Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990
63
• VÐTIÖRNINA •
Viö veróum á þjóóiegu nótunum
laugardag og sunnudag
Opið allan daginn báóa dagana
Matseðill:
Kæst skata, kæst tindabikkja, steikt tindabikkja, skötustappa, siginn
fiskur, saltfiskur og margt fleira úr hafinu umhverfis landið meó höms-
um og vestfiróingi.
Pöntunarsími 18666.
Gleðileg jól og þökk fyrir viðskiptin á árinu.
Veitingahúsið Vió Tjörnina og Tros, Sandgerói
BÆKUR
Hið íslenska bók-
menntafélag kynnir
útgáfubækurnar
Hið íslenska bókmenntafélag hef-
ur kynnt þau rit sem koma út
á þess vegum á árinu, 12 talsins.
Við það tækifæri komu saman flest-
ir höfundar, þýðendur, ritstjórar og
aðrir sem sem unnið hafa að ritverk-
um félagsins og eru þeir á meðfylgj-
andi mynd. Talið frá vinstri eru
Artúr Björgvin Bollason sem þýddi
bókina Manngerðir eftir Þeófrastos,
Hörður Ágústsson höfundur bókar-
innar Skálholt II Kirkjur, Guðmund-
ur Amlaugsson þýðandi Sögu tímas
eftir Stephen Hawking, Ingi Sig-
urðsson ritstjóri bókarinnar Upplýs-
ingin á íslandi. Tíu ritgerðir, Þor-
valdur Gylfason höfundur bókarinn-
ar Almannahags, Einar G. Pétursson
höfundur íslenskrar bókfræði, Sig-
urður Líndal forseti Bókmenntafé-
lagsins og ritstjóri Sögu Islands,
Björn Th. Björnsson höfundur mynd-
listarsögu í Sögu íslands, Lýður
Björnsson höfundur bókarinnar
Steypa lögð og steinsmíð rís, sem
er 5. bindi iðnsögu Islendinga, Jónas
Kristjánsson höfundur kafla um bók-
menntasögu í Sögu íslands, Jón
Böðvarsson ritstjóri iðnsögu íslend-
inga, Þór Magnússon þjóðminjavörð-
ur, Þorgeir Baldursson forstjóri
Prentsmiðjunnar Odda, Sverrir
Kristinsson framkvæmdastjóri Bók-
menntafélagsins og Gunnar Ingi-
marsson starfsmaður Bókmenntafé-
lagsins.
RITSTÖRF
Brando ætlar að skrá
t
lífshlaup sitt
Leikarinn kunni, Marlon Brando,
sem hefur ekki átt sjö dag- ana
sæla í einkalífinu eftir að sonur hans
skaut elskhuga dóttur hans til bana
fyrir nokkrum mánuðum, hefur látið
í veðri vaka að hann sé nú þess albú-
inn að rita æviminningar sínar. Út-
gefendur æða nú um eins og höfuð-
lausar hænur að reyna að ná samn-
ingum við Brando, en þrátt fyrir
yfirlýsingu sína, hefur hann farið sér
hægt í samskiptum við útgefendur
og lengi vel hafði hann ekki einu
sinni rætt málið við lögmann íjöl-
skyldunnar.
Lögmaðurinn, ft'ú Brenda Frixon,
staðfesti þetta og bætti við, að eftir
að hún var sett í málið hefðu mörg
forlög haft samband við sig og
reynst reiðubúin að taka áhættu upp
á milljónir dollara til þess að ná útg-
áfuréttinum. „Þó hefur Marlon ekki
ritað einn einasta staf enn sem kom-
COSPER
— Ekki fiska, heimskinginn þinn.
Marlon Brando
ið er og óvíst er með öllu hversu
•opinskár hann verður," sagði frú
Frixon. Hún sagði enn fremur að
það sem Marlon myndi Iáta ráða í
vali á forlagi væri áreiðanleiki og
greiðslugeta. Hún staðfesti að
Warner-bókaútgáfan hefði boðið
Brando 2 milljónir dollara fyrirfram
og kallað það vasapeninga.
Glæsilegur jólafatnaður á dömur og herra
Opið í kvöld til kl. 22.00,
annað kvöld til kl. 23.00 og
aðfangadag kl. 10.00-12.00
Glæsilegt úrval af baðmottu
settum og stökum mottum
Pana
V-Þýskalandi
Baðvogir
Mottur í
sturtubotna
Mottur í baðker
Eldhúsmottur
Ath.: Greitt er tyrir viðskiptavini
i bifreióageymslu, Vesturgötu 7
■SiK