Morgunblaðið - 14.12.1990, Page 65

Morgunblaðið - 14.12.1990, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990 65 Sigurrós Þorleifs dóttir - Minning Fædd 4. ágúst 1903 Dáin 6. desember 1990 Hún amma gamla á Akureyri er dáin. Blessuð sé minning hennar. Amma var fædd þann 4. ágúst árið 1903 og var því komin á 88. aldursár þegar hún andaðist 6. des- ember síðastliðinn. Hún hafði legið á sjúkrahúsi síðustu vikurnar og augljóst var að hverju stefndi. Dauðinn varð henni því kærkominn og friðsæl lausn áður en banvænn sjúkdómur ylli henni frekari kvöl- um. Amma fæddist á Klængshóli í Skíðadal. Dalurinn gengur inn af Svarfaðardal en byggð þar hefur nú lagst í eyði fyrir þó nokkru. Kynslóð ömmu er um margt merki- leg. Óhætt er að fullyrða að engin kynslóð hér á landi hefur lifað jafn örar og víðtækar breytingar á þjóð- félagsháttum eins og hennar kyn- slóð. Hún var fædd í hinu gamla íslenska samfélagi sem á margan hátt hafði staðið nánast óbreytt um aldir. Torfbær með moldargólfum, baðstofulofti ásamt þeim þrengsl- um, kulda og bágu kjörum sem þá voru óumflýjanlegir fylgifiskar erf- iðrar lífsbaráttu var æskuheimili ömmu. Á efri árum bjó hún svo í lítilli nýtísku íbúð á elliheimilinu á Akureyri þar sem hún hitaði sér kaffi í rafmagnskaffivél og fylgdist af áhuga með ýmsu markverðu í sjónvarpi og útvarpi svo aðeins fátt eitt sé nefnt af þeim tækniundrum sem fylgja nútímanum. Þessa tækni tileihkaði amma sér eins og aðrir en það má undrum sæta hversu vel fólki á hennar aldri hefur tekist að laga sig að gjörbreyttu samfélagi. Það er langur vegur milli þessara tveggja heimila ömmu, svo langur að við sem nú teljumst tiltöiulega ung að árum eigum oft á tíðum erfitt með að gera okkur í hugar- lund hversu víðtækar þær breyting- ar eru sem orðið hafa á þó ekki lengri tíma en tæpri öld. Amma var snemma vanin við vinnu eins og þá var alsiða og strax á barnsaldri var hún farin að hjálpa til við bú- störfin heima en var svo send í vinnumennsku á aðra bæi um leið og hún hafði aldur til. Hún var einn- ig snemma farin að vinna í fiski á Dalvík og kynntist því fljótt þeim erfiðu störfum, bæði til sjávar og sveita sem haldið hafa lífinu í þess- ari þjóð. Þegar hún var um tvítugt fór hún í kaupavinnu að Möðrufelli í Eyjafir-ði og þar kynntist hún afa, Símoni Símonarsyni. Hann reyndist ömmu einkar góður. Þau giftu sig 18. maí 1925 en eftir að þau stofn- uðu heimili bjuggu þau alla tíð á Akureyri. Þau bjuggu fyrstu árin í Norðurgötu 10 en fluttu síðar í Klettaborg 4. Afi var verkamaður og stundaði ýmis störf, hjá kaupfé- laginu, sambandinu og víðar eftir Gestkvæmt í Klúkuskóla Laugarhóli. GESTKVÆMT hefur verið í Klúkuskóla að Laugarhóli á þessu hausti. Auk heimsóknar forseta íslands og fylgdarliðs, sem komu þann 30. september, hafa hópar verið hér fjórum sinnum frá öðrum skólum og eina helgi, nú 8.-9. desember, var hér hópur væntanlegra fermingarbarna úr Stranda- sýslu, ásamt séra Ágúst Sig- urðssyni, sóknarpresti á Prest- bakka. Helgina áttunda til níunda des- ember hefur hópur barna þeirra, er ferma á í Strandasýslu á kom- andi vori, dvalið á Laugarhóli í Biarnarfirði. Var hópurinn þar „.. . ,. , .... Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson ásamt, sóknarnrestinum. séra Bornin i Klukuskola syna helgileik. um aukið samstarf kennaranna, heimsóknir milli skólanna og sam- nýtingu ýmissa kennslugagna. Voru þetta alls fimm kennarar sem starfa við skólana sem mættu á fundinn. Eru þeir staðráðnir í að halda uppi góðum samskiptum milli skólanna. Séra Ágúst Sigurðsson þjónar nú allri Strandasýslu nema Árnes- prestakalli, en hann gegnir fyrir Hólmavíkurprest, sem er í náms- fríi, auk þess að gegna sínum prestaköllum. Klúkuskóli hefur á undanförn- um sex árum haft samstarf við skólana í Broddanesi, á Hólmavík, á Drangsnesi og í Reykjanesi við Isafjarðardjúp. Hafa þessir skólar meðal annars haft samvinnu um dansnámskeið á.vegum skólanna. - SHÞ Hópur úr tveim skólum í leik á hlaðinu við Laugarhól. -------7 ' ^ " Ágústi Sigurðssyni á Prestbakka. Einnig var kona hans, Guðrún L. Ásgeirsdóttir, og dóttir þeirra, María, til aðstoðar, dvöldu þau hér á fermingarnámskeiði, sem svo lauk með guðsþjónustu í Kaldrananeskirkju á sunnudegin- um 9. desember. 27.-28. nóvember voru nem- endur í-barnaskólanum á Reykja- nesi við ísaijarðardjúp hér í heim- sókn hjá nemendum Klúkuskóla. Var haldin sameiginleg kvöldvaka með þeim og foreldrum barnanna boðið til hennar. Auk þess kepptu nemendur í ýmsum íþróttagrein- um og haldin var spurningakeppni milli skólanna. Loks héldu svo báðir skólarnir í heimsókn í grunnskólann á Drangsnesi. Var þar farið í sameiginlega ijöru- skoðun og síðan keppt í knatt- spyrnu. Vann Drangsnesskóli leikinn með 3 mörkum gegn 1. í keppni Klúkuskóla og barnaskól- ans á Reykjanesi vann Reykjanes- skóli flestar greinarnar. Þá var Héraðsskólinn á Reykja- nesi hér í heimsókn helgina 10.-11. nóvember. Kom þá einnig grunnskólinn á Hólmavík í heim- sókn og hittust nemendur skól- anna hér og kepptu og skemmtu sér. Hólmavíkurbörn höfðu einnig verið hér í heimsókn helgina 20.-21. október. Sameiginlegur kennarafundur, kennara í Kaldrananeshreppi var haldinn á Drangsnesi 18. október. Voru þar mættir allir kennarar úr Klúkuskóla og Drangsnes- skóla. Er þetta í fyrsta sinn sem slíkur kennarafundur grunnskól- anna í Kaldrananeshreppi er hald- inn. Ræddu kennararnir málefni sín og skólanna. Einkum var rætt því hvaða vinna féll til. Þar var þó ekki alltaf um auðugan garð að gresja, einkum á. kreppuárunum, og afi og amma hafa mátt muna tímana tvenna. Þau eignuðust tvö börn, Jóhann Bjarma og Þorbjörgu Gígju, sem nú sjá á eftir góðri móður. Afi dó árið 1962 og amma var því ekkja í 28 ár. Margir þekktu ömmu undir nafn- inu „Rósa pijónakona", enda fékkst hún lengi við pijónaskap af ýmsu tagi og seldi fólki. Heklaðir dúkar, saumaðar myndir og margs konar hannyrðir í tugatali bera vönduðu handbragði hennar fagurt vitni. Það er gott að eiga ömmu sína vísa, ekki síst á barnsaldri og ungl- ingsárum. Enda var oft