Morgunblaðið - 21.12.1990, Page 15

Morgunblaðið - 21.12.1990, Page 15
morHun^öíð’ 'r^feT^iýÁé^ W lifeMfefeíí' Mdí! 0!/ 15 M íslenskir forsetar Bókmenntir Sigurjón Björnsson Bjami Guðmarsson Hrafn Jökulsson: Forsetar íslenska lýðveldisins. Skjaldborg, Reykjavík, 1990, 294 bls. Eins og flestir vita væntanlega hafa ijórir menn gegnt embætti forseta íslands frá stofnun lýðveld- is 17. júní 1944: Sveinn Björnsson, Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eld- járn og sá sem nú situr, Vigdís Finnbogadóttir. Eins og höfundar segja í formála hafa þeir „ekki fyrr ratað saman í bók“. Fyrir höfundum vakti „með ritun þessar- ar bókar . .. að draga upp æviferil forsetanna, aðdraganda forseta- kjörs og helstu viðburði í embætt- istíð þeirra; og flétta saman við frásögnum um stjórnmálaþróun, tíðaranda og ýmsum eftirminnileg- um atburðum íslandssögunnar á 20. öld“. Að öðrum þræði getur þetta virst auðvelt og þægilegt verk. Heimildir um svo þekkt fólk og hér um ræðir hljóta að liggja á lausu og atburðir þeir sem um þarf að fjalla eru naumast fallnir í fymsku. Að hinu leytinu er ritun af þessu tagi vandasöm. Ekki tjóar að bregða einvörðungu upp glans- mynd af viðkomandi persónum, raunsæs hlutleysis þarf að gæta og persónulýsing þarf að vera svo úr garði gerð að lesandinn fái nokkra innsýn í gerð og hugarheim persónanna. Þá er því ekki að neita að margt er hér viðkvæmt til um- fjöllunar og því nauðsynlegt að fara um það nærgætnislegum höndum. Og loks er nauðsynlegt að bók um þetta efni sé vönduð og virðuleg. Frásögn höfundanna er fjór- þætt, líkt og þeir gátu um í form- ála: ætt, uppruni og uppvöxtur; menntun og starfsferill fram að forsetakjöri; aðdragandi forseta- kjörs, kjörið sjálft og úrslit þess; embættisstörf í forsetaembætti. Öll fjögur æviágripin eru af svip- aðri lengd, um 70 bls. hvert. Gey- simikið myndefni fylgir í öllum til- vikum. Texti höfunda er áferðargóður og þægilegur aflestrar. Hann renn- ur áfram líkt og hálfgildings spennusaga. Að vissu leyti finnst mér hann þó fullmikið einfaldaður, líkt og verið væri að skrifa fyrir stálpuð börn eða lítt þroskaða unglinga. Þó að fróðlegt sé þykir mér ætterni, bernsku- og uppvaxt- arár fá fullmikið vægi í ekki lengri þáttum. Aðdragandi forsetakjörs og allt sem því viðvíkur er vissu- lega spennuefni a.m.k. eins og höfundar halda á því, en óþarflega mikið þykir mér úr því gert og ekki allt af nærgætni. Þá sakna ég þess að ekki skuli meira fjallað um sjálft embættisstarfíð. Það er ■líkt og höfundar telji sögunni að mestu lokið þegar hnossið er feng- ið. Víst er um það að þessir fjórir forsetar eru ólíkar persónur. Einn þeirra fær bersýnilega lökustu ein- kunnina. Öðrum er flest fært til bétri vegar. Spyrja má hvort hér sé nægilegs hlutleysis gætt. Þá er þess ekki að dyljast að sumir sem við sögu koma fá heldur óblíða Hrafn Jökulsson meðferð. Liggur við að sumar at- hugasemdir um þá séu ótuktarleg- ar. Mér er til efs að það sé ávallt maklegt. Myndefnið er svo kapítuli útaf fyrir sig. Lituð heilsíðumynd af Sveini Björnssyni er hreint afleit. Var ekki hægt að gera betur? Þá er fjöldi mynda bersýnilega tekinn beint úr dagblöðum. Slíkar myndir verða sjaldnast góðar í bók. í mörgum tilvikum hlýtur að hafa verið hægt að afla frumgerðar Bjarni Guðmarsson myndanna. Hvergi er ljósmyndara getið og bendir það til að leyfis hafi ekki verið aflað. Þetta er ámælisvert eða rúmlega það og ættu rithöfundar að vita betur hvaða reglur gilda. Enda þótt bók þessi sé notaleg aflestrar eru vankantar hennar engu að síður of miklir til þess að hún sé samboðin þeirri virðingu sem margir telja að forsetar ís- lenska lýðveldisins eigi að njóta. Enn bætist við urvalið hjá Ellingsen. Vorum að taka upp nýja sendingu aí gagnlegum gjafavörum á góðu verði. Handunnin messing aringrind. Verð frá Norsklr handmálaðir físibelgir kr. 4.930,- Enskir físibelgir Arinkubba tilboð. Þriggja tíma Ultraflame. ^4P§gí> Blóma-kertastjakar úr kopar með glerblomi fyrir spritt- kerti. Sett með þremur stjökum kostar HCT | 1 ff P || | [1 Ái Óbrjótandi hitabrúsar í þremur stærðum. Henta vei til ferða- laga. Verð frá 2.986,- til 3.345,- Kr. 6.848,- Kr. 995,- Kr. 195,- Kr. 2.230,- Kr. 2.986,- Skfðavettlingar og lúffur á börn og fullorðna. Margir litir. Verð frá japanskir gæðasjónaukar. Margar Black & Decker snúrulaus bor- stærðir, ýmsir verð flokkar. Verð vél 3/8", hleðslurafhlaða, sn. í frá kr. 5.180,- til 8.815,-. báðar áttlr. Snúruiaust rafm. skrúfjárn frá Bosch með hieðslurafhlöðu. Vattfóðraður kuidagalli með Kr. 490,- m Kr. 5.180,- Kr. 9.735,- Kr. 3.365,- m Kr. 7.990,- Frönsku peysurnar í mörgum litum og mynstrum við allra hæfi. ■ atiBfi Loðfóðraður kuldagalli frá 66°N. Litir biátt og appelsínu- Leður gönguskór með góðum grófum sóla f stærðum 37 til Norsku Stil ullarnærfötin á alla fjölskylduna. Verð frá 1.560,- Létt ferða-pottasett í bakpok- SENDUM UM ALLT LAND Grandagarði 2, Rvík, sími 2885? Opið laugardag frá 9 til 23 og aðfangadag frá 8 til 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.