Morgunblaðið - 21.12.1990, Side 32
oeei Kaawaeao '.fs..«rjoA<THT»íy? ffiSAjaM’ToaoM.
■MeftGHNBLAÐIB- FO&T-ÖDAG UR 21. BESEMBER Iðífe-
Nýársmóttaka forseta á Bessastöðum
HIN árlega móttaka forseta íslands á nýársdag verður haldin á Bessa- sé unnið af kappi við að ljúka við Bessastaðastofu og móttakan verði
stöðum og verður þetta í fyrsta sinn sem mótttaka verður í endurnýj- nokkurs konar vígsla. í móttökuna verður væntanlega boðið um 400
aðri Bessastaðastofu. Komelíus Sigmundsson forsetaritari segir að nú manns eins og undanfarin ár.
Hópur Siglufirðinga mótmælir sölu fjármálaráðherra á Þormóði ramma hf:
Óeðlileg vinnubrögð og
vanvirðing við íbúana
Yiljum efia fyrirtækið í þágu byggðarlagsins, segir Róbert
Guðfinnsson framkvæmdastjóri Þormóðs ramma
FJÓRIR þingmenn Norðurlandskjördæmis vestra hafa sent forseta
sameinaðs Alþingis bréf þar sem þeir fara fram á að Ríkisendurskoð-
un verði falið að rannsaka sölu fjármálaráðherra á meirihluta hluta-
bréfa í Þormóði ramma á Siglufirði. Þá sendi samstarfshópur heima-
manna um kaup á hlutabréfunum frá sér harðorð mótmæli í gær
vegna sölunnar en tilboði hópsins var ekki tekið þegar gengið var
frá sölunni á miðvikudag. í bréfinu segir að Ijóst sé að fulltrúar
kaupendanna, Drafnar hf. og Egilssíldar hf. hafi haft fullan aðgang
að tilboði samstarfshópsins og unnið sitt tilboð upp úr því. „Hér er
um að ræða gjörsamlega óeðlileg vinnubrögð og framkomu ráðuneyt-
isins er hér með mótmæit harðlega og þeim lýst sem aigjörri van-
virðingu við Siglufjörð og íbúa hans og fjármálaráðherra og sam-
starfsmönnum hans til ævarandi hneisu hvernig að hefur verið stað-
ið að afhendingu þessa lífakkeris atvinnulífsins í Siglufirði," seglr
í bréfmu.
Ríkið seldi siglfirsku fyrirtækjun-
um Drafnari hf. og Egilssfld hf
58,17% af öliu hlutafé Þormóðs
ramma hf. m.a. með þeim skilyrðum
að 6 þúsund þorskígilda aflakvóti
Stálvíkur og Sigluvíkur verði nýttur
í þágu útgerðar og vinnslu á Siglu-
firði eins og verið hefur. Þá er gert
ráð fyrir að eftir sameiningu fyrir-
tækjanna eigi sér stað 50 milljóna
króna hlutafjárútboð með forkaups-
rétti Siglfírðinga en eigendur fyrir-
tækjanna sammæltust um að neyta
ekki forkaupsréttar við útboðið.
Við söluna var miðað við að heild-
arverð hlutabréfa í Þormóði ramma
væri um 150 milljónir króna og
miðast sú upphæð við milliuppgjör
fyrir fyrstu fímm mánuði ársins.
Að sögn viðmælenda úr samstarfs-
hópnum er það allt of lágt mat,
m.a. miðað við verðmæti aflakvóta
togaranna. Kaupverð á hluta ríkis-
sjóðs nemur því 87,7 milljónum kr.
15 milljónir fara í útborgun en eftir-
stöðvar eru til 12 ára og tryggðar
m.a. með persónuábyrgðum og
sjálfskuldarábyrgð Jökla hf., dótt-
urfýrirtækis Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna.
