Morgunblaðið - 23.10.1990, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990
33
Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri HaraldurSveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fróttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 90 kr. eintakið. .
Samningar við
sjómenn
Fáa hefur líklega grunað
þegar Morgunblaðið birti
fréttina um yfirvofandi verkfall
yfírmanna á fiskiskipum sl.
fimmtudag og studdist við sam-
tal við Einar Odd Kristjánsson,
formann ^ Vinnuveitenda-
sambands íslands, að tveimur
dögum síðar yrði samið við
Farmanna- og fiskimannasam-
band íslands og væntanlega
búið að bægja þeirri ógn frá
sem yfir vofði, eins og Einar
Oddur komst að orði. En þetta
kraftaverk var unnið á ótrúlega
stuttum tíma eftir þær upplýs-
ingar sem birtust hér í blaðinu
og eiga deiluaðilar heiður skilið
fyrir snör viðbrögð og af hve
mikilli festu og ábyrgðartilfinn-
ingu þeir horfðust í augu við
vandann. Við sjáum þannig að
þetta er hægt á íslandi. And-
nímið er gegn verkföllum.
Ábyrgir aðilar vilja að þjóðar-
sáttin svokallaða haldi og kaup-
máttur launa verði aukinn með
þeirri fóm sem launþegar hafa
fært í því skyni. Á þetta hefur
verið bent margoft hér á þess-
um vettvangi og enn ítrekað
nú þegar forystumenn sjó-
manna hafa sýnt óvenjulegan
þroska og raunsæi og sent sam-
komulagið til staðfestingar
yfirmanna. Með samkomulag-
inu hefur verið höggvið á Gord-
íons-hnút og kemur sér áreið-
anlega ekki sízt vel fyrir þá sem
ella hefðu þurft að bera ábyrgð
á deilum sem hefðu getað leitt
til hastarlegra átaka og verk-
falls sem eyðilegði þjóðarsátt-
ina. Samkomulagið er í sam-
ræmi við þessa sátt og þannig
í fyllsta samræmi við heildar-
stefnuna í launamálum. Nú er
þess að vænta að aðildarfélög
staðfesti samninginn og afboði
verkfall. Til þess hafa þau
nægilegt svigrúm en áður
stefndi allt í tímaþröng og
óefni. Það er athyglisvert
ákvæði í þessum nýja samningi
milli Farmanna- og físki-
mannasambandsins og Lands-
sambands íslenzkra útvegs-
manna að skiptahlutur byijar
ekki að skerðast vegna olíu-
verðs fyrr en það er orðið 165
dollarar í stað 157 nú og er
það gert vegna þess hve dollar-
inn hefur rýrnað. Kristján
Ragnarsson, formaður LIÚ,
segir að olíuverð nú hafi ekki
áhrif á hlutaskiptin samkvæmt
samningum og væntanleg olíu-
verðshækkun um næstu mán-
aðamót lendi einhliða á útgerð-
inni en skerði ekki kjör yfir-
manna. Hann bætir því við að
líklegt sé að samningur þessi
verði hafður að leiðarljósi í
samningum við undirmenn á
fiskiskipum. Guðjón A.^ Krist-
jánsson, formaður FFSÍ, segir
að lengra hafi ekki verið unnt
að komast og þessi niðurstaða
eðlileg eftir langt þóf. Og Einar
Oddur Kristjánsson telur mikil-
vægt að sjómenn og útgerðar-
menn standi fast saman „nú
þegar við eigum, einmitt þessi
misserin, svona mikið undir því
að tryggja fijálsa verðmyndun
á fiski“.
Einar Oddur hafði áður sagt
hér í blaðinu að sjómenn yrðu
að sætta sig við laun sín þótt
þeir væru ekki of sælir af þeim,
eins og hann komst að orði,
„því að þeir hafa fengið meiri
kjarabót en nokkrir aðrir laun-
þegar“. Og hann hélt áfram:
„Það mundi særa hvern einasta
mann holundarsári ef við gæf-
um eftir, þótt ekki væri nema
stafkrók. Þá væri búið að
stefna allri okkar vinnu í upp-
lausn og allt sem við hefðum
sagt og gert til þessa væru
svik.“ Einar Oddur hélt því
fram að hækkun fiskverðs á
þessu ári hafi orðið til þess að
sjómenn fengju 28% launa-
hækkun, en „samkvæmt þeirra
samningi gjalda þeir þess nú
að olíuverð hefur hækkað og
það hefur fært þá niður um 7%.
Eigi að síður sitja þeir eftir
með 20% kauphækkun sem er
a.m.k. 13% kaupmáttaraukn-
ing meðan kaupmáttur annarra
launþega hefur staðið í stað“.
Benedikt Valsson^ fram-
kvæmdastjóri FFSÍ, hefur
dregið í efa, einnig hér í blað-
inu, að kaupmáttaraukningin
sé jafnmikil og Einar Oddur
fullyrðir. Hvað sem því líður
er formaður Vinnuveitenda-
sambandsins þannig þeirrar
skoðunar að sjómenn, einir
launþega, hafi fengið álitlega
kaupmáttaraukningu á árinu,
en kaupmáttur launa annarra
stétta hafi einungis verið var-
inn með þjóðarsáttinni án þess
nein kaupmáttaraukning hafi
orðið, enda hafi ekki verið gert
ráð fyrir því. Kaupmáttur ann-
arra stétta standi á núlli.
Þjóðarsáttinni hafi verið ætlað
að veija hann, en ekki gert ráð
fyrir því að hún mundi auka
hann við þær aðstæður sem
ríkt hafa hér á landi.
