Morgunblaðið - 23.10.1990, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTOBER 1990
53
sjónvarpsins, „Jón gamli“ eftir
Matthías Johannessen.
Leikferill Vals er svo litríkur,
viðamikill og stórkostlegur að mað-
ur veit varla hvar á að bera niður,
vilji maður minnast helstu afreka
hans á leiksviðinu, enda mun enginn
íslenskur leikari hafa farið með
fleiri aðalhlutverk en Valur Gísla-
son. Þó vil ég ekki láta hjá líða að
nefna nokkur þeirra, því fjölmörg
þeirra hlutverka, sem Valur hefur
leikið, standa manni enn ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum.
Meðal helstu hlutverka sem Val-
ur lék hjá Leikfélagi Reykjavíkur
má nefna Borgen eldri í „Orðinu“
eftir Kaj Munk, Paul Lange í „Paul
Lange og Tora Parsberg" eftir Ib-
sen, Tessmann í „Heddu Gabler“
eftir Ibsen og Bjarna á Leiti í
„Manni og konu“ eftir Jón Thor-
oddsen.
Nokkur eftirminnilegustu hlut-
verka Vals hjá Þjóðleikhúsinu voru
t.d. Eydalín lögmaður í „íslands-
klukkunni" eftir Halldór Laxness
við opnun Þjóðleikhússins, Jon Ara-
son í „Jon biskup Arason“ eftir
Tryggva Sveinbjörnsson, Lykla-
Pétur í „Gullna hliðinu" eftir Davíð
Stefánsson, Helmer í „Brúðuheimil-
inu“ eftir Ibsen, Jack Boyle í „Júnó
og Páfuglinn" eftir Sean O’Casy,
Bárður á Búrfelli í „Pilti og stúlku"
eftir Jón Thoroddsen, Gregers
Werle í „Villiöndinni" eftir Ibsen,
Harry Brock í „Fædd í gær“ eftir
Garson Kanin, Don Camillo í „Don
Camillo og Peppeone" eftir Giov-
anni Guareschi, Otto Frank í „Dag-
bók Önnu Frank“ eftir Fr. Goddrich
og Alb. Hackett, Riddaraliðsforing-
inn í „Föðurnum“ eftir Strindberg,
Brynjólfur biskup Sveinsson í
„Skálholti" eftir Kamban, en það
var einnig sýnt í sjónvarpinu, Dav-
ies í „Húsverðinum" eftir Pinter,
Pat í „Gísl“ eftir Behan, séra Lamb
í „Hafið bláa hafið“ eftir Schéhadé
og Jon Morton í „Ríkarði þriðja“
eftir Shakespeare.
Varðandi leik Vals og vinnu hans
við hlutverk sín, er eitt öðru fremur
einkennandi og það er sú alúð, sem
hann lagði við persónusköpunina. í
hana lagði hann mikla vinnu og
vandaða, enda skilaði það sér, því
honum tókst að skapa svo margar
eftirminnilegar persónur á sviðinu
að það er með ólíkindum.
Valur hlaut líka margar og verð-
skuldaðar viðurkenningar fyrir leik-
listarstörf sín. Tvívegis fékk hann
Silfurlampa Félags íslenskra leik-
dómenda, fyrst fyrir Harry Brock
í „Fædd í gær“, í seinna skiptið
fyrir Riddaraliðsforingjann í „Föð-
urnum“. Tvisvar fékk hann heiðurs-
veitingu úr Menningarsjóði Þjóð-
leikhússins, árin 1960 og 1966.
Árið 1945 var hann sæmdur ridd-
arakrossi St. Olavs-orðunnar. Hann
var sæmdur riddarakrossi Hinnar
íslensku fálkaorðú árið 1963 og
stórriddarakrossi árið 1976.
Hann hefur verið á föstum heið-
urslaunum listamanna frá Alþingi
síðan 1970. Árið 1966 var Valur
sæmdur gullmerki Félags íslenskra
leikara og hefur verið heiðursfélagi
félagsins frá árinu 1971.
