Morgunblaðið - 23.12.1990, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1990
4
KVIKMYNDAHUSIN
um jólin
Úr jólamynd Sljörnubíós, Á mörkum lífs og dauða.
STJORNUBIO
Á mörkunum
og Vetrarfólkið
Jolamynd Stjörnubíós fjallar um
efni sem mjög er vinsælt þessa stund-
ina í bandarískum bíómyndum en það
er lífið eftir dauðann. Á mörkum
lífs og dauða („Flatliners") er ein
af fjölmörgum myndum nú við lok
áratugarinssem gefur sérað dauðinn
sé ekki endalok alls. Áhuginn á
slíkum myndum virðist sífellt vera
að aukast, Á mörkum lífs og dauða
var tíunda mest sótta bíómyndin í
Bandaríkjunum í sumar, Draugar
(,,Ghost“), sem einnig gerir út á
framhaldslífið, var vinsælasta mynd-
in á árinu vestra.
„Á mörkum“ segir frá afleiðingun-
um sem það hefur fyrir hóp lækna-
nema að gera tilraunir á dauðanum.
Þeir vilja vita hvað tekur við eftir
dauðann og drepa hvert annað lækn-
isfræðilega, bíða í nokkrar mínútur
og vekja viðkomandi aftur til lífsins
og hann segir síðan frá reynslu sinni.
Er óhætt að segja að tilraunir þessar
dragi talsverðan dilk á eftir sér. Hjá
tveimur læknanemunum tengist
áhuginn á dauðanum atburðum sem
þau lifðu í æsku og þeir atburðir
taka að sækja á þau af fullum krafti.
Með aðalhlutverkin f myndinni
fara margir af efnilegustu leikurum
yngri kynslóðarinnar í Bandaríkjun-
um þ. á m. Julia Roberts, sem sló
svo eftirminnilega í gegn í Stórkost-
legri stúlku („Pretty Woman“). Kief-
er Sutherland fer með stærsta hlut-
verkið en hann er sonur Donalds
Sutherlands og hefur alla burði til
að verða föðurbetrungur á hvíta
tjaldinu. Leikstjóri er Joel Schu-
macher sem gert hefur mjög fram-
bærilegar unglingamyndir að undan-
förnu („St. Elmo’s Fire“, „The Lost
Boys“).
Framleiðandi Á mörkum lífs og
dauða er leikarinn Michael Douglas
en hann keypti handrit hins óþekkta
Peter Filardi vorið 1989 fyrir óheyri-
lega fjárhæð miðað við að hér var
um nýgræðing í handritagerð að
ræða.
Leikstjórinn Schumacher hóf þeg-
ar að kynna sér viðfangsefni myndar-
innar, dauðann, las bækur um fólk
sem staðið hafði við dauðans dyr.
Flestar voru lýsingarnar ákaflega
fallegar en það „sem sjaldnar kemur
fram er að sumar Iýsa hryllilegri
reynslu fólks sem reynt hefur að
svipta sig lífi,“ segir Schumacher.
„Ef þú leikur þér við dauðann, leikur
dauðinn sér að þér.“
Önnur jólamynd Stjörnubíós er
Vetrarfólkið, „Winter People“, með
Kurt Russell og Kelly McGillis. Leik-
stjóri er Ted Kotcheff en myndin
gerist á fjórða áratugnum og segir
frá.deilum tveggja flölskyldna.
REGNBOGINN
A AFSKEKKTU
VERKSTÆÐI
íslenska bíómyndin Ryð eftir
Lárus Ymi Óskarsson er jólamynd
Regnbpgans í ár. Handritshöfund-
ur er Ólafur Haukur Símonarson
en myndin er byggð á leikriti
hans, Bílaverkstæði Badda, og
framleiðandi er Siguijón Sig-
hvatsspn. Með aðalhlutverkin fara
Egill Ólafsson, Bessi Bjarnason,
Sigurður Siguijónsson, Christine
Carr og Stefán Jonsson.
Sagan gerist að mestu á af-
skekktu verkstæði uppi í sveit þar
sem Baddi, eigandi staðarins,
ræður ríkjum en myndin segir frá
fólki hans og ógeðfelldu sakamáli
úr fortíðinni sem kemur uppá yfir-
borðið þegar óvæntan gest_ ber
að garði. Umgjörð leikrits Ólafs
Hauks hentaði vel ódýrri íslenskri
bíómynd að mati Lárusar Ýmis
en Ryð er fyrsta íslenska bíó-
myndin hans. Hann hefur hlotið
lofsamlega dóma fyrir myndirnar
Annar dans og Frosni hiébarðinn,
sem hann gerði í Svíþjóð þar sem
hann stundaði kvikmyndanám.
Ryð er einnig fyrsta bíómyndin
sem Ólafur Haukur skrifar hand-
rit að og fyrsta íslenska bíómynd-
in sem Siguijón Sighvatsson kvik-
myndaframleiðandi í Los Angeles
framleiðir.
Bessi Bjarnason leikur verk-
stæðiseigandann Badda, sem man
betri tíma áður en þjóðvegurinn
var lagður lengra í burtu; Egill
Ólafsson er Pétur, sem kemur
heim frá S-Ameríku en þangað
flúði hann úr fangelsi á Islandi.