Stefnuræða forsætisráðherra;
Flest atiiði álsamnings-
ins eru orðin viðunandi
HÉR fer á eftir stefnuræða
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra, sem hann flutti í
sameinuðu Alþingi í gærkvöldi:
Að vori verður kosið til Alþingis.
í þessari stefnuræðu mun ég því
ekki síst lýsa þeim ásetningi ríkis-
stjórnarinnar að skila góðu búi. Ég
mun fjalla um þann mikla árangur,
sem náðst hefur undanfarin tvö ár,
ekki síst í efnahags- og atvinnumál-
um, og það markmið stjómarflokk-
anna að treysta það jafnvægi sem
ríkir. Þannig er fenginn grundvöllur
til nýrrar sóknar í atvinnu- og
byggðamálum, sem ríkisstjórnin ger-
ir ráð fyrir að um verði fjallað á
Alþingi f vetur.
Jafnvægi í efnahag'smálum og
hagvöxtur veita svigrúm til að taka
á ýmsum viðfangsefnum f velferðar-
kerfinu, sem úrskeiðis hafa farið á
undanförnum árum og áratugum og
ekki verður lengur dregið að lag-
færa. Á því tel ég rétt að vekja at-
hygli.
Einnig er nauðsynlegt að fjalla um
þá mikilvægu alþjóðlegu samninga,
sem við íslendingar tökum nú þátt
f. Þeir geta ráðið úrslitum um framtfð
okkar sem sjálfstæðrar þjóðar.
Þegar ný ríkisstjórn tók við í lok
september 1988 blasti við vaxandi
verðbólga, hrun atvinnulífsins og
stórkostlegt atvinnuleysi. Á ársfundi
um haustið tilkynntu Samtök fisk-
vinnslustöðva yfirvofandi stöðvun,
enda söfnuðu útflutningsatvinnu-
vegimir óviðráðanlegum skuldum.
Alvarlegast var, að í þeirri ríkisstjóm
sem þá hrökklaðist frá, var engin
samstaða um nauðsynlegar aðgerðir.
Þá var ekki ofsagt að Róm brynni.
Þeir flokkar, sem þá mynduðu
nýja ríkisstjórn ákváðu að vinna þjóð-
ina skref fyrir skref burt frá hengi-
fluginu. Það var gert með aðhalds-
samri efnahagsstefnu og markvissri
leiðréttingu á gengi íslensku króh-
unnar, þannig að ekki ylli nýrri verð-
bólguöldu og kollsteypu í efnahags-
málum. Samtímis var ráðist í víðtæk-
ari fjárhagslega endurskipulagningu
útflutningsatvinnuvega en nokkm
sinni fyrr. Það var óhjákvæmilegt til
að koma í veg fyrir hrun. Sú aðgerð
var gagnrýnd af stjórnarandstöðunni
enda ekki f anda fijálshyggjunnar,
þar sem kylfa er látin ráða kasti.
Hlutafjársjóður hefur fyrir nokkru
lokið störfum og Atvinnutrygginga-
sjóður útftutningsgreina er að fjalla
um síðustu málin.
Ríkisstjórnin var endurskipulögð í
september 1989. Ný ríkisstjóm hefur
byggt á stefnu þeirrar sem á undan
sat, en með vaxandi áherslu á upp-
byggingu og nýsköpun f atvinnulíf-
inu. Það er gert á grundvelli aukins
jafnvægis í efnahagsmálum.
Það ágæta samstarf sem náðst
hefur á milli stjórnvalda og fulltrúa
verkalýðshreyfingar og launþega,
atvinnurekenda og bænda, hefur
reynst afar mikilvægt. Með því sam-
starfi og samningi þessara aðila í
febrúar sl. náðist sú þjóðarsátt sem
tryggt hefur efnahagslega endur-
reisn.
Sérstaklega er lofsverður sá mikli
skilningur, sem launþegar og bændur
hafa sýnt á nauðsyn þess að kveða
niður verðbólgudrauginn. Með þvi er
ég ekki að gera lítið úr hlut atvinnu-
rekenda. Á þeim brann verðbólgueld-
urinn hvað heitast. Hins vegar er það
sjaldan nefnt hvað ríkissjóður hefur
lagt til þessara mála.
Við gerð kjarasamninganna í febr-
úar sl. var ákveðið að auka útgjöld
til niðurgreiðslna og félagslegra
umbóta til lækkunar á framfærslu-
kostnaði. Samtals námu þau útgjöld
um einum milljarði króna á ársgrund-
velli. Þetta var nauðsynlegt til þess
að koma í veg fyrir kjaraskerðingu,
sem launþegar hefðu að öðrum kosti
orðið að þola. Án þessa hefði ekki
úr samningunum orðið.
Því er að vonum fagnað að rauða
strikið í september stóðst nokkurn
veginn. Svo varð þó ekki án sér-
stakra aðgerða stjórnvalda.
Frá janúar til október hefur vísital-
an hækkað um 5,7 af hundraði.
Minnst hefur hækkunin orðið á inn-
lendum landbúnaðarafurðum, 1,4 af
hundraði, og á öðrum innlendum
matvælum, 1,3 af hundraði. Hins
vegar hefur innflutt matvara hækkað
um 5,7 af hundraði og aðrar innflutt-
ar vörur um 9,2 af hundraði, sem
er talsvert umfram erlenda verð-
bólgu. Opinber þjónusta hefur aðeins
hækkað um 4,2 af hundraði en önn-
ur þjónusta um 11,2 af hundraði.
