Morgunblaðið - 23.12.1990, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI W DESEMBER 1990
65
Mér finnst þetta
sýna, að kirkjan
verður að bjóða
upp á vissan
sveigjanleika í
helgihaldi sínu
t.d. hvað varðar
messutímann og
eins hittað
styrkja söfnuð-
inn sem sámfé-
lag. Það hefur
líka verið hugs-
un okkar í
þessu.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Sr. Svavar Stefánsson. •
nýjú ári erum við svo að vonast
til að geta hafíð starf með 10-12
ára börnum.“
„Safnaðarheimilið mikil
lyftistöng"
- Hvemig er aðstaðan til þessa
starfs?
„Hún er að mörgu leyti góð.
Safnaðarheimilið sem við byggðum
1983 hefur verið mikil lyftistöng
bæði í safnaðarstarfi og menning-
arlífi safnaðarins og verið geysi-
lega mikið notað. Heimilið hefur
gert þessar breytingar sem ég
nefndi áðan mögulegar og við erum
stundum að velta því fyrir okkur
hvemig við fóram að áður en safn-
aðarheimilið var tekið í notkun.
Með því urðu algjör þáttaskil í
safnaðarstarfinu. Það var h'ka mik-
ill áhugi hjá sóknarnefnd og starfs-
fólki kirkjunnar að reyna þessar
nýjungar og þar með efla safnaðar-
starfið og það munar auðvitað
öllu.“
- Nú er kirkjuhúsið orðið gam-
alt. Þarfnast það ekki endurnýjun-
ar?
„Jú, það er rétt hjá þér. Kirkjan
er rúmlega 93 ára og er bæði orð-
in of lítil og þarfnast lagfæringar.
Nú er unnið að hugmyndum um
að stækka hana og endumýja og
vonast ég til að fljótlega upp úr
áramótum liggi fyrir tillögur um
það hvaða leið verður farin svo
framkvæmdir geti hafist helst
næsta vor. Mér heyrist flestir vera
á því að varðveita beri þessa gömlu
kirkju en búa hans svo að hún
henti sínu hlutverki enn betur.“
„Meira borið í tónlistina"
- Nú eru jólin á næsta leiti.
Verður ekki mikið um að vera í
kirkjunni þá?
„Helgihaldið nú um hátíðimar
verður með svipuðu sniði og undan-
farin ár auk þess sem við beram
meira í tónlistina að þessu sinni.
Við verðum með aftansöng á að-
fangadag og þar mun blásarasveit
úr tónskólanum leika jólalög. í
hátíðarmessu á jóladag mun ný-
stofnaður barnakór Nesskóla
syngja ásamt kirkjukórnum. Á
annan jóladag verður síðan messa
á sjúkrahúsinu og ef veður verður
hagstætt þá munum við reyna að
komast til Mjóafjarðar milli jóla
og nýárs. Á gamlárskvöld mun
formaður bæjarráðs, Guðmundur
Bjarnason, prédika við aftansöng.
Svo það verður nóg að gera og við
væntum að margir komi til kirkju
þessa hátíðardaga.“
- Ágúst
Friðsæl og
góðjól
Islendingar.
Enn eru jólin í nánd. Ennþá birt-
ist okkur jólastjarnan í svarta
sta skammdeginu.
Við fögnum hátíðinni og minn-
umst hans sem gaf okkur svo mik-
ið. Og það er enginn vafi að ef við
færum eftir orðum hans, myndi
gatan hér í fallvöltum heimi verða
greið. í stað ótta væri öryggi, í stað
haturs og öfundar, myndi blessun
flæða um hveija sál. Ó, hve þetta
er indælt. Við getum gert hvort
öðru jólin 'dýrleg. Gert okkar til að
sá ljósi og yl í hvetja sál. En viljum
við eiga sannarlega friðsæl og góð
jól? Auðvitað vilja menn það. En
þá megum við ekki leiða óvin mann-
kynsins Bakkus inn í heimkynni
okkar.
Jól án vímu er það sem gefur
okkur gleðileg jól. Jól blönduð
áfengi vekja hræðslu, skugga og
erfiðleika hveiju heimili. Þetta er
staðreynd áranna sem alltaf er ver-
ið að benda á. Sameinumst í því
að færa hver öðrum sannarlega
gleðileg jól. Jól blessunar, friðsæl
og glöð. Munum að freistarinn er
allsstaðar á vakki. Látum ekki hann
trafla jólafriðinn. Engin víma inn
fyrir dyr. Það er kjörorð okkar nú.
Guð gefi landsmönnum gleðileg
jól og farsælt komandi ár og góðai
minningar um þessi jól.
Vinnum öll á nýju ári í anda frels-
arans. Landi okkar getum við ekki
gefið betri gjöf. __
Árni Helgason.
UR SJOÐI ÞAGNARINNAR
Til Velvakanda.
