Morgunblaðið - 12.02.1991, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.02.1991, Qupperneq 1
56 SIÐUR B ortjiuililaöiíi STOFNAÐ 1913 35. tbl. 79. árg. ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins írakar sagðir reiðubúnir að íhuga áskorun um vopnahlé án skilyrða: Bush gefur til kynna að bið verði á landhemaði Loftárásir lama bardagagetu framvarðasveita Iraka Um 4.000 sovéskir harðlínumenn komu saman fyrir framan Vetrarhöllina í Leníngrað á sunnudag og lýstu stuðningi við íraka í Persaflóastríðinu. Báru þeir spjöld þar sem hörðum orðum var farið um Banda- ríkin og George Bush for- seta. Washington, Nikósíu, London, Riyadh. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði eftir að hafa ráðfært sig við Dick Cheney varnarmálaráðherra og Colin Powell herráðsforingja í gærkvöldi að bandamönnum lægi ekki á að hefja landhernað gegn Irökum og yrði loftárásum á hernaðarleg skotmörk i Irak og Kú- veit haldið áfram enn um sinn. Yfirmenn herja bandamanna sögðu í gær að sýnt væri að loftárásirnar hefðu komið mikilli ringulreið á framvarðasveitir Iraka og hefðu þær lamað bardagagetu sumra þeirra meira en 40% vegna eyðileggingar hergagna. Virtust Irakar reyna að endurskipuleggja sveitirnar og mynda bardagahæf her- fylki úr tvístruðum. Talsmenn fjölþjóðahersins skýrðu frá því í gær að lofthernaður gegn Irökum hefði verið aukinn stórum í gær, eink- um árásir gegn lýðveldisverðinum, og flugher þeirra hefði að mestu verið eytt. Hemaðarsérfræðingar töldu ólík- legt að tekin hefði verið ákvörðun um það í gær hvort eða hvenær landhernum yrði beitt. Eftir fundinn með Cheney og Powell forðaðist Bush að gefa til kynna hvenær land- hernaður hæfist en gaf til kynna að á því yrði bið. Sagði hann ítrek- Ovíst hvort Sovétmenn geti stað- ið í skilum Washington. Reuter. LÍKLEGT er að Sovétstjórnin muni eiga í erfiðleikum með að standa við fjárhagslegar skuldbindingar sínar erlendis á þessu ári, að sögn banda- rískra embættismanna. Helsta gjaldeyrislind landsins hefur í mörg ár verið olíusala. Heimildarmenn segja að framleiðslan, sem er sú mesta í heimi, fari nú minnkandi og Sovétmenn geti ekki einu sinni uppfyllt samninga. Ýmsar ástæður eru fyrir vandanum í olíuvinnslunni, m.a. lélegur tækjakostur og skortur á hátæknibúnaði. Auðugustu lindirnar eru í Síberíu, sam- göngukerfí landsins er úr sér gengið og á þetta sinn þátt í áfallinu. Olíuverð á heimsmark- aði hækkaði fyrst eftir að Persa- flóadeilan hófst í ágúst á sl. ári. en hefur fallið aftur. Sovésk stjórnvöld byijuðu að fá frest á afborgunum á síðasta ári og talið er að alls verði 7-10 milljarðar Bandaríkjadollara komnir í vanskil á þessu ári. Sumir evrópskir bankar neita nú að veita Sovétmönnum frek- ari lán nema stjórnvöld í heima- löndum bankanna gangist í ábyrgð fyrir þeim. Bandarískur embættismaður sagði erlendar fjárfestingar fara minnkandi. Dick Cheney, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í síðustu viku að efnahagur Sov- étríkjanna væri að hrynja. „Það er aðeins hægt að velta því fyr- ir sér hve langan tíma það taki,“ sagði ráðherrann. að að loftárásir hefðu borið mikinn árangur til þessa og hefði manntjón orðið mun minna en fyrirfram hefði verið búist við. Skotmörk hefðu verið valin sérstaklega með tilliti til þess að óbreyttir borgarar yrðu fyrir sem minnstum skakkaföllum. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti gagnrýndi loftárásirnar á Irak um helgina og sagði þær umfangsmeiri en samþykktir Sameinuðu þjóðanna gerðu ráð fyrir. Jevgeníj Prímakov, sérlegur sendimaður Gorbatsjovs, var sagður hafa komið í gær til Bagdad þar sem ráðgert er að hann ræði við Saddam Hussein íraksfor- seta. Saadoun Hammadi aðstoðarfor- sætisráðherra íraks, sagði í Túnis í gærkvöldi að írakar væru reiðu- búnir að grandskoða áskorun um vopnghlé án skilyrða kæmi hún fram. Fyrr um daginn hafði hann sagt í Líbýu að írakar hefðu valið þann kost að veija málstað sinn með því að beijast við bandamenn. | gær sagði útvarpið í Bagdad að írakar myndu aldrei