Togararnir landa heima
Að sögn Róberts Guðfinnssonar,
framkvæmdastjóra Þormóðs
ramma, áformar hið nýja fyrirtæki
að reka fyrirtækin sem sameinast
nú í eitt á svipaðan hátt og verið
hefur. „Við munum stefna á að
komast yfir einn eða tvo stærri
báta fyrir rækjuvinnsluna og auk
þess reka togarana áfram til heima-
löndunar og reyna að efla alla þætti
vinnslunnar - rækju- og lagmetis-
vinnslu, frystingu og söltun. Það
eru engin áfom um uppsagnir
starfsmanna og við vonumst til að
efla þetta nýja fyrirtæki í þágu
byggðarlagsins," sagði hann.
175 einstaklingar gáfu
hlutafjárloforð
Runólfur Birgisson, sem verið
hefur skrifstofustjóri Þormóðs
ramma, er einn þeirra sem standa
að samstarfshópi um kaup á hluta-
bréfunum og lögðu fram tilboð í
hlut ríkisins. Hann segir að hópur-
inn hafí verið kominn með nöfn 175
einstaklinga á Siglufirði sem gáfu
loforð um að leggja fram hlutafé.
Auðveldlega mætti tvöfalda þann
hóp. Segir hann að mjög óeðlilega
hafi verið staðið að sölunni. í grein-
argerð með tilboði hópsins segir að
þrátt fyrir skamman undirbúnings-
tíma hafí undirtektir Siglfirðinga
við að bjóða í hlut ríkisins verið
mjög góðar og þegar legið fyrir
nöfn 40 - 50 einstaklinga sem voru
tilbúnir að skrá sig til þátttöku í
kaupunum þegar tilboðið var lagt
fram. Það hljóðaði upp á 134 millj-
ónir kr. eða 98% eignarhluta ríkis-
sjóðs. Skuldabréf til tólf ára með
sjálfskuldarábyrgð kaupenda eða
öðrum þeim tryggingum sem um
kynni að semjast. í framhaldi af
því hugðist hópurinn vinna að hluta-
fjáraukningu í félaginu um a.m.k.
100 milljónir kr. og var leitað til
útgerðaraðila eftir þátttöku í henni.
Tímapressa ráðherra
1 mótmælum hópsins sem send
voru út í gær er aðdragandi málsins
rakinn og segir þar að fjármálaráð-
herra hafi lýst yfir í nóvember með
heimamönnum að allir ættu að sitja
við sama borð við sölu á hlutabréf-
um ríkisins í fyrirtækinu. Þrátt fyr-
ir furðulega tímapressu af hálfu
fjármálaráðuneytisins hafí 175
Siglfirðingar skráð sig fyrir kaup-
um á hlutafénu.
Síðan segir: „..sextán dögum eft-
ir fund fjármálaráðherra á Siglu-
firði, bárust fregnir af því að fyrir
lægi í ráðuneytinu fullmótaður
samningur við ákveðna aðila og
yrði til undirritunar fljótlega. Þá
þegar var haft símasamband við
stjórnarformanninn og aðspurður
staðfesti hann að ekki hefði annað
staðið til en að ræða af fullri alvöru
við fulltrúa starfshópsins um kaup
á hlutabréfunum. Fulltrúar hópsins
fóru til Reykjavíkur 13. desember
s.l., til viðræðna við ýmsa viðskipta-
menn og hagsmunaaðila Þormóðs
ramma hf. í þeirri ferð upplýstist
að í ráðuneytinu hafi um tíma legið
fyrir tilbúin áætlun um leið til þess
að koma hlutabréfum ríkissjóðs í
hendur tveggja einstaklinga með
vægast sagt einkennilegum reikn-
ingsaðferðum við mat á eignastöðu
þeirra.
Það sem síðan gerðist er fljót-
sagt, fulltrúar hópsins lögðu inn
tilboð ásamt greinargerð og nafna-
lista á fundi með samstarfsfólki
ráðherra laugardaginn 14. desemb-
er. Engar frekari markverðar við-
ræður áttu sér stað á milli ráðuneyt-
isins og okkar um málið.
Við mótmælum þeim ummælum
fjármálaráðherra um að tilboð okk-
ar hafi verið lakara en tilboð Drafn-
ar hf. og Egilssíldar hf. og förum
fram á , að óvilhallir menn skoði
tilboðin þar sem sérstaklega verði
metinn styrkurinn af sameiningu
Drafnar og Egilssídlar við Þormóð
ramma hf. Einnig viljum við benda
á ummæli ráðherra í útvarpi þar
sem hann lýsti yfir að hann meti
ábyrgð sölumiðstöðvarinnar mikils.
