Morgunblaðið - 06.02.1991, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.02.1991, Qupperneq 2
V€IM aa'í UöAC KIAJK OM MOKUKNHi.AÐIf) Mli)VIKl;l)A(U'K 6. -FEBRÚAR 1991 Alfundur í New York: Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Dæturnar í góðu yfirlæti á Selfossi, Hrönn 15 ára með Gróu Rán 4ra mánaða, Halla 2ja ára, Dröfn 10 ára og Bára 15 ára með Viktoríu 4ra mánaða. Börn á flótta undan óveðrinu: Mikill léttir þegar stelp- urnar voru komnar í skjól Selfossi. „ÞAÐ var mjög óhugnanleg tilfinning þegar plöturnar fóru að beij- ast um og fjúka af þakinu. Mér fannst verst að vera með allar stelp- urnar hér og einn gest að auki,“ sagði Asthildur Skjaldardóttir húsfreyja í Seljatungu í Gaulverjabæjarhreppi. Hún og maður henn- ar Birgir Aðalsteinsson náðu að flytja börnin til skyldfólks á Sel- fossi áður en veðrið varð alverst á sunnudaginn. Veðrið reif upp skyggnið fyrir plötu náði Birgir að negla niður ofan útidyrnar á bænum á sunnu- dagsmorguninn og þá slóst járn- plata látlaust í rafmagnsinntakið í húsið og af næstu bæjum var engu líkara en kviknað væri í húsinu svo voru eldglæringarnar miklar. Þessa og þegar birti sást að braggi rétt hjáJiafði splundrast. Um það leyti sem vindáttin sner- ist komu tveir menn á fólksbíl frá Selfossi og sóttu 6 dætur þeirra hjóna og eina stúlku til viðbótar sem var gestkomandi. Skömmu eftir að börnin voru farin með bílnum sáu þau hjónin hvar fjárhús- ið vestan við bæinn tættist í sund- ur og brak úr því þeyttist, yfir veg- inn að bænum. „Það fór mjög um mig að vera með litlu stelpurnar hérna á meðan þetta gekk yfir og manni létti heil- mikið þegar þær voru komnar í skjól á Selfossi,“ sagði Ásthildur. Sig. Jóns. Viðræður um orku- sölusamning í dag PAUL Drack aðalforstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alu- max, segir helsta áhyggjuefnið hvað varðar álviðræðurnar milli Islendinga og Atlantsáls vera óvissuna um fjármögnun og það hversu stofnkostnaður nýs ál- vers hér á landi verði mikill. „Áhugi okkar á verkefninu er óbreyttur, en við eigum í erfið- leikum á þessari stundu að koma Prófkjör Alþýðuflokks: • • Ossur í 3. sæti er helm- ingur hafði verið talinn ÞEGAR búið var að telja 1385 atkvæði af um 2500 atkvæðum í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjavík á miðnætti var Jón Baldvin Hannibalsson í fyrsta sæti með 1115 atkvæði, Jóhanna Sigurðardóttir í öðru sæti með 1251 atkvæði og Össur Skarp- héðinsson í þriðja sæti með 513 atkvæði. Kjörstað í Ármúlaskóla var lok- að kl. 23 í gærkvöldi eftir að próf- kjörinu hafði verið framlengt vegna fárviðrisins um helgina. Þegar 1380 atkvæði höfðu verið talin var Magnús Jónsson í íjórða sæti með 476 atkvæði, Valgerður Gunnarsdóttir í 5. sæti með 712 atkvæði, Ragnheiður Davíðsdóttir í 6. sæti með 836 atkvæði. í 7. sæti var Helgi Daníeísson með 462 atkvæði. Næstir að atkvæðamagni voru Birgir Ámason, Gunnar Ingi Gunnarsson og Guðmundur Har- aldsson. Þröstur Ólafsson hafði fengið 425 atkvæði í fjórða sæti. Um 180 atkvæði voru ógild af því sem talið stofnkostnaðinum niður í það sem ásættanlegt getur talist," sagði Drack í samtali við Morg- unblaðið í gær. Fundur orkuviðræðunefndar Landsvirkjunar og fulltrúa Atl- antsálsfyrirtækjanna um orku- samninginn verður haldinn í New York í Bandaríkjunum í dag. Dr. Jóhannes Nordal, formaður nefnd- arinnar sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að hann vonaðist til þess að vel miðaði áfram á fundin- um. Drack sagði að hann væri að eðlisfari bjartsýnismaður. „Við verðum samt sem áður að vera raunsæ og viðurkenna að við eig- um við ákveðin vandamál að glíma,“ sagði Drack. „Við munum ræða um orkumál- in á breiðum grundvelli á morgun og væntanlega eitthvað á fimmtu- dag. Vonandi ljúkum við sem mestu á morgun,“ sagði Jóhannes. Hann sagði að fyrir hönd Atlants- álshópsins yrðu aðallega fulltrúar frá bandaríska álfyrirtækinu Alu- max, en þeir hefðu einkum verið fyrir hönd fyrirtækjanna þriggja í samningum um orkumálin. „Ég get í sjálfu sér ekkert um það sagt hvort einhveijum áfanga verður lokið á þessum fundi. Það fer bara eftir aðstæðum. Það er alveg ljóst að ekki verður hægt að ljúka öllu, því enn þurfum við að bíða eftir ýmsum niðurstöðum í sambandi við fjármálin. Þau eru í einskonar biðstöðu, vegna ástandsins í heiminum,“ sagði Jó- hannes Nordal. Flugtak og Arnarflug iiman- lands