Morgunblaðið - 23.12.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1990
27
hafa sjálfsvígstilhneigingar er
sjálfsvígið neyð, sem þeir leiðast
út í, ef þeir fá ekki „leyst“ vanda-
mál sín á annan hátt. Ef við látum
það vera að hjálpa þessu fólki að
finna aðrar leiðir með því að segja
að hver og einn verði að taka
ákvörðun um hvort hann vilji lifa
eða deyja, þá er það hvorki skiljan-
leg, kristileg né mannúðleg af-
staða. Eftir sem áður vitum við
að ábyrgðin verður hvorki tekin frá
einstaklingnum né henni komið
yfir á aðra, einfaldlega vegna þess
að það geíir allar siðferðilegar við-
miðanir merkingarlausar.
Það er ljóst að fordómar í þess-
um efnum eru á undanhaldi með
aukinni þekkingu. En við verðum
að spyija okkur um leið hve mikið
af umburðarlyndinu má rekja til
aukins mannlegs skilnings og hve
mikið af því má rekja til sinnuleys-
is um þá siðakröfu að elska náung-
ann eins og sjálfan þig. Við verðum
að gera allt sem við getum til að
skapa hið góða samfélag, þótt sam-
félagið verði reyndar aldrei full-
komið í þessum heimi.
Við skulum biðja góðan Guð að
gefa okkur þann kærleika sem lýs-
ir upp myrkrið, þann kærleika, sem
varð holdi klæddur í Jesú Kristi
og tekur á sig hold í því samfélagi
sem leggur sig eftir því að feta í
sporin hans í veikum mætti en í
von. Vonin verður sem skylda
frammi fyrir köldum staðreyndum
lífsins. Hún byggist hvorki á flóði
né fjöru tilfinningalífsins heldur
þeim lifandi Guði sem kallar okkur
til lífs í dauðanum.
„Og þá mun Kristur lýsa þér,“
sá boðskapur getur hrakið burt
myrkrið úr lífi okkar. Rétt eins og
augað þarfnast ljóss þörfnumst við
náðar og ljóss að handan. Þá sjáum
við leiðina sem liggur til náungans
og Guðs. Ljósin á aðventukransin-
um eiga að minna okkur á að Krist-
ur vill lýsa okkur og við eigum að
lifa sem böm ljóssins öðrum til
blessunar. Eitt er víst að margir
reika um í sinnuleysi og stefnu-
leysi tómhyggjunnar.
Jólin eru að koma. Þegar eru
menn teknir til við hinn ytri undir-
búning og það er eftirvænting í
augum barnanna. En andlegu lífi
þarf einnig að sinna. Menn hafa
tilhneigingu til að hugsa sér jól
án jólaföstu, rétt eins og þeir hugsa
sér páska án kyrruviku. En upp-
fylling vona gerist ekki án eftir-
væntingar.
Hvar er ljósið sem vísar okkur
veginn? Lesum við Bíblíuna með
bænaranda? Spyijum við hvað Guð
sé að segja við okkur í orði sínu
eða viljum við taka jólin út fyrir-
fram? Er vandamálið að hluta fólg-
ið í því að lífið er að verða ein
veisla og þess vegná erfiðara að
gera sér dagamun og greina kjam-
ann frá hisminu? Jólagleðin vex
af því að láta aðventu og jól renna
út í eitt, ekki fremur en það eykur
velferð þjóðarinnar að auka seðla-
prentunina í landinu.
Sérhver bæn er merki um vöku
og bið sem gefur til kynna að hjálp-
ræði okkar sé nærri. Eigum við
ekki að tendra aðventuljósin með
fullri alvöru nú á jólaföstunni?
Þessi ljós eiga að minna okkur á
þá dýrð sem er í vændum. Þau eru
merki um að við erum á veginum
og höldum til móts við höfund og
fullkomnara trúarinnar og lífsins.
