Morgunblaðið - 06.09.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
25
Reuter
Ernesto Betancourt (t.v.) og Iosvany Cotilla fóru frá sendiráði Spán-
ar í Havana seint á þriðjudagskvöld.
Kúba:
Síðustu flóttamemiirn-
ir farnir úr sendiráðum
Havana. Reuter.
TVEIR síðustu Kúbumennirnir af þeim 50 sem í sumar hafa leitað hælis
í sendiráðum erlendra ríkja í Havana yfirgáfu sendiráð Spánar í gær.
9. júlí sl. báðust fimm Kúbumenn hælis í sendiráði Tékkóslóvakíu og
fór þá af stað bylgja sú er lauk í gær. Kúbumennirnir, sem allir vildu
fara úr landi, leituðu hælis í sendiráðum nokkurra Evrópuríkja en
yfirvöld gáfu engin brottfararleyfi.
Spánveijar gagnrýndu stjórnvöld
á Kúbu fyrir viðbrögð þeirra í mál-
inu, Kúbumenn tóku gagnrýninni illa
og fóru af stað deilur milli ríkjanna
sem leiddu til þess að Spánverjar
kölluðu sendiherra sinn heim til ráða-
gerða og hættu allri efnahagsaðstoð
við Kúbu. Málið olli einnig deilum
milli Kúbumanna og Tékka en í
sendiráði Tékkóslóvakíu kom til inn-
byrðis átaka milli flóttamanna og
hélt hópur þeirra fimm sendiráðs-
mönnum í gíslingu í nokkrar klukku-
stundir.
Lyktir málsins eru taldar hafa
minnkað spennu í samskiptum Spán-
veija og Kúbumanna pn fulltrúi
spænska sendiherrans á Kúba,
Ignacio Ruperez, sagði að þótt mál-
inu væri nú lokið þá hefði það haft
alvarleg áhrif á samskipti ríkjanna,
sem hann vonaðist þó til að hægt
yrði að bæta. Hann sagði að yfirvöld
á Kúbu hefðu haft fulla og góða
samvinnu um lausn málsins og hefðu
lofað að flóttamönnunum yrði ekki
refsað.
Svíþjóð:
Skýrsla Greenpeace
litin alvarlegum augiiiii
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSK stjórnvöld líta skýrslu þá
sem Greenpeace-samtökin birtu
fyrr í vikunni alvarlegum augum
en samtökin kveðast hafa heimild-
ir fyrir því að frá árinu 1960 hafí
31 bandarískt herskip með kjarn-
orkuvopn innanborðs komið til
hafnar í Svíþjóð.
Sendiherra Svía í Washington,
Sven-Olof Petersson, var á þriðjudag
falið að leita skýringa á þessu hjá
embættismönnum í bandaríska ut-
anríkisráðuneytinu og er svars vænst
innan fárra daga. Jafnframt var her-
málafulltrúi Bandaríkjastjórnar í
sendiráðinu í Stokkhólmi kallaður á
fund stjórnvalda.
Svíar hafa þá reglu að krefja yfir-
menn herskipa er leita til hafnar í
Svíþjóð ekki svara um hvort kjarn-
orkuvopn séu innanborðs. Á hinn
bóginn er jafnan minnt á þá stefnu
sænskra stjómvalda að heimila ekki
flutninga á gereyðingarvopnum á
sænsku yfirráðasvæði og að gengið
sé út frá því að þessi stefna sé virt.
Stefna Bandaríkjamanna er hins
vegar sú að játa hvorki né neita veru
kjamorkuvopna um borð í herskipum.
Eins dags ráðstefna, „Kjarnorku-
vopn í Svíþjóð?", fór fram á vegum
Greenpeace-samtakanna í Stokk-
hólmi á þriðjudag. Formaður ráð-
stefnunnar var William M. Arkin,
forstöðumaður upplýsingaskrifstofu
Greenpeace-samtakanna um kjarn-
orkumálefni. Auk hans sóttu ráð-
stefnuna Elmar Schmáling, fyn-ver-
andi flotaforingi frá V-Þýskalandi
og Eugene J. Carroll, starfsbróðir
hans frá Bandaríkjunum. Auk þeirra
fluttu erindi þeir Kennedy Graham,
framkvæmdastjóri þingmannasam-
taka um hnattrænt átak, Pierre
Schori, aðstoðamtanríkisráðherra
Svíþjóðar, Sverre Lodgaard, for-
stöðumaður Alþjóða friðarrannsókn-
arstofnunarinnar í Ósló og Ulf Svens-
son, embættismaður í sænska ut-
anríkisráðuneytinu. Morgunblaðið
fékk þær upplýsingar á skrifstofu
Greenpeace-samtakanna í Stokk-
hólmi að auk þeirra hefði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borg-
arfulltrúi Kvennalistans, haldið
framsöguerindi á ráðstefnunni og
rætt um kjarnorkuvopnalaus svæði
frá sjónarhóli íslendinga.
