Morgunblaðið - 14.12.1990, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990
57
Morgunblaðið/Þorkell
Jónatan Garðarsson sem haft hefur veg og vanda að útgáfu gömlu
íslensku dægurlaganna hjá Steinum hf.
„lagið sem talið er upphaf íslenskrar
dægurtónlistar," eins og Jónatan
orðaði það. „Við höfðum það að leið-
arljósi að sýna anda hvers tímabils
sem best. Þarna eru lög sitt úr hverri
áttinni og það á kannski eftir að
koma fólki á óvart hve fjölbreytt
tónlistin var á hveijum tíma. Við
reyndum að hafa að minnsta kosti
eitt lag frá hverju ári, sem tekst í
nánst öllum tilfellum, en samt er
mikil breidd í tónlistinni. Og þegar
við völdum lögin gættum við þess
að fleyta ekki ijómann ofan af á
fyrstu plötuna, því ráðgert er að
gefa út þrjár í næstu hrinu; í vor,
og aðrar þijár í haust, jafnvel fleiri.
Þá ætlum við jafnvel að fara enn
aftar og reyna að gefa út eina plötu
með lögum frá 1930-1950 sem senni-
lega er gerlegt."
„Björgunarstarf"
Jónatan nefndi dæmi um sérstak-
lega athyglisverð lög sem þarna er
að finna: „við fundum lagið Björt
mey og hrein með Hallbjörgu Bjarna-
dóttur, og var upptakan í mjög góðu
ásigkomulagi. Lagið, sem er íslenskt
þjóðlag við ljóð Stefáns Ólafssonar,
var á sínum tíma bannað í útvarp-
inu. Það þótti ansi ameríkanserað;
er mjög djassað en feykilega
skemmtilegt og útsetningu var breytt
talsvert. Þetta þótti fyrir neðan allar
hellur. Þá er þarna lagið Sestu hérna
hjá mér með Svavari Lárussyni, bet-
ur þekkt með Öskubuskum, en þetta
er upphaflega útgáfan af laginu. Svo
má nefna lög eins og Ástin mín ljúf,
með Jóhanni Möller tannlækni sem
nánast er gleymt, og þarna er frum-
útgáfan af Lóan er komin með Póló
og Erlu, sem Tónaútgáfan gaf út.
Við fengum leyfi hjá Pálma í Tó-
naútgáfunni, til að nota efni frá hon-
um, þó við hefðum ekki keypt rétt-
inn, og líka það sem HSH gaf út,
því mönnum finnst þetta björgunar-
starf sem við erum að vinna; sem
það náttúrulega er,“ sagði Jónatan
Garðarsson.
Uinboðsaðili;
Heildverslimin Hrtn lif, Vatnayörðnm 14, slini ÖBU656
Útsulustaðir;
Hanz. Krinylnnni • Lamton. Anstnrstræti • Persóna, Keflavfk
Adam oy Eva, Vestinannaeyjimi • Krisma, ísatirði
Rocky, Úlafsvik • Garðarsliólini, Htisavik • KEA, Akureyri
VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN
UPPLÝSINGAR: SlMSVARI: 681511 LUKKULlNA: 991000