Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 21.12.1990, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990 55 ) \ ) > > > Guðmundur Jónsson - Hljóðritanir 1945-1990 Geisladiskur Oddur Björnsson Guðmundur Jónsson Hyóðritanir 1945-1900, 4 diskar. Ríkisútvarpið Steinar. Hvað skal segja? Guðmundur eins og hann leggur sig, eða svo gott sem. Þetta er svona einsog hálfur Niflungahringurinn á lengdina, en hvað um það, hér er um að ræða stórhuga framtak og merkilegt fyrir íslenska söng- hefð, og má með sanni segja að nú sé þessi mikli og alþýðlegi söngvari orðinn almennings eign, hafi hann þá ekki verið það fyrir. Að skrifa um Guðmund Jónsson er svona einsog semja ritgerð um Esjuna, sem allir hafa fyrir augunum, ef ekki dag- lega þá „þegar maður kemur í bæinn“. Og ef mönnum þykir hún ekki nógu tignarleg geta menn bara valið sér annað fjall. Persónulega hef ég ætíð óskað þess í hjarta mínu að Guðmund- ur hefði snúið sér meira að óperutónlist, hann er leikhús- maður og þar nýtur hin frábæra rödd hans sín best, að mínum dómi. En einsog Þuriður Páls- dóttir segir: „Enginn íslenskur söngvari hefur unnið sönggyðj- unni jafn ötult og fómfúst starf og Guðmundur. I hálfa öld hefur rödd hans hljómað, kraftmikil, hljómfögur og sveigjanleg. Söng- rödd sem allir Islendingar þekkja um leið og þeir heyra hana; söng- rödd sem er samofin íslensku þjóðlífi eins og landvættur." Hvað getur þá vesalingur minn lagt til málanna? Ég fer bara að spila Rigoletto og gef mig á Vald örlaganna, og hlusta svo á kveinsstafi gluggapússarans í Silkitrommunni hans Atla Heim- is og sitthvað fleira, því af nógu er að taka. Sennilega var Guðmundur ekki nógu mikill „masókisti" til að þræla sér út í dramatískum óperum, sem er miður, því rosa- GUÐMUNDUR jÓNSSON Alriði úr óperum lega er hann góður þegar honum tekst best upp! Andúð á blóðsúthellingum, heilbrigð leti og „common sense“ getur stundum verið manni ijöt- ur um fót, þótt enginn mæli því móti að slíkir eiginleikar eigi fullkominn rétt á sér. Eða á maður frekar að segja viðhorf? En þótt Guðmundur væri latur við að engjast á sviðinu gerði hann það með glæsibrag, þegar hann lét sig hafa það. Að öðru leyti var hann manna ólatastur við að syngja, svo sem diskarnir Ijórir bera mælskt vitni. Þetta er einsog að fá „samlede værk- er“ eins af snillingunum í hend- umar. Maður fer ekki fram á meira. Eggert Stefánsson Eggert Stefánsson. Utg. Ríkisútvarpið Steinar. Fjórtán ára polli á Akureyri að hefja menntaskólagöngu varð fyrir þeirri reynslu að hitta ógur- lega stóran og glæsilegan mann (það þótti mér þá a.m.k.), þann höfðinglegasta sem ég hafði augum litið, að meðtöldum séra Magnúsi á Prestsbakka afabróð- ur mínum. Þetta var enginn ann- ar en Eggert Stefánsson, sem ætlaði að halda konsert (eða var nýbúinn að því). Ekki bar ég gæfu til að hlýða á konsertinn, enda vissi ég ekki hver maðurinn var, þótt ég réði af tali hans (og fékk um það nánari upplýsingar hjá frænku minni) að hann væri snillingur, búsettur á Ítalíu og Islandi og öllum heiminum. Þeg- ar ég síðar heyrði hann syngja í útvarpinu var mér öllum lokið (eða „fór bara í kerfi“, einsog sagt er í dag), enda fannst mér það allt í senn hlægilegt, stór- brotið og áhrifarikt. I dag finnst mér ekkert hlægilegt að hlusta á hann, en fyrst og fremst heill- andi og áhrifaríkt. Satt að segja finnst mér að flestir aðrir söng- varar mættu margt af honum læra, t.d. það sem danskurinn kallar „foredrag“, einhver höfð- inglegur „nonchalance" (svo maður sletti nú eins og umrædd- ur), blandinn viðkvæmni — sem sker mann í hjartað. „Naivisti" hefur hann verið kallaður. Gott og vel. Samt kemur hann fyrir sem menntaður heimsborgari, sem