Morgunblaðið - 21.12.1990, Side 1
96 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
293. tbl. 78. árg.
FOSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Edúard Shevardnadze segir af sér og varar við sókn einræðis- og afturhaldsafla í Sovétríkjunum:
Get ekki sætt mig við þjáning-
arnar sem vofa yfir þjóðinni
Gorbatsjov fordæmir ákvörðun ut-
anríkisráðherrans og segir hana ófyr-
irgefanlega á svo erfiðum tímum
Moskvu. Reuter.
ÞINGMENN á fulltrúaþing-i Sovétríkjanna sátu agndofa í gær undir
tilfinningaþrunginni ræðu Edúards Shevardnadze utanríkisráðherra
sem sagðist ætla að láta af embætti vegna yfirvofandi valdatöku einræð-
is- og afturhaldsafla og vaxandi gagnrýni á sfefnu hans og störf. Sagði
ráðherrann, sem gegnt hefur embætti frá 1985, að það hefði verið
dropinn sem fyllti mælinn að þurfa að hlýða á þingmenn úr röðum
háttsettra herforingja hreykja sér af því opinberlega að hafa þegar
hrakið nokkra þekkta umbótasinna og stuðningsmenn Gorbatsjovs úr
embætti. Harðlínumenn hefðu staðið fyrir ofsóknum og rógsherferð
gegn sér. „Lesið blöðin. Ég vil ekki greina frá nöfnum en mér finnst
að við ættum að velta fyrir okkur í alvöru hver stendur á bak við
þessa félaga. Hvað er að gerast? Hvers vegna snýst enginn gegn þeim?“
spurði Shevardnadze þingheim. Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi
sagði utanríkisráðherrann ekki hafa ráðgast við sig áður en hann
flutti ræðuna. Sagði Sovétleiðtoginn það „ófyrirgefanlegi" að hverfa
úr embætti á svo miklum erfiðleikatímum en bætti við að utanríkisstefn-
an yrði óbreytt.
Rauða hersins hefðu reynt að þvinga
Gorbatsjov til að beita hervaldi gegn
sjálfstæðishreyfingurn í einstökum
lýðveldum ríkisins. Utvarpið hafði
einnig eftir heimildarmönnum að af-
sögn Shevardnadze væri nátengd
þeim mannaskiptum sem yrðu innan
skamms í ríkisstjórninni þegar nýtt
fyrirkomulag tekur við og Gorbatsjov
fær úrslitavald yfir ráðherrum.
Shevardvnadze féllst á beiðni Gor-
batsjovs um að gegna embætti þar
til eftirmaður hefði verið skipaður
en talsmaður utanríkisráðuneytisins,
Vítalíj Tsjúrkín, sagði að afsögnin
yrði ekki tekin aftur. „Ráðherrann
er sannfærður um að hann verði að
færa þessa fórn til að bjarga ávinn-
ingum hins unga lýðræðis okkar.“
Gorbatsjov sagði þingmönnum að
hann hefði viljað að Shevardnadze
tæki við nýju og áhrifamiklu emb-
ætti varaforseta Sovétríkjartna en
ekki yrði ákveðið neitt í því sam-
bandi núna. Hann vildi ekki útiloka
að Shevardnadze kæmi enn til greina
í embættið.
Sjá ennfremur fréttir á
miðopnu.
Shevardnadze ræddi um andstöðu
við stefnu stjórnvalda í Persaflóadeil-
unni en harðlínumenn hafa gagnrýnt
samstöðu Mo'skvustjórnarinnar með
Vesturveldunum. Hann varði stefnu
sína einarðlega, hún byggðist á því
að höfð væru í heiðri hefðbundin
gildi í samskiptum siðaðra þjóða.
Sovétmenn hefðu ekki með nokkru
móti getað látið átölulaust að írakar
legðu undir sig lítið og varnarlaust
land. Hann vék að árásum harðlínu-
manna á sig. „Einræðishyggjunni
vex stöðugt ásmegin, umbótasinnar
hafa látið undan síga. Enginn veit
hvers konar einræði tekur við eða
hver mun verða einræðisherra,“
sagði Shevardnadze og röddin skalf.
„Ég get ekki sætt mig við þjáning-
arnar sem vofa yfir þjóðinni.“ Hann
sagði afsögn sína mótmæli gegn yfir-
vofandi einræði en lýsti þakklæti sínu
og vináttu í garð Gorbatsjovs.
Harðlínumaðurinn Viktor Alksnis
ofursti kom í ræðustól á eftir utanrík-
isráðherranum og sagði afsögnina
„skref í rétta átt“.
Að sögn breska útvarpsins BBC
sagði Shevardnadze að yfirmenn
Edúard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, ávarpar fulltrúaþing landsins í gær.