Þar sem verðmyndunin er fijáls-
ust, hefur hækkunin orðið mest, því
miður. Lítil hækkun á innlendum
landbúnaðarafurðum og opinberri
þjónustu hefur því í raun ráðið úrslit-
um og bjargað þjóðarsáttinni.
Til þess að rauða strikið ( septem-
ber því sem næst stæðist, ákvað
ríkisstjómin jafnframt að flýta niður-
fellingu virðisaukaskatts af bókum
og fella niður virðisaukaskatt af við-
haldsvinnu við íbúðabyggingar. Þetta
dró úr hækkun framfærsluvísitölu
um u.þ.b. 0,6 hundraðshlutastig og
kostar ríkissjóð nokkur hundruð
milljóna króna á ársgrundvelli.
Því fer fjarri að ég sjái eftir þess-
um útgjöldum ríkissjóðs. Aðgerðirn-
ar tókust vel og voru nauðsynlegar
til að ná þeim árangri ( baráttunni
við verðbólguna, sem að var stefnt.
Þó verður að hafa í huga, að ríkis-
sjóður er sameiginlegur sjóður allra
landsmanna og honum er ætlað að
standa undir sameiginlegum þörfum
velferðarþjóðfélagsins. Af þeim
ástæðum eru því takmörk sett, sem
unnt er að leggja á ríkissjóð án þess
annaðhvort að hækka skatta eða
draga úr þjónustu.
Ríkisstjórnin hefur talið sér skylt
að koma með öllum ráðum (veg fyr-
ir, að þjóðarsáttin brysti og víxlverk-
un launa og verðlags hæfist á ný.
Framkvæmd kjarasamnings, sem
ríkisvaldið hafði áður gert við Banda-
lag háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna, reyndist erfið við þessar að-
stæður. Því miður tókst ekki sam-
komulag við BHMR um að fresta
leiðréttingu, sem af samanburði á
kjörum háskólamenntaðra manna
kynni að leiða, fram í september að
ári, eða með öðrum orðum þar til
þjóðarsáttinni lyki. Þegar það brást,
átti ríkisstjómin ekki annan kost en
að fella úr gildi þau ákvæði kjara-
samningsins, sem valdið gátu meiri
launahækkunum en samningar á hin-
um almenna vinnumarkaði gerðu ráð
fyrir. Það leiddi einnig til breytinga
á nýgerðum samningi við flugum-
ferðarstjóra.
Ríkisstjórnin gerir ráð fýrir því,
að þeim samanburði, sem hafinn var
á kjörum háskólamenntaðra manna,
verði haldið áfram og honum lokið,
þannig að hann geti legið til grund-
vallar við gerð næstu kjarasamninga.
Ég vil láta í ljós þá skoðun mína
að háskólamenntaðir menn ekki síður
en aðrir íslendingar, verða að njóta
svipaðra kjara hér og þeim bjóðast
í öðrum vestrænum löndum. Ég trúi
því ekki að íslensk þjóð uni því að
verða fyrst og fremst útflytjandi hrá-
efnis, hvort sem það er óunninn fisk-
ur eða ál. Nútíma lífskjör byggja á
þekkingu. Þvl miður er þekkingar-
flótti héðan orðinn talsverður. Hann
verður að stöðva. Að öðrum kosti
munu lífskjör hér á landi verða lak-
ari en í öðrum vestrænum löndum.
Þrátt fyrir þá ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að tekjur ríkissjóðs af bensíni
skuli ekki hækka, þótt mikil hækkun
hafi orðið á innflutningsverði, mun
bensínhækkunin valda því að farið
verður yfir rauða strikið í nóvember.
Vonandi leiðir sú óviðráðanlega
hækkun ekki til víxlhækkana launa
og verðlags. Hafa verður í huga að
viðskiptakjör versna mjög við olíu-
verðshækkunina og falla við það að
öllum líkindum niður fyrir viðmiðun
kjarasamninganna. Það er fullkom-
lega óeðlilegt að olíuverðshækkun !
heiminum verði tilefni sérstakra
launahækkana hér á landi. Auk þess
verður að gera ráð fyrir að umrædd
hækkun á olíuvörum sé tímabundin.
Ef ekki verða víxlhækkanir verð-
lags og launa af völdum olíunnar,
telur Þjóðhagsstofnun að verðbólga
á næsta ári verði um 6—7 af hundr-
aði. Áætlað er að laun hækki um 8
af hundraði eða með öðrum orðum
að kaupmáttur aukist. Heíjist
víxlhækkanir hins vegar, mun gengi
íslensku krónunnar eflaust láta und-
an síga. Afleiðingamar þekkjum við
og vitum því að til mikils er að vinna.
Sá mikli árangur sem náðst hefur
í efnahagsmálum kemur fram á
mörgum sviðum. Þrátt fyrir sam-
drátt (efnahagslífinu á undanfömum
ámm hefur tekist að koma á mun
betra jafnvægi í utanríkisviðskiptum
þjóðarinnar en verið hefur um ára-
raðir. Sem dæmi má nefna að á sl.
ári náðist sá merki áfangi að umtals-
verður afgangur varð af vöruskiptum
við útlönd og dró því mjög úr við-
skiptahalla. Hann varð þó 1,6 af
hundraði sem fyrst og fremst stafar
af vaxtagreiðslum til útlanda.
Á þessu ári verður einnig afgang-
ur af vöruskiptum, en viðskiptahalli
líklega um 2 af hundraði. Minni við-
skiptahalla er spáð fyrir árið 1991.
