Morgunblaðið - 10.01.1991, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1991
41
félk í
fréttum
Hér eru samankomnir þeir nýju Einherjar sem sáu sér fært að mæta til árssamkundu klúbbsins og taka
við verðlaunum sínum. ______
GOLF
35 fóru holu í höggi
Einheijaklúbburinn heitir
merkilegur félagsskapur sem
er skipaður þeim kylfingum hér-
lendum sem farið hafa holu í höggi
einu sinni eða oftar á golfferli
sínum. Þetta er sjaldgæft mjög
og flestir afreka þetta aðeins einu
sinni á ævinni. Flestir raunar aldr-
ei. Formaður Einheija er hins veg-
ar maður sem farið hefur
holu í höggi nær árlega
siðustu árin, Kjartan L.
Pálsson, en lét það þó eiga
sig árið 1990. Hópurþessi
hittist ár hvert til þess að
heiðra nýja félaga og var
hin árlega samkunda fyrir
skömmu, en þar voru þeir
35 kylfingar sem fóru holu
í höggi 1990 boðnir vel-
komnir. Þess má geta til
gamans, að í Bandaríkjun-
um öllum fara að jafnaði
35.000 manns holu í höggi
á ári og má því sjá að
miðað við höfðatölu eru
landsmenn all seigir í
þessari list.
Þess má geta, að fýrir-
tækið Vangur gefur ár-
lega verðlaun til nýrra
Einheija sem fá að uaki
veglegt viðurkenningar-
skjal.
BIKAR
Valur
heiðr-
aður
Itilefni af vígslu íþrótta-
hússin á Sauðaárkröki
á sínum tíma gaf UMFÍ
veglegan bikar sem skyldi
veittur afreksmanni í
íþróttum á vegum Tinda-
stóls. Bikarinn var veittur
í þriðja sinn fyrir skömmu
og hann hlaut körfuknatt-
leiksmaðurinn Valur Ingi-
mundarson fyrir frábæran
árangur með körfuknatt-
leiksliði Tindastóls.
Þetta er annað árið í röð
sem Valur hlýtur þennan
bikar,. en í fyrsta sinn sem
hann var veittur hlaut hann
Eyjólfur Svemsson knatt-
spyrnu- og körfuknatt-
leiksmaður sem nú leikur
knattspyrnu sem atvinnu-
maður hjá Stuttgart i
Þýskalandi.
Valur Inginiundar-
son á fullri ferð.
KNATTSPYRNA
Platini leitaði að
tönnum Battistons
Michel Platini, sá frægi franski
knattspyrnumaður á árum
áður og núverandi landsliðsþjálfari
Frakka, var viðstaddur landsleik
Spánveija og Albana í Sevilla fyr-
ir skömmu, en báðar þjóðirnar
leika með Frökkum í riðli i undan-
keppni HM-keppninnar. Var Plat-
ini að njósna um þessa væntanlegu
mótheija franska liðsins. Er blaða-
menn svifu á hann að lokinni 9-0
burstun Albana og spurðu hvernig
honum hefði litist á liðin, sagði
Platini að hann hefði ekki komið
til Sevilla til að horfa á fótbolta,
heldur til að leita að tönnunum
hans Patricks Battistons vinar
síns! Þetta tilsvar vakti mikla at-
hygli og talsverða gremju í Þýska-
landi, því þetta var væn sneið til
þýska knattspyrnulandsliðsins og
sýnir að nærri níu ár hafa ekki
grætt það sár sem margir fran-
skir knattspyrnumenn og aðdá-
endur fengu 27. júli 1982.
Það var örlagaríkur dagur fyrir
franska knattspyrnu. Frakkar
höfðu frábæru landsliði á að skipa
og þennan dag mættu þeir Vestur
Þjóðveijum í undanúrslitum í
HM-keppninni, einmitt á leikvang-
inum í Sevilla. Þegar örskammt
var til leiksloka voru Fransmenn
með sigurinn vísann. Þéir leiddu
3-1, en með ótrúlegri seiglu tókst
Þjóðveijum að jafna og knýja síðan
fram sigur í vítaspyrnukeppni.
Umdeilt og eftirminnilegt atvik
átti sér stað í leiknum, þegar Har-
ald Schumacher markvörður Þjóð-
veija hljóp að því er virtist vísvit-
andi niður Patrick Battiston sem
var í dauðafæri við þýska markið.
Battiston rotaðist og missti nokkr-
ar tennur að auki, en Schumaeher
fékk ekki einu sinni tiltal, hvað
þá að dæmd væri á hann víta-
spyrna, en flestir voru samdóma
um að rauða spjaldið hefði ekki
verið of harður dómur miðað við
hversu fólskulegt brotið var. Við-
brögð Frakka við þessu voru að
vonum hörð og fuku mörg gífur-
yrðin, enda eru ekki beinlínis kær-
leikar á milli Frakka og íjóðveija.
Platini trylltist til dæmis gersam-
Iega við þetta tækifæri og urðu
margir landar hans til að taka
undir stóru orðin um almennan
tuddaskap og yfirgang Þjóðveija
og til að kóróna allt saman þá
þyrðu dómarar ekki að standa
uppi í hárinu á þeim.
Tilsvar Platini sýnir að þetta' -
er geymt en ekki gleymt. Það ólg-
ar enn undir niðri vegna þessa
máls og Fransmenn hafa margir
hveijir ekki sætt sig við það enn
að hafa gloprað þarna tækifærinu
á því að komast í sjálfan úrslita-
leikinn.
Michel Platini
Hin margverólaunaóa 4ra laga
ostakaka aó hætti Creola er á
boóstólum á Hard Rock Cafe.
Velkomin á Hard Rock Cafe
sími 689888