Hann kemur á verkstæðið þar sem
glæpur var drýgður forðum og
virðist vilja e.k. uppgjör; Sigurður
Siguijónsson leikur Ragga, lærl-
ing á verkstæðinu sem á í ástar-
sambandi við Sissu, dóttur Badda,
en þegar Pétur kemur til sögunn-
ar finnst honum sambandinu ógn-
að; Christine Carr leikur Sissu og
Stefán Jónsson leikur Haffa en
þau eru börn Badda.
Úr jólamynd Regnbogans, Ryð.
Upptökur myndarinnar fóru að
mestu fram að Kalmanstjörn í
Hafnahreppi og í myndveri á
Korpúlfsstöðum haustið 1989.
Karl Júlíusson gerði sviðsmynd-
ina. „Það var alveg lygilegt hvað
honum tókst að ná saman af
drasli og raða því saman svo úr
yrði bílaverkstæði," segir Bessi.
Tónlistina samdi Wim Mertens,
sem gerði tónlistina við mynd
breska leikstjórans Peter
Grenaway, „The Belly of the
Architeet“. „Að mínu viti erþarna
á ferðinni snillingur og nafn hans
verður okkur tamt í munni eftir
ýhæsta lagi tíu ár,“ segir Lárus
Ýmir. Kvikmyndatökumaður var
Svíinn Göran Nilsson, sem tekið
hefur allar myndir leikstjórans,
en eftirvinnsla myndarinnar fór
fram í Þýskalandi.
Þegar leikritið var fært yfir á
kvikmynd var ákveðið að um-
skrifa söguná töluvert og sagt
hefur verið að handritið hafi verið
skrifað níu sinnum áður en menn
urðu ánægðir. Efnístök eru með
allt öðrum hætti en í leikhúsinu.
„Þeir, sem sáu leikritið, fá í kvik-
myndinni sitthvað nýtt að sjá,“
segir Ólafur Haukur.
Ónnur jólamynd Regnbogans
er Ævintýri Heiðu halda áfram
(„Courage Mountain") með
Charlie Sheen en myndin segir frá
hættum þeim sem Heiða lendir í
í fyrri heimsstyijöldinni.
HASKOLABIO
Tryllt ást,
Hinrik og skjaldbökur
Velgengni Siguijóns Sighvats-
sonar kvikmyndaframleiðanda í
Los Angeles er ævintýri líkust og
náði hámarki sl. vor þegar Tryllt
ást („Wild at Heart“) eftir David
Lynch hreppti Gullpálmann í Can-
nes en Siguijón er einn af framleið-
endum myndárinnar og fyrirtæki
hans, Propaganda Films. Tryllt ást
er aðaijðíamynd Háskólabíós í ár.
Siguijón er einnig framleiðandi
íslensku myndarinnar Ryð, sem
frumsýnd verður í Regnboganum
um jólin, svo segja má að hann
setji mjög svip sinn á bíóúrvalið
þessi jól. Tryllt í ást er fimmta
mynd Lynch en með aðalhlutverkin
í henni fara Laura Dern, Nicholas
Cage, Harry Dean Stanton, Willem
Dafoe, Isabella Rossellini og Diane
Ladd.
Lynch sýndi í Bláu flaueli („Blue
Velvet“) að hann hefur næmt auga
fyrir hinu súrrealíska í lævi
blöndnu andrúmslofti úrkynjunar
og ofbeldis í afar sérstæðum hálf-
kómískum stíl. Um Tryllta ást
sagði hann á sínum tíma: „Þetta
er vegamynd, svolítið furðuleg
sakamálasaga, ástarsaga og ívið
óþægilegt sálfræðidrama líka.“
Mest er hún um Sailor Ripley sem
er nýkominn úr fangelsi þegar
hann hittir Lulu Fortune. Mamma
Lulu viil ekki að hún sé utan í
Sailor en „þar liggur meginvand-
inn,“ sagði Lynch. Mamman sendir
tvo elskhuga sína á eftir ástarfugl-
unum til að binda enda á þeirra
rómantík.
Önnur jólamynd Háskólabíós er
Hinrik V („Henry V“) eftir Kenn-
eth Branagh með mörgum frægum
leikurum bresku leikhúsanna í að-
alhlutverkum þ. á m. Paul Sco-
field, Derek Jacobi og Ian Holm.
Branagh, sem nefndur hefur verið
hugsanlegur arftaki Laurence
Oliviers í breska leikhúslífinu, leit-
aðist við því að gera Shakespeare
aðlaðandi fyrir það fólk sem yfir-
Úr jólamynd Háskólabíós, Tryllt ást.
leitt þætti hann fráhrindandi.
„Ég veit að við fáum ekki jafn-
mikla aðsókn og Batman,“ sagði
hanh, „en ég vil að fólk skynji að
Hinrik V er sprottinn úr sömu ver-
öld og Batman, að hann er líka frá
1989.“ Og seinna sagði Branagh:
„Fyrir mér er Hinrik V bráðlifandi
og skemmtilegur og þannig vildi
ég matreiða hann oní alla aðra.“
Þriðja jólamynd Háskólabíós er
Skjaldbökurnar („Teenage Mut-
ant Ninja Turtles"), sem notið hef-
ur gríðarlegra vinsælda í heimal-
andi sínu, Bandaríkjunum. Myndin
er byggð á teiknimyndasögum um
skjaldbökur sem lenda í efnaúr-
gangi og breytast í hálfmennskar
sjaldbökur er læra ninjahernað hjá
rottunni Splinter.