Morgunblaðið - 23.12.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1990
33
Sögnlegar myndir
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Minnisstæðar myndir
Islandssaga áranna 1901-1980 í
ljósmyndum.
Inga Lára Baldvinsdóttir valdi
myndimar.
Sigurður Hjartarson tók saman
annál.
Mál og menning. Reykjavík 1990
Mikill fjöldi svarthvítra mynd
er hér saman kominn á heilum,
hálfum eða ijórðungssíðum. Hverri
mynd fylgir stuttur texti, en aftan
við myndirnar er svo skrá yfir „það
fólk sem þekkja má með vissu á
myndunum í bókinni en er ekki
nefnt í myndatextunum".
Eins og segir í bókartitli spanna
myndirnar árin 1901-1980.
Nú þykist ég vita að úr gífur-
legu magni mynda sé að moða
yfir þessi áttatíu ár, því að allan
þennan tíma hefur ljósmyndavélin
verið í notkun. Vandi hlýtur því
að hafa verið að velja og hafna.
Ef titill bókar á að standa undir
nafni þurfa myndirnar að vera
„sögulegar" á einhvem hátt. Það
hugtak er þó vitaskuld ákaflega
teygjanlegt. í öðru lagi er æskilegt
að birtar séu myndir sem eru frek-
ar sjaldséðar. Þessu getur verið
erfitt að koma heim og saman, því
að „sögulegar“ myndir eru að
líkindum oftast birtar. Ég hygg
þó að myndaveljandi hafi komist
býsna vel frá þessum vanda. Allar
eða langflestar myndanna segja
eitthvað um liðna tíð og margar
þeirra eru mér a.m.k. ókunnar. Það
er bæði gaman og fræðandi að
fletta þessari bók.
Eins og myndimar em tilkomn-
ar hljóta gæði þeirra auðvitað að
vera mismikil og þýðir ekki um
það að fást. Sumar þeirra em þó
undra góðar og flestar vel sæmi-
legar. Virðast vönduð vinnubrögð
hafa verið viðhöfð við prentun og
pappír er góður.
Sigurður Hjartarson hefur tekið
saman annál þessa tímabils. Er
annálunum smeygt á milli mynda.
Að sjálfsögðu hlýtur þetta að vera,
úrdráttur miklu fleiri atburða.
Virðist höfundur hafa valið þá leið
að skjóta inn á milli frásögn af
kostulegum uppákomum. Þessar
annálaklausur era mjög stuttar,
oftast líkar fyrirsögnum blaða, ef
þær em það þá ekki í raun og
vem stundum. Þær kitla forvitnina
og mann fer stundum að langa til
að lesa meira um atburðina. En
að sjálfsögðu verður maður litlu
fróðari af lestri annálsklausanna
einna sér, þó að skemmtilegar séu
þær stundum.
JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-
herra og starfandi utanrikisráð-
herra hefur skipað starfshóp
með fulltrúum frá utanríkis-,
sjávarútvegs- og viðskiptaráðu-
neytunum ásamt fulltrúum
bankakerfisins til þess að fjalla
um greiðsluskil og fjármögnun
útflutnings til Sovétríkjanna og
annarra Mið- og Austur-Evrópu-
ríkja, sem nú eru að breyta efna-
hagskerfi sínu í átt til markaðs-
Inga Lára Baldvinsdóttir
Á þremur síðustu blaðsíðum
bókar er skrá yfir ljósmyndara og
eigendur ljósmyndanna í bókinni.
Langflestar þeirra eru raunar frá
Þjóðminjasafni íslands og Ljós-
myndasafni Reylq'avíkur.
Það er gaman að fletta þessari
bók og ekki'olíklegt að gripið verði
til hennar stöku sinnum.
búskapar.
Hópnum er falið að kanna hvaða
leiðir séu best til þess fallnar að
tryggja fjárhagsgrandvöll þessara
viðskipta við breyttar aðstæður.
Eftirtaldir fulltrúar skipa starfs-
hópinn: Sveinn Bjömsson, sendifull-
trúi, formaður, Bjýrn Friðfinnsson,
ráðuneytisstjóri, Árni Kolbeinsson,
ráðuneytisstjóri, Björn Tryggvason,
aðstoðarbankastjóri og Barði Árna-
son, aðstoðarbankastjóri.
Starfshópur fjallar um við-
skipti við Austur-Evrópu
Dómkórinn syngur
jólasálma og mótettur
Geisladiskar
Oddur Björnsson
Með gleðiraust
Dómkórinn í Reykjavík.
Stjórnandi: Marteinn H.
Friðriksson.
Upptaka: Stúdíó Stemma hf.
Sljórn upptöku: Sigurður
Rúnar Jónsson.
Útg.: Dómkórinn í Reykjavík.
Hér er kominn geisladiskur,
sem kemur manni í jólaskap. Enda
til þess ætlast, jólasálmar og
mótettur í ágætum og hæfilega
andagtugum flutningi Dómkórs-
ins undir stjórn Marteins H. Frið-
rikssonar. Áð vísu ber ekki neitt
sérstaklega á „gleðiraustinni":
þetta er nánast hefðbundinn
flutningur á svona tónlist, sem
er falleg og einföld og í smekkleg-
um útsetningum — eins og lög
gera ráð fyrir, og þess vegna frek-
ar svona „kirkjuleg" og pedantísk
í betri merkingu orðsins. Það verð-
ur að segjast eins og er að raddir
kórsins hafa „yngst með ámn-
um,“ og er það vel og mjög' við
hæfi í tónlist af þessu tagi. Lögin
eru af ýmsum uppruna — flest
þekkt jólalög í útsetningum allt
frá 16. öld og fram á okkar dag.
Þetta jólaprógram endar á orgel-
leik Marteins H. Friðrikssonar
(Prelodíu og fúgu í G-dúr eftir
Bach), sem á kannski að minna á
útgöngu úr Dómkirkjunni eftir
jólaguðsþjónustu, og kannski líka
á orgelið í því gamla og virðulega
húsi. Hitt er annað mál að þessi
endir á söngskránni er ekkert
sérlega vel til fundinn, fýrir nú
utan það að ég hef aldrei kunnað
að meta hljóminn í nýja orgelinu,
a.m.k. ekki með tilliti til hússins.
Of kaldur og snauður af blæbrigð-
um, að mínu mati. Engu að síður
fallegt og vel sungið jólaprógram.
Upptakan er góð, en fullmikill
„resonance“ — eins og vill verða,
þegar hljóðritað er í kirkju.
Blóöbankinn
óskar öllnm blóógjöfum og velunnurum sinum gleðilegra
jóla og góðs komandi árs meö þökkfyrir hjálpina á liönu ári.
S
GLEÐILEG JOL
/
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Armúla 13a. 108 Reykjavík. Simi 68 15 30. Telefax 68 15 26.