Morgunblaðið - 14.12.1990, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
heitn ilisverslun
me ð stíl
LAUGAVEGI 1 3
SÍMI625870
r
i
SKÍBI
SNORRABRAUT 60 - SÍMI 12045
Þú svalar lestrarþörf dagsins y
' sídum Moggans!
Um 150 hraunhellar á Íslandí
Björn Hróarsson við hellismunna Hvassa í Hallmundarhrauni eftir
frumkönnun hellisins fyrsta vetrardag 1989.
Viðtal við Björn
Hróarsson
HELLIR er í hugum flestra eitt-
hvað ógnvekjandi og dularfullt. I
hraunum á Islandi er þó að finna
um 150 hella, þar af 56 lengri en
þúsund metrar. Þetta kemur fram
í nýrri bók Björns Hróarssonar
jarðfræðings, sem er árangurinn
af 11 ára starfi hans, að því er
hann sagði í viðtali við Morgun-
blaðið. Undanfarin fjögur ár hefur
hann verið nær eingöngu við rann-
sóknir og efnissöfnun um íslenska
hraunhella, fundið marga nýja,
rannsakað þá á marga lund og
kortlagt þá og er bókin afrakstur-
inn af því mikla starfi. I heimilda-
skrá er 316 skrifaðra verka um
hraunhella getið og segir Björn
að leitin að þessum skrifum er-
lendis hafi verið helmingurinn af
verkinu. Telur hann að söfnun
fyrri heimilda sé nokkurn veginn
tæmd og svo fylla hans eigin rann-
sóknir upp í eyðurnar. Hafa Björn
og félagar hans fundið um 30 af
hellunum sem getið er um, og var
ekki um þá vitað fyrr. Og á seinni
árum hafa þeir fundið í hellunum
töluvert af nýjum fornleifum,
hleðslur og beinaleifar. Segist
Björn hafa verið meira og minna
neðanjarðar undanfarin ár og
sýna litmyndir hans úr þessum
undirdjúpum hvílíkur töfraheim-
ur hellarnir eru.
Björn Hróarsson segir hellaskoðun
ákaflega skemmtilegt viðfangsefni.
„Þetta er svo fallegur heimur. Maður
er eins og Iandkönnuður að koma í
nýjan heim. Eftirvæntingin er mikil
þegar komið er fyrir beygju og ekk-
ert vitað hvað tekur við, dropastein-
ar, jarðmyndanir o.s.frv." í bókinni
er mynd af Lofthelli í Mývatnssveit,
sem fannst í fyrra með 10 metra
lofthæð og íssúlum. Það mikla djásn
litu þeir félagar örugglega fyrstir
augum.
Björn Hróarsson kvaðst hafa byij-
að að fara í hella þegar hann var í
menntaskóla og skrifaði þá þegar
hellaritgerð. 1980 kortlagði hann
fyrstu hellana, Jörund og Hal í
Lambabrauni. Eftir að hafa verið í
4 ár í jarðfræði í Háskóla Islands
og lokið prófi tók hann hellafræði
sem sérgrein. Fyrir 7-8 árum tók
hann að raða og skrá upplýsingarn-
ar. Við heimildasöfnunina hefur hann
staðið í bréfaskriftum við útlendinga,
farið utan til að ná tali af fólki og
keypt bækur til að leita upplýsinga.
Þegar spurt er hvort ekki sé skrýt-
ið hve lítið menn þekktu hraunhella
á þessu eldijallalandi, segir Björn að
þegar litið sé langt aftur þá hrædd-
ust menn hellana, höfðu enda ekki
ljósfæri til að fara niður í þá. Egg-
ert Ólafsson og Bjarni Pálsson fóru
í Surtshelli og lengdarmældu hann á
18. öld og voru það fyrstu alvöru
hellarannsóknirnar á íslandi. Þar til
Guðmundur Kjartansson jarðfræð-
ingur eyddi miklum tíma í þær á 20.
öld og skrifaði tímamótagrein um
íslenska hella í bandarískt tímarit
1968, sem vakti svo mikla athygli
hellafræðinga að þeir streymdu hing-
að og unnu mikið að rannsóknum á
íslenskum hellum á árunum 1969-78.
