Morgunblaðið - 21.12.1990, Side 40

Morgunblaðið - 21.12.1990, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1990 Þriðja umræða fjárlaga: Aætlaðar tekjur ríkisins 1992 tæpir 102 milljarðar Skattar hækkaðir um 16 milljarða frá 1988, segja sjálfstæðismenn ÞRIÐJA umræða fjárlaga hófst í sameinuðu þingi síðdegis í gær. Kom fram í ræðu Sighvats Björgvinssonar, formanns fjárveitinga- nefndar, að með breytingartillögum meirihluta nefndarinnar séu áætlaðar tekjur ríkisins á næsta ári 101 milljarður 698 m.kr. Pálmi Jónsson, Sjálfstæðisflokki, lagði fram greinargerð frá sjálfstæðis- mönnum í fjárveitinganefnd þar sem m.a. kemur fram að með þessum breytingum við þriðju • umræðu hefur skattheimta yerið aukin um 16 milljarða frá 1988 til 1991. í umræðunum var kynnt minnisblað frá fjármálaráðuneytinu um hugsanleg áhrif minni loðnuafla á tekjuhlið fjárlaga 1991. Eru helstu niðurstöður að vöxt- ur þjóðarútgjalda á næsta ári verður 0,2% minni. Hagvöxtur verð- ur tæplega 1% minni. Viðskiptahalli verður 3 milljörðum króna meiri. Minni loðnuafli hefði hins vegar lítil sem engin áhrif á tekju- hlið fjárlaga. Sighvatur Björgvinsson sagði verklok fjárveitinganefndar hafa verið unnin í mikilli tímaþröng. Oeðlilega mörg og stór mál hefðu beðið þriðju umræðu sem oftast væru afgreidd við aðra umræðu. ; Hefðu mörg þessara mála verið þess eðlis að rétt þótti að óska eftir afstöðu ríkisstjórnarinnar til þeirra. Talsverðan tíma hefði tekið að fjalla um þessi mál og vinna því orðið að ganga hratt undir lok- in. „Mér og okkur í meirihluta fjár- veitinganefndar er það fyllilega ljóst að þau vinnubrögð voru ekki til fyrirmyndar," sagði formaður fjárveitinganefndar. í heimsókn forstjóra Þjóðhags- stofnunar á fund ijárveitinga- nefndar sagði' hann hafa komið fram að líkur væru á að nokkur umskipti yrðu í þá átt að batnandi horfur 1990 breyttust í versnandi horfur 1991, annars vegar vegna lakara efnahagsástandi á alþjóða- vettvangi og hins vegar vegna slæmra horfa um loðnuveiði. Sighvatur sagði nefndina einnig hafa átt viðræður við starfsfólk í tekjudeild fjármálaráðuneytisins og hefði þar komið fram að áætlan- ir þeirra væru byggðar á þjóð- hagsspá frá í október þar sem endurskoðuð spá lægi ekki fyrir fyrr en í janúar. Ef tekjubrestur yrði myndu áætlanir tekjudeildar fað sjálfsögðu breytast til verri veg- ar._ í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í haust var áætlað að tekjur ríkissjóðs næmu samtals 99 milljörðum 563 m.kr. en ef breyt- ingar meirihlutans yrðu samþykkt- ar yrðu tekjumar 101 milljarður 698 m.kr. Heildarhækkun á tekju- Framsögumaður greindi frá því að frumvarpið væri í samræmi við þingsályktunartillögu um íslenska ferðamálastefnu. Ætlunin væri að lög um ferðaþjónusu kæmu í stað núgildandi laga um skipulag ferða- nnála og í stað laga um veitinga- og gististaði. Ráðherra rakti nokk- uð efni frumvarpsins, m.a. er gert ráð fyrir því að árlega komi sáman ferðaþing sem sé ráðgefandi sam- kunda, þar sitji fulltrúar ýmissa aðila sem áhuga og hagsmuna hafa að gæta. Fækkað verði fulltrúum í ^Ferðamálaráði úr 23 í 9. Starf- rækja skal ferðamálasjóð. Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv) hliðinni væri sem sagt 2 milljarðar 135 m.kr. Ástæða hækkunarinnar væri í fyrsta lagi að gert er ráð fyrir að tekjuskattur einstaklinga skili 650 m.kr. umfram áætlun fjáriagafrumvarpsins. Ef kaup- máttaraukningin sem spáð væri á næsta ári hyrfi myndi tekjuskattur einstaklinga hins vegar tæpast skila þeirri niðurstöðu. Þá er gert ráð fyrir að skil af tekjuskatti fyrir- tækja verði 300 m.kr. hærri en frumvarpið gerir ráð fyrir. Skil á virðisaukaskatti hækki um 1 millj- arð og 50 m.kr. vegna skila sem áttu að koma um miðjan nóvember en koma ekki fyrr en á næsta ári og vegna áhrifa af aukinni og bættri innheimtu. í fjórða lagi er svo gert ráð fyrir að vegna aukins innflutnings muni bifreiðatollar skila 285 m.kr. meira í ríkissjóð en ráð var fyrir gert. í tölum um tekjuhlið væri einnig tekið tillit til áhrifa þess að trygg- ingagjaldið myndi ekki gefa jafn- háa fjárhæð í ríkissjóð og fyrir- tækjaskattheimtan átti að gefa samkvæmt frumvarpinu og munar þar 750 m.kr. Einnig er gert ráð fyrir að nókkuð verði breytt áætl- unum ríkisstjórnarinnar um álagn- ingu jöfnunargjalds sem skili 100 m.kr. tekjuauka. Þá sagði Sighvat- ur ríkisstjórnina hafa samþykkt að flytja í janúar frumvarp um sérstaka tekjuöflun þar á meðal mishátt jöfnunargjald á ýmsar vörutegundir og á sú skattheimta að skila um 500 m.kr. Nýjar útgjaldatillögur meiri- hluta fjárveitinganefndar sagði hann nema 1 milljarði 622 m.kr. Ekki gefst hér rými til að greina frá nema hluta tillagna nefndar- sté í ræðustól og harmaði að sam- gönguráð.herra hefði ekki getað beðið með að mæla fyrir þessu frumvarpi, honum hefði verið vel kunnugt um að hún vildi eiga við hann orðastað. Guðrún lýsti því yfir að hún væri „algjörlega andvíg“ frumvarpinu og myndi ekki styðja það. Hér væri verið að bæta við báknið, ferðamálaráð, ferðamála- stjóri, ferðamálasjóður. — Og hún skyldi ekki, til hvers. Æskilegast væri að hvert byggðarlag yrði styrkt á fjárlögum til að taka á móti sínum gestum. Guðrún sagði’ frumvarpið fjalla um ferðamál fyrst og fremst sem innar en meðal þeirra má nefna 6 m.kr. fjárveitingu til kaupa á íbúð vegna fræðimanns sem starfar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Gert er ráð fyrir að framlag til Lána- sjóðs íslenskra námsmanna lækki um 200 m.kr. og sagði Sighvatur ástæðu til að endurskoða lög um sjóðinn. Gerð er tillaga um að lok- ið verði við fyrstu lotu fyrsta áfanga endurbóta á Þjóðleikhúsinu en þannig yrði hægt að heija sýn- ingar í leikhúsinu í vor. Er fjárveit- ing til þessa liðar hækkuð um 65 m.kr. Verður gengið frá því sem er óunnið til bráðabirgða en ekki er gert ráð fyrir frekari fram- kvæmdum á árinu. Einungis er gert ráð fyrir að 45 m.kr. af ráðstöfunarfé Endurbóta- sjóðs menningarstofnana fari til Þjóðarbókhlöðunnar þannig að framlag til hennar verður alls 145 m.kr. Varðandi Islensku óperuna sagði Sighvatur að ekki hefði náðst samkomulag við Reykjavíkurborg um lausn á vandamálum hennar. Gerð væri tillaga um að framlag til óperunnar yrði hækkað um 10,6 m.kr. en jafnframt gerð tillaga um heimild til íjármálaráðherra um að ganga til samninga við Reykjavík- urborg og e.t.v. aðra um lausna á rekstrarvanda óperunnar. Veruleg lækkun er lögð til á framlögum til landgræðslu miðað við ijárlagafrumvarpið. Sagði hann ástæðu þess vera að þau mistök hefðu verið gerð frá upphafi að þingsályktunartillagan frá 1986 hefði verið tekin og framreiknuð á verðlagi ársins 1986 en ekki á verðlagi 1987. Niðurstaða fjár- málaráðuneytisins hefði verið sú að búið væri að greiða mun meira fé vegna landgræðsluáætlunarinn- ar en gert hefði verið ráð fyrir með samþykkt Alþingis. Ríkisend- urskoðun hefði staðfest að svo væri. Síðan 1987 hefðu alls 44 milljónir verið ofgreiddar