Morgunblaðið - 23.10.1990, Page 63
b
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990
í
i
I
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Nýtt frumvarp um almannatryggingar;
Ellilífeyrir skerðist við
62.500 kr. mánaðartekjiir
Allar lífeyrisgreiðslur verði tekjutengdar.
Greiðslur frá lífeyrissjóðum teljast til tekna
GUÐMUNDUR Bjarnason heilbrigðis- og tryggingaráðherra hefur
kynnt nýtt frumvarp um almannatryggingar. I því frumvarpi er al-
mannatryggingalöggjöfin í heild enduskoðuð. Guðmundur sagði að
heildarútgjöld til þessa málaflokks breytist lítið samkvæmt frumvarp-
inu, en tilfærslur verði innan bótaflokka og milli þeirra. Þannig lækka
heiídargreiðslur ellilífeyris um 240 milljónir króna, einkum vegna tekju-
tengingar, og heildargreiðslur örorkubóta hækka um 180 milljónir.
Samkvæmt frumvarpinu byijar ellilífeyrir einstaklings að skerðast við
62.500 króna mánaðartekjur og hverfur alveg við tæplega 100 þúsnnd
króna mánaðartekjur. Til tekna teljast greiðslur frá lífeyrissjóðum, sem
þannig skerða ellilífeyri og aðrar bætur, sem nú verða allar tekjutengd-
ar. „Grunnhugsunin er sú, að tryggingakerfið eigi fyrst og fremst að
gagnast þeim sem ekki hafa aðrar tekjur," sagði Guðmundur Bjarnason.
Finnur Ingólfsson aðstoðarmaður
heilbrigðis- og tryggingaráðherra
veitti forstöðu nefndinni sem samdi
frumvarpið. Fulltrúar Alþýðusam-
bands íslands og Vinnuveitendasam-
bands íslands skrifuðu ekki undir
álit nefndarinnar, en skiluðu séráliti,
þar sem meðal annars er harðlega
gagnrýnt að ellilífeyrir skuli tekju-
tengdur.
Guðmundur Bjarnason sagði að
með þessu frumvarpi hefði náðst
mikilvægur áfangi, einkum í ljósi
þess hve mikilvægt sé að almanna-
tryggingalöggjöfin sé skýr og ein-
föld. „Þess vegna held ég að það
megi vissulega undirstrika það, að
hér hafi náðst mikilvægur áfangi.
Almannatryggingalöggjöfin er að
stofni til frá 1971 og nánast á hverju
einasta þingi síðan hefur henni verið
breytt á einn. eða annan hátt.“
Guðmundur sagði það hafa verið
haft að leiðarljósi við þessa endur-
skoðun að þótt reynt hafí verið að
samræma og taka inn nýja bóta-
flokka og lagfæra aðstoð við ýmsa
sem talið var að þyrftu á því að
halda, þá hafí verið reynt að gera
það án þess að auka útgjöld trygg-
inganna í heild. „Það kannski helg-
ast af því, að við höfum ekki enda-
laust möguleika á því að bæta við
þennan útgjaldasama málaflokk og
.setja stöðugt meiri og meiri fjármuni
í velferðarkerfí okkar, við verðum
að leita leiða til þess að það sé gert
á sem hagkvæmastan hátt.
Við reynum að bæta um fyrir þeim
sem við teljum að þurfi virkilega á
því að halda, þurfi raunverulega á
aðstoð samfélagsins að halda, og
draga þá úr þeim málaflokkum og
bótum til þeirra einstaklinga, sem
við teljum að þurfi síður á samfélags-
legri hjálp að halda,“ sagði hann.
Guðmundur sagðist líta svo á að
það væri verkefni almannatrygg-
ingalöggjafarinnar að bæta þeim sem
þurfa á að halda, en ekki að menn
séu að kaupa sér þar lífeyris- eða
bótarétt sem þeir haldi síðar, hverjar
sem tekjur þeirra eru og aðstæður í
lífinu.
Greiðslur frá lífeyrissjóðum
skerða bætur
Greiðslur lífeyris frá lífeyrissjóð-
unum eru í furmvarpinu taldar til
tekna sem skerða bótagreiðslur.