flúið í henn- ar fang eftir eitthvert prakkara- strikið eða grátið ofan í barm henn- ar þegar einhver stundarharmur þjakaði barnshugann. Hún klappaði mér stundum á kollinn og kallaði mig „luppatask". Þegar að ungl- ingsárunum kom var gott að heim- sækja ömmu, drekka hjá henni kaffi og bera undir hana ýmsar vanga- veltur. Þá var oft spjallað um gamla daga og amma veitti mér innsýn í horfna tíð, sagði mér frá merkileg- um atburðum og fólki sem horfið var af sjónarsviðinu. En það var ekki aðeins horft til.baka í þessum heimsóknum hjá ömmu því amma var lunkin að spá í bolla. Við skemmtum okkur oft við að skyggnast inn í framtíðina með þessum hætti en hlógum svo að öllu saman því bæði höfðum við heldur takmarkaða trú á þessum „tiktúrum". Fyrir mörgum árum sagði amma mér einu sinni draum sem hana hafði dreymt. Hana dreymdi foreldra sína sem þá voru dánir fyrir allmörgum árum. Henni fannst hún vera komin í heimsókn til þeirra og faðir hennar sýndi henni afskaplega fallegan sveitabæ á grænum grundum og sagði henni , að þarna byggju þau nú, móðir hennar og hann. Amma trúði því að faðir hennar hefði þarna sýnt hénni inn í þá heima sem hún sjálf hyrfi svo til að loknu þessu lífi. Sé svo veit ég að ömmu hefur verið vel. fagnað í litla bænum þeirra langafa og langönimu núna þegar dauðinn hefur sótt hana heim. Við sem eftir lifum eigum góðar minn- ingar um ömmu og vonum að henni farnist vel á guðs vegum. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfír. Dáinn er ég þér. En þú munt lifa undir himni minum þar til myrkvast hann. Missa hlýt ég þá eins og þú hefur gert ljós dagsins land, sögu, hvern mann. (Hannes Pétursson Símon Jón Jóhannsson Ástkær móðir okkar, GUÐBJÖRG STfGSDÓTTIR, lést að morgni 13. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Ingi Sigmarsson, Magnea Sigmarsdóttir, Guðlaug Sigmarsdóttir. t Eiginmaður minn og sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRMANN ÁRIMASON, Teigi, Grindavík, verður jarðsunginn frá-Grindavíkurkirkju laugardaginn 15. des- ember kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið. Guðrún Guðmundsdóttir, Árni Guðmundsson, Vilberg Magnús Ármannsson, Margrét Pálsdóttir, Ómar Smári Ármannsson, Sigrún Grétarsdóttir, Unnur Ósk Ármannsdóttir, Gunnar Karlsson, Sóley jVlargrét Ármannsdóttir, Hafsteinn Tómasson, EiðurÖrn Armannsson, HildurLind, Ingveldur Árný Ármannsdóttir, Hirosi lchikawa, Guðmundur Þór Ármannsson, Ásdís Elva Sigurðardóttir, Gísli Freyr Ármannsson, Alda Hrönn Kristjánsdóttir, Jóhann Ingi Ármannsson, Margrét Kristjánsdóttir, Eydfs Ármannsdóttir og barnabörn. K Dags.13.12 1990 NR. 193 VAKORT Númer eftirlýstra korta 4507 2900 0003 2489 4548 9000 0027 9424 4543 3700 0000 2678 4543 3700 0001 5415 4929 541 675 316 Kort frá Kuwait sem byrja á nr.: 4506 13** 4966 66** 4509 02** 4507 13** 4921 04** 4921 90** 4547 26** 4552 41** 4560 31** 4508 70** 4507 77** 4966 82** Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. VISA ÍSLAND K-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.