Ætla mætti, að nú hefði starfs-
ævi Vals verið tíunduð með því sem
að ofan er sagt, því svo risavaxið
er framlag hans til leikhússins, að
ætla mætti að fleiri en einn maður
hefði verið þar að verki. En Valur
var einn af brautryðjendum í félags-
málum leikara. Hann var ritari
Leikfélags Reykjavíkur frá
1929-30, 1933-34 og 1945-48. For-
maður Leikfélags Reykjavíkur var
hann árin 1941-44.
Ekki voru störf hans fyrir Félag
íslenskra leikara minni að vöxtum.
Valur var einn af stofnendum fé-
lagsins árið 1941. Hann var for-
maður félagsins samtals í átta ár.
Hann sat í stjórn Bandalags
íslenskra listamanna sem fulltrúi
Félags íslenskra leikara samfleytt
frá 1950-1959 og var hann formað-
ur BÍLs þrívegis á því tímabili.
Valur sat í stjórn Nordisk Skue-
spillerrád frá árinu 1950 'til 1961
eða samfellt í ellefu ár. Þá sat hann
í Þjóðleikhúsráði sem fulltrúi Félags
íslenskra leikara frá 1963-70. Þá
eru ótalin öll þau nefndarstörf og
fulltrúastörf sem hann gegndi fyrir
félag leikara.
Af þessari lauslegu upptalnin'gu
má sjá að við getum ekki einungis
státað af frábærum leiklistarferli
Vals, heldur hafa störf hans að fé-
lagsmálum leikara og menningar-
málum yfirleitt markað djúp spor í
listasögu þessarar þjóðar, sem aldr-
ei munu gleymast.
Valur Gíslason var glæsilegur
maður, það gustaði af honum og
hann vakti hvarvetna athygli þar
sem hann fór. Hann var einkar
traustur og tók starfsfélögum
sínum með mikilli vinsemd og
glettnin var ævinlega nálæg þar
sem Valur var. Honum var mjög
annt um leikhúsið, fyrir honum var
það heilagt, því gerði hann sér far
um að innræta með hinum yngri
leikurum tilhlýðilega virðingu fyrir
því og ást. Af þessari ástæðu öðrum
fremur hafa starfsfélagar hans,
yngri sem eldri, dáð og virt Val og
reynt að taka hann sér til fýrir-
myndar.
Hann var gestrisinn með afbrigð-
um og gleymast engum þær stund-
ir sem þeir hafa dvalið á yndislegu
heimili Laufeyjar og Vals. Ekki er
hægt að minnast á heimili þeirra,
án þess að geta um hið samhenta,
trausta og ástríka hjónaband þeirra
og hversu mikil stoð og stytta Lauf-
ey var honum í starfi hans. Það
vakti aðdáun allra.
Ég er þess fullviss, að þegar fram
líða stundir og saga leiklistarinnar
á íslandi verður skoðuð úr meiri
fjarlægð og með betri yfirsýn en
nú er hægt, mun nafn Vals Gísla-
sonar tróna þar í efstu sætum, sem
einn þeirra afburðalistamanna sem
íslenskt leikhús hefur átt. Hið far-
sæla lífshlaup þessa atkvæðamikla
listamanns, sem nú er á enda runn-
ið, hefur verið og mun verða mörg-
um yngri mönnum hvatning til dáða
um langa framtíð. Það er mikill
heiður að hafa þekkt, unnið með
og umgengist Val Gíslason.
Ég færi Laufeyju, Valgerði og
Ingimundi, Guðrúnu og Val, börn-
um þeirra og fjölskyldu allri innileg-
ar samúðarkveðjur frá öllu starfs-
fólki Þjóðleikhússins.
Gísli Alfreðsson
Kveðja frá Félagi íslenskra
leikara
í dag kveðjum við hinsta sinni
kæran félaga. Víst er að Félag
íslenskra leikara á Val Gíslasyni
mikið að þakka. Hann var einn af
stofnendum félagsins árið 1941, og
síðan formaður þess fyrst frá
1950-1955 og síðan frá 1958-1961.
Sem fulltrúi félags síns sat Valur
einnig mörg ár í stjórn Nordisk
Skuespillerrád og í stjórn Banda-
lags íslenskra listamanna. Formað-
ur BIL var hann þrívegis á árunum
frá 1950-1958. Þá eru ótalin mikil
og margskonar nefndarstörf sem
Valur vann fyrir Félag íslenskra
leikara.