Reuter
Utanríkisráðherra Lettlands:
Shevardnadze studdi sjálf-
stæði Eystrasaltsþjóða
París. Bonn. Brussel. New York. Kaupmannahöfn. Reuter
VESTRÆNIR leiðtogar létu í gær
í ljós áhyggjur og undrun með þá
ákvörðun Edúards Shevardnadze
að segja af sér starfi utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna. Janis Jurk-
ans og Lennart Meri, utanríkisráð-
lierrar Lettlands og Eistlands,
sögðu Eystrasaltsríkin hafa misst
Persaflóadeilan:
Tyrkir óska eftir herþotum
frá Atlantshafsbandalaginu
Brussel. Reuter.
TYRKNESK stjórnvöld hafa óskað eftir því að Atlantshafsbandalag-
ið (NATO) sendi orrustuþotur til Tyrklands vegna stríðshættunnar
við Persaflóa, að því er háttsettur embættismaður skýrði frá í gær.
Þetta er í fyrsta skipti í sögu
bandalagsins sem aðildarríki þess
óskar eftir slíkri aðstoð vegna
stríðshættu. Heimildarmaðurinn
taldi næsta öruggt að bandalagið
yrði við beiðninni. NATO lofaði fyrr
í vikunni að koma Tyrkjum til varn-
ar yrði ráðist á þá.
Orrustuþoturnar sem Tyrkir ósk-
uðu eftir fylgja AMF-sveitunum,
sem gegna því hlutverki að bregð-
ast skjótt við ef stríð skellur á og
fara strax á vettvang. Þær eru skip-
aðar hennönnum frá nokkrum
NATO-ríkjum, hafa æft reglulega
í Tyrklandi og þeim fylgja venjulega
um 40 orrustuþotur frá Ítalíu,
Belgíu og Þýskalandi. Þær voru
stofnaðar árið 1960 og hafa aldrei
verið kallaðar út vegna stríðshættu.
„Ákvörðun verður tekin um ósk
Tyrkja mjög bráðlega,“ sagði heim-
ildarmaðurinn sem ekki vildi láta
nafns síns getið.
Calvin Waller, aðstoðaryfirmaður
bandaríska heraflans við Persaflóa,
sagði að hersveitir Bandaríkja-
manna yrðu ekki tilbúnar til að
ráðast á íraka 15. janúar. Þann dag
rennur út sá frestur, sem Samein-
uðu þjóðirnar gáfu Irökum til að
kalla hersveitir sínar í Kúvæt heim.
Waller sagði að undirbúningnum
kynni ekki að ljúka fyrr en um
miðjan febrúar. Embættismenn
bandaríska varnarmálaráðuneytis-
ins vísuðu því á bug að stefnt hefði
verið að því að grípa til hernaðarað-
gerða um leið og fresturinn rynni
út.
vin úr sovéska stjórnkerfinu sem
stutt hefði sjálfstæðiskröfur
ríkjanna. „Afsögn Shevardnadze
er upphafið að endalokum Sov-
étríkjanna," sagði Jurkans í Kaup-
mannahöfn í gær.
Roland Dumas, utanríkisráðherra
Frakklands, sagði Shevardnadze
aidrei hafa dregið dul á það í sam-
tölum þeirra að hann óttaðist að
harðstjórn hersins tæki við næði
umbótastefna stjórnar Míkhaíls Gor-
batsjovs ekki tilætluðum árangri.
„Afsögn hans er aðvörun til Vestur-
landa,“ sagði Dumas.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að taka yrði
alvarlega þá viðvörun Shevardnadze
að Sovétríkin væru á góðri leið með
að fá yfir sig harðstjórn. Hann sagði
Bandaríkjamenn styðja umbætur í
Sovétríkjunum fremur en einstakl-
inga og þvi yrði vandlega fylgst með
framvindu mála.
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands,
sagðist sleginn yfir ákvörðun She-
vardnadze. Of snemmt væri að velta
því fyrir sér hvort afsögnin gæti
þýtt að dagar Gorbatsjovs væru senn
taldir. „Ég vona að hann þrauki,"
sagði Kohl. Hans-Dietrich Genscher
utanríkisráðherra tók í sama streng
og sagði enn meiri nauðsyn nú en
áður að ríki Vestur-Evrópu gerðu
allt sem þau gætu til þess að styðja
umbótaöflin í Sovétríkjunum. Bæði
Genscher og Dumas fóru lofsamleg-
um orðum um Shevardnadze og
sögðu hann hafa lagt mikið af mörk-
um til slökunar og einingar í Evrópu.
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagðist sjá eftir Shevardnadze því
hann hefði verið talsmaður þess að
styrkja stofnunina.
Skýrsla OECD:
Spá 2%
hagvexti
París. Reuler.
Persaflóadeilan mun valda
samdrætti í Bandaríkjunum
en vegna traustrar stöðu í
Japan og Þýskalandi verður
samt hagvöxtur í iðnríkjunum
níunda árið i röð 1991, að sögn
Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar (OECD).
í skýrslu um framtíðarhorfur
sem gefin er út tvisvar á ári
kemur fram að gert er ráð fyrir
að hagvöxtur verði að meðaltali
2% í aðildarríkjunum 24 en hann
var 2,8% á þessu ári. Spáð er
3,4% hagvexti á íslandi.