og ef til- lagan í fjárlagafrumvarpinu yrði samþykkt myndu bætast við þá umframgreiðslu 22 m.kr. Því hefði landbúnaðarráðuneytið lagt til að milljónirnar 44 yrðu látnar standa en fjárveiting næsta árs lækkuð um 22 m.kr. gróðaveg. En að fleiru þyrfti að hyggja. Ræðumaður benti á ýmsa erfiðleika hér á landi, sólskinsdagar á íslandi væru yndislegir en ekki margir, „söfnuðumst saman sumar- kvöldin fjögur“. Ræðumaður tíund- aði einnig ýmsa misbresti sem orðið hefðu í ferðaþjónustunni, t.a.m. skort á. salernum og gistingu í „hæfílega illa viðhöldnum fram- haldsskólum“. Birgir ísleifur Gunnarsson (S-Rv) og Hjörleifur Guttormsson (Ab-Al) reifuðu ýmis sjónarmið og marga þætti frumvarpsins og höfðu á því trú að það fengi vandaða málsmeðferð. Steingrímur J. Sig- fússon samgönguráðherra greindi frá því að margir vildu að þessi lög um gagngera endurskoðun á fram- kvæmd ferðaþjónustu yrðu að veru- leika. Samgöngunefnd hefur nú frum- varpið til meðferðar. Málefni Ríkisútvarpsins sagði Sighvatur hafa verið til sérstakrar umijöllunar í nefndinni. Mikill vandi væri fyrirsjáanlegur í rekstri stofnunarinnar m.a. vegna þess að ekki hefði verið staðið við þau áform sem hefðu verið boðuð af hálfu stjórnvalda að sjá til að Tryggingastofnun greiddi afnota- gjöld þeirra bótaþega sem nú fá þau niðurfelld. Er þarna um að ræða 120 m.kr. á ári. Væri ástæða til að leita þeirrar málamiðlunar í þessu máli að frá næstu áramótum sæi Tryggingastofnun um að greiða niðurfellingu fyrir þá ein- staklinga sem hún bætti á þessa skrá frá og með áramótum. Þá væri orðið mjög alvarlegt ástand á langbylgjusendinum og gæti hann brugðist hvenær sem er. Kostnaður við endurnýjun væri 500 m.kr. Einnig væri ljóst að for- sendur íjárlagafrumvarps um launakostnað hjá bæði hljóðvarpi og sjónvarpi og önnur rekstrar- gjöld miðuð við óbreyttan rekstur væru talsvert lægri en tölur úr rekstri gæfu til kynna. Munaði þar um 120 m.kr. á ári. Mætti með nokkrum sanni segja að vandamál Ríkisútvarpsins væru skilin eftir óleyst við þessa ijárlagaafgreiðslu og mikil hætta á að aftur falli í sama farið þannig að launaskuldir taka að hlaðast upp hjá ríkissjóði á ný. Enn eitt skattamet Pálmi Jónsson (S/Nv) sagði verulegar breytingar hafa orðið á frumvarpinu á milli umræðna og hefðu flestar þær ákvarðanir verið teknar í ríkisstjórninni. Það vinnu- lag meirihlutans að senda ágrein- ingsmál til ríkisstjórninnar væri vafasamt og ijárveitinganefnd hefði setið aðgerðalítil milli um- ræðna og beðið. Hún hefði ekki fengið neinar tillögur til afgreiðslu fyrr en klukkan 14 á miðvikudag og þær síðustu klukkan 10 um morguninn í gær, fimmtudag, sama dag og þriðja umræða fór fram. Þingmaðurinn gagnrýndi að þrátt fyrir áætlanir Þjóðhagsstofn- unar og að við fyrri umræðu hefði tekjugrundvöllurinn verið talinn veikur væri lögð fram tekjuáætlun sem hefði verið hækkuð um 2,1 milljarð. Með þessum tillögum væri verið að hella nýjum sköttum yfir þjóðina og ríkisstjórnin að setja enn eitt skattametið. Skattheimta væri nú 28,1% af vergri landsfram- Ieiðslu en hefði verið 23,5% árið 1987. Bæru þessar hækkanir með sér augljós fingraför ijármálaráð- herra, annars vegar skattahækk- 1991 anir og hins vegar óraunsæjar töl- ur. Ef loðnuveiðin brygðist myndi það hafa stórkostleg áhrif á tekjur í þjóðfélaginu. Samt væri lagt fram plagg sem sýndi fram á að þetta ætti engin áhrif að hafa á tekjur ríkisins. Lagði Pálmi til að ijár- málaráðherra boðaði til