Vegna viðskiptahallans hafa er-
lendar skuldir vaxið lítillega, jafnvel
þótt ríkissjóður hafi fullnægt láns-
fjárþörf sinni innanlands. Erlendar
skuldir eru nú um 50 af hundraði
landsframleiðslunnar. Greiðslusbyrði
af erlendum lánum hefur aftur á
móti lækkað nokkuð vegna lægri
vaxta erlendis.
Meðal mikilvægustu verkefna er
að lækka erlendar skuldir. Að því
er lagður grundvöllur með jafnvægi
í efnahagsmálum og aukinni fram'-
leiðslu.
Efnahagsbatinn kemur einnig
fram í lækkun vaxta og bættri stöðu
bankakerfisins. Fjármagnskostnaður
fyrirtækja og einstaklinga hefur
lækkað verulega. Það geta allir, sem
eitthvað skulda, staðfest. Afkoma
ijármálastofnana gefur til kynna að
vextir mættu enn lækka. Seðlabank-
anum ber lagaskylda til að fylgjast
með því.
í málefnasamningi ríkisstjómar-
innar er gert ráð fyrir að afnema
lánskjaravísitölu, þegar árshraði
verðbólgu er orðin 10 af hundraði í
6 mánuði eða lengur. Um þetta hef-
ur verið rætt við Seðlabankann og
er beðið eftir tillögum hans.
Um þessa ákvörðun ríkisstjórnar-
innar er nokkuð deilt. Fjármagnseig-
endur vilja áfram njóta þess öryggis,
sem lánskjaravísitalan veitir, a.m.k.
að nafninu til. Afnám hennar er þó
að mínu mati óhjákvæmilegt. Skal
ég nefna þrennt því til stuðnings.
í fyrsta lagi er óumdeilanlegt að
verðtrygging fjármagns stuðlar að
víxlverkun verðlags og launa, ef
verðbólguskriða fer á annað borð af
stað.
í öðru lagi kreíjast launþegar
verðtryggingar launa, ef fjármagns-
eigendur eiga að njóta slíks. Það
má ekki gerast á ný. Þá væri verð-
bólguskrúfan endurvakin.
I þriðja lagi stefnum við íslending-
ar að þv( að auka frelsi til fjármagns-
flutninga og tengjast þannig erlend-
um fjármagnsmörkuðum, og höfum
reyndar þegar stigið mikilsverð skref
í þá átt. Því er nauðsynlegt að hér
á landi séu mönnum búnar svipaðar
aðstæður til að ávaxta fé sitt og
þár. Hvergi í vestrænum löndum er
almenn verðtrygging fjármagns, og
sumstaðar er slíkt jafnvel bannað
með lögum.
Loks má reyndar vekja athygli á
því, að sem betur fer hafa kaup á
hlutabréfum aukist mjög, enda er
almenningur óspart hvattur til þess
að ávaxta þannig fé sitt. Hlutabréf
eru þó ekki verðtryggð. Rvers vegna
þarf annað að gilda á lánamarkaði?
Ég spyr.
Þegar horfur voru hvað verstar I
atvinnumálum þjóðarinnar fyrir
Steingrímur Hermannsson
u.þ.b. tveimur árum, var spáð miklu
atvinnuleysi. Var jafnvel talið að það
gæti orðið 4—6 af hundraði um sl.
áramót. Því hefur þó tekist að af-
stýra, sem betur fer. Atvinnuleysi
hefur þó orðið allt að 2 af hundraði
og nokkru meira á einstökum stöð-
um. Horfur eru einnig á því að at- ■
vinnuleysi geti aukist, m.a. vegna
samdráttar í framkvæmdum, ekki
síst á vegum hins opinbera og einnig
varnarliðsins.
Alvariegast horfír þó að mati Þjóð- •
hagsstofnunar um vöxt landsfram-
leiðslunar. Á undanförnum 10 árum
hefur landsframleiðslan hér aðeins
aukist um 22 af hundraði en á sama
t(ma um 34 af hundraði að meðaltali
( löndum Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar.
Horfið er því það forskot sem
náðist á uppgripaárunum eftir út-
færslu fiskveiðilögsögunnar, einkum
á 8. áratugnum.
Auk þess telur Þjóðhagsstofnun
ekki unnt að gera ráð fyrir meiri
vexti landsframleiðslu á næstu árum
en u.þ.b. 1,5 af hundraði á ári að
meðaltali. Þetta stafar ekki síst af
því að fiskimiðin eru nánast fullnýtt.
Þetta er aðeins um helmingur af
þeim hagvexti, sem gert er ráð fyrir
í öðrum vestrænum löndum. Lífskjör-
in, eins og þau eru mæld á hinn
hefðbundna efnahagslega mæli-
kvarða, mundu því falla verulega,
börið saman við aðrar þjóðir.
Ríkisstjórnin hefur því lagt áherslu
á að leita leiða til að breikka grund-
völl atvinnulífsins og skapa atvinnu-
tækifæri. Með því jafnvægi, sem
náðst hefur í efnahagsmálum, eru
nú til þess forsendur.
Unnið er að því að móta stefnu í
atvinnumálum, og munu tillögur í
þeim efnum lagðar fyrir Alþingi í
vetur.
Tími minn leyfir ekki að ræða þau
mál ítarlega nú. Til þess verður hins
vegar væntanlega svigrúm síðar. Ég
' vil leggja áherslu á þá bjargföstu
skoðun mína, að full ástæða sé til
bjartsýni ef rétt er á málum haldið.
Landið býður upp á mikla kosti. Með
dugnaði og þekkingu geta þeir orðið
óþijótandi uppspretta atvinnu og
tekna.