A
I \ stríðsárunum vann undirritað-
ur í verslun í Reykjavík er hét
Þorsteinsbúð og var við Snorra-
I braut. Eigendur verslunarinnar
voru Þórey Þorsteinsdóttir og Sig-
urður Sigurðarson, en þau eru bæði
flutt yfir landamærin.
Strax í byijun desember var und-
irrituðum falið að ganga frá jóla-
gjöfum. I jólakössum Þóreyjar var
allt efni í jólabaksturinn og var þar
á meðal lítill hveitipoki og svo allt
tilheyrandi til þess að baka góðar
jólakökur. Einnig vora ávextir og
gott hangikjötslæri svo og fleira
nauðsynlegt góðgæti. Enginn mátti
vita um þessar gjafir og varð ég
að leysa þá þraut að ganga þannig
frá kössunum að ekki væri forvitn-
ast í þá. Jólapakkar Sigurðar vora
ekki allir eins, nema í pökkum hans
var alltaf hangikjötslæri, en oft
ýmiskonar búsáhöld og leirtau.
Enginn mátti vita um hans pakka
I heldur.
í þann tíð var það siðvenja að
færa viðskiptavinum pantanir heim
^ á kvöldin og kom það oft í minn
hlut að fara með sendingar, sem
sendillinn komst ekki með til við-
skiptavina.
Eg fékk lista frá þeim hjónum
um það hvert pakkar þessir ættu
að fara. Ég mátti ekki segja viðtak-
endum frá hverjum pakkarnir væra
og gæta þess vel að sendibíllinn
sæist ekki frá glugga eða dyram
viðtakenda. Ég mátti ekki segja
nafn mitt og stundum gekk dálítið
erfiðlega að sannfæra viðtakanda
um að pakkinn væri einmitt til við-
komandi og ég varð líka að gæta
þess vel að fara ekki húsavillt.
Allir sem fengu svona pakka
vora afar fátækir og venjulega í
vesturhluta borgarinnár og jafnvel
suður í Hafnarfirði. Stundum sá ég
blika tár í augum viðtakenda. Ekki
man ég til þess að ég sæi þetta
fólk aftur eða nokkurt þeirra kæmi
inn í Þorsteinsbúð.
Það er bjart yfir þessari minningu
og það er líka löngu gleymt að
stundum var erfitt að finna viðtak-
endur. Þeir bjuggu ekki í höllum.
Þessi fallegi siður þeirra Þóreyjar
og Sigurðar er til eftirbreytni og
vonandi er að þeir sem þessar línur
lesa, muni eftir einhveijum fátæk-
um sem á ekki ofmikið til jólagleð-
innar.
Sveinn
Hjartans þakkir sendum við hjónin öllum þeim,
sem heiÖruðu okkur á 60 ára bríiðkaupsafmœlinu.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Erlingsdóttir og Bótólfur Sveinsson.
Mig langar til ab koma á framfœri innilegu þakk-
lœti til ykkar allra, sem á einhvem hátt hafa
aðstoðab mig og dcetur mínar í okkar erfiðleikum
síðastliðið ár. Um leið óska égykkurgleðilegra jóla.
Kveðja.
Ema Friðriksdóttir og dcetur,
Hvammstanga (áður Skagaströnd).
eftir Ólaf Hauk Símonarson og
Gunnar Þórðarson í Borgarleikhúsinu
Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir.
Leikmynd: Jón Þórisson.
Búningar: Helga Stefándóttir.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Hljómsveitarstjóri: Þórir Baldursson.
Leikstjóri: Pétur Einarsson.
Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, Bára
Lyngdal Magnúsdóttir, Björgvin
Halldórsson, Eggert Þorleifsson, Ell-
ert A. Ingimundarson, Gísli Rúnar
Jónsson, Guðlaug María Bjarnadótt-
ir, Guðmundur Ólafsson, Hanna
María Karlsdóttir, Harald G. Har-
alds, Helga Braga Jónsdóttir, Jakob
Þór Einarsson, Kjartan Ragnarsson,
Ragnheiður Arnardóttir, Sigrún
Edda Björnsdóttir, Sigurður Karls-
son, Soffía Jakobsdóttir og Theodór
Júlíusson.
Hljóðfæraleikarar: Björn Thorodd-
sen, Eyþór Gunnarsson, Friðrik
Karlsson, Gunnlaugur Briem, Jó-
hann Ásmundsson, Sigurður Flosa-
son og Stefán S. Stefánsson.
Fvumsýning laugard. 29. desemberkl. 20, uppselt
2. sýning 30. des. kl. 20, grá kortgilda, uppselt
3. sýning miðvikud 2.jan., rauð kortgilda
4. sýningfostud. 4.jan., blákortgilda
5. sýning sunnudag ó.jan., gul kort gilda.
Miðasalan opin daglega frá kl. 14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Auk þess er tekið á móti pöntunum alla virka daga
frá kl. 10-12 í síma 680680. Greiðslukortaþjónusta.
Gledilegjól!
<BlO
LEIKFÉLAG WmM1
REYKJAVÍKUR