Morgunblaðið - 06.09.1990, Side 24

Morgunblaðið - 06.09.1990, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 upp er Qöldagröf sem fannst við kirkjugarð skammt frá Sao Paulo í Brasilíu var opnuð. Brasilía: Fjöldagröf fínnst við Sao Paulo Sao Paulo. Reuter. FJÖLDAGRÖF með allt að 1.700 líkum fannst við kirkjugarð 70 km austur af borginni Sao Paulo í Brasilíu í fyrradag. Kirkjugarðs- stjórinn fékk vitneskju um gröf- ina þegar hann kom til starfa árið 1977 en þorði ekki að skýra lögreglu frá því fyrr en nú. Lögreglumenn grófu hluta grafar- innar upp og fundu þar bláa plast- poka með beinum 87 manna. Hinar jarðnesku leifar báru öll þess merki að viðkomandi hefðu dáið á hrotta- legan hátt. Að sögn- kirkjugarðsstjórans höfðu starfsmenn tjáð honum að lík þeirra sem í fjöldagröfinni væru hefðu verið flutt í garðinn á sjöunda áratugnum. Þau hefðu fyrst verið jarðsett innan girðingar undir röng- um nöfnum. Nokkrum árum síðar hefðu þau verið grafin upp, pakkað inn í plastpoka sem hefði verið fleygt ofan í stóran og djúpan skurð utan girðingar. Ekki liggur fyrir hveijir bera ábyrgð á morðunum en strax var hafin rannsókn til þess að reyna að bera kennsl á líkin. Herinn fór með völd í Brasilíu 1964-85 og á þeim tíma sættu þúsundir pólitískra and- stæðinga herforingjastjórnarinnar pyntingum og fangelsun. Á sjötta og sjöunda áratugnum háði herinn stríð við borgarskæruliða og voru þeir sagðir grafnir undir fölskum nöfnum til þess að leyna fjölskyldur þeirra og vini um afdrif þeirra. Gríptu tækifærið! GoldStar síminn m/símsvara á aðeins kr. 9.952.- sigí..m,‘/vsts) • Sími og símsvari í einu tæki • Fjarstýranlegur án aukatækja úr öllum tónvalssímum - hvaöan sem er • 10 númera skammvalsminni • Fullkomnar leiðbeiningar á íslensku • 15 mánaða ábyrgð • Póstsendum. KRISTALL HF. SKEIFAN 11B - SÍMI 685750 Minnum á GoldStar tölvurnar og símkerfin STRIÐSASTAND VIÐ PERSAFLOA Yfirlýsing Japana og Sovétmanna gegn írökum markar tímamót: Fyrsta sameiginlega y fírlýsing ríkjanna um alþjóðadeilu í 50 ár Tókíó. Reuter. Utanríkisráðherrar Sovétríkjanna og Japans, þeir Edúard Shev- ardnadze og Taro Nakayama, sendu í gær frá sér sameiginlega yfir- Iýsingu þar sem írakar voru hvattir til að veita öllum erlendum gíslum brottfararleyfi og flytja her sinn frá Kúvæt. Þetta er í fyrsta sinn í 50 ár sem ríkin tvö gefa út sameiginlega yfirlýsingu um alþjóð- legt deilumál og sagði japanska utanríkisráðuneytið að þetta væri „mjög óvenjulegt". Shevardnadze kom til Tókíó í gær í fjögurra daga opinbera heimsókn og er markmiðið einkum að undirbúa heim- sókn Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga til Japans á næsta ári sem yrði fyrsta heimsókn Sovétleiðtoga til landsins. „Ríkin tvö eru sammála um að innrás íraka í Kúvæt og innlimun Kúvæts í írak bijóti gegn grundvall- aratriðum alþjóðalaga og sáttmála Sameinuðu þjóðanna," segir í yfir- lýsingunni. Sagt er að sameiginleg- ar aðgerðir, að frumkvæði SÞ eða án þess, til að ieysa svæðisbundnar deilur geti orðið grundvöllur nýrrar skipunar alþjóðamála í framtíðinni að loknu kalda stríðinu. Hvatt er til þess að allar þjóðir hlíti sam- þykktum SÞ um viðskiptabann gegn Irak. Nakayama bað Sovétmenn, sem hefðu meiri áhrif í írak en önnur lönd, til að beita sér fyrir því að fá Saddam Hussein Iraksforseta til að ieysa erlendu gíslana úr haldi. „Hluti ábyrgðarinnar á vandanum er hjá þeim sem sáu írökum fyrir vopnum, þ.