Undanfarna áratugi hefur mikið
verið að því unnið að koma á fót
orkufrekum iðnaði hér á landi. Til-
tölulega hagkvæmt vatnsafl hefur
virst kjörið til þess. Þótt þijú orku-
frek fyrirtæki hafi risið, hefur þessi
þróun þó gengið hægar en margir
gerðu ráð fyrir. Staðreyndin er að
erlendir aðilar hafa ekki beðið í bið-
röð við bæjardyrnar, e.t.v. sem betur
fer. Með tilliti til þess að ekki er leng-
ur unnt að gera ráð fyrir hagvexti
á grundvelli fiskveiða og vinnslu, sem
nálgast það sem var eftir útfærslu
fiskveiðilögsögunnar, hafa síðustu
ríkisstjómir talið nauðsynlegt að
leggja áherslu á nýtingu orkulinda
landsins til orkufreks iðnaðar. Þessi
viðleitni er nú loks að bera árangur
með samningi um byggingu 200.000
tonna álvers.
Eins óg fram kemur í skýrslu
þeirri um stöðu álmálsins, sem iðnað-
arráðherra hefur lagt fyrir Alþingi,
eru samningar komnir á lokastig.
Gerir iðnaðarráðherra ráð fyrir, að
þeim verði lokið um næstu mánaða-
mót. Þegar ákvörðun um byggingu
álvers er tekin, verður að meta mál-
ið í heild, sem og einstaka þætti
þess. Jafnframt er nauðsynlegt að
hafa í huga hvemig bygging þess
fellur inn í íslenska efnahags- og
byggðaþróun.
Eins og fyrr segir, gerir Þjóðhags-
stofnun ráð fyrir að hagvöxtur verði
innan við 1,6 af hundraði á næstu
áram. Auk þess telur stofnunin að
atvinnuleysi muni fara vaxandi hér
á landi að óbreyttu.
Af þessum ástæðum fellur bygg-
ing álvers og virkjana vel að þróun
íslensks efnahagslífs um þessar
mundir. Að sjálfsögðu verður þó að
gæta þess að þensla myndist ekki
þegar umfang framkvæmda er mest,
árin 1992 og 1993.
Þjóðhagsstofnun telur að aukinn
hagvöxtur af byggingu og rekstri
200.000 tonna álvers verði 1 af
hundraði á ári í 3—4 ár eða samtals
um 4 af hundraði þegar reiknað er
með margfeldisáhrifum. Um það
munar vissulega í núverandi stöðu.
Um einstök atriði samningsins verð-
ur eflaust lengi deilt. Ég hygg þó
að ,flest séu þau orðin viðunandi.
Skattayfirvöld hafa staðfest að
skattar muni verða í samræmi við
þá sem íslensk fyrirtæki greiða, þeg-
ar tekið er tillit til þeirra frádráttar-
liða, sem hinir erlendu aðilar munu
ekki njóta. Mikilvægt er að íslenskir
dómstólar munu fjalla um ágrein-
ingsmál.
Eitt stærsta atriði samninganna
varðar varnir gegn mengun og um-
hverfisspjöllum. Eftir ítarlegar at-
huganir, hefur umhverfisráðherra
lagt fyrir ríkisstjórn tillögur um há-
mark leyfilegra úrgangsefna frá
verksmiðjunni. Þau mörk verða í
samræmi við ströngustu kröfur, sem
gerðar eru í Evrópu. Strangar kröfur
verða einnig um alla vinnuaðstöðu.
Mengunarvarnir eru vafalaust eitt
mikilvægasta atriði þessara samn-
inga. Fátt er mikilvægara en að varð-
veita og bæta það góða umhverfi,
sem við, sem betur fer, njótum.
Orkusamningurinn verður að sjálf-
sögðu gerður af stjórn Landsvirkjun-
ar. Við hann eru stærstu fjárhags-
hagsmunirnir tengdir. Samninga-
menn Landsvirkjunar leggja til að
orkuverðið verði tengt álverði án lág-
marks eða hámarks. Með þessu er
áhætta tekin. í samninginn verður
því að koma ákvæði sem heimilar
endurskoðun, ef álverið, og þar með
orkuverð, fellur, svo að leiða mundi
til hækkunar á verði raforku til al-
mennings.
Staðsetning álversins hefur verið
mjög umdeild. Þegar viðræður hófust
árið 1987 var gert ráð fyrir stækkun
álversins í Straumsvík. Eftir að
svissneska álfyrirtækið hafði dregið
sig út úr samstarfinu, var ákveðið
að bjóða upp á nokkra staði og láta
byggingarkostnað og umhverfisáhrif
ráða niðurstöðum. Um það virtist
enginn ágreiningur vera. í hvoru
tveggja reynist Keilisnesið hafa vinn-
inginn. Ef aðrir þættir samninganna
eru viðunandi, kemur því vart til
greina að hafna nú byggingu álvers-
ins vegna staðsetningar þess.
Álverið mun að vísu ekki stuðla
að þeirri æskilegu byggðaþróun, sem
það hefði gert, ef byggt hefði verið
við Eyjafjörð eða Reyðarfjörð. Hinu
verður ekki neitað, að atvinnuhorfur
eru ekki mjög bjartar um þessar
mundir á Suðumesjum. Þaðan hefur
flust mikill fiskveiðikvóti, og fram-
undan er mikill samdráttur í atvinnu
á Keflavíkurflugvelli.
