Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 47
I I I I ! I I I I I . 8 I Stórverk um _ hafrannsóknir eftirJörund Svavarsson Nýlega kom út á vegum Bóka- útgáfu Menningarsjóðs seinna hefti „Hafrannsókna við ísland“ eftir Jón Jónsson fiskifræðing og fyrrum forstjóra Hafrannsókna- stofnunar. Þetta hefti „Hafrannsókna við ísland" fjallar um tímabilið eftir 1937 og er hér rakið hvernig skipu- legar hafrannsóknir íslendinga hefjast með stofnun atvinnudeildar háskólans, sem síðar varð Ha- frannsóknastofnun. Fjallað er á greinargóðan hátt um rannsóknir á einstökum sviðum haffræða og beinist fyrsti hluti bókarinnar eink- um að rannsóknum á nytjafiskum, en síðari kaflar fjalla m.a. um rannsóknir á nýttum hryggleys- ingjum, sjórannsóknir, jarðfræði- rannsóknir, rannsóknir á þörung- um og dýrasvifi og rannsóknir á hvölum og selum. I lokahluta bók- arinnar ræðir höfundur nokkuð grunnrannsóknir á dýraríki íslands og leggur þar til grundvallar safn- ritið Zoology of Iceland. Bókin er rituð á fallegu og auð- skiljanlegu máli. Hér fer saman nákvæm og fróðleg útlistun á fjöl- breytilegum rannsóknum, án þess þó að efnið verði þurrt og of fræði- legt. Textinn er allur nákvæmur og villulaus. í bókinni er mikill fjöldi mynda og línurita. Línuritin eru tekin úr upphaflegri umfjöllun um viðkomandi rannsóknir og fer það vel. Tilvísanir í myndir og töfl- ur eru til fýrirmyndar. Hafrannsóknir við Island er mjög umfangsmikið efni og eflaust hefur verið erfítt fyrir höfundinn að vinsa úr öllu því efni sem ritað hefur verið um ofangreind fræði. Höfundi tekst þó mjög vel að halda jafnvægi á milli einstakra fræða- sviða. Umfjöllun um nytjafiska er nokkuð ýtarleg (kaflar 3-8), enda voru rannsóknir á nytjafiskum stór þáttur í starfsemi fiskideildar og síðar í starfsemi Hafrannsókna- stofnunar. Búast má við að þessi hluti bókarinnar veki hvað mesta athygli almennings. Mörgum er eflaust í fersku mini hrun norsk- íslenska síldarstofnsins, en síldin fær greinargóða umfjöllun í riti Jóns. Ef til vill hefði mátt fjalla ýtarlegar um rannsóknir á grunn- sævi, þá einkum á fjörum. Saga hafrannsókna við ísland er öðrum þræði saga Jóns Jónsson- ar. Jón tók ungur við því ábyrgðar- hlutverki að móta hafrannsóknir Islendinga og stjórna þeim til margra ára. Undir handleiðslu Jóns breyttist fiskideild úr fá- mennri rannsóknastofu í fjölmenna rannsóknastofnun. . Samhliða tímafreku stjórnunarstarfi sinnti Jón umfangsmiklum rannsóknum á þorski og hvölum. Jón vinnur því hér enn eitt stórverkið með því að rita þessa afbragðs bók um ha- frannsónir við ísland. Bókin „Ha- frannsóknir við ísland“ er merki- legt framlag til vísindasögu íslend- inga og Jón Jónsson á mikinn heið- Tákn o g undur eftir Éinar J. Gíslason Bók með þessu nafni barst mér nýlega í hendur, frá útgefanda, Forlagi Fíladelfíu Reykjavík. Með þeim ummælum að fyndi ég eitt- hvað gagnrýnisvert þá segði ég til þess. Séra Halldór Gröndal er einn af kunnustu og mikilvirkustu prestum Þjóðkirkjunnar. Um 25 ára skeið hefir hann þjónað sem prestur. Störf hans og boðun eru löngu kunn alþjóð og það einungis af hinu góða. Það skal viðurkennt, að ég las bókina með mikilli athygli. Leitaði ég að sérkenningum og því sem er framandi Nýjatestamentinu. Tel ég mig hafa dómgreind í lagi og set alls ekki á mig gler- augu kirkjufeðra til að spyija álits þeirra. Heldur les orðið beint, eins og það er að finna í Nýjatestament- inu mælt fram af Drottni Jesú Kristi og lærisveinum hans. Vil ég með þessum línum flytja höfundi og útgefanda mínar bestu þakkir. Á þessum uppiausnartímum, í kirkjulífi og kristinni boðun tel ég þessa bók mæta mikilli þörf meðal þjóðarinnar. Bókin er ákaflega vel skrifuð og varpar skýru ljósi á trúar- reynslu séra Halldórs, líf hans og störf. Sr. Halldór S. Gröndal Um leið og ég geri það, þá vildi ég biðja kristið fólk í landinu að verða sér úti um eintak. Lesa inni- haldið með athygli og hljóta and- lega og líkamlega blessun af. Ég endurtek þakklæti mitt til séra Halldórs og útgefanda. Með þökk fyrir birtinguna. Höfundur er fors t ö ðunmður Fíla delfíu safn a úarins. Dagvistarmál heyra und- ir menntamálaráðuneytið KRISTINN H. Þorsteinsson formaður Foreldrasamtakanna hafði samband við Morgunblaðið vegna fréttar í miðvikudagsblaðinu um rannsókn Foreldrasamtakanna á dagsvistarmálum. Kristinn sagði, að Foreldrasam- tökinh hefðu orðið vör við að fólk skildi orðalag í fréttinni sem svo, að dagvistir heyri nú undir félags- málaráðuneyti. Þau heyra hins vegar undir menntamálaráðuney- tið. Sagði Kristinn, að þar sem ágreiningur væri um málið innan ríkisstjórnarinnar væri mikilvægt, að fólk vissi, hver færi með yfír- stjórn þessa málaflokks. Foreldra- samtökin hefðu alla tíð lýst sig andsnúin hugmyndum um að færa dagsvistir frá menntamálaráðu- neytinu í annað ráðuneyti. Jón Jónsson ur skilinn fyrir að koma þessu merkilega skeiði í rannsóknum ís- lendinga á framfæri við almenning. Höfundur er dósent í sjávarlíffræði við líffræðiskor Háskóla íslands. JOOP! Myndavél ársins í Evrópu 1990-1991. En láttu ekki dómnefnd Ijósmyndatímaritanna eina um málið. Prófaðu sjálf (ur). Okkur grunar að þú verðir sammála. Engin önnur „compact“ myndavél getur keppt viö Pentax. Skipholti 31 - Simi 680450 Einnig fást PENTAX myndavélar hjá: Heimilistækjum í Kringlunni, Fuji framköllunarfyrirtækjum um allt land, Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og víðar. PENTAX Öll Ijósmyndatímarit Evrópu sameinuðust íleit að bestu myndavél ársins aðéms Niðurstaðan gat ekki farið á annan veg. PENTAX er frumkvöðull í framleiðslu „compact“ myndavéla með súmlinsu. í umsögn dóm- nefndar segir: „Pentax Zoom 105 Super, er fyrirferðarlítil en býður þó þrefalt súm, nærmyndatökur og margar tækni- nýjungar er auð- velda myndatökur. Myndgæði eru frábær“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.