Morgunblaðið - 06.09.1990, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990
félk f
fréttum
PÞ
Hópurinn fyrir utan tveggja dyra þristinn frá Guðmundi Jónassyni, þar sem stoppað var í Skorradalnum
til þess að tína ber.
FERÐALÖG
Síðsumarsferð
Nessóknar
Síðasta laugardaginn í ágúst
fóru um 45 manns úr Nessöfn-
uði í Reykjavík í dagsferð um Borg-
arfjörð. Var farið fyrst í Saurbæjar-
kirkju á Hvalfjarðarströnd, þar sem
sóknarpresturinn, Jón Einarsson,
sagði hópnum frá kirkjunni og
Hallgrími Péturssyni. Þaðan ekið
upp í Vatnaskóg í Svínadal, þar sem
menn snæddu nestið sitt, og höfðu
margir úr hópnum ekki komið þang-
að áður.
Að því loknu var litið til berja í
landi Stóru-Drageyrar í Skorradal,
og síðan endað með kaffi í boði
sóknarnefndar í Reykholti að lok-
inni frásögn sóknarprestsins, Geirs
Waage, um Reykholt í kirkjunni
þar.
Karlaflokkur í Vatnaskógi
H efðbundnu sumarstarfi sumar-
búðanna í Vatnaskógi í Svínadal í
Borgarfirði lauk um mánaðamóts-
helgina ágúst/september með
karlaflokki, sem haldinn var í 5.
sinnið eftir endurreisn flokksins.
Metaðsókn var í þennan flokk -
alls um 85 manns sem komu og
geta vart verið fleiri í flokki sem
þessum.
Yfirskrift þessa flokks var „Slök-
un ’90“ og mátti með sanni segja,
að slíkt hafi verið nýtt til hins ýtr-
asta, þar sem menn fóru í höllun
eftir hveija einustu magaáfyllingu,
sem voru fimm yfir daginn. Flestir
færðust upp um nokkur kíló yfir
helgina, enda maturinn með af-
brigðum mikill og góður hjá stúlk-
unum í eldhúsinu.
Dagskránni fyrir þennan karla-
flokk, sem var fyrir 17 ára og eldri,
lauk með messu í Saurbæjarkirkju
og tyrfingu nýs íþróttavallar.
PÞ
í flokknum að þessu sinni voru 4 samkennarar úr Iðnskólanum í
Reykjavík, þeir Aðalsteinn Thorarensen, Alfreð Harðarson, Olgeir
Axelsson og Sigurður Kárason.
Skógarmenn reka sumarbúðirnar Skógarmanna er Ársæll Aðalbergs-
í Vatnaskógi. Núverandi formaður son kjallarakaupmaður úr Keflavík.
Julio Iglesias lengst t.v. ásamt Virginíu Madren, Cesar Romero og
Jane Wyman.
VERÐLAUN
Julio Iglesias heiðraður
Nýlega voru afhent í fyrsta skipti
tónlistarverðlaun kennd við
Rudolph Valentino og féllu þau í
skaut hjartaknúsarans spænska,
Julio Iglesias, sem hefur töfrað
kvenþjóðir um heim allan með man-
söngvum sínum, titrandi röddu og
ástríðufullri sviðsframkomu. Galdur
hans felst einkum í því að hann
stendur grafkyrr, en þrýstir hönd
að hjarta sér á meðan að hann syng-
ur.
Leikarar, fólk úr kvikmyndaiðn-
aðinum og oðrum listagreinum fjöl-
menntu og fögnuðu Iglesias ákaft,
þeirra á meðal Jane Wyman og
Robert Mitchum sem einnig fengu
verðlaun. Hljómplötur Júlíusar hafa
selst í yfir 150 milljónum eintaka
og hvar sem hann fer troðfyllir
hann áheyrendasvæðin.
Fjölbreytt skemmtiatríði
ásamt kvöldverði
mestkomandi laugardagskvöld
MA. TSEÐILL:
Reykturlax
Glóöarsteikt lambafile
ísmeðá vöxtum
Kr. 2.900,-
Afslá ttur fyrir hópa
H/jómsveit
Pálma Gunnarssortar
DANSBARINN
Grensásvegi 7
Lúdó sextett og Stefán
skemmta föstudags- og laugardagskvöld
frá kl. 22.00-03.00.
Snyrtilegur klæðnaður.
DANSBARINN
Grensásvegi 7, sími 33311.
Dúett úr
The Dubliners
frá írlandi
í kvöld, föstudag og laugardag.
Húsið opnað kl. 18.00.
Nýr írskur matseðill á írsku verði.
Miðaverð eftir kl. 21.00 aðeins kr. 500,-
uÝTT sfNAANONÆR
BLAÐAAFGRE'ÐSUL
Miðasala og borðapantanir isíma 687111
Snyrtilegur klæðnaður (gallaklæðnaður bannaður)