Morgunblaðið - 06.09.1990, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990 51
„Tvenn slæm mistök
kostuðu tvö mörk“
- sagði Atli Eðvaldsson, fyrirliði Islands. „Fórum ekki
að bíta frá okkurfyrr en í seinni hálfleik."
„ÞAÐ var grátlegt að þurfa að
horfa á eftir knettinum hafna
tvisvar sinnum í netinu hjá okk-
ur eftir tvö slæm varnarmis-
tök,“ sagði Atli Eðvaldsson,
fyrirliði íslenska landsliðsins.
„Seinna markið var nákvæm-
lega eins og við viljum setja
mark. Hornspyrna og mark!“
Við vorum of ragir í fyrri hálf-
leik. Lékum of rólega og það
vantaði alla baráttu í leik okkar.
Það er kannski eðlilegt, því að við
vorum að þreyfa á Frökkunum og
kanna styrk þeirra. Það var ekki
fyrr en undir lok fyrri hálfleiksins
að við fórum að bíta frá okkur og
þá fundum við að Frakkarnir voru
smeykir við okkur,“ sagði Atli, sem
var aftur á móti ánægður með
seinni hálfleikinn. „Þá fórum við
að pressa á þá eins og Albani á
dögunum. Unnum knöttin framar-
lega á vellinum og náðum að byggja
upp spil.“
„Eg var öruggur með að skora,
vissi af boltanum fyrir aftan mig
og rak hælinn vinalega í hann. Ég
miðaði upp í vinkilinn, en náði ekki
að stýra honum þangað," sagði
Atli brosandi, en hann skoraði mark
í öðrum landsleiknum í röð. Hann
skoraði þegar ísland vann Albaníu,
2:0.
„Ég er langt frá því að vera
ánægður með leikinn. Fyrri hálf-
leikurinn var hræðilegur. Liðið lék
of aftarlega þannig að við Pétur
Pétursson fengum litla sem enga
aðstoð. Það varð til þess að mikill
kraftur okkar fór í hlaup fram og
til baka á vellinum,“ saði Amór
Guðjohnsen, en hann og Pétur Pét-
ursson höfðu lítið að gera í fjóra
varnarmenn Frakka, sem léku yfir-
' vegað. „Það var ekki fyrr en í seinni
hálfleik að við fórum að pressa, en
það kostaði annað markið. Frakkar
bættu við marki eftir þunga sóknar-
lotu okkar. Það er eitthvað sem
vantar í leik okkur. Við erum búnir
að vera svo oft að tapa naumt und-
anfarin ár. Það vantar smá neista
til að leikur okkar verði beittari,“
sagði Arnór.
Bjarni Sigurðsson, markvörður,
sagði að hann hefði ekki átt mögu-
leika á að koma í veg fyrir frönsku
mörkin. „Papin hitti knöttinn mjög
vel þegar hann skoraði fyrra mark-
ið - knötturinn hafnaði út við stöng.
Það var of mikil þvaga fyrir framan
markið þegar Cantona skoraði
seinna markið - knötturinn skaust
á milli vamarmanna og í netið.
Fyrir utan þetta þurfti ég ekki að
hafa mikið fyrir því að veija þau
fáu skot sem Frakkar áttu að marki
okkar fóru vel framhjá. Þá náði ég
að hirða knöttinn af Perez þegar
hann komst einn inn fyrir vörn
okkarí fyrri hálfleik," sagði Bjarni.
- sagði BoJohannsson, þjálfari íslands
„ÞETTA var sanngjarn sigur. Frakkar voru mjög góðir, sérstak-
lega í fyrri hálfleik en þá bárum við allt of mikla virðingu fyrir
þeim,“ sagði Bo Johansson, landsliðsþjálfari íslands, í gær.
Johansson sagði, aðspurður um þann mikla mun sem var á íslenska
liðin fyrir og eftir leikhlé: „Við bárum allt of mikla virðingu fyrir þeim.
Lékum hræðilega í fyrri hálfleik. Þá var þetta bara spörk og hlaup hjá
strákunum og þannig er ekki hægt að leika knattspyrnu. Við ákváðum
í leikhléi að reyna að spila vel í síðari hálfleik — jafnvel þótt við myndum
tapa; það er mikilvægara að leika vel þvi aðeins þannig getur einhver
þróun átt sér stað hjá liðinu. Það gengur ekki upp að vinna leiki með því *
að leika illa, það gengur ekki til lengdar. Það er betra að taka áhættu,"
sagði landsliðsþjálfarinn.
Morgunblaðið/Bjami
Takk fyrir leikinn!
Það er engu líkara en að Pétur Pétursson sé í þann mund að smella rembingskossi á kinn Brunos Martinis, markvarð-
ar Frakka, og þakka honum fyrir leikinn í gær. Svo var þó ekki; Pétur sóttist aðeins eftir boltanum, en auga myndavél-
arinnar blekkir.
Platini sagði lið sitt hafa leikið vel. „Leikaðferðin gekk upp — það sem
ég lagði fyrir var rétt gert í stórum dráttum." Hann sagðist sérstak-
lega ánægður með vörnina.