Iðnaðarráðherra gerir ráð fyrir því
að leggja um næstu mánaðamót fyr-
ir Alþingi frumvarp til laga um heim-
ild til þess að semja um byggingu
álvers. það er þó að sjálfsögðu háð
þv! að stjórn Landsvirkjunar hafi náð
samkomulagi um orkusamning. Ef
þau tímamörk eiga að standast, sem
hinir erlendu aðilar setja, þarf að
afgreiða heimildarlög fyrir lok ársins.
Á áttunda áratugnum tókst að
snúa við þeirri neikvæðu byggðaþró-
un, sem verið hafði um nokkurn tíma.
Þá íjölgaði jafnvel I ýmsum byggðum
landsins utan höfuðborgarsvæðisins.
Þetta mátti fyrst og fremst þakka
útfærslu landhelginnar og miklum
tekjum, sem fylgdu auknum fiskveið-
um og markvissari byggðastarfsemi
með stofnun Framkvæmdastofnunar
ríkisins og Byggðasjóðs árið 1971.
Þessu vaxtaskeiði lauk snemma á
níunda áratugnum. Landbúnaður
hefur jafnframt átt í vaxandi erfið-
leikum, og óumflýjanlegur samdrátt-
ur í framleiðslu landbúnaðarafurða
hefur haft mjög neikvæð áhrif á jafn-
vægi í byggð landsins. Því má Ijóst
vera að taka þarf byggðamálin nýj-
um tökum. Það er í raun óháð því
hvort álver verður reist á Keilisnesi,
þótt sú ákvörðun auki þann vanda
sem við er að stríða.
Af þessum ástæðum skipaði ég
fyrr á árinu nefnd með fulltrúum
allra stjómmálaflokkanna til þess að
gera tillögur um nýja stefnu í
byggðamálum. Á vegum nefndarinn-
ar hefur mikið verið unnið, og vænti
ég áiits frá henni fljótlega. Sömuleið-
is hef ég skipað nefnd til að skoða
skipulag Byggðastofnunar.
Jafnvægi í byggð landsins er þjóð-
inni afar mikilvægt, ekki síður þétt-
býlinu en stijálbýlinu. Breytinga er
þörf ef það á að nást. Ég nefni að-
eins fáein atriði.
Framfærslukostnaður þarf að vera
svipaður um land allt. Nú era ýmsar
mikilvægar nauðsynjar á sama verði
hvar sem er á landinu. Svo er t.d.
um allar innlendar landbúnaðaraf-
urðir og bensín og olíur. Það sama
þarf að verða með raforku, ekki síst
til upphitunar og raunar til allra
þarfa, bæði atvinnuvega og einstakl-
inga, þegar um samskonar notkun
og nýtingartíma er að ræða.
Iðnaðarráðherra hefur skipað
nefnd til að gera tillögur um jöfnun
raforkuverðs.
Þegar ráðist verður í meiri háttar
iðnað í framtíðinni, t.d. orkufrekan,
er rétt að ákveða staðsetningu slíkra
fyrirtækja áður en til samninga er
gengið og gera það út frá byggða-
og þjóðhagslegum sjónarmiðum,
enda leyfi aðstæður á staðnum slíka
framkvæmd.
Gert er ráð fyrir að styrkja
Byggðastofnun bæði með auknum
framlögum og yfirtöku skulda, þann-
ig að stofnuninni verði gert kleift
að stuðla að og taka þátt í stofnun
fyrirtækja á landsbyggðinni.
Fyrir liggja tillögur um skiptingu
landsins í þjónustusvæði með öflug-
um byggðakjömum. Á slíkum stöð-
um er mikilvægt að efla stjórnsýslu
og heilbrigðis- og menntastofnanir,
t.d. Háskólann á Akureyri.
Ég geri mér vonir um að geta á
þessu þingi flutt mikilvæg mál til
þess að marka nýja byggðastefnu.
Um næstu áramót kemur til fram-
kvæmda stjórn fiskveiða, sem sam-
þykkt var á Alþingi sl. vor. Þá verð-
ur stjórn fískveiða líklega fastbundn-
ari hér á landi en víðast hvar annars
staðar. Undan þvl varð ekki vikist.
Við íslendingar eigum allt undir sjáv-
arútveginum komið. Þar má enga
áhættu taka.
Með nýjum lögum er Úreldingar-
sjóður fiskiskipa endurvakinn og
efldur. Með honum verður tekið á
einu mesta vandamáli fiskveiðanna,
of stóram flota.
Einnig er sveitarfélögum veitt
heimild til þess að grípa í taumana
og koma í veg fyrir að lífsbjörgin,
fiskveiðirétturinn, verði seldur á
brott úr byggðarlaginu.
Því verður þó ekki haldið fram að
þjóðarsátt sé orðin um stióm fisk-
veiða. Einkum veldur það áhyggjum,
að rétturinn til að nýta hina sameig-
inlegu auðlind þjóðarinnar, fiskimið-
in, virðist ætla að safnast á stöðugt
færri hendur. Óhjákvæmilegt er að
skoða enn vandlega þennan þátt í
stjórn fiskveiða. Það mál verður þó
ekki leyst á næstu mánuðum.
Sú stefna í landbúnaðarmálum
sem mörkuð var í lögum frá 1985,
hefur að ýmsu leyti reynst vel. Þótt
öðru væri spáð af andstæðingum,
hefur tekist að draga markvisst og
skipulega úr mjólkurframleiðslunni.
Hún hæfir nú þörfum landsmanna
og er að flestu leyti til fyrirmyndar.
Aðrar þjóðir mega öfunda okkur ís-
(endinga af góðum mjólkurvörum.
Erfiðara hefur hins vegar reynst
að draga úr framleiðslu lambakjöts.
