Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 27
___________________MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990 27
Hvunndagur o g ævintýri
Bókmenntir
Súsanna Svavarsdóttir
Unginn sem neitaði að fljúga
Höfundar: Birgir Svan Símonar-
son og Halldór Baldursson
Dregið að landi _
Höfundar: Árni Árnason og Halld-
ór Baldursson
Bangsi í lífsháska
Höfundar: Árni Árnason og Anna
Cynthia Leplar
Langamma
Höfundar: Þórður Helgason og
Margrét E. Laxness
Útgefandi: Mál og menning —
Bókasafn barnanna
Unginn sem neitaði að fljúga seg-
ir frá litlum unga sem dag einn vakn-
ar í fuglabjargi, nýskriðinn úr egg-
inu. Hann lifir þar góðu lífi með
systkinum sínum og móðirin er á
þönum að verða þeim úti um æti.
Litli unginn lifir í öruggri vissu um
að þetta verði alltaf svona ... en einn
daginn fara systkini hans að steypa
sér fram af syllunni, eitt af öðru þar
til hann er einn eftir. Móðir hans
reynir að hvetja hann, en allt kemur
fyrir ekki — hann þorir ekki. Að lok-
um gefst hún upp og yfirgefur hann.
Hann kallar á mömmu sína, en hún
er horfin upp og aðrir fuglar í bjarg-
inu hafa engan áhuga á þessari
gungu. Að lokum rekur hungrið hann
til að láta sig falla — og hann finnur
að hann hefur öðlast frelsi.
Tilvalin
jólagjöf
Handunnar harðviðarklukkur
frá Kaliforníu. Margar gerðir.
Verö frá 5.500,- til 10.500,-.
Mjög sérstök sófaborð
úr eikar- eða rauðviðarrót.
Gler- eða viðarplata.
Árntúla 8, símar: 8-22-75 og 68-53-75
Dregið að landi er saga um tvær
litlar systur, góðar stelpur sem eru
duglegar að borða og lifa í öryggi
hjá mömmu, pabba og hundinum
Lubba. Allt gengur vel, þar til þær
fara að tala — og skemmtilegast
finnst þeim að ræða málin þegar öll
fjölskyldan er saman komin, en það
er á matmálstímum. Þær hafa því
minni tíma til að borða, auk þess sem
þær eru farnar að hafa skoðun á
matnum — og því fer svo að pabbi
þeirra tekur að sér hlutverk ruslafö-
tunnar og dregur þær að landi, þeg-
ar þær leyfa. _Hann er á móti því að
fleygja mat. Á stuttum tíma verður
hann akfeitur, svo feitur að hann
kemst ekki inn í bílinn eða í vinn-
una. Þær systur sjá að ekki má við
svo búið standa og fara að klára
matinn sinn og ræna frá pabba til
að stinga upp í Lubba — pabbi grenn-
ist aftur, en hver skyldi verða dálítið
bústinn?
Bangsi í lífsháska er saga um
hvítabjörn sem býr með mömmu
sinni á Norðurpólnum. Á hveiju ári
fara þau í langar göngur um enda-
lausar hjarnbreiðurnar sunnan við
Norðurpóiinn. En dag einn skellur á
fárviðri og bangsinn verður viðskila
við mömmuna. Hann lendir á ísjaka
sem rekur frá landi, alla leið til Is-
lands. Þar kemst hann heldur betur
í hann krappan — því hann er hund-
eltur af byssumönnum. En bangsi
er snjall og nær að villa um fyrir
veiðimönnunum, kemst við illan leik
á ísjaka sem rekur til baka og það
verða að vonum gleðilegir endur-
fundir þegar hann hittir móður sína
aftur.
I Langömmu eru systkinin Nonni
og Rúna að borða morgunmat, einn
góðan veðurdag um mitt sumar, þeg-
ar pabbi segir þeim að í dag eigi þau
að heimsækja ömmu sína sem er á
elliheimili, því hann og mamma ætli
að slá blettinn. Þau verða ekkert
afskaplega glöð við þetta, því amman
er dálítið kölkuð. En þau gera einsv
og þeim er sagt. Þegar til ömmu
kemur vill hún fara út að viðra sig.
Hún er í hjólastól og þáu leggja upp
í ferðalag Um bæinn. Amma er dál-
ítið föst í fortíðinni og veltir fyrir sér
aflabrögðum við tjörnina, pantar
hveiti fyrir veturinn, hrífur, orf og
efni í kjól í verslun sem þau fara í
og veltir fyrir sér reiðskjótum. Svo
fá þau sér öll ís og halda upp á elli-
heimili, þar sem pabbi nær í þau —
á skjóna, gömlu Lödunni sinni.
Allar þessar sögur eru góðar og
vel unnar. Málfar er skemmtilegt —
svo og stíllinn. Myndskreytingarnar
eru vel úr garði gerðar — sérstaklega
í Dregið að landi og Langamma.
Þetta eru einfaldar sögur, sem segja
margt — hafa ótvíræð skilaboð, án
þess að predika: Unginn sem neitaði
að fljúga og Bangsi í lífsháska eru
lítil ævintýri, með skilaboðum um
að því fylgi umbun að yfirstíga erfið-
leika. Langamma segir okkur að hinn
hverfandi heimur elstu kynslóðarinn-
ar geti verið börnum til ómældrar
gleði og veitt þeim nýja sýn á eigin
tilveru og Dregið að iandi er
skemmtileg saga um gildi þess að
kunna sér magamál. Skemmtilegar
bækur og gott framtak.
VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000