Leiklistarferill Vals Gíslasonar
var óvenju glæsilegur, þó eflaust
hafi baráttan oft á tíðum verið
strembin. Hans fyrsta hlutverk á
sviði var hjá Leikfélagi Reykjavíkur
árið 1926 og þar lék hann uns Þjóð-
leikúsið tók til starfa árið 1950.
Hjá Þjóðleikhúsinu varð hann einn
af fyrstu fastráðnu leikurunum og
naut húsið krafta hans allt tii ársins
1987. Valur var geysilega fjölhæfur
leikari. Þær eru trúlega fáar mann-
gerðirnar sem hann ekki túlkaði á
sextíu ára leikferli og ætíð var hann
jafn trúverðugur hvort sem þar var
um að ræða vesælan kotbónda eða
upphafinn burgeisa.
Valur hafði mikinn persónuleika
til að bera og yfir honum var reisn
og virðuleiki en jafnframt bjó hann
yfir mikilli hlýju.
Með langan og farsælan feril að
baki sem leikari og með óeigin-
gjörnu starfi sínu að félagsmálum
leikara sem og annarra listamanna,
hefur Valur lagt mikið af mörkum
til íslenskrar menningar. Við bárum
gæfu til að meta það. Hann hlaut
opinberar viðurkenningar, m.a.
heiðurslaun listamanna, og árið
1976 var han sæmdur Stórriddara-
krossi Hinnar íslensku fálkaorðu.
Félag íslenskra leikara sæmdi Val
Gullmerki félagsins árið 1966 og
árið 1971 varð hann heiðursfélagi.
Valur Gíslason lifði ekki til að
gleðjast með félögum sínum í tilefni
50 ára afmælis FIL á næsta ári.
En hans verður minnst sem braut-
ryðjanda félagsins, glæsilegs full-
trúa þess og stórbrotins listamanns.
Við, félagar Vals, vottum elsku-
legri eiginkonu hans og börnum
innilega samúð.
F.h. Félags íslenskra leikara,
Guðrún Alfreðsdóttir.
Kveðja frá Víkingi
Víkingar minnast Vals Gíslason-
ar, leikara, sem í dag verður til
moldar borinn eftir langan og far-
sælan ævidag. Þjóðin þekkir vel til
verka Vals Gíslasonar á sviðinu, svo
ástsæll leikari sem hann var. í
tvígang hampaði hann silfurlamp-
anum fyrir framúrskarandi leik.
Hann var þjóðarinnar.
En Valur Gíslason var ekki ein-
ungis snjall á leiksviðinu þar sem
hann heillaði áhorfendur; hann var
og snjall leikmaður á knattspyrnu-
vellinum á sínum yngri árum.
Tvívegis hampaði hann íslands-
meistaratign í knattspyrnu þegar
Víkingur vann sína fyrstu meistara-
titla árin 1921 og 1924. Knatt-
spyrnufélagið Víkingur var að kom-
ast á táningsaldur þegar Víkingar
lyftu stoltir hinum eftirsótta titli á
Melavellinum gamla. Valur Gísla-
son var einnig á táningsaldri, — þó
sex árum eldri. Var að stíga sín
fyrstu spor í meistaraflokki það
herrans ár 1921. og þremur árum
síðar, — árið 1924, þegar Víkingar
hömpuðu meistaratitli í annað sinn,
átti Valur Gíslason fast sæti í lið-
inu. Það var ánægjulegt að minnast
gömlu góðu daganna á 75 ára af-
mæli Víkings í apríl árið 1983. Þá
voru Valur og fleiri góðir Víkingar
samankomnir og fögnuðu nýjum
sigrum eftir mörg mögur ár; fögn-
uðu upprisu félagsins, en Víkingor
hafði orðið Islandsmeistari bæði í
knattspyrnu og handknattleik tvö
ár í röð. Afrek sem Víkingur eitt
íslenskra félaga getur státað af.
Þá er hollt að líta til baka og minn-
ast sigra og andstreymis, því fortíð
varðar veginn til framtíðar. Því
þótti Víkingum vænt um að sjá
kempur eins og Val Gíslason í sínum
hópi.