Hver sem tendrar aðventuljós ætti
að gera það með íhugun, en ekki
hugsunarlaust. Lítið kertaljós er
aðeins tákn. Samt er það eins og
ljós vitans sem vísar skipi til hafn-
ar í myrkrinu. Þetta litla ljós er
einnig spurning til þín. Hefur lampi
lífs þíns slokknað? Reikar þú um
án leiðarljóss í myrkrinu, eða
brennur það og skín innra með
þér? Hefur þú höndlað merkingu
og tilgang með lífi þínu? Eða öllu
heldur: Ertu reiðubúinn að leyfa
Kristi að lýsa þér um þessi jól og
alla tíð?
Heimildir: Det Etiske Rád: Se deden
i ojnene, Kbh. 1987, einkum grein
Unni Bille-Brahe, Den selwalgte (lnd,
bls. 219. Upplýsingar frá Hagstofu
fslands 1990 o.fl.
Höfundur er sóknarprestur /
Keflavík.
____________Brids________________
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild Skagfirðinga
Starfsemi deildarinnar á þessu ári,
lauk með jólasveinakeppni sl. þriðju-
dag. Tæplega 30 pör mættu til leiks,
í boði félagsins. Spilaður var tvímenn-
ingur og urðu úrslit þessi (efstu pör):
Norður/suður:
IngibjörgGrímsd. — Lárus Hermannsson 198
Guðlaugur Sveinss. — Lárus Hermannss. 188
AnnaÞóra Jónsd. — Ragnar Hermannss. 187
Ásthildur Sigurgíslad. — Lárus Arnórss. 185
Austur/vestur:
Ármann J. Lárusson — Ragnar Bjömsson 228
Ragnar Jónsson — Þröstur Ingimarsson 207
Baldvin Valdimarss. — Ólafur H. Ólafss. 203
Eyjólfur Magnúss. — Hólmsteinn Aras. 178
Um leið og Skagfirðingar þakka
spilurum þátttökuna í haust, Arnóri
Ragnarssyni á Morgunblaðinu fyrir
hans ágæta framlag, þá er minnt á að
spilamennska hefst að nýju þriðjudag-
inn 8. janúar, með eins kvölds tvímenn-
ingskeppni. Landsmönnum öllum ósk-
um við gleðilegra jóla, árs og friðar.
Bridsfélag Breiðfirðinga
Lokið er 14 umferðum í aðalsveita-
keppninni og er staða efstu sveita þessi:
Óskar Þráinsson 272
Ingibjörg Halldórsdóttir 247
Ljósbrá Baldursdóttir 232
Guðjón Bragason 228
Hans Nielsen 224
Gróá Guðnadóttir 223
Ingimundur Guðmundsson 221
Guðlaugur Sveinsson 221
Haukur Harðarson 216
Sigrún Pétursdóttir 211
Næst verður spilað 17. janúar.
Stjórn félagsins óskar spilurum
gleðilegra jóla og þakkar samskiptin á
liðnu ári. Sendum einnig lesendum og
umsjónarmanni þáttarins jólakveðjur
með þökk fyrir samskiptin á liðnu ári.
adidas
af sparifé þínu
✓
Ymsar eignir eru undanþegnar eignaskatti,
t,d. innstœða á BAKHJARLI sparisjóðsins.
BAKHJARL sparisjóðsins hentar þeim mjög vel sem vilja njóta
hagstæðustu ávöxtunarkjara hjá sparisjóðnum. BAKHJARL
ber háa vexti umfram verðtryggingu, nú 6.5%, og er aðeins
bundinn í 24 mánuði. Með BAKHJARLI opnast einnig
ýmsar leiðir hjá sparisjóðnum til hagsbóta fyrir þig og þína.
Jafnframt er vert að hafa í huga að talsverður munur
getur orðið á skattbyrði þeirra sem eiga um áramót
inneign á BAKHJARLI, og hinna sem eiga á sama tíma
álika fjárhæð í verðbréfum og svipuðum eignum.
Hafðu sparisjóðinn að bakhjarli
Athugaðu kostina sem fylgja því
að ávaxta fé þitt á BAKHJARLI sparisjéðsins.
SPARISJÓÐURINN
SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR, SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS,
SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS, SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA.