Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 28
oeei aaaMaaaa .rs auoAauTaöa aKiA.iH'/’jDaoM
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 21. ÐESEMfiER 1990
Frumleiki, gæði, glæsileiki...
...eru höluð einkenni úranna frá Christian Bernard. Hjúpuð 18K gulli
með safir gleri og vandaðri leðuról. 30m vatnsvörn. Verð frá kr. 31.000 -
Christian Bernard úrin fást hjá:
Axel Eiríksson, úro og skartgripaverslun
Aðolslræfi 22, isofirði
Guimundur Þorsleinsson sl, úru og skorlgripoverslun
Bonkoslræii 12, Reykjovik
Corl A. Bergmon úrsmiður
Lougovegi SS, Reykjovík
Úr og skurtgripir
Slrondgötu 37, Holnorlirði
Glæsilegir frottesloppar
Tilvalin jólagjöf
Náttföt og serkir í úrvali
tískuverslun Kringlunni,
sími 33300.
Svikamyllaii og
Hæstíréttur
eftir Ara Kr.
Sæmundsen
Þegar ég var strákur, þá spiluðum
við félagarnir oft spil, sem heitir
„mylla“. Eins og þeir vita, sem hafa
spilað þetta spil, þá gengur það út
á að ná tveimur samhliða röðum
leikmanna, sem andstæðingurinn
kemst ekki inn í, s.k. „svikamyllu“.
Sá, sem kom sér upp „svikamyllu",
hreinsaði leikmenn andstæðingsins
af borðinu, sem fyrr en varði hafði
tapað.
Mér datt þessi leikur í hug, þegar
mér var kynntur dómur Hæstaréttar
í máli Byggung bsvf. gegn einum
félaga okkar í 5. byggingarflokki.
Með þessum dómi staðfesti Hæsti-
réttur dóm undirréttar í þessu erfiða
máli, og staðfesti um leið að leikregl-
ur „svikamyllunnar" gilda í sam-
skiptum félagsmanna í byggingars-
amvinnufélögum og forráðamanna
þeirra.
Forsaga málsins
í byijun árs 1982 skrifuðu félags-
menn í 5. byggingarflokki Byggung
undir byggingarsamninga við félag-
ið. Framkvæmdir hófust á sama ári.
Sá grunur félagsmanna í 5. flokki
að ekki væri allt með felldu, hvað
varðar rekstur félagsins, vaknaði
fyrst, þegar loforð um afhendingar
íbúða stóðust ekki. Þannig dróst
áætlaður afhendingartími um 8-12
mánuði hjá einstökum félagsmönn-
um. Á hinn bóginn höfðu lán Hús-
næðisstofnunar hækkað um 50% á
byggingartímanum. Félagsmenn
voru því vongóðir um að kostnaðará-
ætlanir myndu standast. Þetta stað-
festu þáverandi forráðamenn Bygg-
ung og var jafnvel áætlað að flestir
fengju <ynhvetja upphæð endur-
greidda við lokauppgjör.
í október 1985 hætti Þorvaldur
Mawby hjá Byggung. Nýr fram-
kvæmdastjóri var ráðinn, Guðmund-
ur Karlsson. Að sögn uppgötvaði
Guðmundur fljótlega að ekki var
allt með felldu, hvað varðar rekstur
félagsins og hófst hann þegar handa
við að vinna að lokauppgjöri fyrir
5. flokk. Það uppgjör var kynnt á
fundi með félagsmönnum 5. flokks
í október 1986. Niðurstöðurnar voru
vægast sagt reiðarslag. Skiptu bak-
reikningar einstakra félagsmanna
hundruðum þúsunda. Sem dæmi, þá
var mér gert að greiða 725.578.
Olli þessi niðurstaða miklu ljaðrafoki
og var leitað eftir aðstoð Endurskoð-
unar hf. við úttekt á uppgjöri flokks-
ins. Þar sem fjárhagsstaða flokksins
og félagsins í heild var slæm, sætt-
ust félagsmenn á að ganga til samn-
inga við félagið, enda voru tölur
Guðmundar kynntar sem lokaupp-
gjör og félagsmönnum afhentar
eignaryfirlýsingar (afsöl) af íbúðum
sínum, um leið og gengið var frá
skuldabréfum. Samtímis var undir-
rituð yfirlýsing af beggja hálfu, þar
sem kveðið var á um frekari greiðsl-
ur og lok framkvæmda, en áætlað
var að ljúka framkvæmdum á árinu
1987. Þeim er enn ólokið.
