Morgunblaðið - 06.09.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
41
Þegar Viggó var ungur maður
tók hann sér ferð á hendur til Jerú-
salemborgar til að sjá með eigin
augum það landsvæði þar sem Jes-
ús Kristur hafði lifað og starfað.
Að lokinni þeirri ferð flutti hann
fyrirlestur í Reykjavík að viðstöddu
ijölmenni, við góðar undirtektir.
Þeir Ebineser Ebinesersson og
Viggó gáfu út bókina Básúnu sem
er ritgerðir og ljóð. Ebineser ritaði
lesefnið en Viggó málaði allar
myndirnar. Viggó var mjög list-
rænn að eðlisfari og hefði vafalaust
náð langt á því sviði hefði hann
lagt það fyrir sig. Líf og starf Jesú
Krists var sú leiðarstjarna sem
Viggó sigldi eftir gegnum allt sitt
líf. Hann átti nægan kjark til að
viðurkenna trú sína í samtölum við
samstarfs- og samtíðarmenn. Hann
átti næga hreinskilni til að viður-
kenna þau sannindi að gull er ekki
það eftirsóknarverðasta í lífinu
heldur það að eiga frið og gleði í
sálu sinni. Gleði sem aldrei dvín,
vegna öruggrar guðstrúar, er birtist
í daglegu starfi til hinsta ævidags.
Þau Viggó og Hulda vissu með
nokkrum fyrirvara hvern endi veik-
indi Viggós mundu hafa og tóku
þeirri fregn með ró og jafnaðar-
geði. Viggó andaðist að heimili sínu
22. júní síðastliðinn. Það er huggun
í harmi eiginkonu hans að hafa átt
slíkan mann og getað, eftir 54 ára
sambúð, veitt honum hjúkrun og
ástúð á þeirra eigin heimili til hinstu
stundar. Það er huggun í harmi
barna hans og barnabarns, að hafa
átt svo kærleikríkan og trúaðan
föður og afa. Þótt tímans sáld fenni
í gengin ævispor drengskapar-
manns, mun minningin um hann
lengi lifa þótt sál hans sé flutt yfir
á þroskabrautir hins eilífa lífs.
Eg votta eiginkonu hans, Huldu,
og aðstandendum öllum innilega
samúð.
Karvel Ogmundsson
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsamd við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður og afa
GUÐJÓNS JÓNSSONAR,
Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli.
Rúnar Guðjónsson, Auður S. Guðjónsdóttir,
Ingi Guðjónsson,
Efna Hanna Guðjónsdóttir,
Margrét Guðjónsdóttir, Kjartan Óskarsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR P. STEFÁNSSON
fyrrverandi prentsmiðjustjóri,
Bólstaðarhlíð 45,
andaðist föstudaginn 17. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun eru færðar læknum og hjúkr-
unarfólki í Hátúni 10B og hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Anna Pálmadóttir.
_Dale .
Carnegie
þjálfun
Ræðumennska og mannleg samskipti.
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn í
kvöld kl. 20.30 á Sogavegi 69,
gengið inn að norðanverðu.
__ t
★ Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ Öðlast HUGREKKI
og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann-
færingarkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst að um-
gangast aðra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
— heima og á vinnustað.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum
og draga úr kvíða.
1- K Fjárfesting í menntun
IÉ gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
Upplýsingasími
um breytingar
útibúanetsins!
Nú í haust eiga sér staö breytingar á útibúanéti íslandsbanka.
Hafirþú einhverjar spurningar í tengslum viö breytingarnar, geturöu
hringt í sérstakan UPPLÝSINGASIMA:
91-678 678
Síminn er opinn frá kl. 9.15-16.00 alla virka daga.
ISLANDSBANKI
-í takt við nýja tíma!
NYJASTA ENSKA 0RÐAB0KIN
1.116 blaðsíður - handhæg og notadrjúg.
Kynningarverð
til áramóta
kr. 1.600.
STJORI\IUI\IARSKOLII\ll\l
Konráö Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiöin"
ORÐABOKAUTGAFAN