blaða- mannafundar ef hann hefði fundið ráð til þess að loðnuaflinn hefði ekki áhrif á tekjur ríkissjóðs. Hann sagðist vilja vekja athygli á að samkvæmt áætlun vantaði um milljarð til almannatrygginga, þar af um 500 m.kr. til lífeyris- trygginga. Spurði hann hvort þetta ætti að leysa með því að greiða einungis lífeyri í 11 mánuði eða þá skerða yfir allt árið. Pálmi kynnti einnig greinargerð frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í ijárveitinganefnd. Þar kemur m.a. fram að miðað við Ijárlaga- frumvarpið við 3. umræðu hafa skattar til ríkissjóðs á ársgrund- velli verið hækkaðir um 16 millj- arða króna frá og með 1988 til 1991. Þetta geri á ári rúmar 240 þúsund krónur á íjögurra manna fjölskyldu. Þrátt fyrir skattahækk- anirnar stefni í að samansafnaður halli ríkissjóðs árin 1988-1991 verði yfir 30 milljarðar króna á verðlagi ijárlagafrumvarps. Fjárlagafrumvarpið boði mikinn vanda í fjármálum ríkisins á kom- andi árum. Á undanförnum árum hafi í mörgum tilvikum verið geng- ið á eigið fé stofnana og sjóða. Ríkissjóður hafi jafnframt tekið á sig ijárhagslegar skuldbindingar sem nema tugum milljarða og ekki hafa verið gerðar upp. Ekki síður alvarlegt sé að ríkissjóður fái ekki að óbreyttu staðið undir þessum skuldbindingum. Einnig kemur fram að erlendar skuldir þjóðarbúsins hafa aldrei verið hærri en á þessu ári eða 51,6% af landsframleiðslu en þær voru 40,3% árið 1987. Greiðslu- byrði af erlendum lánum verður á næsta ári samkvæmt spá Seðla- banka 21,7% af útflutningstekjum en var 16% árið 1987. Meginstefnuna sagði Pálmi vera að meira fé færi til ríkisins sem þýddi að sífellt minna yrði eftir handa öðrum. Virtist vera ástæða til að þylja þetta einu sinni enn. Fjárlög gætu verið mikilvægt hag- stjórnartæki en þetta ijárlaga- frumvarp væri enn eitt máttlaus plagg þar sem tölum væri hagrætt samkvæmt vilja ríkisstjórnarinnar. Þetta væri á margan hátt sýndar- Plagg. Stuttar þing’fréttir Lög um ferðaþjónustu Helztu nýjungar í stjórnar- frumvarpi til laga um ferðaþjón- ustu eru m.a.: 1) Árlegt ferða- þing, 2) Fækkun í ferðamálaráði úr 23 í 9, 3) Verkefni Ferðamála- ráðs verða meira á sviði stefnu- mótunar, 4) Skrifstofa ferðamála fær meira sjálfstæði, 5) Heimild er veitt fyrir aðild Ferðamálaráðs að upplýsingamiðstöðvum í kjör- dæmum landsins, 6) Aukin áherzla er lögð á umhverfisvernd, 7) Markaður tekjustofn ráðsins er óbreyttur, 8) Lánstími lána úr Ferðamálasjóði er lengdur í 40 ár, 9) Sett skal á fót áhættu- lánadeild vegna þróunarverkefna, 10) Meiri áherzla er lögð á neyt- endavernd. Tekjur Útflutningsráðs Islands Sajnkvæmt stjórnarfrumvarpi um Útflutningsráð íslands verða tekjur ráðsins sem hér segir: 1) 0,05% af aðstöðugjaldsstofni fisk- veiða, fiskvinnslu, iðnaðar og byggingarstarfsemi, 2) 0,01% af aðstöðugjaldsstofni veitinga- og hótelrekstrar, flutninga á sjó, þó ekki strandflutninga, og flug- rekstrar, 3) framlag ríkissjóðs, 4) þóknun fyrir veitta þjónustu, 5) sérstök framlög og aðrar tekjur. Frumvarp samgönguráðherra um ferðaþjónustu: Bætt við báknið is segir Guðrún Helgadóttir STEINGRÍMUR J. Sigfússon samgönguráðherra mælti í gær í neðri deild fyrir frumvarpi til Iaga um ferðaþjónustu. Eitt markinið lag- anna er að þróa og viðurkenna ferðaþjónustu sem mikilvægan og arðgæfan atvinnuveg. Hins vegar segir Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv) að það sé verið að búa til bákn. \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.