Morgunblaðið - 06.02.1991, Qupperneq 1
56 SIÐUR B
30. tbl. 79. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
llndii búiiiiigiir undir innrás
í Kúveit sagður á lokastigi
George Bush kveðst undir það búinn að fyrirskipa landhernum að láta til
skarar skríða - Sýrlenskir hermenn eiga í fyrsta sinn í átökum við íraksher
ísraelskar herþotur
gerðu í gær árásir á sjö
stöðvar palestínskra
skæruliða í suðurhluta
Líbanons. Að minnsta
kosti sjö skæruliðar biðu
bana og uni 25 særðust. Á
myndinni kannar ungur
skæruliði með vélbyssu
það sem eftir er af jeppa
félaga sinna eftir árásirn-
ar. A bak við hann eru
rústir skæruliðastöðvar.
Washington, Bonn, Ruweislied, Nikósíu, Riyadh, Brussei. Reuter, The Daiiy Telegraph.
HEIMILDARMENN innan breska hersins sögðu i gær að fjölþjóðaher-
inn við Persaflóa hefði hafið lokaundirbúning undir innrás í Kúveit
á landi og frá hafi. George Bush Bandaríkjaforseti kvaðst „andlega
undir það búinn“ að fyrirskipa slíka innrás eftir'að hafa tilkynnt að
tveir helstu hernaðarráðgjafar hans yrðu sendir til Saudi-Arabíu.
Sýrlenskir hermenn áttu í fyrsta sinn í gær í átökum við Iraka eftir
að íraskar hersveitir höfðu ráðist á tvær herstöðvar þeirra í Saudi-
Arabíu.
Bresku heimildarmennirnir sögðu
að fimm tundurduflaslæðarar færu
bráðlega í átt til Kúveits til að und-
irbúa innrás landgönguliða. A sama
tíma væru loftárásir bandamanna á
lýðveldisvörðinn, úrvalssveitir íraka,
farnar að bera verulegan árangur.
Ein af þremur herdeildum lýðveld-
isvarðarins hefði til að mynda misst
allt að 150 af 250-300 skriðdrekum
sínum.Þá hefði um þriðjungur helstu
brúa í Irak verið eyðilagður og marg-
ar til viðbótar hefðu orðið fyrir
skemmdum í árásunum..
George Bush kvaðst ætla að senda
Dick Cheney, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanria, og Colin Powell, for-
seta bandaríska herráðsins, til
Saudi-Arabíu síðar í vikunni. Hann
bætti við að þetta merkti ekki að
Jogvan Sundstein:
Vill ríkjasam-
band Færeyja
Islands og
Grænlands
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jargen
Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
JOGVAN Sundstein, sem var
lögmaður Færeyja 1988-1990,
álítur að hentugt væri fyrir
Færeyinga, Grænlendinga og
íslendinga að mynda eins kon-
ar sambandsríki. Þjóðirnar
stæðu þannig sterkar að vígi
í samskiptum við Evrópu-
bandalagið og umheiminn all-
an.
Sundstein er formaður Fólka-
flokksins og á sæti í nýrri ríkis-
stjórn jafnaðarmannsins Atla
Dams..Hann kynnti hugmyndir
sínar um sambandsríki í nýjasta
tölublaði ritsins Nordisk kontakt
sem Norðurlandaráð gefur út.
Lögmaðurinn fyrrverandi segist
telja að svo náin samvinna þjóð-
anna myndi hleypa auknum
kráfti í efnahagslíf þeirra allra.
„Besta leiðin fyrir vesturnor-
rænu þjóðirnar til að lifa af í
efnahagslegu, menningarlegu
og þjóðernislegu tilliti myndi
vera að hefja nánari samvinnu
á öllum sviðum,“ segir hann.
Sundstein nefnir ýmis atriði sem
þjóðirnar eigi sameiginleg og
geti orðið grundvöllur meira
samstarfs, m.a. auðug fiskimið,
kunnátta við fiskveiðar og jafn-
framt að sennilega séu náttúru-
auðæfi á hafsbotni í efnahags-
lögsögu þeirra.
innrás væri yfirvofandi. „Ég er þó
fullkomlega undir það búinn andlega
að taka slíka ákvörðun í samráði við
þessa menn,“ sagði hann.
íraskar hersveitir réðust í gær á
tvær herstöðvar Sýrlendinga og
leiddi það til fyrstu bardaga þeirra
við sýrlenska hermenn, að ségn
Ahmeds al-Robayans, talsmanns
hers Saudi-Arabíu. Bandarískir
landgönguliðar sögðu að írakar
hefðu lagt aðra stöðina undir sig en
Sýrlendingar hefðu hrint áhlaupi
þeirra á hina.