„Lífeyrissjóðagi-eiðslurnar skilgrein-
ast sem tekjur í skattkerfinu og þar
með skerða þær tekjutengdu bóta-
flokkana. Þær skerða í dag tekju-
trygginguna og mundu að sjálfsögðu
skerða líka grunnlífeyrinn, ef hann
væri tekjutengdur,“ sagði Guðmund-
ur Bjamason.
Þegar spurt var hvort rétt væri
að líta á lífeyrisgreiðslur úr lífeyris-
sjóði sem tekjur, sem skerði bóta-
greiðslur almannatrygginga sagði
Finnur Ingólfsson svo vera. Hann
sagði lífeyrissjóðagreiðslur ekki
standa jafnfætis öðrum sparnaði í
landinu, sem væri ekki skattlagður
og tekjur af honum skertu ekki bóta-
greiðslur eða lífeyrisgreiðslur al-
mannatrygginga. „Menn eru að nálg-
ast þetta með því að skattleggja all-
ar tekjur með sama hætti,“ sagði
Finnur.
Hann var spurður hvort ekki kæmi
til greina að skilgreina lífeyrissjóða-
greiðslurnar ekki sem tekjur, þannig
að þær skerði ekki álmannatrygg-
ingagreiðslumar. „Það kostar alveg
rosalega peninga, það eru milljarðar
sem það mundi auka útgjöldin um
ef það yrði gert. Það var skoðað,“
sagði hann.
Finnur sagði tekjutengingu al-
mannatryggingagreiðslna hafa farið
stigvaxandi síðan 1971 með því að
tekjutengdar greiðslur hafí orðið
hlutfallslega stærri hluti heildarinnar
og grunnlífeyrir hafi hækkað minna
en aðrar greiðslur. 1971 hafí gmnnl-
ífeyrir verið 46% allra greiðslna en
nú sé hann kominn niður í 20%.
Helstu breytingar
Meðal helstu breytinga sem felast
í frumvarpinu em, að ellilífeyrir verð-
ur tekjútengdur og byijar að skerð-
ast við 62.500 króna mánaðartekjur
hjá einstaklingum, hverfur síðan al-
veg þegar tekjur ná 100 þúsund
krónum. Hjá hjónum byijar ellilífeyr-
ir að skerðast hjá hvoru hjóna um
sig við 45 þúsund króna greiðslur
og hverfur alveg við 85 þúsund króna
tekjur.
Ellilífeyrir hjóna hækkar úr 90%
af lífeyri einstaklings í 100% og verð-
ur því 11.181 króna á mánuði. Tekju-
trygging er óbreytt að gmnni, en
lækkar hægar með tilliti til tekna.
Niðurstaðan er sú, að samkvæmt
frumvarpinu fá einstaklinjgir með
minna en 60 þúsund króna mánaðar-
laun hærri greiðslur, mesta hækkun-
in er hjá þeim sem hafa 5 þúsund
króna mánaðarlaun, heildargreiðsiur
til þeirra verða 44.698, en eru nú
38.746 krónur. Þeir sem hafa tekjur
yfir 60 þúsund krónum á mánuði fá
minna og nái tekjur 100 þúsundum
verða engar greiðslur.
Hjá hjónum hækka heildargreiðsl-
ur, um allt að 3.150 krónur, hjá
hvom um sig ef tekjkur em undir
60 þúsund krónum, greiðslurnar
hverfa síðan ef tekjur ná 85 þúsund
krónum á mánuði hjá hvoru hjóna.
Frítekjumark hjóna sem njóta ellil-
ífeyris er hækkað úr 70% í 75% af
frítekjumarki tveggja einstaklinga.
Nýr bótaflokkur, einbúauppbót, er
í frumvarpinu og á að greiðast til
þeirra ellilífeyrisþega sem búa einir
og hafa innan við 15 þúsund krónur
í aðrar tekjur á mánuði.
Örorkulífeyrir hækkar úr 11.181
krónu á mánuði í 12.750 krónur, eða
um 14%. Tekjutrygging örorkulífeyr-
isþega hækkar úr 20.572 krónum á
mánuði í 23.500 krónur.
Bótaflokkarnir heimilisuppbót og
sérstök heimilisuppbót eru lagðir nið-
ur og í staðinn koma heimildarbæt-
ur. Þær gera ráð fyrir því að greiða
megi örorkulífeyrisþegum uppbót á
tekjutryggingu.
