Morgunblaðið - 23.10.1990, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990
félk f
fréttum
SVISS
Eigendur íslenskra hesta
biðja Benna um ráð
Zunch. Fra Onnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
AÐ ER ekki sagt opinberlega
frá komu allra íslendinga til
Sviss. En þegar Benedikt Þor-
björnsson er á ferðinni þá er greint
frá því fyrirfram í riti eigenda ís-
lenskra hesta í Sviss undir fyrir-
sögninni „Benedikt Thorbjoernsson
kommt in die Schweiz“ (Benedikt
Þorbjörnsson kemur til Sviss). He-
stafólki er þar með bent á að því
gefist kostur á að fá leiðsögn kunn-
áttumanns i meðferð íslenska hests-
ins og það streymir að til að fá
ráðleggingar Benna, eins og Bene-
dikt er kallaður.
Hann er 34 ára tamningamaður
og reiðkennari sem rekur hestabú
á Stað í Borgarfirði. Hann keppir
á hestamótum bæði innanlands og
utan og hefur þannig komist í
kynni við eigendur íslenskra hesta
erlendis. Hann var fyrst beðinn um
að koma í vinnu til Þýskalands eft-
ir Evrópumót íslenskra hesta í Dan-
mörku árið 1976 og hefur farið út
flest haust síðan. „Það er ágætt að
nota tímann á haustin þegar við
hvílum hestana heima til að aðstoða
hestaeigendur erlendis,“ sagði
hann. „Hestarnir eru notaðir allt
árið hérna úti.“
Hann hefur komið til Sviss und-
anfarin haust og hefur aðsetur hjá
Indermaur-fjölskyldunni í Einsied-
eln sem er skammt frá Zurich.
Aðstaðan þar er ótrúlega góð fyrir
þéttbýlt og hæðótt land eins og
Sviss. Rúmgóð reiðhöll, hesthús og
hlaupabraut eru við stórt íbúðarhús
ijölskyldunnar. Húsbóndinn á eld-
húsinnréttingafyrirtæki og öll ijöl-
skyldan er með hestabakteríu. Ind-
ermaur var með þeim fyrstu sem
fluttu inn íslenska hesta á sjöunda
áratugnum og á nú um tuttugu.
Þeir Benedikt eru góðir vinir og
Benedikt hefur selt honum þrjá
hesta sem hann keppti á á Evrópu-
mótum. Þar á meðal er Styrmir,
Evrópumeistari í fímmgangi í Sví-
þjóð 1983. „Það má segja að ég
komi hingað að heimsækja vini
mína, bæði menn og skepnur,"
sagði Benedikt.
Það er þó nokkuð um íslenska
hesta í Sviss, eins og víðar í Evr-
ópu. Benedikt sagði að fólk kynnt-
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
Benedikt Þorbjörnsson og Styrmir sem býr í Einsiedeln, Sviss.
ist yfirleitt hestinum í íslensku
umhverfi og hrifist af ftjálsleika
hans og íjölhæfni. „Það fær ólækn-
andi bakteríu," sagði hann. „ís-
lenski hesturinn er auðveldari í
umhirðu og ódýrari í rekstri en
stærri hestar.“ Utlendir hestar eru
viðkvæmari fyrir fóðri og kulda en
íslenskir, éta meira og taka meira
pláss.
Benedikt sagðist fyrst og fremst
segja fólki til um hvernig það getur
laðað fram hjá hestinum það sem
hann býr yfir. „Helsti gallinn er-
lendis og sérstaklega hérna í Sviss
er plássleysið. Það er hætta á að
það komi leiði í hestana ef þeir e_ru
þjálfaðir á of þröngu svæði. Ég
reyni að benda eigendum á að ríða
þeim létt svo að fijálsleikinn haldi
sér. Og ég geri helst engan mun á
hvort verið er að þjálfa hest fyrir
keppni eða aðeins til ánægju. Allir
hestaeigendur eiga að gera sér
grein fyrir að hesturinn er fyrst og
fremst félagi en ekki íþróttatæki.“
Tónlistar-bar
Vitastíg 3, sími 623137
Þriðjud. 23. okt. ki. 20-01
Kl. 22: HALFT f HVORU (moðel 14)
Eyjólfur Kristjánsson, Inqi Gunnor
JóhannsiþnTGíslr tkJgason, Örvor
Kristjónssj
NÚ FIÖLW
A
Eyjror Gunnorsson htjómborð,
Sigutður Flososon soxafón,
torleifur Guðjónsson bosso.
Miðvikud.24.
kl. 20,- 01
kl. 21.30: Blúshlj
„TVEIR VIRÐULEGIR“
Guómundur og David á Hard Rock Café
ÓDÝR HÁDEGISMATVR - SÚPA FYLGIR
Velkomin á Hard Rock Cafe,
sími 689888
Þarna eru þeir Slater, Grieco, Rourke og Dillon með í spilinu.
as
m
42. leikvika - 20. okt. 1990
Röðin : X2X-X22-X11 -X21
hver vann *>
m u w IémI I w nill 1 u •
1.342.047- kr.
12 réttir: 0 raöir komu fram og fær hver: 0- kr.
11 réttir: 3 raðir komu fram og fær hver: 81.116- kr.
10 réttir: 49 raðir komu fram og fær hver: 4.966- kr.
Þrefaldur pottur - næst!!
TÍSKA
James Dean-
tíska tröll-
ríður
Hollywood
Þótt James Dean hafi aðeins
verið 24 ára gamall er hann
lést í bílslysi fyrir 35 árum og að
hann hafi einungis náð að leika í
þremur kvikmyndum á stuttum
ferlinum, er ljóst að áhrif hans hafa
verið gífurleg og nú ríður einhvers
konar „James Dean-æði“ yfir kvik-
myndaborgina Hollywood. Æði
James Dean
þetta lýsir sér þannig, að furðu-
margir hinna efnilegri leikara svæð-
isins hafa tileinkað sér James Dean-
útlitið og nægir að benda á mynd-
irnar sem þessum pistli fylgja, en
þar eru þeir Christian Slater, Rich-
ard Grieco, Micky Rourke og Matt
Dillon allir samankomnir, hver öðr-
um líkari goðinu umrædda. Fleiri
mætti tína til. Þessari klæða- og
hártísku fylgir einnig að æða um
götur á hraðskreiðum bílum og vél-
hjólum. En myndirnar tala sínu
máli.
@5 Ármúla 29 símar 38640 - 886100
Þ. ÞORGRÍMSSON &C0
Armstrong LOFTAPL0TUR
KORK0 PIA*T GÓLFFLÍSAR
KORKFLISAR
BMF VINKLARÁTRÉ