Hann játti því að síðari hálfleikurinn hefði verið mun erfiðari fyrir
menn hans en sá fyrri. „Islenska liðið hélt boltanum alls ekki nógu vel í
fyrri hálfleik, en það breyttist. Það var ailt annað að eiga við þá í síðari
hálfleik. En þrátt fyrir það kom það mér á óvart hve íslensku leikmennirn-
ir virtust í slæmri leikæfíngu. Við þurftum í raun ekki að hafa svo mikið
fyrir því að elta þá í seinni hálfleiknum,“ sagði franski þjálfarinn. Platini
var síðan spurður hvort hann hefði ekki orðið hræddur þegar Atli minn
aði muninn eftir talsverða pressu íslenska liðsins. Svarið var einfalt: „Nei,
ég var aldrei hræddur!"
„ÞETTA var erfiður leikur, en ég er mjög sáttur við úrslitin.
Þetta var góður áfangi á leið okkar,“ sagði Michel Platini, þjálf-
ari franska landsliðsins, eftir leikinn í gær.
Laugardalsvöllur, undankeppni Evrópu-
móts landsliða í knattspymu, 1. riðill,
miðvikudaginn 5. september 1990.
Mark ísíands: Atli Eðvaldsson (85.)
Mörk Frakklands: Jean-Pierre Papin
(ip.), Eric Cantona (73.)
Dómari: D.F. Syme.
Línuverðir: K.J. Hope og R. McNab.
Lið íslands: Bjami Sigurðsson, —
Guðni Bergsson, Sævar Jónson,
Þorgrímur Þráinsson, Atli Eðvaldson, —
Sigurður Grétarsson, PétiltnOrmslev
(Rúnar Kristinsson 65.), Þorvædur Örl-
ygsson (Ragnar Margeirsson 65.), Ólaf-
ur Þórðarson, — Amór Guðjohnsen,
Pétur Pétursson.
Lið Frakklands: Bruno Martini, —
Manuel Amoros, Bernard Casoni, Basile
Boli, Franch Sauzee, — Christian Perez,
Bernard Pardo, Didier Deschamps,
Laurent Blanc (Jean Philippe Durand
76.), — Jean Pierre Papin, Eric Cantona.
Ísland-Frakklandl :2
„Höfum ekki til
einkað okkur
breytinguna"
Guðni Bergsson:
„Fyrri hálfleikurinn var end-
urtekning á síðustu leikjum. Við
höfum einhverra hluta vegna
verið seinir í gang og ragir.
Fyrra markið kom eftir mis-
heppnaða fyrirgjöf, dæmigert
íslenskt mark, en við vorum
ekki byrjaðir.
Við erum í einhveiju millibils-
ástandi. Áður var dagsskipunin
sú að beita langspyrnum, en er
meira lagt upp úr spili. Við höf-
um ekki tileinkað okkur breyt-
inguna, en eigum að geta byijað
fyrr. Að þessu sinni gáfum við
svæði og tíma í fyrri hálfleik,
en töluðum um í hálfleik að við
yrðum að gera betur og fórum
út með því hugarfari. Þá fór
hjólið líka að snúast, við unnum
boltann, lokuðum svæðum og
allt spil varð auðveldara fyrir
vikið.“
Rúnar Kristinsson:
Rúnar Kristinsson, sem átti
21 s árs afmæli í gær, lék síðustu
25 mínúturnar. „Fyrri hálfleik-
urinn var ekki góður hjá okkur.
eyndar er rosalega erfitt að
spila gegn Frökkum, því þeir eru
mjög snöggir og halda boltanum
vel. En við héldum boltanum
ekki nógu vel, vorum ragir við
að spila og ekki nógu duglegir
að vinna boltann. Eftir hlé byij-
uðum við fyrst að spila, en feng-
um ódýr og ekki glæsileg mörk
á okkur.
Við verðum að læra af mis-
tökunum í þessum leik og sýna
gegn Tékkum og Spánveijum
að við getum haldið boltanum
og spilað.“
Sanngjarn sigur
Nei, nei!
Nei, nei. Ég snerti knöttinn
alls ekki með hendinni. Hann
kom við mig áður ég skoraði, en
ekki í hendina. Horfðu bara á það
í sjónvarpinu!"
Þetta sagði Eric Cantona, sem
gerði síðara mark Frakka í gær-
kvöldi. íslensku leikmennirnir eftir
að hann kom boltanum yfir línuna;
töldu að hann hefði snert hann
með hendinni áður.
„Ég er mjög ánægður með að
fá tvö stig hér. En markatala
gæti ráðið úrslitum um það hvaða
lið fer upp úr þessum riðli í úrslita-
keppnina þannig að það var mjög
slæmt að þeir skoruðu," sagði
Cantona. Hann sagði ennfremur
að erfitt væri að einbeita sér nægi-
lega vel fyrir leiki sem þennan.
„Völlurinn var frekar erfiður og
áhorfendur ekki margir.“
1
1 Minn <
bdlUli
- sagði Michel Platini, þjálfari franska liðsins