Morgunblaðið - 14.12.1990, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990 ■
FRÁSAGNIR
ÞEKKTRA MANNA
ÆVIBROT eftir Dr. Gunnlaug Þórdarson
Gunnlaugur hefur ávallt verið hress f fasi og talað tæpitungulaust
f þessari bók kemur hann svo sannariega til dyranna efns og hann
er klæddur. Rekinn úr skóla - Að upplifa dauðann - Ritari forseta
íslands - Smfður á Lðgbergi - Húðstrýktur fyrir kirkjudyrum.
- Þetta eru nokkur lýsandi kaflaheiti sem segja meira en mörg orð
um það hvers lesandinn má vænta. Fjöldi Ijósmynda prýðir bókina.
AIANDAKOTI
effir Dr. Bjarna Jinsson yfirlækni
Dr. Bjarni Jónsson var um áraraðir fremsti sérfræðingur fslendinga
í bæklunarsjúkdómum og meðferð höfuðslysa. Þetta er saga af merkri
stofnun og Ifknarstarf) f nærri heila öld þar sem margir af fremstu
læknum landslns koma við sögu. Bókina piýða 60 Ijósmyndir.
SETBERG
'I
Steinar hf. gefa út gömul íslensk dægurlög:
Höfum aö leiðarljósi að sýna
anda hvers tímabils sem best
- segir Jónatan Garðarsson sem sér um útgáfuna
STEINAR hf. hafa hrundið í framkvæmd útgáfu gamalla íslenskra
dægurlaga, sem mörg hver hafa verið ófáanleg á hljómplötum í lang-
an tíma. Útgáfuröð þessi kallast Aftur til fortíðar og koma út þrjár
piötur, sem hver spannar einn áratug, í þessum fyrsta áfanga. Efnið
kemur Iíka út á geisladiskum og kassettum.
Fyrsta platan er helguð sjötta ára-
tug aldarinnar, önnur platan þeim
sjöunda og hin þriðja áttunda ára-
tugnum. A plötunum þremur eru alls
57 lög; 20 á fyrstu og annari en 17
eru frá áttunda áratugnum.
Ósýnileg réttindi
„Fyrir einu og hálfu ári keyptum
við útgáfuréttinn á öllu sem Fálkinn
hafði gefið út, allt frá 1930. Þar
fylgdu réttindi Svavars Gests [SG
hljómplatna], sem Fálkinn hafði áður
keypt, allt sem íslenskir tónar gáfu
út á sínum tíma, svo og Tonica, sem
var starfrækt í nokkur ár, og það
sem Taktur gaf út, en það fyrirtæki
var stofnað upp úr hljómdeild Fálk-
ans á sínum tíma. Um leið keyptum
við verslun Fálkans við Laugaveg
og alla lagera sem þar voru. Þar var
mikið segulbandasafn sem var nán-
ast ókannað," sagði Jónatan Garð-
arsson hjá Steinum, um aðdraganda
þess að ráðist var í útgáfu þessa.
„Við vissum að þarna hefðum við
keypt ákveðin ósýnileg réttindi, og
eftir að hafa hugsað málið þótti okk-
ur sú hugmynd að búa til einhvers
konar áratugaplötur fýsilegust. Mikil
leit hófst að upplýsingum um flytj-
endur í spjaldskrám Ríkisútvarpsins
og víðar og nutum við þar mikillar
aðstoðar Trausta Jónssonar veður-
fræðings, sem hefur verið manna
iðnastur að grúska í þessu gamla
efni. Við Trausti unnum svo saman
að því að útbúa eins ítarlegan lista
og við gátum yfir það sem við töldum
vera á böndunum."
Þetta var í maí sl. og til stóð að
hefja útgáfu í júní. „En það reyndist
öllu erfiðara efi reiknað var með, því
böndin voru meira og minna óflokkuð
og ómerkt og þegar við könnuðum
þau kom í ljós að mörg þeirra, sem
eru allt að 40 ára gömul, voru á
síðasta snúningi. Því stungum við
niður fæti og ákváðum að vinna þetta
öðruvísi."
Fyrsti vísirinn að íslenskri
tónlistarsagnfræði
Jónatan segir að útbúinn hafi ver-
ið óskalisti með 150 lögum. Þegar
búið var að flokka það sem til var
fór hann í hljóðver ásamt tækni-
manni og hóf afritun beint af frum-
böndum yfir á stafrænar kassettur.
