Morgunblaðið - 10.01.1991, Page 10

Morgunblaðið - 10.01.1991, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1991 GIMLIGIMLI Þorsgata26 2 hæd Simi 25099 Þorsgata 26 2 hæd Simi 25099 ^ VANTAR 4RA HERB. og 5 Höfum fjölmarga trausta kaupendur að 4ra herb. íbúðum í Reykjavík og Kópavogi. Ef þú ert í söluhugleiðingum þá hafðu samband. Skoðum og verðmetum samdægurs. KAUPENDUR - KAUPENDUR Komið við á skrifstofu okkar og fáið ítarlegar upplýs- ingar hjá okkur; tölvuútskrift með öllum upplýsingum á augabragði. E> 25099 Einbýli - raðhús ÞINGÁS - EINBYLI - TVÖF. BÍLSK. Glæsil. 152 fm fullb. einb. á einni hæð. Tvöf. 50 fm bílsk. Vandaðar innr. Glæsilegurgarður. Eign í sérfl. SMYRLAHRAUN - HF. - RAÐHÚS + BÍLSK. Ca 150 fm raðhús á tveimur hæðum. 4 svefnherb. Ákv. sala. Parket á herb. MOSFELLSBÆR PARH.- NÝTT LÁN Til sölu ca 120 fm parh. Áhv. nýtt húsn- lán. Mjög ákv. sala. BÆJARGIL - RAÐH SKIPTI MÖGUL. Glæsil. ca 180 fm raðh. m. innb. bílsk Skilast fullb. utan, fokh. innan. Mögul. að taka minni íb. uppí. Traustur byggaðili. Verð 8,1-8,3 millj. 5-7 herb. íbúðir ALFHOLT - HF. - ÁHV. 4,6 MILU. Stórgl. 120 fm íb. í glæsil. nýju litlu fjolbhúsí. Afh. tilb. u. trév. að innan með fullb. sameign. Áhv. lán við húsnstjórn ca 4,6 millj. Verð 7,8 millj. FLYÐRUGRANDI - LAUS STRAX Góð 3ja herb. íb. á eftirsóttufn stað f nýl. fjölb. Sauna í sameign. Verð 6,0 millj. ÁLFTAMÝRI - LAUS Góð ca 80 fm ib. á 4. hæð í góðu fjölbh. Lyklar á skrifst. HRÍSMÓAR - LYFTA . Glæsil. 3ja herb. íb. á 2. hæð. Nýjar innr. Sérgeymsla og þvottahús. Húsvörður. Ákv. sala. SÓLHEIMAR - LAUS Falleg mikið endurn. 93 fm íb. á 1. hæð. Nýl. eldh. og bað. Húsvörður. Brunabóta- mat 6,8 millj. Lyklar á skrifst. KIRKJUTEIGUR Ca 120 fm sérh. sem er 3 svefnh. og 2 stofur ásamt 3 herb. og snyrtingu í risi þar sem mögul. væri að útbúa 2ja herb. íb. Eign í góðu standi. Mjög ákv. sala. 4ra herb. íbúðir NEÐRA-BREIÐHOLT Gullfalleg 4ra herb. íb. á 2. hæð í vönd- uðu fjölbh. Allt nýviðg. utan og málað. Ákv. sala. Verð 6,5 millj. FLÚÐASEL - 4RA Falleg 4ra herb. íb. á tveimur hæðum. Suðursv. Mjög ákv. sala. Eign í góðu standi. Parket. Hús nýviðgert að utan. Verð 5,8 millj. HÓLAR - 4RA HAGSTÆÐ LÁN Falleg 4ra-5 herb. íb. á 1. hæð með sérgarði. Hagst. áhv. lán 3,3 millj. Laus 1. apríl. Verð 6,5 millj. KEILUGRANDI - 4RA Mjög falleg 4ra herb. íb. í nýl. fjölbhósi ásamt stæði í bilskýli. Glæsil. útsýni. Suð- ursv. Glæsíl. eign. TEIGAR - LAUS Falleg nýstands. 4ra herb. íb. á 1. hæð í steyptu þríbhúsi. Laus strax. Verð 6,9 millj. ' MARIUBAKKI - LAUS FUÓTLEGA Glæsil. 