Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 4
oeer íiaaMaaaa .rs auoAQUTaöa aiaAuanuoaoM Bensín: Birgðir til mán- aðar til í landinu BIRGÐIR af bílabensíni í landinu eru nú til ríflega manaðar og gengju til þurrðar í lok janúar næstkomandi, ef ekki kæmu til ný innkaup. Olíufélögin hafa verið að vinna að nýjum innkaupum á 92 oktana blýlausu bensíni og hefur að minnsta kosti eitt þeirra, Skeljungur hf., þegar pantað. Bensínið verður nú keypt í Vestur- Evrópu, eftir að slitnaði upp úr manna um bensínkaup. Verðlagsráð fjallaði á miðviku- dag um verðlagningarreglur á bensíni, hvort gefa eigi verðlagn- ingu fijálsa á 92 oktana bensíni og hvort breyta eigi verðjöfnun þannig að hún verði hjá hveiju olíufélagi fyrir sig, í stað sameigin- legrar verðjöfnunar sem nú er. Skipst var á skoðunum, en engin ákvörðun tekin. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins lá engin ákveðin tillaga fyrir verðlagsráði um þetta mál á fundinum. Gert er ráð fyrir að ráðið komi fljótlega viðræðum Islendinga og Sovét- saman á ný til að fjalla um málið. Bensínverð á heimsmarkaði var á miðvikudag 242 dollarar fyrir tonnið af 92 oktana og 253 fyrir súper. Hér á landi er útsöluverð miðað við um 28% hærra verð birgða. Ekki lá í gær ljóst fyrir hvort áframhaldandi samstarf verður með félögunum um bensínkaup og innflutning, eða með hvaða hætti slíkt samstarf yrði, en umræður eru á milli félaganna, meðal ann- ars um samnýtingu flutninga. Morgunblaðið/Júlíus 36 þúsund flísar í lauginni á Rútstúni ÁFORMAÐ er að opna hina nýju sundlaug á Rútstúni í Kópavogi fyrir almenning fljótlega eftir áramót. Talið er að endanlegur kostnaður við smíði laugarinnar verði um 400 milljónir króna. Sundlaugin er fullgild keppnislaug, 50 metrar á lengd og 25 metrar á breidd, og laugarkerið er lagt 36 þúsund flísum. íþróttaráð Kópavogs hefur auglýst eftir starfsfólki til vinnu við sundlaugina. Enn er eftir að ljúka framkvæmdum við heita potta og búningsaðstöðu og er miðað við að þær fram- kvæmdir verði á næstu fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar, að sögn Björns Þorsteinssonar bæjarritara. Arki- tekt sundlaugarinnar er Högna Sigurðardóttir. VEÐUR Suðureyri: VEÐURHORFUR Í DAG, 21. DESEMBER YFIRLIT í GÆR: Milii [slands og Jan Mayen er 1.015 mb hæð sem þokast norðaustur. Vaxandi 978 mb lægð um 200 km suðaustur af Hvarfi þokast norðnorðaustur. SPÁ: I dag verður hvöss suðaustan átt og snjókoma og síðan slydda eða rigning um mest allt land, en gengur fljótlega í suðvest- anstinningskalda með skúrum eða slydduéljum sunnan- og vestan- lands en léttir til norðaustanlands er líður á daginn. 1/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG:Suövestan strekkingur um allt land. Élja- gangur um sunnan- og vestanvert landið, en léttskýjað norðaustan- lands. Frost 2—5 stig. HORFUR Á SUNNUDAG: Minnkandi suðvestanátt. Él víða um land, nema sfst á Austfjörðum. Frost 3—8 stig. 9 gráður á Celsíus Skúrir Él Þoka Þokumóða Súld Mistur Skafrenningur Þrumuveður TÁKN: Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10° * 1C V y 5 J ? oo 4 K VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma Akureyri Reykjavík hltl +13 +6 vefiur léttskýjað skýjað Bergen 0 snjóél á s. klst. Helsinki 0 snjókoma Kaupmannahöfn 2. léttskýjað Narssarssuaq 0 alskýjað Nuuk +8 snjókoma Osló +4 léttskýjað Stokkhólmur 0 skýjað Þórshöfn 2 alskýjað Algarve 14 hálfskýjað Amsterdam 0 alskýjað Barcelona 6 mistur • Berlfn 2 rigning Chicago 0 þokumóða Feneyjar 5 þokumóða Frankfuit 1 snjókoma Glasgow 8 skúr á s. klst. Hamborg 2 slydda Las Palmas 16 skúrés.klst. London 7 rigning LosAngeles 16 skúrás. klst. Lúxemborg +1 kornsnjór Madríd S léttskýjað Malaga 16 hálfskýjað Mallorca Montreal 10 skýjað vantar NewYork 1 léttskýjað Orlando 19 þoka Parfs 2 skýjað Róm 9 þokumóða Vín 0 skafrenningur Washington Winnipeg 2 skýjað vantar Sveitarsjóði veitt greiðslustöðvun SKIPTARÉTTUR Vestur-ísafjarðarsýslu veitti í gær sveitarsjóði Suðureyrarhrepps greiðslustöðvun í þijá mánuði samkvæmt ósk fé- lagsmálaráðuneytisins. í úrskurðinum er það tilskilið að Rúnar Bj. Jóhannsson löggiltur endurskoðandi, sem ráðuneytið hefur fengið til þess að vera hreppsnefnd Suðureyrar til aðstoðar við að koma fjármálum hreppsins í lag, verði tilsjónarmaður á greiðslustöðvunar- tímanum. í sveitarstjórnalögum er heimild fyrir félagsmálaráðuneytið að óska eftir greiðslustöðvun samkvæmt gjaldþrotalögum fyrir sveitarfélög sem eiga í greiðsluerfiðleikum. Ráðuneytið nýtti sér þessa heimild að lokinni rannsókn sem fram fór á fjárhag Suðureyrarhrepps í kjöl- far beiðni sveitarstjórnar um aðstoð félagsmálaráðuneytis. Jafnframt hefur ráðuneytið gefið hrepps- nefndinni þriggja mánaða frest til að gera ýmsar ráðstafanir tii að bæta fjárhaginn, m.a. að leita samninga við kröfuhafa um skulda- skil. Mæðrastyrksnefnd: Búðir gefa matvæli MIKLAR annir voru hjá Mæðra- styrksnefnd í gær og fullt út úr dyrum bæði á Hringbraut 116 og á Njálsgötu 3 þar sem starf- semi nefndarinnar fer fram. Að sögn Unnar Jónasdóttur, for- manns Mæðrastyrksnefndar, gengur nú mjög vel að afla fram- laga og veita aðstoð. „Það hafa borist margar pen- ingagjafir og fatnaður og svo hafa verslanir sent mikið af matvælum. Það er kjöt, ávextir og fleira sem kemur sér einnig vel,“ sagði Unnur. Tvær konur starfa hjá Mæðra- styrksnefnd á hvorum stað og sagði Unnur að þær gætu vart annað allri móttöku framlaga, einnig hefði beiðnum fjölgað mikið að undanfömu. í dag verður opið frá kl. 14 -18 hjá Mæðrastyrksnefnd. Útseld vinna hækkar bygg- ingarvísitöluna VÍSITALA byggingarkostnaðar hækkaði um 1,4% frá miðjum nóvember til desembermánaðar. Er hún nú 176,5 stig. Hraði verð- bólgunnar á ársgrundvelli er samkvæmt þessari einu hækkun tæp 18%. Vísitala byggingar- kostnaðar hefur hækkað um 10,6% síðustu tólf mánuði. Af hækkun vísitölunnar frá nóv- ember til desember má rekja um 1% til hækkunar á töxtum útseldr- ar vinnu iðnaðar- og verkamanna þann 1. desember en þessir taxtar hækkuðu að meðaltali um 2,5%. Einnig hækkaði verð á innihurðum að meðaltali um 6,2% sem olli 0,2% hækkun vísitölunnar. Hækkanir á öðrum efnis- og þjónustuliðum valda 0,2% hækkun vísitölunnar. Margeir vann mót á Ítalíu MARGEIR Pétursson vann opið skákmót, sem haldið var í Aosta á Ítalíu og lauk um siðustu helgi. Margeir fékk 7 vinninga af 9 mögulegum, jafnmarga vinn- inga og hollenski stórmeistarinn van der Sterren, en Margeir var hærri að stigum. Margeir fór til Aosta strax að loknu Olympíuskákmótinu í Júgó- slavíu. Hann sagði að mótið hefði verið mjög vel skipað, en þar kepptu 19 stórmeistarar og 20 al- þjóðlegir meistarar ásamt tugum annarra skákmanna. í 3.-4. sæti urðu bresku stór- meistararnir Flear og Gallagher með 6,5 vinninga. Snæddu skemmt selkjöt FLUGVÉL frá Flugfélaginu Oðni kom til Reykjavíkur á mið- vikudag með veika feðga frá Grænlandi. Feðgarnir höfðu borðað skemmt selkjöt á þriðjudaginn. Þeir voru fyrst lagðir inn á sjúkrahúsið í Ámmassalík, en síðan var beðið um að þeir yrðu fluttir til Reykjavíkur. Mennirnir voru fluttir með þyrlu frá Ammassalík til Kulusuk þar sem flugvél Óðins sótti þá. Annar mannanna var fluttur á Landspítal- ann og hinn á Borgarspítalann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.