Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 15
morHun^öíð’ 'r^feT^iýÁé^ W lifeMfefeíí' Mdí! 0!/
15
M
íslenskir forsetar
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Bjami Guðmarsson
Hrafn Jökulsson:
Forsetar íslenska lýðveldisins.
Skjaldborg, Reykjavík, 1990,
294 bls.
Eins og flestir vita væntanlega
hafa ijórir menn gegnt embætti
forseta íslands frá stofnun lýðveld-
is 17. júní 1944: Sveinn Björnsson,
Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eld-
járn og sá sem nú situr, Vigdís
Finnbogadóttir. Eins og höfundar
segja í formála hafa þeir „ekki
fyrr ratað saman í bók“. Fyrir
höfundum vakti „með ritun þessar-
ar bókar . .. að draga upp æviferil
forsetanna, aðdraganda forseta-
kjörs og helstu viðburði í embætt-
istíð þeirra; og flétta saman við
frásögnum um stjórnmálaþróun,
tíðaranda og ýmsum eftirminnileg-
um atburðum íslandssögunnar á
20. öld“.
Að öðrum þræði getur þetta
virst auðvelt og þægilegt verk.
Heimildir um svo þekkt fólk og
hér um ræðir hljóta að liggja á
lausu og atburðir þeir sem um
þarf að fjalla eru naumast fallnir
í fymsku.
Að hinu leytinu er ritun af þessu
tagi vandasöm. Ekki tjóar að
bregða einvörðungu upp glans-
mynd af viðkomandi persónum,
raunsæs hlutleysis þarf að gæta
og persónulýsing þarf að vera svo
úr garði gerð að lesandinn fái
nokkra innsýn í gerð og hugarheim
persónanna. Þá er því ekki að neita
að margt er hér viðkvæmt til um-
fjöllunar og því nauðsynlegt að
fara um það nærgætnislegum
höndum. Og loks er nauðsynlegt
að bók um þetta efni sé vönduð
og virðuleg.
Frásögn höfundanna er fjór-
þætt, líkt og þeir gátu um í form-
ála: ætt, uppruni og uppvöxtur;
menntun og starfsferill fram að
forsetakjöri; aðdragandi forseta-
kjörs, kjörið sjálft og úrslit þess;
embættisstörf í forsetaembætti.
Öll fjögur æviágripin eru af svip-
aðri lengd, um 70 bls. hvert. Gey-
simikið myndefni fylgir í öllum til-
vikum.
Texti höfunda er áferðargóður
og þægilegur aflestrar. Hann renn-
ur áfram líkt og hálfgildings
spennusaga. Að vissu leyti finnst
mér hann þó fullmikið einfaldaður,
líkt og verið væri að skrifa fyrir
stálpuð börn eða lítt þroskaða
unglinga. Þó að fróðlegt sé þykir
mér ætterni, bernsku- og uppvaxt-
arár fá fullmikið vægi í ekki lengri
þáttum. Aðdragandi forsetakjörs
og allt sem því viðvíkur er vissu-
lega spennuefni a.m.k. eins og
höfundar halda á því, en óþarflega
mikið þykir mér úr því gert og
ekki allt af nærgætni. Þá sakna
ég þess að ekki skuli meira fjallað
um sjálft embættisstarfíð. Það er
■líkt og höfundar telji sögunni að
mestu lokið þegar hnossið er feng-
ið.
Víst er um það að þessir fjórir
forsetar eru ólíkar persónur. Einn
þeirra fær bersýnilega lökustu ein-
kunnina. Öðrum er flest fært til
bétri vegar. Spyrja má hvort hér
sé nægilegs hlutleysis gætt. Þá er
þess ekki að dyljast að sumir sem
við sögu koma fá heldur óblíða
Hrafn Jökulsson
meðferð. Liggur við að sumar at-
hugasemdir um þá séu ótuktarleg-
ar. Mér er til efs að það sé ávallt
maklegt.
Myndefnið er svo kapítuli útaf
fyrir sig. Lituð heilsíðumynd af
Sveini Björnssyni er hreint afleit.
Var ekki hægt að gera betur? Þá
er fjöldi mynda bersýnilega tekinn
beint úr dagblöðum. Slíkar myndir
verða sjaldnast góðar í bók. í
mörgum tilvikum hlýtur að hafa
verið hægt að afla frumgerðar
Bjarni Guðmarsson
myndanna. Hvergi er ljósmyndara
getið og bendir það til að leyfis
hafi ekki verið aflað. Þetta er
ámælisvert eða rúmlega það og
ættu rithöfundar að vita betur
hvaða reglur gilda.
Enda þótt bók þessi sé notaleg
aflestrar eru vankantar hennar
engu að síður of miklir til þess að
hún sé samboðin þeirri virðingu
sem margir telja að forsetar ís-
lenska lýðveldisins eigi að njóta.
Enn bætist við urvalið hjá Ellingsen.
Vorum að taka upp nýja sendingu aí gagnlegum gjafavörum á góðu verði.
Handunnin messing aringrind.
Verð frá
Norsklr handmálaðir físibelgir
kr. 4.930,-
Enskir físibelgir
Arinkubba tilboð. Þriggja tíma
Ultraflame.
^4P§gí>
Blóma-kertastjakar úr kopar
með glerblomi fyrir spritt-
kerti. Sett með þremur stjökum
kostar
HCT |
1 ff P || | [1
Ái
Óbrjótandi hitabrúsar í þremur
stærðum. Henta vei til ferða-
laga. Verð frá 2.986,- til 3.345,-
Kr. 6.848,- Kr. 995,- Kr. 195,- Kr. 2.230,- Kr. 2.986,-
Skfðavettlingar og lúffur á börn
og fullorðna. Margir litir.
Verð frá
japanskir gæðasjónaukar. Margar Black & Decker snúrulaus bor-
stærðir, ýmsir verð flokkar. Verð vél 3/8", hleðslurafhlaða, sn. í
frá kr. 5.180,- til 8.815,-. báðar áttlr.
Snúruiaust rafm. skrúfjárn frá
Bosch með hieðslurafhlöðu.
Vattfóðraður kuidagalli með
Kr. 490,- m Kr. 5.180,- Kr. 9.735,- Kr. 3.365,- m Kr. 7.990,-
Frönsku peysurnar í mörgum
litum og mynstrum við allra
hæfi.
■ atiBfi
Loðfóðraður kuldagalli frá
66°N. Litir biátt og appelsínu-
Leður gönguskór með góðum
grófum sóla f stærðum 37 til
Norsku Stil ullarnærfötin á alla
fjölskylduna. Verð frá 1.560,-
Létt ferða-pottasett í bakpok-
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2, Rvík, sími 2885?
Opið laugardag frá 9 til 23
og aðfangadag frá 8 til 12.