3ja herb. íb. á 1. hæð. ásamt aukaherb í kj. með aðg. að snyrt. íb. er öll nýstandsett. Park- et. Ákv. sala. 2ja herb. íbúðir HVERAFOLD - ÁHV. 4,5 MILU. Ný 68 fm íb. á 2. hæð í glæsil. fjölbh. Sérþvottah. Glæsil. útsýni. Ahv. 4,5 millj. v/húsnstj. Sameign fullb. utan sem innan. Verð 6,6 millj. GEITLAND Gullfalleg 53 fm 2ja herb. íb. á jarðh. í fallegu fjölbh. Húsið nýstands. að utan. Lítill sérgarður. ÆSUFELL - LAUS Gullfalleg 2ja herb. íb. á 4. hæð í lyftuh. Parket. Suðursv. Laus strax. Áhv. 1600 þús. v/veðd. DIGRANESVEGUR - GLÆSILEGT ÚTSÝNI Mjög falleg 2ja herb. íb. á 1. hæð í nýl. fjórbh. Parket. Suðursv. Glæsil. útsýni. Fallegur garður. Áhv. 1500 þús. v./veðd. Verð 5,2 millj. FROSTAFOLD - 2JA ÁHV. 3,8 MILU. Ca 80 fm óvenju rúmg. 2ja herb. fb. á neðri hæð í tvíbh. Vandað eldh. Sérinng. Áhv. 3,8 millj. v.húsnstj. Verð 6,5 millj. NOKKVAVOGUR Góð 60 fm nettó 2ja herb. íb. í kj. Fall- egur garður. Endurn. gler. Laus strax. Verð 4,1 millj. VANTAR 2JA HERB. Á SÖLUSKRÁ Vegna mikillar sölu undanfarið í 2ja herb. íb. vantar okkur tilfinnanlega 2ja herb. íb. á söluskrá okkar. Fjölmargir kaupendur. JÖKLAFOLD - BILSK. Glæsil. 2ja herb. íb. á 3. hæð ásamt bílsk. Vandaöar innr. Laus strax. Áhv. veðdeild 2,3 millj. Verð 6,5 millj. VESTURBERG - LAUS Falleg 2ja herb. íb. á 2. hæð í lyftuh. Eign í toppstandi. Laus strax. Lyklar á skrifst. Verð 4,5 millj. 3ja herb. fbúðir HVERAFOLD - 3JA ÁHV. 4,5 MILLJ. Ný rómg. 3ja herb. íb. á 1. hæð í glæsil. fullfrág. fjölbh. Áhv. 4,5 millj. v/veðd. Verð 7,8 millj. Iðnaðarhúsnæði LANGHOLTSVEGUR - IÐNAÐARHÚSNÆÐI Til sölu mjög gott 118 fm iðnaðar- eða atvhúsn. á 1. hæð. Allt nýstands. Lofthæð 2,70 m. Ákv. sala. Verð 5,0 millj. Árni Stefánsson, viðskiptafr. Á slóðum Ingi- mundar gamla __________Bækur______________ Steinar J. Lúðvíksson Vatnsdalsá, Vatnsdalur-Þing. Margir höfundar. Bókaútgáfan Dyngja 1990. A undanförnum árum hafa komið út nokkrar bækur um þekktar íslenskar laxveiðiár. Fyrsta bókin þessarar tegundar var bók Jakobs heitins Hafstein um Laxá í Aðaldal sem kom út árið 1965 en síðan hafa m.a. verið skrifaðar bækur um Elliðaárnar, Norðurá, Sogið, Hvítá, Grímsá og Laxá á Asum. Nú hefur enn ein bók bæst í þennan flokk bóka og fjallar hún um Vatnsdalsá. Mun Gísli Pálsson á Hofi í Vatnsdal hafa haft forgöngu um að bókin var unnin og skrifar hann formála hennar en höfundar bókarinnar eru nokkrir og í þein-a hópi eru bæði heimamenn sem þekkja um- hverfi árinnar vel og nokkrir kunn- ir laxveiðimenn. Allt frá því menn fóru að stunda stangaveiðar að ráði hefur Vatns- dalsá verið í hópi eftirsóttustu lax- veiðiánna. Veiðimenn hafa bundist henni hálfgerðum tryggðarbönd- um og fara þangað ár eftir ár og láta það lítt á sig fá þótt fengur hafi verið misjafn