Frá kappleikjum þriðja áratugar-
ins lá leiðin á leiksviðið og þar vann
Valur eftirminnilega sigra. Aðrir
minnast þeirra, en Víkingar kveðja
Val Gíslason, leikara, með hlýhug
og þakka samfylgdina. Við vottum
fjölskyldu hans innilega samúð okk-
ar.
Hallur Hallsson,
formaður Knattspyrnu-
félagsins Víkings.
Kveðja frá Leikfélagi
Reykjavíkur
Valur Gíslason leikari er látinn
eftir langt og giftudrjúgt starf í
þágu íslenskrar leiklistar.
Valur hóf ungur feril sinn sem
leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur
en réðst til Þjóðleikhússins við opn-
un þess og starfaði þar til loka
starfsævi sinnar. Auk starfa sinna
sem listamaður gegndi Valur ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir leikara-
stéttina og var formaður Leikfélags
Reykjavíkur i 3 ár og ritari í 5 ár.
Hann var í mörg ár formaður Fé-
lags íslenskra leikara og forseti
Bandalags listamanna svo fátt eitt
sé talið.
Þó að Valur léki ekki hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur eftir að hann hóf
störf hjá Þjóðleikhúsinu var ljóst
að Leikfélag Reykjavíkur átti sterk
ítök í honum og hann fylgdist
ávallt vel með því sem þar var að
gerast. Við hjá Leikfélaginu litum
alltaf á hann sem félaga okkar og
þótti virðingarauki að því að fá að
kjósa hann sem heiðursfélaga Leik-
félags Reykjavíkur.
Valur hafði þann sið á frumsýn-
ingum hjá Leikfélaginu að koma
jafnan á bak við í hléinu ásamt
konu sirini, Laufeyju Árnadóttur,
til að heilsa upp á leikarana og
fylgdi því alltaf sérstök stemmning
að hitta þau hjón við slík tækifæri.
Fyrir okkur sem ekki áttum þess
kost að vinna með honum voru þess-
ar stundir mikilvægt tækifæri til
að hitta þennan merka leikara og
kynnast viðhorfum hans.
Nú verða þessar heimsóknir hans
ekki fleiri en Leikfélag Reykjavíkur
minnist heiðursfélaga síns Vals
Gíslasonar með virðingu og þökk
og vottaar eiginkonu hans, Lauf-
eyju Árnadóttur, og börnum þeirra
innilega samúð.
Sigurður Karlsson
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
var stofnað 17. maí 1939. Éinn af
stofnfélögunum var ungur leikari,
Valur Gíslason að nafni, sem þá
þegar var orðinn einn af þekktari
listamönnum þjóðarinnar. Hróður
hans á sviðinu jókst enn þar sem
hann með fágaðri og vandvirkri
túlkun sinni hlaut að launum ást
og virðingu þjóðarinnar allrar. -
Valur Gíslason var mjög virkur
þátttakandi í mótun Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur og sat m.a. í stjórn
þess í fjögur ár á árunum 1942-
1945 og svo aftur 1949-1950.
Valur bar þann heiðurssess að
hafa félagsnúmer 1 í SVFR og
hafði borið það númer í allmörg ár.
Hann stundaði sína laxveiði allt
fram á síðustu ár og gekk jafnan
til sinna veiða með sínu faglega og
virðulega fasi og með fullri virðingu
fyrir veiðidýrinu laxinum. M.ö.o. þá
var Valur listamaður á fleiri sviðum
en leiksviðum. Fyrir störf sín og
tryggð við SVFR veitti félagið hon-
um á 50 ára afmæli sínu, æðstu
viðurkenningu sem félagið getur -
veitt nokkrum manni, þ.e. heiðurs-
merki SVFR úr gulli. Nú þegar
Valur hverfur til æðri veiðilenda
þar sem honum verður eflaust vel
fagnað, eru þakkir okkar endur-
teknar og SVFR kveður með virð-
ingu vin sinn og góða fyrirmynd
annarra stangaveiðimanna.
Ég votta eiginkonu hans og fjöl-
skyldu allri dýpstu samúð mína.
Jon G. Baldvinsson
form. SVFR.
