Morgunblaðið - 23.12.1990, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1990
Faðir okkar,
JÓHANIMES JÓNSSON
frá Flóðatanga,
lést 21. desember á dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.
Börn hins látna.
t
Ástkær móðir okkar,
KRISTÍN JAKOBÍNA SIGURÐARDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
andaðist á Borgarspítalanum 19. desember.
Sveinbjörg Kristinsdóttir,
Guðrún Anna Thorlacius.
t
Faðir okkar,
GUNNLAUGUR B. BJÖRNSSON,
Strandaseli 9,
lést föstudaginn 21. desember.
Sigurður Gunnlaugsson,
Björn Gunnlaugsson,
Gunnlaugur Gunnlaugsson,
jvar Gunnlaugsson,
Ásgeir Gunnlaugsson.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARÍA SIGURÐARDÓTTIR,
Sólheimum 44,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu þann 18. desember, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þann 28. desember kl. 15.00.
Magnús Sigurðsson,
Kristín Magnúsdóttir, Garðar Guðmundsson,
Sigurður Magnússon,
Gunnar Rúnar Magnússon, Jónína Sigurbjörnsdóttir,
Birna Jóna Magnúsdóttir, Jakob Þorsteinsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINN SVEINSSON,
Gyðufelli 2,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum þann 19. þessa mánaðar. Útför fer fram
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. desember kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á Krabbameins-
félag (slands.
Pálhanna Magnúsdóttir,
Jóhanna Sveinsdóttir, Böðvar Hermannsson,
Sveinn Sveinsson, Súsanna O. Skaftadóttir,
Katrín Sveinsdóttir, Rafael Bruna,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginmaður minn,
ÁGÚST H. KRISTJÁNSSON
fyrrverandi lögregluþjónn,
Akralandi 3,
verður járðsunginn frá Kristskirkju Landakoti fimmtudaginn 27.
desember kl. 13.30.
Jóna Guðrún Jónsdóttir.
t
ÁRNI SÆMUNDSSON,
Bala,
Þykkvabæ,
verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju, Þykkvabæ, 28. desember
kl. 14.00.
Bílferð verður frá BSI kl. 11.30 sama dag.
Börn og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ARNBERGURSTEFÁNSSON,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugardaginn 29. desem-
ber kl. 14.00.
Hulda Arnbergsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson,
Elsa Arnbergsdóttir, Gísli Sumarliðason
og barnabörn.
Díana Asmundsdóttír,
Ytri-Múla - Kveðja
Aðeins öfrá kveðjuorð til að
minnast látinnar vinkonu minnar
og félagssystur, Díönu Ásmunds-
dóttur, Ytri-Múla á Barðaströnd,
sem lést á Landspítalanum þann
4. desember 1990.
Hennar er sárt saknað úr hópn-
um. Maður á svo erfitt með að
sætta sig við þegar svo snöggt er
klippt á þráðinn. Díana var fædd
10. ágúst 1942 og var því aðeins
48 ára gömul þegar hún féll frá.
Hún sem átti svo margt eftir að
gera. Og hún var ein af þeim örfáu
sem ekki tóku þátt í lífsgæðakapp-
hlaupinu. Hún sem vansvo ánægð
með það sem gert var fyrir hana.
Hún var svo nægjusöm og hún var
ávallt tilbúin að hjálpa öðrum, alltaf
svo kát og hress.
Hún var gjaldkeri í félaginu okk-
ar og sinnti því sem öðrurp hlutum
af stakri reglusemi og prýði.
Öllum þótti gott að koma að
Ytri-Múla. Þar kom mikið af vinum
og kunningjum sem alltaf var tekið
vel á móti, hvernig sem á stóð, af
hlýju og myndarskap.
Hún var matráðskona í skólanum
okkar og sakna börnin hennar, eins
og best verður lýst, þegar ein lítil
stúlka úr skólanum sagði: „Hún
sem var besta manneskjan í skólan-
um.“
Díana giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum, Einari Sigurbrands-
syni, árið 1960 og eignuðust þau 5
börn. Þijú þau elstu eru búin að
stofna heimili, en tvö yngstu em
heima, sú yngsta aðeins ellefu ára.
Díana var listfeng við svo margt
sem hún gerði, hún hafði yndi af
að sauma og nutu bamabörnin, sem
orðin eru fjögur, þess vel. Díana
var alla tíð svo kát og hress og
þess vegna var maður ekki tilbúinn
þessu sem var svo snöggt. En minn-
ingin sem eftir lifir er ljúf og björt.