á m. Sovétríkjunum," sagði Nakayama. Shevardnadze sagðist skilja sjónarmið Japana; Sovétmenn reyndu að tryggja að viðskipta- bannið héldi en þeir hefðu takmörk- uð áhrif á gerðir Saddams Husseins. Að sögn talsmanna japanskra stjórnvalda leggja Sovétmenn til að reynt verði að minnka spennu í sam- skiptum ríkjanna tveggja með því að skipst verði á hermálasendi- nefndum og komið verði á gagn- kvæmum flota- og flugvélaheim- sóknum. Samband landanna hefur verið kuldalegt frá stríðslokum en á síðustu dögum síðari heimsstyij- aldar lögðu Sovétmenn undir sig fjórar eyjar í Kúríl-eyjaklasanum sem áður voru japanskar. Formlegir friðarsamningar hafa ekki verið gerðir þar sem Japanar hafa ávallt krafist þess að fá eyjarnar aftur. Ráðherrarnir tveir munu ræða þetta viðkvæma deilumál í dag, fimmtu- dag. Vitað er að Sovétstjórninni er mjög í mun að fá fjárhagsstuðning hjá Japönum. Reuter Taro Nakayama (t.h.), utanríkisráðherra Japans, og Edúard Shev- ardnadze, sovéskur starfsbróðir hans, takast í hendur á fréttamanna- fundi í Tókió í gær. Akveðið að loka norska sendiráðinu í Kúvæt: Verða sljómarerind- rekamir handtekriir? Ósló. Frá Helge Sorensen, fréttaritara Morgunblaðsins. NORSKI fáninn verður nú dreg- inn niður í Kúvæt. Utanríkis- ráðuneytið í Ósló ákvað á þriðju- daginn að Wilhelm Longva sendi- herra og tveir samstarfsmenn hans skyldu yfirgefa sendiráðið en þar með er ekki verið að legíÖa það niður. „Því er aðeins lokað í bili,“ segir Knut Vollebæk aðstoðarráðherra. Illa gengur að koma boðum um ákvörðunina til sendiráðsmannanna. Leiðtogafundurinn: Gorbatsjov bundinn í báða skó vegna innanlandsvanda Moskvu, Washington, Helsinki. Reuter, Daily Telegraph. Reuter Forsetahöllin í Helsinki þar sem þeir Míkhaíl S. Gorbatsjov og George Bush munu ræðast við á sunnudag. Leiðtogarnir munu einnig, hver fyrir sig, ræða við Mauno Koivisto Finnlandsforseta. EINS dags fundur þeirra Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovét- leiðtoga og George Bush Banda- ríkjaforseta í Helsinki verður haldinn í skugga gífurlegra vandamála hins fyrrnefnda á heimavígstöðvunum. Er Sovét- leiðtoginn heldur aftur til Moskvu frá Helsinki mun hann kynna sovéska þinginu neyðar- áætlun um að rífa landið upp úr feninu og koma á markaðsbú- skap. Áhyggjur Gorbatsjovs vegna innanlandsvandans eru án efa orsök þess að fundurinn verður svo stuttur og er haldinn svo skammt frá Moskvu, að sögn fréttaritara breska blaðsins Da- ily Telegraph. Vaxandi þungi er nú í kröfum umbótasinna um að Níkolaj Ryzhk- ov forsætisráðherra og ríkisstjórn hans segi af sér vegna efnahags- óreiðunnar. Upplausnin og hræðsl- an við viðbrögð almennings, sem í æ ríkari mæli er farinn að taka lögin í sínar hendur, valda því að stjórnvöldum er ekki umhugað að taka þá áhættu að láta hart mæta hörðu í samskiptum við íraka. Um 8.000 Sovétmenn, þar á meðal er fjöldi hemaðarráðgjafa en óvíst hve margir, eru í írak og Gorbatsj- ov hryllir við þeirri 'ulhugsun að Sovétmennirnir verði gíslar, rétt eins og Vesturlandabúarnir. Falli sovéskir borgarar og hermenn