Því ræður m.a. sú staðreynd að sauð-
íjárræktin er mjög tengd búsetu í
stijálbýli og byggðaþróun. Einnig
hefur neysla lambakjöts dregist sam-
an.
Sá búvörusamningur sem nú er
unnið eftir, fellur úr gildi (lok næsta
árs. Landbúnaðarráðherra vinnur því
að gerð nýs búvörusamnings. Þar er
gert ráð fyrir hraðari aðlögun sauð-
fjárræktarinnar að markaðsþörfum.
Slíkur samningur þarf að liggja fyrir
að vori til lokaafgreiðslu nýrrar ríkis-
stjómar. Óhjákvæmilegt er að bænd-
ur fái nauðsynlegan tíma og aðstoð
við erfiða aðlögun. Það vona ég að
allir geti samþykkt.
Því miður hefur loðdýraræktin
brugðist. Ríkisstjórnin hefur talið
skylt að ráðstafa verulegum fjár-
munum til þess að draga úr fjárhags-
erfiðleikum loðdýrabænda.
Þær miklu vonir, sem bundnar
voru við fískeldið, hafa heldur ekki
ræst. Eflaust veldur margt. Mikil
lækkun á markaðsverði á vafalaust
stóran þátt í erfiðleikunum. Þó get
ég ekki varist þeirri hugsun, að enn
einu sinni hafí hér á landi verið ráð-
ist í nýja atvinnugrein meira af kappi
en forsjá. Ríkisstjómin hefur ákveðið
að stuðla að samstarfi um rannsókn-
ir og kynbætur, sem geta ráðið úrslit-
um um framtíð fískeldis. Við þær
ágætu aðstæður, sem hér á landi
eru, tel ég vafalaust að fiskeldið
muni verða mikilvæg atvinnugrein,
enda verði betur að málum staðið.
Á þessu ári tókst loks eftir rúm-
lega áratugs deilur á þingi að koma
á fót sérstöku umhverfisráðuneyti.
Starfsemi þess er hafín og mun
smám saman aukast. Ég er sann-
færður um að hún muni reynast
mjög mikilvæg. Hreint umhverfí,
land, loft, vatn og sjór, mun þegar
fram í sækir reynast mesta auðlind
þessarar þjóðar.
Á félagslega sviðinu hafa margar
umbætur verið gerðar. Nýrri verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga var
loks komið á eftir margra ára við-
leitni. Alþingi mun í vetur fá ýmis
stórmál á sviði félags- og mennta-
mála til meðfeðar. Má t.d. nefna
framvarp heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra um almannatrygging-
ar og frumvarp menntamálaráðherra
um grunnskóla.
Eins og fyrr segir, hefur ríkissjóð-
ur orðið að láta mikið af mörkum á
undanfömum árum í viðureigninni
við verðbólgu. Á sama tíma hefur
velferðarkerfið vaxið, bæði vegna
betri menntunar, betri heilbrigðis-
þjónustu, hærri .aldurs landsmanna
pg margvíslegra samþykkta Alþing-
is. Þessi ríkisstjórn félagshyggjunnar
hefur talið sér skylt að standa vörð
um velferðarkerfíð. Það hefur reynd-
ar verið bætt á ýmsum sviðum, t.d.
hvað varðar fatlaða og aldraða.
Þrátt fyrir mikla viðleitni til sparn-
aðar í ríkisrekstri hefur á undanförn-
um samdráttaráram ekki reynst unnt
að afla tekna fyrir útgjöldunum.
Ríkisstjórnin hefur og talið óhjá-
kvæmilegt að láta viðureignina við
verðbólguna hafa forgang. Auk þess
hljómar stöðugt krafan um lægri
skatta samhliða kröfunni um aukin
útgjöld. Nýlegur skattasamanburður
Efnahags- og framfarastofnunarinn-
ar í París leiðir í ljós, að þótt skattar
hér á landi séu leiðréttir með tilliti
til annarra greiðslna, t.d. í lífeyris-
sjóði, eru þeir miklu lægri en skattar
í sambærilegum velferðarríkjum.
Öllum má vera ljóst, að þetta
gengur ekki til lengdar. Ekki er unnt
lengur að velta vandanum á undan
sér. Nýleg skýrsla ríkisendurskoðun-
ar staðfestir að byggingasjóðir ríkis-
ins stefna í gjaldþrot. Eg efa að fjár-
veiting hafí nokkra sinni nægt til
þess að brúa vaxtamun milli inn- og
útlánasjóðanna. Þó hefur keyrt um
þverbak eftir að ný húsnæðislög
komu til framkvæmda 1986. Svipaða
sögu má segja um Lánasjóð íslenskra
námsmanna.'
Nú, þegar tekist hefur áð hemja
verðbólguna, verður að gera þessi
dæmi upp. Það verður ekki gert nema
með því annað hvort að auka skatt-
tekjur ríkissjóðs, eða draga úr þjón-
ustu og útgjöldum velferðarkerfisins.
Vissulega kemur til greina að láta
þá sem njóta þjónustunnar greiða
meira. Það er þó I raun ekkert annað
en hækkun skatta. Munurinn er að-
eins sá, að þá er útgjöldunum ekki
dreift á þjóðina alla. Ég treysti því,
að markaðshugsjónin verði aldrei svo
ráðandi hjá okkur íslendingum, að
þjónusta velferðarkerfisins verði
veitt eftir efnum og aðstæðum.
Aukin framleiðsla og hagvöxtur
gefa ríkissjóði auknar tekjur. Það,
ásamt aðhaldi, er æskilegasta leiðin
til að ná hallalausum ríkisbúskap.
