Morgunblaðið - 23.10.1990, Síða 64
KAVÍAR
HRÖKKBRAUÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Tillaga í borgarráði:
Afgreiðslu-
Jími verslana
verði frjáls
BORGARRÁÐ Reykjavíkur fær í
dag til umfjöllunar tillögu frá
meirihluta Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn um að afgreiðslutími
verslana verði frjáls til klukkan
23.30, en hann er nú takmarkaður.
Davíð Oddsson borgarstjori sagði
tillöguna vera í takt við þróun
tímans. „Það er ekki fært að halda
uppi svona reglum. Þeim hefur ekki
verið haldið uppi í nágrannasveitar-
félögunum og því ekki_hægt að láta
borgina daga uppi hvað það snertir.“
í tillögunni felst að almenn verslun
“>sé heimil til'klukkan 23.30 án þess
að sérstakt kvöldsöluleyfi þurfi. Vilji
kaupmenn hafa opið lengur, þurfi
nætursöluleyfi. Davíð segir að í.reynd
hafi ekki verið hægt að framfylgja
reglum sem höfðu verið settar í borg-
- arstjórn, í raun að tilhlutan hags-
munaaðila, það er verslunarmanna
og kaupmanna. „Þetta hefur verið
að fara úr böndum, við höfum til
dæmis heimilað mjólkursölu í sjopp-
um sem um það hafa sótt. Það stefnir
í að þetta verði alfarið frjálst."
Heilbrigðis-
stimpli stolið
úr sláturhúsi
Selfossi.
STIMPLI sem sýnir að heil-
brigðisskoðun á kjöti hefur
farið fram var stolið í slát-
urhúsi Sláturfélags Suður-
lands á Selfossi í gær.
Heilbrigðisstimpillinn var í
bakka ásamt stimpilpúða inni
í slátursal sláturhússins.
.Stimpillinn hvarf um hádegis-
bilið þegar litið var af honum
um stund.
Svo virðist sem stuldurinn
hafi verið undirbúinn því blek
sem notað er í stimpilpúðann
minnkaði óeðlilega fyrir
nokkru. Sá sem hefur slíkan
stimpil undir höndum getur
boðið til kaups kjöt sem ekki
hefur verið skoðað, en er með
eðlilegan stimpil.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hitavatns-
leiðslan yfir
Stóru - Lax-
árgljúfur
Nú er verið að taka í notkun
hitaveitu sem að standa tólf
aðilar í Hrunamanna- og
Gnúpverjahreppum, bændur,
Hrunakirkja, Hrunamanna-
hreppur og veiðihús í Laxár-
dal. Hitaveituleiðslan liggur
frá Flúðum að Skáldabúðum,
um ellefu kílómetrar að lengd
og er vatnið 63 gráðu heitt á
endastað. Hafist var handa við
lagninguna í vor og unnU
bændur mikið við lagninguna
sjálfir, auk Svavars Árnasonar
verktaka á Brautarholti. Hita-
veiturörin voru framleidd hjá
Hjúpi hf. og Hulu hf. á Flúð-
um. Kostnaður er um 1,5 millj-
ón á hvert býli. Einn bænd-
anna, sem njóta hinnar nýju
hitaveitu er Hörður Harðarson
i Laxárdal. Hann stendur hér
við Stóru-Laxárgljúfur þar
sem lögnin liggur yfir ána.
Með honum á myndinni eru
börnin Sigfús Harðarson og
Bjarney Högnadóttur.
Orkusala Landsvirkjunar til Atlantsáls hf.:
Nefnd þriggja stj óraarmanna
yfirtekur samningsgerðina
Unnið verður eins hratt og kostur er, segir Davíð Oddsson
STJÓRN Landsvirkjunar kaus á
fundi sínum í gærmorgun þriggja
manna nefnd úr sínum hópi til
þess að annast, ásamt Jóhannesi
Nordal stjórnarformanni Lands-
virkjunar, samningsgerð um
orkusölu til Atlantsáls hf. I nefnd-
ina voru kjörnir Davíð Oddsson
borgarstjóri, Birgir ísleifur
Gunnarsson alþingismaður og
Páll Pétursson alþingismaður.
Davíð Oddsson segir nefndina
yfirtaka samningsgerðina um
orkusöluna af svonefndri áivið-
ræðunefnd. Hann segir nefndina
munu hraða störfum sínum eins
og frekast er kostur, en megin-
markmiðið sé að ná viðunandi
orkusölusanmingi og að tíma-
pressa breyti ekki því markmiði.
Tillaga um, skipan og verksvið
nefndarinnar var samþykkt sam-
hljóða í stjórn Landsvirkjunar.