sameinuð í Islandsflugi Gunnar Þorvaldsson o g Ömar Bene- diktsson keyptu hlut fyrri eigenda Arnarflugs innanlands um helgina í GÆR var skrifað undir sameiningu Arnarflugs innanlands hf. og Flugtaks hf. og stofnað nýtt flugfélag um reksturinn, Islandsflug hf., sem mun annast rekstur áætlunar- og leiguflugs. Heildarhlutafé verð- ur rúmar 50 milljónir króna hafði verið. Sjálfstæðisflokkur- inn á Reykjanesi: Listinn sam- þykktur án mótatkvæða KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis- flokksins á Reykjanesi sam- þykkti tillögu kjörnefndar að framboðslista og samkvæmt nið- urstöðum prófkjörs hvað varðar sex fyrstu sætiná fundi í gær- kvöldi án mótatkvæða. Umræð- ur urðu nokkrar um listann en engar aðrar tillögur voru born- ar fram um skipan hans. I 1. sæti er Ólafur G. Einarsson, 2. sæti Salóme Þorkelsdóttir, 3. sæti Árni M. Mathiesen, 4. sæti Árni Ragnar Ámason, 5. sæti Sigríður A. Þórðardóttir, 6. sæti María E. Yngvadóttir, 7. sæti dr. Gunnar I. Birgisson, 8. sæti Viktor B. Kjartansson, 9. sæti Kolbrún Jónsdðttir, 10. sæti Lovísa Christ- iansen, 11. sæti Sigurður Helga- son, 12. sæti Pétur Stefánsson, 13. sæti Sigurður Valur Ásbjarnarson, 14. sæti Guðrún Stella Gissurar- dóttir, 15. sæti Ingvar Á. Guð- mundsson, 16. sæti Guðmar E. Magnússon, 17. sæti Hulda Matt- híasdóttir, 18. sæti Þengill Odds- son, 19. sæti Halia Halldórsdóttir, 20. sæti Ragnheiður Clausen, 21. sæti Eðvarð Júlíusson og 22. sæti Matthías Á. Mathiesen. Sameininguna bar skjótt að en um síðustu helgi keyptu Gunnar Þor- valdsson, flugstjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Arnarflugi, og Ómar Benediktsson, einn eigenda ferðaskrifstofunnar Island tours í Þýskalandi, 80% hlutafjár í Arnar- flugi innanlands en hlutur starfs- /nanna var 20%. Keyptu þeir út fyrri eigendur sem voru Hörður Einars- son, Sveinn R. Eyjólfsson, Jóhann G. Bergþórsson, Gísli Friðjónsson og Óttar Yngvason, en þeir keyptu fyrir- tækið af Arnarflugi hf. í febrúar á síðasta ári. Eigendur íslandsflugs hf. eftir sameininguna eru Höldur hf. á Akur- eyri, sem hefur rekið Flugtak hf. um nokkurra ára skeið, Ómar Benedikts- son, Gunnar Þorvaldsson auk nokk- urra starfsmanna gömlu félaganna. Skiptist eignarhlutdeild jafnt á milli eigenda Arnarflugs innanlands og Flugtaks. Gunnar Þorvaldsson er stjómar- formaður íslandsflugs, en_ með hon- um í stjórn eru Birgir Ágústsson, einn eigenda Hölds, og Gísli Baldur Garðarsson hæstaréttarlögmaður. Ómar Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins. Sagðist hann í samtali við Morg- unblaðið reikna með að taka til starfa innan tíðar en hann hefur að undan- fömu rekið ferðaskrifstofuna Islands tours í Þýskalandi, sem hann á í fé- lagi við Skúla Þorvaldsson og Böðvar Valgeirsson. Gunnar Þorvaldsson stofnaði fyrir skömmu flugfélagið Evrópuflug ásamt Birki Baldvins- syni. Flugfloti íslandsflugs saman- stendur af 11 vélum, þar af 5 kennsluflugvélum. Flugtak hefur verið í leigu- og kennslufiugi en Am- arflug innanlands er með áætlunar- leyfi til 9 viðkomustaða innanlands. Nýverið bættist fullkomin skrúfuþota af gerðinni Beechcraft super Kingair 200 í flugflota Flugtaks. Er hún búin fullkomnum siglingatækjum sem m.a. geta nýtt gervitungl við staðsetningu. Sagði Omar í gær að aðstaða og vélar fyrirtækjanna yrðu samnýttar í rekstrinum og kannað yrði hvort ástæða væri til að breyta eða bæta áætlunarflugið með tilliti til hags- muna íbúa á áætlunarstöðunum. Sagði hann enn óráðið hvort íslands- flug myndi sækja um áætlunarleyfi tjj fleiri staða þegar öll sérleyfí á leiðum, þar sem árlegur farþegafjöldi er yfír 12 þúsund, rennur út um ára- mótin. Ómar sagði ennfremur að ekki væri áformað að sinni að kaupa fleiri vélar. „Við munum sjá til hvemig þetta reynist og taka ákvörðun með tilliti til stöðunnar næsta haust,“ sagði hann. Ómar sagði að starfsmenn ís- landsflugs yrðu fyrst í stað rúmlega tuttugu talsins og sagði óvíst hvort þyrfti að grípa til einhverra uppsagna í kjölfar sameiningarinnar. Morgunblaðið/KGA Frá undirritun samnings um sameiningu Arnarflugs innanlands hf. og Flugtaks hf. í gær. F.v.: Ellert Eggertsson, tæknisljóri hjá Arnar- flugi og fulltrúi starfsmanna, Gunnar Þorvaldsson, stjórnarformað- ur, Ómar Benediktsson, framkvæmdasljóri, og eigendur Hölds hf., Vilhelm og Birgir Ágústssynir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.