Þá reynist skattahækkun vonandi
óþörf.
Vegna fjárskorts hefur ýmsum
mikilvægum málum ekki verið sinnt
sem skyldi. Ekki síst er nauðsynlegt
að auka verulega fjái-veitingar til
vísinda og rannsókna. Með þróun
nýrrar tækni og framleiðslu er vel
menntuðu fólki sköpuð aðstaða til
starfa. Það mun færa ómældan auð
í þjóðarbúið.
Við íslendingar eigum nú í samn-
ingum við Evrópubandalagið um
þátttöku í evrópsku efnahagssvæði.
Þeir samningar eru okkur afar mikil-
vægir. Utanríkisviðskipti vega stöð-
ugt þyngra í tekjum þjóðarinnar. Þau
hafa jafnframt beinst ( vaxandi
mæli til Evrópu.
Ríkisstjórnin hefur þegar tekið
ýmis mikilvæg skref til að mæta
kröfum, sem gerðar era til þátttöku.
Dregið hefur verið úr hömlum á
flutningi fjármagns á milli landa, og
unnið er að því að samræma skatta
og gjöld. Virðisaukaskatturinn er lið-
ur í því. Samningur um samræmt
eftirlit með framleiðslu er að koma
til framkvæmda, og frelsi í utanrík-
isviðskiptum er orðið eins mikið hér
á landi og í öðram löndum, sem að~
þessum viðræðum standa.
Mikilvægir samningar hafa verið
gerðir um samstarf á sviði menntun-
ar og vísinda.
Staðreyndin er, að við íslendingar
föram fram á færri undanþágur en
aðrar þjóðir Fríverslunarbandalags
Evrópu. Þær varða fyrst og fremst
grundvallarhagsmuni íslensks full-
veldis. Við getum ekki fallist á, að
erlendir aðilar nái yfirráðum í sjávar-
útvegi og fiskiðnaði landsins, hvorki
beint né óbeint. Við getum heldur
ekki sætt okkur við, að erlendir aðil-
ar eignist íslenskt land eða orkulind-
ir. Til þess að samræma reglur og
koma í veg fyrir slíkt geri ég ráð
fyrir að flytja á þessu þingi frum-»
varp til laga um erlenda fjárfestingu.
Löndin ( Fríverslunarbandalagi
Evrópu hafa tekið höndum saman
um að leita sameiginlegra samninga
við Evrópubandalagið um myndun
evrópsks efnahagssvæðis. Á það
verður að reyna til hlítar. Um það
eru allar þjóðirnar sammála. Það er
það svar sem allir forystumenn Evr-
ópubandalagsins gefa, þegar sér-
staða íslands er rædd.
Þessir samningar hafa reynst erf-
iðari en margir ætluðu. Því hefur
dregið nokkur úr bjartsýni. Einkum
ætlar að reynast erfitt að ná sam-
komulagi um undanþágur og hvemig
staðið skuli að ákvarðanamótun og
ákvarðanatöku.
Vel má vera að þau mál, sem í
vegi standa nú, leysist á síðustu
stundu. Það þarf að gerast fyrir ára-
mótin eða fljótlega eftir þau.
Ef þessir samningar takast ekki
er sjálfsagt fyrir okkur íslendinga
að leita sérstakra samninga við Evr-
ópubandalagið. Raunar mun það að
öllum líkindum reynast nauðsynlegt.
Jafnvel þótt sameiginlegu samning-
arnir takist, er vafasamt að þeir taki
til sjávarafurða.
Slíkir sérstakir samningar hafa
verið undirbúnir með ítarlegum við-.
ræðum við fjölmarga forystumenn
Evrópubandalagsins. Sérstaða ís-
lands hefur verið skýrð og hefur í
langflestum eða öllum tilfellum verið
vel í málið tekið. Ástæða er því til
bjartsýni í þessum efnum. Slíkir
samningar munu þó taka nokkurn
tíma.
Ótrúlegt þykir mér að heyra
ábyrga aðila hefja nú máls á þvf að
e.t.v. beri okkur íslendingum að
sælya um fulla aðild að Evrópu-
bandalaginu. Til þess hníga að
mínum dómi engin rök. Tvöhundrað
og fímmtíu þúsund manna þjóð hyrfi
fljótlega í mannhafið. Við yrðum lítið
annað en áhrifalaus útkjálki, eins-
konar hráefnismiðstöð.
Það er mikill misskilningur, að sem
fullgildir meðlimir að Evrópubanda-
laginu fengjum við til lengdar undan-
þágur, t.d. hvað varðar fjárfestingu
í fískveiðum eða kaup á landi o.s.frv.
Um það er ekki að ræða nema tíma-
bundið. Við gætum ekki komið í veg
fyrir að Qársterk risafyrirtæki ( Evr-
ópu eignuðust það hér sem þau gim-
ast.
Hugmyndir manna um fulla aðild
að Evrópubandalaginu lýsa fyrst og
fremst uppgjöf á því að ráða eigin
málum farsællega. Uppgjöf við það
stóra verkefni að tryggja hér lífskjör,
sem eru samb’ærileg við það sem
best gerist í löndum Evrópubahda-
lagsins. Það getum við gert, ef við
höldum rétt á málum. Reyndar er
það sannfæring mín að óvíða munu
reynast meiri lífsgæði en hér á landi.
Þau byggjast á fleira en peningaleg-
um auði. Þau byggjast ekki síður á
hreinu og fögru umhverfi og frelsi
til að njóta þess. Þau byggja á því
að þjóðin sé sjálfráð og sjálfstæð.