Reuter
Kjötinnflutningi mótmælt
Franskir slökkviliðsmenn fjarlægja nautakjötsskrokka af akbraut eftir
að franskir kvikfjárbændur höfðu tekið 23 tonn af kjöti úr belgískum
flutningabíl og hellt dieselolíu yfir, svo það yrði óætt. Bændurnir voru
með þessum aðgerðum að mótmæla innflutningi á kjöti til Frakklands.
Fundir forsætisráðherra Kóreuríkjanna:
Samningar í burðarliðnum
um að hætta áróðursstríði
Reuter
Viðræðurnefndir forsætisráðherra Kóreuríkjanna heilsast í upphafi
fyrri formlegs fundar þeirra í Seoul.
Seoul. Reuter.
Forsætisráðherrar Kóreuríkj-
anna ræddust við á nær tveggja
klukkustunda löngum fundi i
Seoul í gærmorgun en að sögn
manna, sem málum eru kunnug-
ir, virðist engin breyting hafa
orðið á afstöðu þeirra til samein-
ingar rikjanna. Að líkindum
verður gengið frá samningum
um nokkur atriði sem þó þykja
veigalítil í samanburði við þann
ágreining sem er með yfirvöld-
um ríkjanna tveggja.
Á fundinum lagði Kang Young-
hoon, forsætisráðherra Suður-
Kóreu, til að landamæri ríkjanna
yrðu opnuð og höft á ferðafrelsi
milli þeirra afnumin á helstu
frídögum, opnað yrði aftur fyrir
vega- ogjárnbrautasamgöngursvo
og póst og síma, hafið yrði sam-
starf á sviði efnahagsmála og opn-
að fyrir viðskipti og reynt eftir
mætti að draga úr fjandskap milli
ríkjanna. Lagði Kang einnig til að
ríkin afvopnuðust stig af stigi
þannig að ætíð yrði jafnræði með
herafla þeirra en það felur í sér
meiri fækkun í herafla Norður-
Kóreu, sem hefur um 870.000
menn undir vopnum meðan
650.000 menn eru í her Suður-
Kóreu.
Yon Hyong-muk, forsætisráð-
herra Norður-Kóreu, hóf mál sitt
með því að segja: „Við erum
hreyknir af því að stjórnarfarið í
okkar ríki er hið árangursríkasta
í heiminum.“ Sagði hann svo að
forsenda bættra samskipta
ríkjanna væri að draga úr hemað-
arspennu á Kóreuskaganum og
pólitískri úlfúð. Setti hann fram
þær kröfur að þrír suður-kóreskir
stjórnarandstæðingar sem fangels--
aðir vom fyrir að takast ferð á
hendur til Norður-Kóreu yrðu látn-
ir lausir, að hætt yrði árlegum
heræfingum Suður-Kóreumanna
og Bandaríkjamanna og að Kóreu-
ríkin deildu sæti hjá Sameinuðu
þjóðunum. Sagði talsmaður stjórn-
ar Suður-Kóreu, Kim Hyong-gi,
að ekkert svigrúm væri fyrir mála-
miðlun í þessum efnum.
Hins vegar er búist við því að
Kang og Yon undirriti samninga
um að koma á beinni símalínu
milli höfuðstöðva heija ríkjanna
tveggja, að hætta innbyrðis áróð-
ursstríði og íjarlægja varnarvirki
á vopnahléslínunni svonefndu sem
skilur Kóreuríkin tvö. Ekki var
útskýrt nánar hvað í því fælist.
Var seinni fundur ráðherranna fyr-
irhugaður í dag. Gert var ráð fyrir
að þeir ákveði að hittast að nýju
16.-19. október í Pyongyang, höf-
uðborg Norður-Kóreu.
VETRAR
CT/kRPIF)
v I nrvnu
HFCQT1H QFPT
nCi O I I Ui OCr I ■
INNRITUN (ALLA FLOKKA HAFIN
★ Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldrí
★ Kúrinn 28 + 7
★ Morgun-, dag- og kvöldtímar
★ Rólegirtímar
★ Lokaðirflokkar(framhald)
★ Púltímar fyrir ungar og hressar
★ „Lausirtímar" fyrlr vaktavinnufólk
NÝTT
Sér flokkar fvrir 17-23 ára
i'kúrinn'
28+7
Suðurveri,
s. 83730
Hraunbergi,
S. 79988