Flóttamenn, sem komið hafa til
Jórdaníu frá Kúveit, sögðu að eldar
hefðu logað dögum saman í olíu-
hreinsunarstöðvum í landinu eftir
loftárásir bandamanna. „Við sáum
eldinn og reykský. Það rigndi þennan
dag og regnið var svart af olíu,“
sagði einn þeirra.
Bandamenn hafa einnig eyðilagt
olíuhreinsunarstöðvar í írak og þar-
lend yfirvöld gripu .til þess ráðs í
gær að stöðva sölu á bensíni og olíu
til húshitunar.
Sjá fréttir á bls. 22-23.
neutei
Afstaða íslendinga til sjálfstæðis Litháens:
Sendiherra íslands í Moskvu
afhent mótmæli Sovétmanna
Ríkisstjómin sökuð um pólitíska hlutdrægni sem stríði gegn vinsamlegiun samskiptum
ÓLAFI Egilssyni, sendiherra ís-
lands í Sovétríkjunum, voru í
gær afhent mótmæli sovéskra
stjórnvalda vegna afskipta Is-
lendinga af sjálfstæðisbaráttu
Litháens. I yfirlýsingunni er
íslenska ríkisstjórnin sökuð um
pólitíska hlutdrægni sem sam-
rýmist ekki samskiptum land-
anna sem hafi þangað til nýlega
verið vinsamleg. Kemur þetta
fram í frásögn /feuíers-frétta-
stofunnar af fréttamannafundi
Vítalíjs Tsjúrkíns, talsmanns
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sem haldinn var í Moskvu í gær.
Tsjúrkín sagði á fréttamanna-
fundinum í gær að Sovétstjórnin
fordæmdi „yfirlýsingu íslands um
að það væri fyrsta ríkið sem hefði
í raun [á ensku „de facto“] viður-
kennt sjálfstæði Litháens".
Tsjúrkín las útdrátt úr yfirlýsingu
sovéskra stjórnvalda sem afhent
var sendiherra íslands í Áloskvu
þar sem segir að sovésk stjórnvöld
muni ekki líða íhlutun annarra
ríkja í innanríkismálefni Sovéitríkj-
anna. í yfiriýsingunni er íslenska
ríkisstjórnin sökuð um „pólitíska
hlutdrægni sem samrýmist ekki
eðlilegum og þangað til nýlega vin-
samlegum samskiptum Islands og
Sovétríkjanna.“
í frétt Reuíei-s-fréttastofunnar
segir að íslensk yfirlýsing sem af-
hent hafi verið í Vilnius, höfuðborg
Litháens, um síðustu helgi segi að
heimsókn ísienska utanríkisráð-
herrans til Litháens hafi í raun
jafngilt stjórnmálasambandi. í
íslensku yfirlýsingunni segi að
skipst hafi verið á skriflegum yfir-
lýsingum í þeim tilgangi að sam-
skiptin yrðu gerð formieg.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra og Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
sögðust í gærkvöld hafa heyrt af
mótmælum Sovétmanna en vildu
ekki tjá sig um þau fyrr en þeir
hefðu kynnt sér yfirlýsingu Sovét-
manna.
Bush Bandaríkjaforseti:
„Sovétmenn taka aldrei
upp alræðisstefnu á ný“
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að ástandið í Sovétríkjun-
uin væri mikið áhyggjuefni en spáði því að alræðisstefna yrði aldrei
tekin þar upp að nýju.
„Nei, ég tel að Sovétríkin verði
aldrei, hvað sem kann að gerast, að
því alræðisríki og lokaða þjóðfélagi
sem þau voru á tímum kalda
stríðsins," sagði Bush þegar hann
var spurður á blaðamannafundi í
Hvíta húsinu hvort tími umbóta
væri liðinn í Sovétríkjunum.
Hann sagði að Gorbatsjov a'tti
„við gífurleg vandamál að stríða
heima fyfir“ en hann sæti þó enn
við stjórnvölinn í Moskvu. „Hann er
forsetinn og ég er forseti þessa lands
og Bandaríkjastjórn mun eiga sam-
vinnu við sovésk stjórnvöld," sagði
•hann. Hann bætti við að ekki mætti
skilja orð sín þannig að hann hefði
snúið baki við Eystrasaltsþjóðunum.