Örorkustyrkur er hækkaður ú
8.385 krónum á mánuði í 9.000 krón-
ur.
Slysatryggingar em lagðar niður
sem sjálfstæð grein almannatrygg-
inganna. Gengið er út frá því að
áður en frumvarpið verði að lögum,
muni atvinnurekendur og launþegar
semja um með hvaða hætti slysa-
tryggingum verði fyrir komið hjá
vátryggingafélögum. Vasapening-
ar til þeirra sem búa inni á stofnunn-
um em hækkaðir úr 6.344 króna
meðalgreiðslum í dag í 10 þúsund
krónur á mánuði til þeirra sem hafa
tekjur innan við 3.000 krónur á
mánuði.
Gert er ráð fyrir að greiðsla feðra-
og mæðralauna færist yfir í skatta-
kerfið.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra kynnir álmálið í Vogum. Morgunbiaðið/Eyjóifur m. Guðmundsson
Almálið kynnt fyrir íbúum Vogs
ÍBÚUM Vatnsleysustrandarhrepps var á fundi nýlega kynnt bygging
og rekstur væntanlegs álvers á Keilisnesi. Jón Sigurðsson, iðnaðarráð-
herra, sagði á fundinum að bygging álvers á Keilisnesi væri upphafið
að nýjum tíma á þessu svæði og hefði mikil áhrif um landið allt. Hann
sagði einnig álverið í fremstu röð í umhverfismálum.
Oddur Einarsson, starfsmaður
starfshóps um stóriðju á Suðurnesj-
um, sagði frár því hve stórt verkefni
þetta væri, að ráðgjafi hafi komið
til starfshópsins og sagt byggingu
álversins stærstu framkvæmd á
Norðurlöndum næstu árin.
Talsverðar umræður urðu um störf
kvenna í álverum og sagði Jón Sig-
urðsson, iðnaðarráðherra, ekkert
vera því til fyrirstöðu að konur starfi
í álverinu, og með bættri tækni fjölgi
þeim störfum. Andrés Svanbjörnsson
frá markaðsskrifstofu iðnaðarráðu-
neytisins og Landsvirkjunar sagðist
hafa spurst fyrir um kvennastörf í
álverum þar sem hann hefur komið,
og taldi hann að þaú gætu orðið
fjórðungur allra starfa.
Jón Gunnarsson, oddviti, sagði að
gert væri ráð fyrir að sveitárstjóður
byggi og reki vatnsveitu vegna ál-
versins, vegna þess að ekki þyki rétt
að hleypa útlendingum í þá auðlind
sem vatnið er.
A annað hundrað hreppsbúar
mættu á fundinn og spurðu margra
spurninga. Fundurinn var bytjunin á
kynningu álmálsins á meðal hrepps-
búa. - EG.
A-4 vélin sem
einstaklingar og smærri
fyrirtæki kaupa og þau
stærri þegar þau vilja
netta aukavél til að hafa
við hðndina.
.Jj-y Verö kr. 47.900,-
fflfísEP- st9r *" VSK'
Wr
8MPH0LT117 106 HEYKJAV*
SlMk S127333 FAX »1-21
acohf
•Aip/ m/,'ýht//á ne/
KONFEKT
fyllt með viskílikjör.
Frábæn með kaffinu
eftir matinn.
FLEXON
VESTUR-ÞÝSKUR
HÁG/EÐA
DRIFBÚNAÐUR
FLUTNINGSKEÐJUR
Allar stœrdir
Hagstœtt verð
Við veitum þér
allar tœknilegar
upplýsingar
r
LANDSSMIÐJAN HF
Verslun: Sölvholsgötu 13
SÍMI (91)20680» FAX (91)19199
er drýgra
Þvol er einn elsti
| uppþvottalögur hér ií landi.
Samsetningu Þvols hefur
hins vegar margoft verið
r breytt íkjölfar nýrm hráelhn
I sem komiðhafa á marknðinn.
I Við vek jum scrstaklega
| athygli á að ÞvoI vr drýgra
í notkun, vegna þess að
það inniheldur meiru af
virkum sápuefnum, það
:j gefur meiri gljáa og er milt
fyrir hendur.
Lfrigg
Lyngási 1, Garðabæ,
8 Sími 65-18-22, Telefax 65-18-57