í Persaflóadeilunni gæti sovésk al- þýða látið stjómvöld heima fyrir gjalda þess. Sovétmenn hafa því hvatt eindregið til þess að friðsam- leg lausn verði fundin. Ekki má gleyma því að írakar skulda Sovét- mönnum sem svarar yfir 300 millj- örðum ÍSK fyrir vopn. Saddam Hussein myndi ekki hika við að hrista af sér þennan skuldabagga ef Kremlveijar tækju harðari af- stöðu til aðgerða hans. Sovéski utanríkisráðherrann, Edúard Shevardnadze, gaf í skyn á þriðjudag að leysa mætti Persa- flóavandann með því að efna til alþjóðafundar um málefni Mið- Austurlanda en það er hugmynd sem Sovétmenn hafa lengi reynt að afla fylgis. Ráðherrann gaf í skyn að Sovétmenn yæm reiðu- búnir að endurskoða samskipti sín við ísraela, sem hafa verið and- snúnir alþjóðaráðstefnu, ef hinir síðarnefndu vildu ljá máls á stefnu- breytingu. Gorbatsjov segir að þróun af- vopnunarmála verði mjög til um- ræðu á væntanlegum fundi hans með Bush. Þetta kom fram á fundi leiðtogans með hópi bandarískra þingmanna í Moskvu í gær. Ljóst er þó að Persaflóadeilan mun verða efst á baugi. Talsmaður Banda- ríkjastjórnar, Marlin Fitzwater, sagði að báðir leiðtogarnir vildu ræða nýjar hugmyndir í deilunni. „Þessi leiðtogafundur ætti að styrkja jafnvel enn meir samheldn- ina í andstöðunni við íraka og gefa leiðtogum risaveldanna tæki- færi til að meta gagnkvæma hags- muni sína að loknu kalda stríðinu." Ástandið í sendiráðinu hefur lengi verið erfitt. Langt er síðan rafmagns-, vatns- og símaleiðslur vom rofnar. Vatnsbirgðir munu vera á þrotum. Það bætir ekki úr skák að sendiráðið er við umferðar- götu þar sem vopnaðir andófsmenn úr röðum Kúvæta hafa haft sig í frammi gegn hernámsliðinu og gera jafnvel enn. Ráðuneytið hefur beitt öllum ráð- um til að koma skilaboðum til norska sendiráðsins um brottflutn- inginn. Meðal annars hafa verið sendar út tilkynningar til sendiráðs- mannanna í fréttasendingum norska útvarpsins, einnig í frétta- skeytum sem send em breska út- varpinu, BBC, og öðmm stöðvum sem vitað er að Longva hlustar á. Ráðuneytið hefur að auki beðið starfsmenn annarra sendiráða í Kúvæt-borg að koma boðunum til Norðmannanna. Það veldur miklum vanda að erf- itt getur orðið, að gæta öryggis norsku stjórnarerindrekanna þegar þeir reyna að komast á brott frá Kúvæt til Bagdad og, ef allt gengur að óskum, þaðan til Noregs. írakar hafa afnumið friðhelgi erlendra stjórnarerindreka í Kúvæt. Norð- mennirnir eiga því á hættu að verða handteknir um leið og þeir yfirgefa sendiráðsbygginguna. Sendiherra Austur-Þýskaiands, er samkvæmt fréttum Reuters-f réttastofunnar leitaði aðstoðar hjá vestur-þýska sendiráðinu í kröggum sínum, varð fyrir þessu en var þó fljótlega látinn laus. Norska stjórnin hefur haft sam- band við íraksstjórn og beðið um að öryggi Norðmannanna verði tryggt. Venjulega tekur það um átta stundir að aka frá Kúvæt til Bagdad og í skilaboðunum áður- nefndu er gert ráð fyrir að Norð- mennirnir reyni að komast af stað í dag, fimmtudag. En þótt þeir kom- ist til Bagdad er alls óvíst að þeir fái að yfirgefa Irak. Yfirvöld neita erlendum flugvélum um lendingar- ieyfi og írösku leiguvélarnar, sem flytja vestrænar konur og börn frá írak, eru yfirfullar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.