Morgunblaðið - 06.02.1991, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FBBRÖAR Í991
Greinargerð Ríkisendurskoðunar til forseta Alþingis:
Fullyrðingum og ásökunum
fjármálaráðherra vísað á bug
Harma trúnaðarbrot fulltrúa fjármálaráðherra í stjórn Atvinnutryggingasjóðs
Borgarholt II, 2. áfangi:
Tilboði Hag-
virkis tekið
SAMÞYKKT hefur verið að taka
tilboði Hagvirkis hf. í gatnagerð
og lagnir í Borgarholti II, 2.
áfanga. Tilboð Hagvirkis var
lægst, 47,5 milljónir króna, sem
er 88,8% af kostnaðaráætlun.
Um er að ræða gatnagerð, lagn-
ingu holræsa, hitaveitu og raflagna,
ásamt jarðvinnu vegna vatnslagna í
nýtt íbúðarhverfi i Grafarvogi.
VEÐUR
RÍKISENDURSKOÐUN vísar fullyrðingum fjármálaráðherra um ann-
arleg sjónarmið stofnunarinnar við gerð skýrslu um söluna á Þor-
móði ramma algerlega á bug. Stofnunin skilaði forsetum Alþingis
greinargerð í gær þar sem gagnrýni ráðherra á skýrslugerð Ríkisend-
urskoðunar er svarað Iið fyrir lið. Segir þar að stofnuninni sé full-
Ijóst að mat á verðmæti hlutabréfa í Þormóði ramma sé mjög við-
kvæmt og vandasamt verkefni. „Stofnunin telur sig hafa sinnt þessu
verkefni sem og öðrum slíkum á faglegan og heiðarlegan hátt,“ segir
í greinargerðinni.
Er því háfnað með öllu að Atvinn-
utryggingasjóður hafí pantað og
fengið sérstaka skýrslu um Þormóð
ramma hf. frá Ríkisendurskoðun í
byrjun síðasta árs. Engin slík skýrsla
hafi verið gerð um rekstrarhæfni
Þormóðs ramma, né annarra fyrir-
tækja, heldur greiðsluáætlanir í
tengslum við skýrslu til Alþingis um
Atvinnutryggingasj óð.
Ríkisendurskoðun bendir á í
greinargerðinni að henni beri sam-
kvæmt lögum að fylgjast með starf-
semi Atvinnutryggingasjóðs og gefa
Alþingi reglulega skýrslu um starf-
semi hans.
Segist stofnunin hafa látið gera
mat á rekstrarhæfni Þormóðs
ramma í tengslum við gerð skýrslu
um Atvinnutryggingasjóð, sem sé í
góðu samræmi við matið í skýrsl-
unni um sölu hlutabréfanna. „Sú
ályktun fjármálaráðherra að mat
stofnunarinnar á rekstrarhæfni Þor-
VEÐURHORFUR I DAG, 6. FEBRUAR
YFIRLIT í GÆR: Yfir Skandinavíu er 1055 mb hæð og hægfara
lægð á Grænlandshafí en smálægðir fara allhratt norður yfir vestan-
vert landið eða rétt fyrir vestan það.
SPÁ: Sunnan- og suðaustan 7-9 vindstig víðast hvar á landinu.
Víðast þurrt á Norðurlandi en rigning í öðrum landshlutum. Hiti
3-11 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG:Suðlæg átt og hlýtt í
veðri. Rigning um sunnanvert landið en að mestu þurrt nyrðra.
y. Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10' Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|* Skafrenningur
Þrumuveður
xn VEBUR Vl'ÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitS veður Akureyri 9 skýjað Reykjavik 7 rignigogsúld
Bergen 1 léttskýjað
Helsinkl komsnjór
Kaupmannahöfn 0 snjókoma
Narssarssuaq +23 léttskýjað
Nuuk +14 skýjað
Osló +5 iéttskýjað
Stokkhólmur +2 skýjað
Þdrshöfn S skýjað
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam 1 léttskýjað
Barcelona 9 þokumóða
Berlín +5 snjókoma
Chicago vantar
Feneyjar 1 skýjað
Frankfurt +1 léttskýjað
Glasgow 2 mlstur
Hamborg 1 snjókoma
Las Palmas 19 léttskýjað
London 2 skýjað
LosAngeles 12 skýjað
Lúxemborg *3 skýjað
Madrid 8 hálfskýjað
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Montreal 3 skýjað
NewYork 10 hálfskýjað
Orlando vantar
París +1 heiðskírt
Róm vantar
Vln +8 skýjað
Washlngton vantar
Winnipeg +3 þokumóða
móðs ramma hf. í upphafi árs 1990
stangist á við rekstrarhæfni félags-
ins í dag virðist byggjast á vinnu-
gögnum Ríkisendurskoðunar, sem
hvorki eru notuð né á nokkum hátt
lögð til grundvallar í skýrslu stofn-
unarinnar um Atvinnutrygginga-
sjóð,“ segir í svari Ríkisendurskoð-
unar.
Trúnaðarbrot
Sakar Ríkisendurskoðun Jóhann
Antonsson, fulltrúa fjármálaráð-
herra í stjórn Atvinnutrygginga-
sjóðs, um trúnaðarbrot þar sem
greiðsluáætlanir þær sem fjármála-
ráðherra birti með gagnrýni sinni
fylgdu minnisblaði frá honum.
„Ríkisendurskoðun harmar að
fyrram stjómarmaður Atvinnu-
tryggingasjóðs útflutningsgreina
skuli hafa brotið þann trúnað, sem
telja verður sjálfsagt að stjómendur
opinberra sjóða sýni. Ríkisendur-
skoðun er ekki kunnugt um með
hvaða hætti Jóhann Antonsson
komst yfir þau gögn, sem fylgdu
minnisblaði hans til fjármálaráð-
herra,“ segir í greinargerð Ríkisend-
urskoðunar.