Eiga þessir útlendu menn um 90%
af öllum skrifum um íslenska hella
þar til Björn Hróarsson kom til og
það eru skrif þeirra sem hann hefur
haft svo mikið fyrir að leita uppi.
En Björn tileinkar bók sína Guð-
rnundi Kjartanssyni og segit það vel
við hæfi. Þegar Jónas Hallgrímsson
var að safna efni til ’heildarlýsingar
á íslandi og sendi spurningalista til
allra sóknarpresta og sýslumanna
spurði hann um hella og eru í gögn-
um hann ýmsar vísbendingar um þá,
en hann lést án þess að vinna úr
gögnum sínum.
Surtshellir er lengstur íslenskra
hella, 1.970 metrar, og fjórir hellar
aðrir yfir 1.000 metrar á lengd. „Við
keppum ekki í léngdinni við erlenda
hella, en í rúmtaki. í okkar hellum
er svo hátt til lofts,“ segir Björn. „Og
þeir eru mjög tilkomumiklir. Ég
kynnti með myndum íslenska heíla
á 10. alþjóðlegu hellaráðstefnunni í
Búdapest nýlega. Þar á meðal drop-
steinana í Jörundi og kom í ljós að
Jörundur er líklega stærsti dropa-
steinahellir ájörðinni. Híðið áReykj-
anesi, sem við fundum í fyrra, er líka
mikið djásn. Honum var gefið þetta
nafn, af því að tveir Birnir fundu
hann.“ Þess má geta að Björn og
félagar hans fundu 8 nýja hella í
Surtsey síðastliðið sumar.
Þegar spurt er hvort slík dropa-
steinadjásn liggi ekki undir skemmd-
um þegar fólk veit um þau, bendir
Björn á að í bókinni sé kafli um
umgengni í hellum: „Hellar eru einu
fyrirbærin á jörðinni sem ekki
skemmast nema maðurinn komi
þangað í heimsókn. En það er hægt
að koma þangað án þess að skemma
ef rétt er að farið. Við höfum ekki
á móti því að fólk fari í hellana, ef
það gengur vel um. Viljum að fólk
kynnist þessum heimi. En fyrst þarf
það að kynna sér hvað það þarf að
hafa með sér og hvað ekki, til dæm-
is eru kyndlar algjör bannvara. Af
þeim kemur sót og allt verður skít-
^auknecht
ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI
©
©
©
©
tmm
0SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VIÐ MIKLAGARÐ
• & KAUPFÉLÖGIN
Kœrar þakkir til Mjólkurfélags Reykjavíkur og
starfsfólks þess, svo og annarra, er glöddu mig
á 85 ára afmœli mínu 8. desember sl.
Guð geymi ykkur öll.
Guðmundur Torfason.
Kœru vinir og œttingjar! Innilegt þakklœti til
allra þeirra, sem glöddu mig með heimsóknum,
gjöfum og skeytum á 90 ára afmœli mínu þann
9. desember. Ég óska ykkur öllum gleðilegra
jóla og farsœls komandi árs.
Guð blessi ykkur öll.
Jónína Jónsdóttir frá Steinum.
Risaeðlan
áBorginni
HLJÓMSVEITIN Risaeðlan
heldur tónleika í kvöld á
Hótel Borg. Upphitunar-
hljómsveit er kvennasveitin
Afródíta.
Hljómsveitarmeðlimir hafa
undanfarið unnið að lag-
asmíðum fyrir næstu breiðsk-
ífu sína, sem tekin verður uþp
á næsta ári.
Afródíta er skipuð þremur
ungum stúlkum sem vakið
hafa athygli fyrir sérstæðar
lagasmíðar og flutning.
ATHUGIÐ
Nýjar vörur
Mikið úrval
dömur og herra.
Snyrtivöruverslun
Reykjavlkurvegi 50 • Hafnarfirði
Slmi 53422
I ÍttripáMftMífr
" Metsölublad á hverjum degi! co
Vertu vel
klæddur
frá
BERNHARDT
fashion
llerrabudin
■ Hafnarctraoti Q9
Hafnarstræti 92
Sími 96-26708
Klæðskeraþjónusta