Við buðum í tilboði okkar sjálf-
skuldarábyrgð allra kaupenda eða
aðrar tryggingar sem um semdist.
Annarra trygginga var ekki krafíst.
Fullljóst er, að aldrei átti að selja
öðrum meirihluta hlutabréfa í Þor-
móði ramma en Drafnar hf. og
Egilssíld hf.,“ segir í mótmælum
samstarfshóps heimamanna.
Lottó:
Fyrsti vinn-
ingur yfir
15 milljónir
ALLT útlit er nú fyrir að fyrsti
vinningurinn í Lottóinu á morg-
un verði sá hæsti frá upphafi.
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri Islenskrar
getspár, áætlar að vinningurinn
verði um eða yfir 15 milljónir.
Hæstur hefur vinningurinn verið
14,7 milljónir en miðað við söluna
í þessari viku er allt útlit fýrir að
það met verði selgið. Ef að líkum
lætur má reikna með að landsmenn
kaupi miða fyrir rúmar 30 milljónir
á morgun, en á laugardögum er
jafnan mesta ösin við lottókassana.
Áætluð sala í Lottóinu á árinu
sem er að líða er um 885 milljónir
og því lætur nærri að landsmenn
hafi keypt lottómiða fyrir 2,4 millj-
ónir á hveijum degi.
-----*-*-i----
Fréttir frá EB:
Evrópu-
bandalagíð
eykur upplýs-
ingamiðlun
FASTANEFND framkvæmda-
nefndar Evrópubandalagsins
fyrir Noreg og Island hefur haf-
ið útgáfu fréttabréfs hér á landi
í samvinnu við útgáfufyrirtækið
Fróða hf. Ritið ber heitið „Frétt-
ir frá EB“.
Fastanefnd framkvæmdanefndar
EB í Noregi hefur síðastliðið ár
sinnt tengslum við ísland. „Okkar
markmið er að koma sem gleggst-
um upplýsingum á framfæri við
íslendinga um málefni Evrópuband-
alagsins. Með þessu fréttabréfí vilj-
um við stuðla að slíkri upplýsinga-
miðlun."
Að sögn Steinars Lúðvíkssonar,
aðalritstjóra hjá Fróða, er stefnt
að því að gefa Fréttir frá EB út
átta sinnum á ári. Fyrsta tölublað-
inu hefur verið dreift til stjórnmála-
manna, stjórnenda og fjölmiðla.
♦ ♦ «----
Æviskrár
MA-stúdenta
Þriðja bindi
komið út
ÚT ER komið þriðja bindi af
Æviskrám MA-stúdenta hjá
Steinholti bókaforlagi í Reykja-
vík. Bókin er 562 blaðsíður að
stærð og inniheldur æviskrár
allra þeirra stúdenta (516) sem
brautskráðust frá Menntaskólan-
um á Akureyri á árunum 1955—
1963. Í æviskránum er leitast við
að gefa sem ítarlegast yfirlit yfir
lífshlaup hvers og eins, ætt,
uppruna og fjölskyldu, náms- og
starfsferil, ritstörf, félags- og
trúnaðarstörf o.fl. Þá fylgir
mynd hverri æviskrá, en auk
þess er birt hópmynd af hveijum
stúdentaárgangi.
Ritstjóri verksins er Gunnlaugur
Haraldsson, þjóðháttafræðingur.
Að útgáfu Æviskráa MA-stúd-
enta stendur auk Steinholts sá hóp-
ur stúdenta sem brautskráðist frá
MA vorið 1973. Ritsafnið mun ná
til allra stúdenta á tímabilinu
1927—1973, alls 5 bindi, en áður
eru komin út tvö bindi.
Æviskrár MA-stúdenta eru til
sölu hjá Steinholti — bókaforlagi á
Engjateigi 9 í Reykjavík (Verkfræð-
ingahúsið). Þeir sem áhuga hafa á
að nálgast ritið fyrir jól geta snúið
sér til forlagsins, en áskrifendur
munu fá 3. bindi sent í pósti eftir
áramótin.