Eðlileg arðseraiskrafa
Þá hafnar Ríkisendurskoðun
þeirri fullyrðingu ráðherra að mat
hennar á framlegð Þormóðs ramma
hafi verið byggt á meðaltali rúmlega
50 fyrirtækja með blandaðan rekst-
ur. Er því einnig haldið fram að
arðsemiskrafa stofnunarinnar, sé
síst of lág með tilliti til rekstrarskil-
yrða sem Þormóður rammi býr við.
Álit verðbréfasala
Fram kemur að Ríkisendurskoðun
óskaði eftir því við ráðuneytið að
það legði fram niðurstöðu ónefnds
verðbréfafyrirtækis sem ráðherra
hefur vitnað til um að Þormóður
rammi hafi verið verðlaus sl. sumar.
í svarbréfi Magnúsar Péturssonar,
ráðuneytisstjóra, kemur fram að um
óformlegt mat Sigurðar B. Stefáns-
sonar, framkvæmdastjóra Verðbréf-
amarkaðar íslandsbanka, var að
ræða og að hann hafí lýst sig reiðu-
búinn til viðræðu við Ríkisendur-
skoðun, sé þess óskað.
Ríkisendurskoðun lætur einnig
greinargerð Ólafs Nílssonar, endur-
skoðanda, til fjármálaráðherra, sem
byggt var á við sölu Þormóðs ramma
í desember, fylgja með greinargerð
sinni til þingsins, en ráðuneytið hef-
ur ekki viljað opinbera þá álitsgerð.
Jóhann Antonsson:
Ekki fótur fyr-
ir ásökununum
JQHANN Antonsson, viðskiptafræðingur og sljómarmaður í Atvinnu-
tryggingarsjóði útflutningsgreina 1988-1990, hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem hann vísar ásökunum um trúnaðarbrest á bug. I yfirlýs-
ingunni segir Jóhann: „Eg mótmæli hér með brigslum í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um að ég hafi brotið trúnað sem stjórnarmaður opin-
bers sjóðs. Enginn fótur er fyrir þessum ásökunum i skýrslunni. Þær
hæfa engan veginn þeirri virðingu sem ætlast er til af Ríkisendurskoð-
un sem faglegri opinberri eftirlitsstofnun."
Jóhann segist hafa verið tilnefnd-
ur af fjármálaráðherra við skipun
stjórnar Atvinnutryggingarsjóðs og
hann hafí því verið fulltrúi ráðherr-
ans í stjórn sjóðsins. Fjármálaráð-
herra hafí jafnframt farið með meiri-
hlutaeign ríkisins í Þormóði ramma
hf.
Síðan segir Jóhann í yfirlýsing-
unni: „Minnisblað mitt til fjármála-
ráðherra frá 25. janúar sl. virðist
vera grundvöllur þeirra ásakána sem
fram koma í greinargerð Ríkisendur-
skoðunar. í minnisblaðinu var rakið
hvernig Ríkisendurskoðun mat stöðu
Þormóðs ramma fyrir tæpu ári í
tengslum við skýrslu sína um At-
vinnutryggingarsjóð útflutnings-
greina. Eg fæ ekki séð á hveijum
trúnaður er brotinn í þessu minnis-
blaði, og síst af öllu er hægt að saka
mig um að hafa brotið trúnað varð-
andi gögn sem sjóðnum höfðu borist
frá umsækjendum. Um var að ræða
álit Ríkisendurskoðunar á rekstrar-
hæfí fyrirtækis í meirihlutaeign rík-
issjóðs og þvi undir forræði fjármála-
ráðherra. Það er fullkomlega út í
hött að gögn um það fyrirtæki geti
verið trúnaðarmál gagnvart fjár-
málaráðherra.
Þá er rétt að vekja athygli á því
að þegar minnisblaðið var sent vora
tölurnar úr reikningum Þormóðs
ramma þegar í opinberri umræðu,
meðal annars vegna nýútkominnar
skýrslu Ríkisendurskoðunar um mál-
efni fyrirtækisins.“
í yfirlýsingunni segir að forráða-
mönnum Atvinnutryggingarsjóðs
hafi ekki verið kynnt nema ein út-
gáfa af bakgögnum Ríkisendurskoð-
unar um einstök fyrirtæki. Þar hafi
ýmsum traustum fyrirtækjum, sem
höfðu fengið fyrirgreiðslu frá At-
vinnutryggingarsjóði, verið spáð
gjaldþroti, þar á meðal Þormóði
ramma. Forráðamönnum sjóðsins
hafi því verið ókunnugt um að Ríkis-
endurskoðun skipti um skoðun um
rekstrarhæfi Þormóðs ramma eða
annarra fyrirtækja þar til í gær að
greinargerð Ríkisendurskoðunar
kom út.
Sjálfstæðisflokkur-
inn;
Landsfund-
ur í mars
LANDSFUNDUR Sjálfstæðis-
flokksins verður haldinn í
Laugardalshöllinni 7.-10.
mars og má búast við að 1.300
til 1.400 fulltrúar sæki fund-
inn.
Miðstjórn og þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins beinir þeim
tilmælum til flokkssamtaka og
félaga að ljúka kosningu lands-
fundarfulltrúa eigi síðar en 10.
febrúar, að því er fram kemur
í fréttabréfi flokksins.
Málefnanefndir flokksins eru
þessa dagana að leggja síðustu
hönd á drög að ályktunum
landsfundarins. Auk þess vinnur
sérstök nefnd að undirbúningi
stjórnmálaályktunar landsfund-
arins sem jafnframt verður
kosningayfirlýsing Sjálfstæðis-
flokksins.