fallast á vopna- hlé og skoraði það á araba að rísa upp gegn íjölþjóðahernum. ítrekaði stöðin þar með yfirlýsingar Sadd- ams forseta frá því á sunnudag. írakar skutu sitt hvorri Scud-eld- flauginni á ísrael og Saudi-Arabíu í gærkvöldi. Patriot-flugskeyti grandaði flaug yfir Riyadh en hin lenti ijarri byggð í ísrael. Banda- menn sögðust hafa eyðilagt fjóra Scud-skotpalla í írak á sunnudag og aðfaranótt mánudags. Ali Akbar Hashemi Rafsanjani forseti írans hlaut góðar viðtökur hjá hálfri milljón manna á útifundi í Teheran í gær er hann lýsti hlut- leysisstefnu Irana í Persaflóastríð- inu og sagði innrásina í Kúveit ólög- lega. Þijú hundruð afganskir muja- hideen-skæruliðar gengu til liðs við bandamenn í gær og sagði yfirmað- ur í her Saudi-Arabíu að þeir myndu styrkja herina vegna reynslu þeirra af bardögum við Sovétmenn í Afg- anistan. Sjá fréttir bls. 22-23. Reuter Mikil þátttaka í kosningum í Litháen; Útkoman sýnir eindreginn vilja til að verja sjálfstæðið - segir í ályktun þingsins í Vilnius sem krefst inngöngu í samfélag fullvalda ríkja Moskvu. Washington. Reuter. SAMKVÆMT opinberum niðurstöðum úr atkvæðagreiðslu í Litháen á laugardag voru 90,47% kjósenda fylgjandi því að landið yrði sjálfstætt lýðveldi með lýðræðissljórn- skipulagi. Þing Litháens samþykkti í gær samhljóða ályktun þar sem segir að kosning- in feli í sér „raunverulega ákvörðun þjóðar- innar um að stofna lýðræðislegt, borgara- legt þjóðfélag" og hún sýni eindreginn vilja til að veija og styrkja sjálfstæðið. Jafnframt er skorað á önnur ríki heims að taka upp stjórnmálasamband við Litháen og tilkynnt- ur sá ásetningur Litháa að taka fullan þátt í alþjóðastofnunum og samtökum eins og Sameinuðu þjóðunum. Vytautas Landsberg- is forseti túlkaði niðurstöðu kosninganna svo að hún yrði meginvopn Litháens í sljórn- málabaráttunni fyrir sjálfstæði. Vylautas Landsbergis, forseti Litháens, og eigin- kona hans á kjörstað. Kjörsókn var meiri en stjórnvöld í Vilnius höfðu þorað að vona. Um það bil 2.650.000 manns greiddu atkvæði eða 84% kjósenda. Til þess var tekið að jafnvel þegar þeir sem heima sátu eru teknir með í reikn- inginn er útkoman sú að 76,4% allra sem voru á kjörskrá svöruðu spurn- ingunni á atkvæðaseðlinum játandi. Fylgi við sjálfstæði reyndist ekki einungis mikið meðal Litháa sjálfra, sem eru 80% íbúa landsins. Jafnvel í héruðum þar sem menn af pólsk- um og .rússneskum uppruna eru fjölmennir var meirihluti fylgjandi sjálfstæði. Þing Litháens samþykkti þings- ályktun í tveimur liðum í gær. í fyrsta lagi verður 1. grein stjórnar- skrár Litháens, sem nú er í smíðum, samhljóða niðurstöðu atkvæða- greiðslunnar, þ.e. landið verður þar lýst sjálfstætt lýðveldi með lýðræð- isstjórnskipulagi. í öðru lagi er skorað á heimsbyggðina að bjóða Litháa velkomna í samfélag sjálf- stæðra ríkja með því að taka upp stjórnmálasamband við þá. Anatólí Denísov, þingmaður í Æðsta ráði Sovétríkjanna, ávarpaði mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf í gær og sagði að Sovétstjórnin vildi leysa deiluna við Eystrasaltsríkin með friðsamlegum hætti. Verið væri að kalla herlið heim frá lýðveldunum þremur og samningsgrundvöllur væri að skap- ast. Hann fullyrti að sovéski herinn hefði hvergi komið nærri ofbeldis- aðgerðunum í Riga í Lettlandi í fyrri mánuði. Svíar og Norðmenn eru í fararbroddi þeirra þjóða sem hafa krafist þess að mannréttinda- nefndin láti atburðina í Riga og Vilnius til sín taka'. Margaret Tutwiler, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, fagnaði kosningunum í gær og sagði að litháíska þjóðin hefði með þeim neytt réttar síns til að láta vilja sinn í ljós. Hún vakti einnig athygli á því að sovéski herinn hefði látið kosningarnar óáreittar þrátt fyrir að Míkhaíl Gorbatsjov Sovét- forseti hefði lýst þær ólöglegar. „Við vonum að niðurstaða slíkrar atkvæðagreiðslu hafi áhrif á kom- andi samningaviðræður milli Sovét- stjórnarinnar og stjórnvalda í Viln- ius,“ sagði Tutwiler.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.