Skipaútgerðin eftir að fá að
byggja skemmuna í Sundahöfn, og
því var byggt við Grófarbakka.
Svæðið sem er sótt er 20.000
m2/o, og er hugmyndin að byggja
þar vöruskemmu á stærð við núver-
andi hús.
Það er álit stjórnar Skipaútgerð-
arinnar að hin nýja aðstaða muni
greiða mjög fyrir hagræðingu í
rekstri og þjónustu Skipaútgerðar-
innar m.a. vegna nálægðar við at-
hafnasvæði annarra skipafélaga og
vöruflutningamiðstöðva.
(Frá Skipaútgerð ríkisins.)
Samskipti foreldra og barna
Ný námskeið eru að hefjast.
Leiðbeinendur:
Hugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingar.
Upplýsingar og skráning í símum 621132 og 626632.
Nú um helgina verður opið hús hjá VIB, Verðbréfamarkaði íslandsbanka hfað
Ármúla 13a til að kynna hvernig við aðstoðum fólk við að leggja fyrir og ávaxta
sparifé sitt. Verðbréfaviðskipti þurfa ekki að vera flókin eða torskilin og nú
gefst tækifæri til að koma og kynna sér málin í rólegheitunum.
Komið til VÍB og
kynnið ykkur:
1. Fjármálaráðgjöf
- Almenn ráðgjöf
- Verðbréfareikningur VIB
- Æviráð VÍB
2. Reglulegan sparnað
- Eftirlaunareikningur VIB
- Verðbréf í áskrift
- Almennur lífeyrissjóður VIB
3. Verðbréfasjóði
- Langtímasjóðir
- Skammtímasjóðir
- Tekjusjóðir
4. Hlutabréf
- Hvers vegna hlutabréf?
- Meiri áhætta - betri ávöxtun?
- Skattafrádráttur
Ráðgjafar VÍB veita einnig gestum allar
upplýsingar um ofangreinda málaflokka.
Um helgina verða einnig flutt
eftirfarandi fræðsluerindi:
Laugardagur 8. september
kl. 14:00 Hver hugsar um eftirlaunin 30 ára ?
Gunnar Baldvinsson
kl. 15:00 Fjármálin fylgja okkur alla ævina
Sigurður B. Stefánsson
kl. 16:00 Hvernigget ég leekkad skattana?
Margrét Sveinsdótdr
Sunnudagur 9. september
kl. 14:00 A éga'ö kaupa. eða leigja mér ílmd?
Asgeir Þórðarson
kl. 15:00 Hvers vegna eru hlutalrréf spennandi?
Svanbjörn Thoroddsen
kl. 15:45 Hvaöa verbbréf á égad kaupa?
Vilborg Lofts
kl. 16:30 Fjármálin Jýlgja okkur alla cevina
Sigurður B. Stefánsson
Að loknu hveiju erindi gefst gestum tækifæri á
að bera upp spurningar og ræða efni þess.
Fjármálin fylgja okkur alla ævina
Fjármálin fylgja okkur alla ævina, og því er nauðsyn-
legt að líta á ævina sem eina heild og skipuleggja vel
hvert æviskeið.
VIB hefur sett saman ítarlegt kynningarrit sem
einmitt ber titilinn "Fjármálin fylgja okkur alla ævina".
I því er fjallað á aðgengilegan hátt um helstu þætti sem
hafa áhrif á fjármál einstaklinga og fjölskyldna. Einnig
er veitt leiðsögn um það hvernig hægt er að skipu-
leggja þau.
"Fjármálin fylgja okkur alla ævina" verður dreift til
allra sem koma tíl okkar um helgina.
Erla Rut sér um börnin
Alla helgina mun Erla Rut Harðardóttir, umsjónar-
maður barnaefnis á Stöð 2, hafa ofan af fyrir börnunum
og jafnframt verður öllum boðið upp á kaffi og kökur.
Verðlaunagetraun!
í tilefni af opna húsinu verður gestum helgarinnar
boðið að taka þátt í einfaldri verðlaunagetraun. Svörin
við henni er öll að finna í ritínu "Fjármálin fylgja okkur
alla ævina".
1. verðlaun 50.000 kr. Sjóðsbréf að eigin vali
2. verðlaun 25.000 kr. Sjóðsbréf að eigin vali
3. verðlaun 25.000 kr. Sjóðsbréf að eigin vali
Verið velkomin í VIB!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26