Morgunblaðið - 23.12.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1990
38
Nýársfagnaður
á Breiðvangi
Aðventusamkoma í
Reykjahlíðarkirkju
Björk, Mývatnssveit.
Aðventusamkoma var haldin í
Reykjahlíðarkirkju sunnudags-
kvöldið 16. desember, hófst hún
kl. 21.
Kirkjukórinn söng undir stjórn
Jóns Arna Sigfússonar, undirleik
annaðist Juliet Faulkner, tónlistar-
kennari við Hafralækjarskóla. Ein-
söngvarar voru Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir og Ásmundur Kristjánsson.
Ræðu kvöldsins flutti Páll Dag-
bjartsson, skólameistari Fram-
haldsskólans á Laugum. Séra Örn
Friðriksson var kynnir og stjórnaði
samkoinunni.
Þorlákur Jónasson formaður
sóknarnefndar færði öllum flytjend-
um í kirkjunni, söngfólki og ræðu-
manni sérstakar þakkir svo og öðr-
um er stutt höfðu að því að koma
á þessari aðventusamkomu. Síðast
fóru allir kirkjugestir með bænina
Faðir vor og sungu að lokum Heims
um ból. Þessi kvöldstund var í senn
bæði ánægjuleg og verulega há-
tíðleg. Fjölmenni var.
Kristján
Guðni Ágústsson:
Læt ummæli for-
sætisráðherra sem
vind um eyru þjóta
GUÐNI Ágústsson, alþingismaður Framsóknarflokksins sem sæti
á í bankaráði Búnaðarbankans, segist harma ummæli forsætisráð-
herra um vaxtahækkun bankans. Hann hefði ekki heyrt hann tala
í þessum dúr fyrr. „Ég verð hins vegar að láta þessi ummæli eins
og vind um eyru þjóta,“ sagði Guðni. „Mér ber sem bankaráðs-
manni að sinna þeim verkefnum sem Alþingi hefur falið mér og
hafa hagsmuni bankans og viðskiptamanna hans i huga.“
Guðni sagði að í þjóðarsáttinni
hefði náðst mjög mikilvægt sam-
komulag við peningastofnanir um
að öðravísi yrði farið að við vaxta-
ákvarðanir og nafnvextir lækkaðir
veralega. Einnig hefði verið gert
samkomulag við bankana um að
síðar á árinu myndu bankarnir
passa sérstaklega að jafnvægi yrði
milli verð- og^ óverðtryggðra inn-
og útlána. Ákvörðun Búnaðar-
bankans núna byggðist á því að
hann hefði farið með nafnvexti
eins langt niður og hann gat í
septemberlok er verðbólga var
4-6%. Nú í desember hefði verð-
bólga hins végar verið 8% og búist
væri við 8-9% verðbólgu fyrstu
þijá mánuði 1991. Vaxtahækkun-
in nú væri rökrétt ákvörðun í
framhaldi af því.
„Umræðan í kringum hækkun-
ina er hins vegar á villigötum því
menn tala alltaf eins og þarna
hafi verið um almenna hækkun
að ræða. Hið rétta er að vextir
voru einungis hækkaðir á litlum
hluta innlána og útlána,“ sagði
Guðni. Það væri nær hjá ríkis-’
stjórninni að snúa sér að því að
ná samkomulagi við ríki og pen-
ingastofnanir um raunvaxtalækk-
anir. Því miður óttaðist hann að
það væryof seint þar sem spari-
sjóðir og íslandsbanki hefðu þegar
ákveðið vaxtahækkanir.
Þá sagði Guðni mikið vera rætt
um gróða bankanna og hefðu sum-
ir nefnt töluna þrjá milljarða. Þetta
ætti að hans mati ekki við rök að
styðjast og líklega væri útkoman
víðar en í Búnaðarbankanum lak-
ari en á síðasta ári. Myndi það
ekki koma honum á óvart ef sum-
ar peningastofnanir skiluðu ekki
þeim hagnaði sem þær þyrftu til
að viðhalda eigið fé.
„Ég hef hins vegar engar
áhyggjur af því,“ sagði Guðni.
„Meiri áhyggjur hef ég af því ef
þetta litla fé sem er á launareikn-
ingum og almennum bókum fer
að brenna upp á meðan fé á verð-
tryggðum reikningum heldur sér
og meira en það. Það sama á við
um útlán. Það er ekki réttlátt að
bjóða sumum mun betri kjör en
öðrum.“
Brot úrbyggð-
arsögu íslands
Fjórréttaður hátíðarmatseðill
ásamt úrvals fordrykk
Matseðill
Forréttur:
Svanamelodía
Milliréttur:
Reykt nautalund
með graslaukssósu
Aðalréttur:
Kampavínssoönir humarhalar
með appelsinumintsósu
og grœnum aspas
Eftirréttur:
Hdtíðarterta Breiðvangs
Koffi og konfekt
Rautt og hvítt sérinnflutt
eðalvín verður boríð fram
með hátíðarverðinum
Stórkostlegt nýárskvöld á
Breiðvangi þar sem sérstaklega
verður vandað til og mun allt
verða gert til að gera þetta að
einni veglegustu veislu ársins.
Frábærír skemmtikraftar munu
heiðra gesti Breiðvangs með
nærveru sinni.
Flosi Ólafsson flytur ræðu kvöldsins
Garðar Cortes syngur létt lög
Jóhannes Krístjánsson fer með
gamanmál
Danspör frá Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar sýna dans.
Svo er eitt atriði í viðbót sem
verður rúsína í pylsuendanum.
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar,
ásamt söngvurunum Helgu Möller
og Eyjólfi Kristjánssyni mun sjá
um fjörið fram á rauða nótt.
Borðapantanir
á Breiðvangi alla virka
daga frá kl. 1—6 e.h.
í síma 77500.
I II II YtSH I
IMJCDL e^M>
BYGGÐARLEIFAR í Hrafnkels-
dal og á Brúardölum, Brot úr
byggðarsögu íslands heitir bók
eftir Sveinbjörn Rafnsson sem
Hið íslenska fornleifafélag gefur
út.
_ I kynningu útgefanda segir m.a.:
„I þessu riti er gerð tilraun til að
samhæfa árangur fornleifafræði-
legra rannsókna og sagnfræðilegra.
Höfundur glímir við þær ritheimild-
ir sem varpað geta Ijósi á byggða-
sögu Hrafnkelsdals og gerir grein
fyrir fornleifafundum á þessum
svæði. Þá er lýst athugunum á forn-
um byggðarleifum í Hrafnkelsdal,
á Efra-Jökuldal og Brúardölum,
bæði með loftljósmyndun og könn-
un á staðnum. Reynt er að tíma-
setja byggðarleifarnar, einkum með
gjóskulögum. I lokakafla eru dregn-
ar niðurstöður af þvi efni sem lagt
er fram og leitast við að setja þær
í víðara sögulegt samhengi. í við-
bæti er fjallað um staðfræði og
Hrafnkels sögu. I bókinni eru nær
100 uppdrættir og ljósmyndir, sum-
ar þeirra í lit. Með skráningu rúst-
anna er lagt fram nýtt heimildaefni
til íslenskrar byggðasögu."
Bókin er 110 blaðsíður og í stóru
broti.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!