Morgunblaðið - 23.10.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990
27
Tampere í Finnlandi:
Bækur og tónlist á ís-
lenskri menningarviku
Forseti Islands tók við heiðursdoktorsnafnbót
Tampere í Finnlandi, frá Einari Fal Ingólfssyni, bladamanni Morgunblaðsins.
FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, tók við heiðursdoktors-
nafnbót við háskólann í Tampere á sunnudag en Tampere er næst-
stærsta borg Finnlands. Athöfnin var mjög hátíðleg og í tilefni af
nafnbótinni fékk forsetinn pípuhatt og sverð. Islensk menningarvika
var formlega sett í menningarmiðstöðinni Tampere-höllinni á laugar-
dag. Frú Vigdís Finnbogadóttir flutti ræðu við athöfnina. Þá fluttu
Sinfóníuhljómsveit Islands og kirkjukór Langholtskirkju þjóðsöngva
íslendinga og Finna og hljómsveitin flutti verkið Trifoni eftir Þorkel
Sigurbjörnsson.
Frú Vigdís Finnbogadóttir hefur
vakið mikla athygli hér og viðtöl
hafa verið við hana í blöðunum. Þrátt
fyrir nokkurn kulda hafa borgarbúar
alls staðar safnast saman, þar sem
frú Vigdís hefur verið á ferð og fjöl-
miðlar hafa fylgst vel með ferðum
hennar.
Um 250 íslendingar, aðallega
listamenn og sendifulltrúar, eru
komnir til Tampere í tilefni af menn-
ingarvikunni en íslensku gestirnir
fara heim á miðvikudag. Við mót-
tökuathöfnina kveikti forseti íslands
á 40 þúsund Ijósaperum með sérs-
takri haustlýsingu en svo er gert á
hveiju ári við hátíðlega athöfn.
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra opnaði á laugardagsmorgun
sýningu á íslenskum bókum í borgar-
bókasafni Tampere. Meðal bóka á
sýningunni eru handrit, sem fengin
voru að láni frá Uppsölum, átta síður
úr Uppsala Eddu, handrit af Jónsbók
og prentað handrit af Grettissögu.
Við opnunarhátíðina var safninu gef-
in íslensk tónlist á geisladiskum og
er þar að finna bæði klassíska tón-
list og popp.
A laugardag var einnig farin hóp-
reið um borgina á íslenskum hestum.
Einnig voru haldnar kappreiðar ís-
landshesta og frú Vigdís Finnboga-
dóttir var þar viðstödd dóma. Þá
hélt Edda Erlendsdóttir píanótón-
leika og blásarakvintett Sinfóníu-
hljómsveitar íslands lék í stærstu
verslanamiðstöð Tampere. Petri Sak-
ari, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar-
innar, kynnti kvintettinn en hann er
einmitt héðan frá Tampere og hljóm-
sveitin hefur vakið mikla athygli
hér. Á sunnudag flutti Sinfóníu-
hljómsveitin meðal annars verk eftir
Sibelius. Einnig var fluttur sellókon-
sert eftir Jón Nordal og einleikari
var Erling Blöndal Bengtsson.
Biskupinn yfir íslandi, herra Ólaf-
ur Skúlason, predikaði í dómkirkj-
unni í Tampere á sunnudag. Kór
kirkjunnar og kór Langholtskirkju
sungu við guðsþjónustuna. Fjölmenni
Fjáraukalagafrumvarp lagt fram:
Halli ríkissjóðs verður
4,96 milljarðar á þessu ári
Hallinn hefur aukist um milljarð frá áætlunum í ágúst
Fjáraukalög, sem lögð voru
fram á Alþingi í gær, gera ráð
fyrir rúmlega 4 milljarða króna
útgjaldaauka og 3,6 milljarða
tekjuauka frá fjárlögum. Rekstr-
arhalli rikissjóðs verður sam-
kvæmt frumvarpinu 4,96 millj-
arðar á árinu. A fjárlögum var
gert ráð fyrir að rikissjóðshall-
inn yrði 3,7 milljarðar en endur-
skoðuð áæltun fjármálaráðu-
neytisins í ágúst sl. gerði ráð
fyrir 3,95 milljarða króna halla.
Fjáraukalög í maí gerðu hins
vegar ráð fyrir 4,5 milljarða
halla.
Útgjöld ríkins aukast um 4.056
milljónir frá fjárlögum, samkvæmt
frumvarpinus og eru stærstu þættir
útgjaldaaukningar fimm.
Til heilbrigðis- og tryggingamála
fara 1.260 milljónir króna, og er
stærsti hlutinn, eða um 1.100 millj-
arðar, aukinn aukinn lyfjakostnað-
ur. Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði á blaðamanna-
fundi í gær, að að lyfjanotkun hefði
aukist og lyfjaverð hækkað. Hann
nefndi sem dæmi, að eitt tiltekið lyf
sem gæti komið í veg fyrir hjarta-
sjúkdóma, myndi kosta ríkissjóð um
200 milljónir króna væri það tekið
í almenna notkun. Ólafur Ragnar
sagði síðan, að lyfjasölukerfið hér
á landi væri úrelt, og það væri sið-
laust, að lyfjaheildsalar tækju til
sín jafn stóran hlut af lyfjaverði og
raunin er.
Kostnaður ríkisins vegna nýrrar
verkaskiptingar ríkis og sveitarfé-
laga hefur orðið mun meiri en talið
var, þegar verkaskipting var undir-
búin. Eru 280 milljónir af útgjalda-
aukanum raktar til þessa. Olafur
Ragnar sagði að þetta væri ekki
sök eins eða neins heldur staðreynd
sem menn stæðu frammi fyrir.
Hann sagði einnig, að þarna væru
aðallega um að ræða stærstu sveit-
arfélögin á höfuðborgarsvæðinu.
Útgjöld sem leiddu beint af sam-
þykktum Alþingis nema um 320
milljónum, og er þar aðallega um
að ræða framlög til vegamála og
aukinn kostnað við snjómokstur
vegna veðurfars í fyrravetur.
Þá var ákveðið að 300 milljóna
króna framlag til Endurbótasjóðs
ríkisstofnana kæmi úr ríkissjóði en
yrði ekki tekið að láni. Þá kemur
hallarekstur ríkisstofna frá fyrra
ári til greiðslu á þessu ári. Sú upp-
hæð nemur 280 milljónum.
Af öðrum liðum má nefna aukin
útgjöld um 150 milljónir vegna
reksturs skóla, aukinn kostnað við
skýrsluvinnu og tölvumál í skatt-
kerfinu upp á 220 milljónir, 130
milljónir vegna lífeyrisskuldbind-
inga ríkisins, 100 milljónir vegna
mikils álags í dómskerfinu, 140
milljónir til hjálparstarfs við Persaf-
lóa, 65 milljónir til hafnarmála
vegna óveðurs í janúar, og 70 millj-
ónir vegna aukakostnaðar í ýmsum
ráðuneytum vegna viðræðna EB og
EFTA.
Tekjuauki ríkissjóðs er 3.630
milljónir frá fjárlögum og skýrist
aðallega af meiri tekjum af álagn-
ingu opinberra gjalda, m.a. vegna
betri afkomu fyrirtækja á síðasta
ári en gert var ráð fyrir. Þá hefur
hert innheimta skilað viðbótartekj-
um.
Þetta eru önnur fjáraukalög
þessa árs, en í maí voru samþykkt
lög vegna útgaldaauka sem kjara-
samningar höfðu í för með sér fyr-
ir ríkið og hefur ríkissjóðhallinn
aukist um 456 milljónir síðan. Þá
er þetta annað árið þar sem lagt
er fram fjáraukalagafrumvarp að
hausti til að fá þingheimild fyrir
útgjaldaauka fjárlagaársins, og
sagðist Olafur Ragnar Grímsson
leggja mikla áherslu á að frumvarp-
ið yrði afgreitt fljótt til að það yrði
marktækt stjórnunartæki.
. Ólafur Ragnar sagði að nú væri
hugtakið aukafjárveiting nánast úr
sögunni, og að hann hefði ekki sam-
þykkt neina aukafjárveitingu á
þessu ári. Hann sagði að reynslan
af þessu væru sú, að aukið aðhald
skapaðist með útgjöldum í ríki-
skerfinu.
Þá sagði Ólafur Ragnar í fram-
haldi af þessu væri skynsamlegast
að kalla Álþingi saman í september
og leggja þá strax fram fjárlaga-
frumvarp og fjáraukalagafrum-
varp, sem hægt væri að stjórna
'eftir síðasta ársfjórðunginn.
Magnús Pétursson ráðuneytis-
stjóri sagði á fundinum, að það
fjáraukalagafrumvarp, sem nú var
lagt fram, eigi að vera nánast end-
anleg niðurstaða fjárlaganna. Fari
stofnanir fram úr fjárveitingum eft-
ir samþykkt þess, verði farið mjög
vandlega yfir ástæður þess áður en
fallist verði á viðbótarframlög, en
ella verði dregið af fjárveitingu
næsta árs sem framúrakstrinum
næmi.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, tók við heiðursdokt-
orsnafnbót við háskólann í Tam-
pere á sunnudag. I tilefni af nafn-
bótinni fékk frú Vigdís pipuhatt
og sverð.
var við athöfnina, sem lauk á þann
hátt að kóramir gengu syngjandi úr
kirkjunni og kirkjugestir á eftir.
Á mánudagsmorgun lásu rithöf-
undarnir Þórarinn Eldjám, Kristín
Steinsdóttir og Vigdís Grímsdóttir
úr verkum sínum í Tampere-háskóla.
Á mánudag hófst vinabæjaþing í
Tampere-höllinni, svo og viðskiptar-
áðstefna, þar sem Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra hefur tekið þátt í
umræðum. í stúdentaleikhúsinu hér
í borginni var haldið málþing rithöf-
unda og þýðenda en þátt í þinginu
tóku Einar Kárason, formaður Rit-
höfundasambands Íslands og Njörð-
ur P. Njarðvík en Njörður hefur þýtt
finnskar bókmenntir á íslensku.
í Tampere-höllinni stendur yfir
íslensk listsýning. Þar eyu til sýnis
ljósmyndir frá hemámi íslands,
íslensk frímerki og rýmislistaverk
eftir Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur.
í höllinni hafa einnig verið sýnd
íslensk myndbönd, kvikmyndir og
fræðslumyndir. Þar er einnig íslenskt
kaffíhús, Kaffe Reykjavík, þar sem
meðal annars er boðið upp á kleinur,
flatkökur, skyr og íslenska gos-
drykki.
Þá hefur Þjóðdansafélag
Reykjavíkur sýnt íslenska þjóðdansa
víðs vegar um Tampere-borg.
Heimastjórn-
arsamtök í
öllum kjör-
dæmum
FRAMKVÆMDANEFND um
stofnun nýs stjórnmálaafis,
Heimastjórnarsamtakanna, hefur
samið uppkast að stefnuskrá fyrir
þau þar sem höfuðáhersla er lögð
á valddreifingu, jöfnuð og lýð-
ræði. Nefndin var sett á laggir á
ráðstefnu á Selfossi 6. október,
þegar hópur manna úr öllum
landshlutum ákvað að vinna að
formlegri stofnun Heimastjórnar-
samtakanna. Að sögn Tómasar
Gunnarssonar, formanns fram-
kvæmdanefndarinnar, eru það
einkum Stefán Valgeirsson og
Samtök um jafnrétti og félags-
hyggju sem hafa haft forystu um
þennan undirbúning, en fleiri hafi
komið við sögu, m.a. einstaklingar
úr Borgaraflokki og Þjóðarflokki.
„Unnið verður að formlegri stofn-
un kjördæmasamtaka um allt land á
næstu vikum sem síðan munu mynda
með sér landssamtök. Ráðgert er að
kynningarfundur verði haldinn um
þessi mál í Eyjafirði á föstudaginn,"
sagði Tómas í samtali við Morgun-
blaðið. „Við leggjum mikla áherslu
á að færa valdið nær fólkinu heima
í héruðunum og viljum m.a. bæta
réttarkerfið í landinu til að auðvelda
mönnum að sækja rétt sinn og veija.“
í kynningarplaggi frá fram-
kvæmndanefndinni þar sem helstu
áhersluatriði samtakanna eru talin
upp er lagt til að sett verði löggjöf
um „lífvænleg Iágmarkslaun í
landinu" og að „hollum mat og lág-
markshúsnæði verði vikið undan
skattlagningu." „Við ætlum að
mynda þessi samtök á breiðum
grundvelli en viljum að samtök hvers
kjördæmis verði sem sjálfstæðust og
drífi starfíð áfram,“ sagði Tómas.
Auk hans sitja Hilmar Haraldsson,
Reykjavík, og Jón Hjálmar Sveins-
son, Miðhúsum í Reykhólasveit, í
framkvæmdanefndinni um stofnun
Heimastjórnarsamtakanna.
Prófkjör Sjálfstæðisflokks-
ins í Vestfjarðakjördæmi
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarða- næstkomandi. Frambjóðendur í prófkjörinu
kjördæmi fer fram laugardaginn 27. október eru átta talsins, taldir í stafrófsröð:
Einar Kristinn Guð-
finnsson, útgerðar-
stjóri, Bolungarvík, 34
ára. Maki: Sigrún J.
Þórisdóttir.
Elín Sigríður Ragn-
arsdóttir, bóndi, 27
ára, Hellu við
Steingrímsfjörð.
Gísli Ölafsson, verk-
taki, 36 ára, Patreks-
firði. Maki: Kristín
Gísladóttir.
Guðjón Arnar Kristj-
ánsson, skipstjóri, for-
seti Farmanna- og
fiskimanna sambands
Islands, 46 ára. Maki:
Marianna Barbara
Kristjánsson.
Jörgína Jónsdóttir,
útibússtjóri, 34 ára,
Tálknafirði. Maki:
Torfi Andrésson.
Matthías Bjarnason,
alþingismaður, 69 ára.
Maki: Kristín Ingi-
mundardóttir.
Steinþór B. Kristjáns-
son, nemi í sjávarút-
vegstækni, 24 ára,
Flateyri.
Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, alþingis-
maður, 71 árs. Maki:
Elísabet María Ólafs-
dóttir.