Nefndinni er falið að leggja mat á
þau drög að samningi um orkusölu,
sem þegar liggja fyrir, og annast
ásamt stjórnarformanni þá samn-
inga Landsvirkjunar um orkusölu
sem framundan eru. Ennfremur að
gefa stjórninni reglulega skýrslur
Röst SK leyft að sigla með
síldarafla til Danmerkur
Verð til frystingar og söltunar frjálst
Utanríkisráðuneytið og sjávarútvegsráðuneytið hafa heimilað Röst
SK, sem er í eigu rækjuvinnslunnar Dögunar hf. á Sauðárkróki að
sigla með síldarafla og skipið selur 130-150 tonn af síld ísaðri í kassa
á fiskmarkaði í Hirtshals í Danmörku í næstu viku, að sögn Tómas-
^r Ástvaldssonar hjá Dögun. Skilyrði hefur verið í leyfum til síldveiða
•^ð síldinni verði landað innanlands.
„Menn voru til í að gera þessa
tilraun og ég held að menn vilji horfa
á fleiri markaði en áður vegna óvissu
um sölu á saltsíld til Sovétríkjanna,"
segir Kristján Skarphéðinsson hjá
sjávarútvegsráðuneytinu.
Kristján Skarphéðinsson segir að
sú regla í síldveiðileyfum að 60% af
síldinni fari til manneldis hafi ekki
verið afnumin en menn túlki þessa
reglu ekki mjög þröngt.
Á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsráðuneytisins í gær varð sam-
komulag um að gefa ftjálsa verð-
lagningu á síld til frystingar og sölt-
unar á þessari vertíð en lágmarks-
verð hefur verið á síld til þessarar
vinnslu. Verðlagsráð hafði áður gef-
ið verð á síld tii bræðslu frjálst á
þessari vertíð en það var einnig
fijálst á síðustu vertíð.
„Óvíst er hversu mikia saltsíld
Sovétmenn kaupa af okkur á þess-
ari vertíð, þannig að mikil óvissa í
markaðsmálunum gerði opinbera
verðlagningu á síld til söltunar og
frystingar ekki kræsilega," segir
Bjarni Lúðvíksson framkvæmda-
, stjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna en hann sat fund Verðlags-
ráðs í gær af hálfu kaupenda.
„Síðast kom krafan um verðlagn-
ingu frá sölturunum. Það er mjög
mikil dreifing í vinnslunni og síldin
er unnin frá Faxaflóa að Vopna-
firði. Einnig eru mjög laus tengsl á
milli útgerðar og vinnslu hvað varð-
ar síldveiðarnar. Tugir síldarbáta eru
í eigu aðila, sem ekki eru að vinna
síld, þannig að þarna er kjörið tæki-
færi að vera með frjálst verð. Einn-
ig geta menn nú siglt með síldina
ef þeir telja sig fá betra verð fyrir
hana annars staðar. Okkur fannst
því langskynsamlegast að hafa verð-
ið fijálst, þar sem nægilega væri séð
fyrir samkeppninni um að verðleggja
síldina og það mikill aðskilnaður
væri á milli aðila að það gæti alveg
gengið."
Bjarni segir að togarar hafi siglt
með ísaða síld til Þýskalands hér
áður fyrr. Hann gerir þó ekki ráð
fyrir að menn geri mikið af því að
sigla með síld á þessari vertíð, þar
sem ekki fáist hátt verð fyrir hana
erlendis. Bjarni segir að enda þótt
verð á síld hafi verið gefið fijálst
sé það ekki merki um að verð á
öðrum tegundum verði gefið fijálst.
um framvindu samninga svo henni
gefist kostur á að fjalla um þau álita-
mál sem taka þarf afstöðu til hveiju
sinni.
í samþykkt stjórnarinnar um skip-
un nefndarinnar segir að öll störf
hennar að samningsgerðinni skulu
unnin n\eð fyrirvara um samþykkt
orkusamningsins í heild af hálfu
stjórnar Landsvirkjunar.
„Landsvirkjun er þarna komin
með formlegum hætti inn í viðræð-
urnar og tekur þær þá í rauninni
yfir hvað þennan þátt snertir," sagði
Davíð Oddsson í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði nefndina því í
raun taka við af svonefndri álvið-
ræðunefnd hvað snertir orkusölu-
málin til Atlantsáls, „sem eru auðvit-
að lang stærsti þáttur málsins og
það sem er mest óklárt ennþá“.
Nefndin mun væntanlega hefja
reglubundin störf á morgun, mið-
vikudag. Síðan er búist við að fund-
ir verði með viðsemjendum snemma
í nóvember, annað hvort í London
eða í New York.
Davíð var spurður hvort viðræður
nefndarinnar gætu skilað árangri
innan þeirra tímamarka sem iðnað-
arráðherra hefur kynnt. „Við erum
ekki inni í þeim tímamörkum, en það
hefur þó komið frám að málið er
miklu skemmra á veg komið en
ýmsir vildu vera láta og því getur
það tekið einhvern tíma. Það er þó
ljóst að þessi nefnd vill eins og frek-
ast er kostur hraða sínu verki, en
auðvitað er markmiðið að ná þolan-
legum samningum fyrir fyrirtækið,
þannig að tímapressa getur aldrei
leitt til þess að við förum að sam-
þykkja einhveija hluti sem við teljum
ekki nógu farsæla fyrir okkur,“
sagði Davíð Oddsson.