Minning‘:
Valur Arnþórsson
— bankastjóri og fyrrverandi
kaupfélagsstjóri
Kveðja frá Degi
Fæddur 1. mars 1935 —
Dáinn 13. október 1990
Þegar Valur Arnþórsson varð
fimmtugur, þann 1. mars 1985,
átti Dagur við hann viðtal. Við það
tækifæri var Valur m.a. spurður
hvernig honum liði á þessum merku
tímamótum. Hann svaraði því til
að sér þætti einna verst hve árin
50 minntu sig óþyrmilega á hvað
tíminn liði hratt. „Ég á nefnilega
svo óskaplega mikið ógert.“ Þessi
orð eru dæmigerð fyrir þann mikla
kraft og þá miklu atorku sem Valur
Arnþórsson bjó yfir.
Valur Arnþórsson lést síðastlið-
inn laugardag, lang fyrir aldur
fram. Þótt almættið hafi hagað því
svo að endir var bundinn á gifturík-
an feril Vals Arnþórssonar, með
sviplegum hætti, er ævistarf hans
ótrúlega mikið að vöxtum. Auk síns
aðalstarfs hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga um tæpra 24 ra ára skeið,
gegndi Valur fjölmörgum trúnaðar-
störfum hjá hinum ýmsu félögum
og fyrirtækjum. Þau skipta tugum
fyrirtækin og félögin sem fengu
notið óþijótandi krafta Vals Arn-
þórssonar á glæstum starfsferli
hans. Hvarvetna lét hann að sér
kveða svo eftir var tekið.
Dagur er eitt þeirra fyrirtækja
sem varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá Val Arnþórsson til liðs við
sig. Þegar hann tók við starfi kaup-
félagsstjóra Kaupfélags Eyfirðinga
snemma árs árið 1971, fylgdi því
m.a. stjórnarformennska í Utgáfu-
félagi Dags. Á þeim tíma var stjórn-
arformennska í félaginu ef til vill
ekki ærinn starfi en það átti eftir
að breytast á tiltölulega skömmum
tíma. Árið 1971 kom Dagur út einu
sinni í viku og stundum tvisvar,
„þegar ástæða þótti til“. Nokkru
eftir að Valur tók við stjórnarfor-
mennsku í útgáfufélaginu varð hins
vegar skammt stórra högga á milli.
Árið 1978 eignaðist Dagur eigið
húsnæði í fyrsta sinn í 60 ára sögu
blaðsins; prentvélakostur var bætt-
ur og útgáfutíðnin aukin jafnt og
þétt. Ljóst var hvert stefndi og loks
var skrefið stigið til fulls. Haustið
1985 varð Dagur dagblað hið fyrsta
og eina sinnar tegundar utan höfuð-
borgarsvæðisins. Þótt fjölmargir
hafi lagt hönd á plóginn við að
gera gamlan draum margra Norð-
lendinga að veruleika er á engan
hallað þótt fullyrt sé að Valur Arn-
þórsson hafi lagt hvað þyngst lóð
á vogarskálina. Hann fleytti fyrir-
tækinu yfir margan erfiðan hjallann
með fyrirhyggju sinni, stjórnvisku
og ráðdeild og réð starfsmönnum
þess heilt í hvívetna. Fyrir allt þetta
kúnna starfsmenn blaðsins og sam-
starfsmenn Vals í blaðstjórn honum
bestu þakkir. Glæstur kafli í sögu
Dags er samofinn lífi og starfi
Vals Arnþórssonar og ber honum,
framsýni hans og stórhug, fagurt
vitni.
Fyrir hönd Dags þakka ég, að
leiðarlokum, góðum dreng ánægju-
lega samfylgd og sendi frú Sigríði
Olafsdóttur, börnum hennar og öðr-
um ástvinum Vals innilegar samúð-
arkveðjur.
Bragi V. Bergmann
Erfidrykkjur í hlýlegu
og notalegu umhverfí
Við höfum um árabil tckið að okkur að sjá um erfídrykkjur fyrir
allt að 300 manns. I boði eru snittur með margvíslegu áleggi,
brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með
rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur,
rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fl.
Með virðirtgu.
FLUGLEIDIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
REYKJAVlKURFLUCVELLI. 10 1 R E Y K J A V I K
SlMI: 9 1 - 2 2 3 2 2