en veiði í ánni hefur verið mjög sveiflukennd. Öllum veiðimönnum sem stunda veiðar í Vatnsdalsá ber saman um Y% ©621600 HUSAKAUP - Borgartúni 29 Miðstræti: Vinaleg 2ja herb. risíb. í virðulegu og mik- ið uppgerðu húsi. Góðir kvist- ir. Áhv. 500 þús. veðdeild. Verð 3.950 þús. Þinghólsbraut - Kóp. Góð 2ja-3ja herb. íb. á 1. hæð í þríb. Ný eldhúsinnr. hvítt/beyki. Parket. Bílskrétt- ur. Skuldlaus eign. Verð 6,0 millj. Álfhólsvegur - Kóp. Góð 3ja herb. íb. á 2. hæð. Parket. Ný málað. Fallegt út- sýni. (b. er til afh. nú þegar. Bílsk. 20 fm. Áhv. 1400 þús. veðdeild. Verð 6 millj. Skúlagata. góð 3ja herb. íb. 63 fm. Nýl. gólfefni. Ný- uppg. sameign. Skuldlaus. Verð 4,5 millj. Garðabær: Mjög rúmg. 3ja-4ra herb. íb. á eftirsóttum stað. íb. er á jarðhæð með sér- inng. og hægt er að ganga úr stofu út í sér- garð. Áhv. 4350 þús. veðdeild. (3,5% vext- ir/40 ár.) Verð 7,9 millj. Hraunbær: Góð 95 fm 4ra herb. íb. á 3. hæð. Rúmg. svefnherb. Nýl. teppi. Nýtt gler. Suðursv. Húseign í góðu standi. Áhv. 2 millj. 150 þús. veðd. Verð 6,9 millj. Flúðasel - laus. Góð 4ra herb. íb. á 1. hæð auk stæðis í bílgeymslu. Snyrtil. sameign. og húseign í góðu standi. Áhv. 430 þús. veðd. Verð 7 millj. Vesturbær 4ra herb. íb. á 1. hæð í litlu fjölbh. Parket. Skuldlaus. Verð 7,3 millj. Ragnar Tómasson hdl., Brynjar Harðarson viðskfr., Guðrún Árnad. viðskfr. að áin sé skemmtileg og umhverfi hennar fallegt enda er það fleirum en Ingimundi gamla sem þykir Vatnsdalur ein fegursta sveit á íslandi. Það sem án efa dregur marga veiðímenn að ánni og gerir hana eftirsóttari en ella væri er sú staðreynd að ár hvert veiðast þar sannkallaðir stórlaxar — laxar sem alla veiðimenn dreymir um að glíma við, hvort sem þeir nást á land eða ekki. Þótt áin sjálf sé kjarni þessarar nýútkomnu _ bókar spannar hún víðara svið. í henni er saga dalsins rakin að nokkru, allt frá land- námstíð, fjallac) er um sögu veiða í ánni, um einstaka leigutaka og þar er að finna greinargóða skrá um jarðir sem liggja að vatna- svæði Vatnsdalsár og ábúendur þeirra. Að auki eru töflur yfir veiði síðustu ára og kort af vatnasvæð- inu. Meginefni bókarinnar er þó Iýs- ing á vatnasvæðinu og veiðistöð- um. Þar eru kvaddir til leiðsagnar menn sem stundað hafa veiðar í ánni í lengri eða skemmri tíma og gjörþekkja hana vafalaust. Lýsing einstakra veiðistaða er mjög mi- sjöfn bæði hvað varðar lengd og gæði. Ef veiði á einstökum veiði- stöðum er borin saman við veiði- töflur í bókinni kemur glögglega fram að lýsendur gera ekki minna úr veiði en efni standa til. Sem dæmi um slíkt má nefna eftirfar- andi sem sagt er um veiðistað sem nefnist Efri-Laxasteinn: „Gjöfull veiðistaður. Ef gengið er hægt upp bakkann má sjá laxa liggja við útkant steinsins. Einnig er oftast fiskur úti í strengnum, rétt utan við steininn. Erfitt er að eiga við þennan stað, nema renna agni niður með steininum og að fiskinum við hann. Ef fiskur liggur við steininn, tekur hann mjög vel.