Elsku Einari, börnunum og
þeirra fjölskyldum, móður, bróður
og tengdamóður, sendum við inni-
legar samúðarkveðjur og biðjum
góðan Guð að veita þeim styrk. Við
geymum minningu um góða félags-
konu með söknuði og þakklæti fyr-
ir allt.
Fari hún í friði -og friður Guðs
blessi hana.
Kvenfélagskonur í Kvenfé-
laginu Neista á Barðaströnd.
Salbjörg’ I. Jónatans-
dóttír - Kveðjuorð
Fædd 10. ágúst 1914
Dáin 11. nóvember 1990
Ferð þín er hafin,
fjarlægjast heimatún.
Nu fylgir þú vötnum
sem falla til nýrra staða
og sjónhringar nýir
sindra þér fyrir augum.
(Hannes Pétursson)
Hún Bogga amma mín var ein-
stök kona. Hún var ótrúlega vilja-
sterk, kjörkuð og sjálfstæð. Nú
síðustu mánuði barðist hún við sjúk-
dóm sem að lokum lagði hana að
velli. Þennan tíma sýndi hún öllum
sem umgengust hana hvers mann-
legur vilji er megnugur. Hún ákvað
að vera sem minnst á spítalanum
og lifa sínu venjulega lífi eins lengi
og hægt væri. Þetta tókst henni
með hjálp sambýlismanns síns og
barna.
Amma mín var manneskja sem
leit alltaf fram á veginn, hnarreist
og huguð. Nú er hún lögð af stað
í langt ferðalag og ég veit að hún
er hvorki hrædd eða buguð, heldur
viss í sinni trú.
Ég kveð ömmu mína með sökn-
uði og er þakklát fyrir að hafa feng-
ið að þekkja hana.
Og þegar þú hefur náð ævitindinum,
þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna.
Birtíng' afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
aj-stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðuni
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Blömastofa
Friöfinns
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreýtingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
m
BL0M
SEGJA ALIT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
blórmud
Opíð alla daga frá kl. 9-22.
Sfmi 689070.
LEGSTEINAR
GRANÍT - MARMARI
Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður,
pósthólf 93, símar 54034 og 652707.
0g þegar jörðin krefst líkama þíns,
muntu dansa í fyrsta 'sinni.
(Kahlil Gibran.)
Guðmunda Pétursdóttir
Fargjöld
S VR hækka
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
staðfesti á fundi sínum á fimmtu-
dag þá samþykkt sljórnar Strætis-
vagna Reykjavíkur, að hækka far-
gjöld fyrirtækisins um 9,2% að
meðaltali um áramót.
Borgarfulltrúar minnihlutans
gagnrýndu þessi áform um hækkun
harðlega og töldu nýlega hækkun
nægja. Jafnframt gengi hækkunin
gegn markmiðum þjóðarsáttar.
Kristín Á. Ólafsdóttir, Nýjum vett-
vangi, lagði jafnframt fram tillögu
um að unglingar færu ekki að greiða
sömu fargjöld og fullorðnir fyrr en
við 16 ára aldur, í stað þess að gera
það 12 ára eins og nú er.
Sveinn Andri Sveinsson, formaður
stjórnar SVR, sagði að út frá hags-
munum fyrirtækisins væri þörf á
mun meiri hækkun. Hann sagði að
fargjöldin hefðu ekki verið hækkuð
í 15 mánuði, að þvi undanskildu að
hækka hefði þurft þau í haust vegna
olíuverðshækkana, og SVR hefði lagt
meira fram til þjóðarsáttarinnai- en
flestir aðrir aðilar í þjóðfélaginu.
Sveinn lýsti jafnframt andstöðu við
hugmyndir um að breyta aldursvið-
miðuninni.
Borgarstjórn samþykkti gjald-
skrárhækkunina með 10 atkvæðum
sjálfstæðismanna gegn 5 atkvæðum
borgarfulltrúa minnihlutans og felldi
tillögu Nýs vettvangs.
Leiðrétting
Mishermt var á íþróttasíðunni í
gær að Ómar Torfason hefði verið
ráðinn þjálfari Grindvíkinga í knatt-
spyrnu. Ómar leikur með liðinu en
þjálfari liðsins er Bjarni Jóhannes-
son. Blaðið biðst velvirðingar á
þessu.