„Þannig safnaði ég saman yfir 250
lögum, áður en ég fór að velja nokk-
uð til útgáfu. Sumt var því miður
algjörlega ónýtt en síðar kom í ljós
að sumir listamennirnir, sem hlut
áttu að máli, áttu sjálfir eitthvað af
því sem var ónýtt hjá okkur. Þá höfðu
sumir tæknimanna ríkisútvarpsins
einhverra hluta vegna haldið til haga
afritum; Jón Þór Hannesson átti til
dæmis Gvend á eyrinni með Dátum,
en frumbandið af því lagi hefur ekki
verið til síðan platan var framleidd
1966. Það var því mjög heppilegur
fundur; það merkilegasta sem fannst
að mínu mati, ásamt masternum
[frumsegulbandi] af Fyrsta kossinum
með Hljómum sem talinn var að eilífu
glataður."
Síðan var safnað saman upplýs-
ingum um tónlistarmennina sem um
ræddi. „Við náðum í velflesta og
mikil vinna var lögð í að ná í upplýs-
ingar um hveijir hefðu spilað og á
hvaða hljóðfæri, hvaða ár lögin hefðu
verið tekin upp og hvar, og allir þær
upplýsingar sem við náðum í fylgja
með. Þetta gekk býsna vel, miklu
betur en höfðum þorað að vona, en
kostaði fleiri hundruð símtöl. Menn
muna þetta misjafnlega vel, en þegar
upp var staðið náðist nokkuð heilleg
mynd og það er ekki síður merkilegt
en lögin sjálf, að tekist skuli hafa
að safna upplýsingunum saman því
þær eru að týnast með þeim mönnum
sem þarna voru að störfum. í tónlist-
arsagnfræði, sem til er sem grein úti
í heimi, þykir þetta hvað merkilegast
— hveijir spiluðu í hvaði lagi. Þetta
er kannski fyrsti vísirinn að varð-
veita þær minningar hér á landi,“
sagði Jónatan og nefndi nokkur
dæmi þess að hljóðfæraskipan hefði
verið allt önnur í sumum lögum en
alla jafna.
Litla flugan elst
Elsta hljóðritunin sem nú er gefin
út er frá árinu 1951 og er það Litla
flugan, hið sígilda dægurlag Sigfúsar
Halldórssonar sem hann syngur
sjálfur við eigin píanóundirleik — !
Samsöngnr barnakóra á Akranesi
NÆSTKOMANDI sunnudag,
16. desember, kl. 17 er fyrirhug-
aður barnakórasamsöngur í
Safnaðarheimilinu Vinaminni á
Akranesi.
Á þessum tónleikum koma fram
þrír barnakórar. Barnakór Akra-
neskirkju undir stjórn Jón Ólafs
Sigurðssonar, Kór Grundaskóla á
Akranesi undir stjórn Ragnheiðar
Ólafsdóttur og Flosa Einarssonar
og Kór Andakílsskóla á Hvanneyri
undir stjórn Hannesar Baldursson-
ar, einnig kemur fram Blásara-
kvintett Tónlistarskólans á Akra-
nesi undir stjórn Andrésar Helga-
sonar. Blásarakvintettinn skipa
eftirfarandi nemendur; Anna
Björk Nikulásdóttir, Böðvar Guð-
mundsson, Daníel B. Jónsson,
Sigríður Guðjónsdóttir og Sigur-
þór Þorgilsson. Allir þátttakendur
gefa vinnu sína og meiningin er
að allur aðgangseyrir gangi
óskiptur til söfnunar Hjálparstofn-
unar kirkjunnar.
SIEMENS
Litlu raftœkin frá SIEMENS gleðja
augað og eru afbragðs jólagjafir!
Ikaffivélar
hrærivélar
brauðristar
|§ vöfflujárn
| strokjárn
handþeytarar
f eggjaseyðar
djúpsteikingarpottar
hraðsuðukönnur
dósahnífar
áleggshnífar
kornkvarnir
,jraclette“-tæki
veggklukkur
vekjararklukkur
rakatæki
bílryksugur
handryksugur
blástursofnar
hitapúðar
hitateppi o.m.fl.
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð tœki.
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið!
Metsölublað á hveijum degi!