Endurskoðun hf. skilaði stuttu
síðar áfangaskýrslu um fjárreiður
Byggung. Þar kom m.a. í ljós gífur-
leg bókhaldsóreiða, hluti bókhaldsins
týndur og fjöldi fylgiskjala tilbúinn
og erfitt að rekja þau. Gefið var í
skyn að í viðskiptum Byggung bsvf.
við heildverslunin Byggung hf. sé
hugsanlega um sakhæf atriði að
ræða. Að lokum er sýnt fram á að
byggingarkostnaður íbúða í 5. flokki
er mun hærri en samskonar íbúða í
4. flokki. Margt fleira kemur fram,
sem hefði átt að gefa tilefni til frek-
ari rannsóknar á bókhaldi fyrirtæk-
isins.
Um það leyti, sem Endurskoðun
hf. skilaði áfangaskýrslu sinni, þá
var fyrirtækið ráðið sem endurskoð-
andi Byggung, enda þá búið að reka
endurskoðanda félagsins, og falið
að fara ofan í saumana á bókhaldi
fyrri ára, um leið og hafinn yrði
undirbúningur að frágangi ársreikn-
inga fyrir 1986. Niðurstaða þeirra
vinnu var sú að Endurskoðun hf. og
forráðamenn Byggung töldu að upp-
gjöri Guðmundar við félagsmenn
væri verulega ábótvant og að 5.
flokkur skuldaði félaginu enn tölu-
verðar upphæðir.
Var nú nýrri uppgjörsaðferð beitt
(en þær eru nú alls orðnar fjórar),
og á fundi með 5. flokki í september
1987 voru nýir s.k. viðskiptareikn-
Ari Kr. Sæmundsen
„Hæstiréttur hefur nú
úrskurðað í fyrsta mál-
inu og staðfest dóm
undirréttar. í stuttu
máli, félagsmenn í
byggingarsamvinnufé-
lögum eru réttlausir."
ingar kynntir fyrir félagsmönnum. í
greinargerð með uppgjörinu, þar
sem forsendum þess er lýst, segir
Aðalsteinn Hákonarson, endurskoð-
andi, m.a.: „Ennfremur sýndi athug-
un að sú staða gæti komið upp,
þegar búið væri að gera upp bygg-
ingarflokkana að félagið sæti uppi
með skuldir sem enginn vissi hver
ætti að greiða." Einnig benti Aðal-
steinn á að brýnt væri fyrir félags-
menn að ganga til samninga um
greiðslur á þessum nýja reikningi,
þar sem mikil hreyfing væri á fólki,
og erfitt gæti orðið að ná til fólks,
sem flyttist út á land eða til út-
landa. Skuldir þessara einstaklinga
myndu því óhjákvæmilega skiptast
niður á þá félagsmenn, sem eftir
yrðu. Þetta var lyginni líkast.
í mínu tilviki hljóðaði þetta upp-
gjör upp á 976.535 til viðbótar þeim
725.578 krónum, sem mér hafði
verið gert að greiða við lokauppgjör
Guðmundar Karlssonar. Þannig
hafði ég verið krafinn um samtals
1.702.113 á innan við einu ári.
Nú varð félagsmönnum í 5. flokki
ljóst að forráðamenn Byggung ætl-
uðu í engu að halda gerða samninga
ÓGLE YMANLEG
ÚTGEFANDI: STOFN
DLÁ AUGU
OG DIKSVÖRT HEMPA
eftir Tryggva Emilsson
Tryggvi Emilsson var& þjóðkunnur þegar
bók hans Fótsekt ffólk kom út. Nú
kemur hann enn ó óvart meó skóldsögu
um stórbrotin örlög og sterkar persónur.
Bló augu og biksvört hempa er
örlagasaga einstaklinga og
þjóöar þar sem raunsannir
atburðir og þjóðsagnakenndir
renna saman í eina listræna
heild. Þetta er sagan af
prestinum sem missti hempuna
vegna vinnukonunnar með blóu
augun. Frósagnarlist Tryggva er
einstök, tungumólið fjöl-
skrúðugt, gaman og alvara
haldast óvallt i hendur.
DREIFING: VAKA-HELGAFELL