hann og var, eftir því sem ég best veit. „í söng Eggerts heyrir maður stolt hans, von- brigði og stundum kempulega ‘Uj/sfcrt Stefá/isson IS90 ■ 1962 angurværð, sem er þetta hvort- tveggja,“ segir Kristján Karlsson um Eggert, og litlu við það að bæta. Geisladiskurinn er gersemi, þótt upptökur séu gamlar og lúnar (margar frá því um 1920). Röddin í raun og veru mikil og falleg, og framsögn og fas með þeirri flottu reisn, sem fátíð er nú á dögum. Höfundur er rithöfundur. íslenskur blús Tónsnældur Árni Matthíasson Islenskur blús hefur ekki verið áberandi í útgáfu hér á landi, þrátt fyrir mikinn og vaxandi áhuga á slíkri tónlist. Fyrir tveimur árum eða svo kom út platan Blúsjamm með Centaur, sem á voru ýmsir þekktir blúsar og rokkblúsar. Síðan hafa einstaka sveitir sent frá sér snældur til að selja á tónleikum, sem margar hveijar eru teknar upp á frumstæð upptökutæki. Fyrir stuttu kom út snælda með blússveit- inni Vinum Dóra, sem á eru tónlei- kaupptökur frá því í maí sl. og tvö lög frá því á síðasta ári. Vinir Dóra eru Halldór Bragason, Andrea Gylfadóttir, Guðmundur Pétursson, Hjörtur Howser, Ásgeir Óskarsson, Haraldur Þorsteinsson og Jens Hansson. Sveitin færgjarn- an til liðs við sig ýmsa tónlistar- menn til að troða upp með henni á tónleikum og á snældunni koma fram með henni Bubbi Morthens, Sigurður Sigurðsson munnhörpu- leikari og söngvari, Sigurður Sig- urðsson söngvari og Þorleifur Guð- jónsson bassaleikari. íslenskar blússveitir hafa gjarn- an verið lauslegur félagsskapur manna sem hittast tvjsvar til þrisv- ar á ári til að leika blús, sem hvíld frá poppinu eða rokkinu. Það hefur vitanlega komið niður á gæðum þess blús sem þeir leika, sem oft hefur ekki verið hægt að kalla blús nema með góðum vilja. Vinir Dóra hafa aftur á móti ná að halda sveit- inni saman sem blússveit lengi og í stöðugri framför. Reyndar er gam- an að heyra þessar upptökur með það fyrir augum að bera sveitina eins og hún var í sumar saman við það sem hún er í dag. Ekki ætla ég að fara að velta því fyrir mér hér hvort hvítir menn geti spilað blús. Veikasti punktur hvítra blússveita er þó ævinlega sá sami; söngurinn og tilhneiging til að ganga of langt. Það vill og brenna við í þessum upptökum að á köflum er nánast þungarokkblus á ferð, aukinheldur sem söngurinn er ekki alltaf sannfærandi. I heild er snældan þó bráðskemmtileg og ekki síst fyrir feilsporin sem eru ómissandi í tónleikaupptökum. Heldur fara Vinir Dóra þó langt út af sporinu í laginu Boogie for Love, sem virðist frekast „bílskúrs- djamm", þar sem sveitin hitar sig upp fyrir hina eiginlegu æfingu. Þar sýnir Guðmundur Pétursson þó stjörnutakta á gítarinn, eins og svo víða á snældunni; eftirminnilegur er til að mynda leikur hans í Mistre- ated. Halldór „Dóri“ Bragasoh, er vaxandi blússöngvari og hefur tekið miklum framförum frá því snældan var hljóðrituð, en enn meiri framför- um hefur Andrea Gylfadóttir tekið, og þá sérstaklega í því að halda aftur af sér. Frammistaða Jens Hanssonar er einnig góð og Hjörtur Howser á stöku einieikskafla sem standa uppúr. Þessi snælda er því til marks um að sveitin Vinir Dóra er frambærileg hvít blússveit og frumsömdu blúsarnir, sem mestur fengur er í, benda til þess að vert sé að gera með henni breiðskífu. Á tónleikum fellur hún stundum i þá gryfju að ýkja tilfinninguna, líkt og svo margar sveitir aðrar, en eí marka má frammistöðu sveitarinn- ar í haust stendur allt til bóta. TJöfðar til ± JL fólks í öllum starfsgreinum! t/iobello Schiesser® . I I I I I ■■■. ■■■! I I I .1 ■ I Viabella það glæsilegasta frá Schiesser 4=, llyrnp-im Laugavegi • Glæsibæ • Kringlunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.