“ Af þessari lýsingu að dæma teldi ókunnugur sjálfsagt að þarna fengist árlega hin ágætasta veiði en samkvæmt veiðitöflu í bókinni hafa veiðst þarna samtals 34 laxar síðustu fimm árin! Ekki er að efa að lýsing veiði- staða í bókinni getur komið þeim sem veiða í ánni að verulegum notum. Það er alkunn staðreynd í laxveiðinni að eftir því sem veiði- menn þekkja veiðistaði og veiðiár betur aukast líkur á að þeir setji í og veiði fiska. Þá eykur það mjög gildi þessara lýsinga að í bókinni eru fjölmargar ágætar ljósmyndir af veiðistöðunum. Gísli Pálsson Sem fyrr greinir eru höfundar bókarinnar margir. í því liggur í senn styrkleiki hennar og veik- leiki. Stílbrögð og textaframsetn- ing höfunda er mjög misjöfn, allt frá því að vera fræðileg til þess að vera það sem kalla mætti veiði- mannaspjall. Sá er þetta ritar er þeirrar skoðunar að betri árangur hefði fengist ef einn og sami mað- urinn hefði skrifað bókina og not- að þá sem þar koma við sögu sem heimildarmenn. Þar með hefði væntanlega fengist betri heildar- svipur á bókina og samræmdari lýsingar og frásagnir. Skemmtilegasti kafli bókarinn- ar er eftir Pál Ásgeir Tryggvason en hann lýsir veiði í Vatnsdalsá á árunum 1951-1961. í lýsingum hans kemur glögglega fram hversu mikil breyting hefur orðið á laxveiðum hérlendis á síðustu þremur áratugum. Sá tími er liðinn að menn gátu stundað veiðarnar í sæmilegri rósemi og gengið að veiðistöðum sem ekki hafa verið „barðir“ frá morgni til kvölds allt veiðitímabilið. Lögmál um fram- boð og eftirspurn hefur átt sinn þátt í því að breyta yfirbragði veiðiskaparins og gera hann að hálfgerðu kapphlaupi sem getur reyndar orðið svo mikið að menn njóta alls ekki þess sem þeir eru m.a. að sækjast eftir. Það er fengur að bókinni um Vatnsdalsá. Og þá fyrst og fremst fyrir þá sem stunda eða ætla að stunda þar veiðar. Þetta er vönduð bók sem mikið hefur verið lagt í, m.a. með litprentun. Sjálfur hefði ég þó kosið betri heildarsvip á bókinni svo sem með meiri sam- fléttun staðarlýsinga . og veiði- sagna. Með öðrum orðum að fetað hefði verið meira í þau fótspor sem Jakob heitinn Hafstein fór í bók sinni um Laxá í Aðaldal. Þá hefði bókin orðið enn meira aðlaðandi fyrir þá sem lítt eða ekkert þekkja til árinnar. Verð frá 57.900,- kr. SMrTH&NORLAND NÓATÚNI4-SÍMI 28300

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.